Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 5 Verödæmí: Targa bíltæki frá Targa Digital-bíltæki frá Targa geislaspilarar frá Urban geislaspilarar frá Targa hátalarar frá Targa 100W hátalarar frá Targa 3way hátaiarar frá Targa 220W hátalarar frá Targa Box Sobwoofer frá UlllVíhVl! TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA RADCREIDSLUR TIL 34 MÁnJAOA Póstburöargjöld hækka um 15 prósent: Ástæðan er tap á rekstri póstþjónustunnar - segir aðstoðarpóst- og símamálastjóri „Sú breyting sem átti sér stað í vor er þríþætt. Við lækkuðum lang- línutaxtana og símtöl til útlanda en gjöldin fyrir póstþjónustu voru hækkuð. Sú hækkun á að gefa Pósti og síma 295 milljónir króna á ári. Lækkunin á símagjöldunum er talin minnka tekjurnar um jafn háa upp- hæð. Ástæðumar fyrir því að við erum að færa þetta svona til eru þær að það er góður hagnaður af símaþjónustunni. Sá hagnaður hef- ur verið notaður til að greiða niður tap á póstþjónustunni sem hefur verið verulegt. Það hefur þótt óeðli- legt. Þess vegna töldum við eðlilegt að hækka póstburðargjöld til að færa gjöldin og tekjurnar nær hvort öðru,“ sagði Guðmundur Bjömsson, aðstoðarpóst- og símamálastjóri i samtali við DV. Það eru margir undrandi á að póstburðargjöld skuli hækka um 15 prósent á sama tíma og verðbólga í landinu er nánast engin og hefur verið mjög lítil síðustu 5 árin. „Gjaldskrá póstsins hefur ekkert hækkað í mörg ár. Gjald fyrir al- menna bréfið, sem er 75 prósent af póstmagninu, hefur ekki hækkað í fimm ár, eða frá því í október 1991. Og enda þótt verðbólgan sé lítil hef- ur framfærsluvísitalan þó hækkað um 10,2 prósent," segir Guðmundur. Hann var spurður hvort það væri réttlætanlegt að hækka verð á póst- burðargjöldum en lækka símagjöld- in, til að jafna tekjur og gjöld. Um væri að ræða tvær óskyldar grein- ar, þótt þær væm undir sama hatti hvað stjórnun viðkemur? „Ég get í sjálfu sér tekið undir gagnrýni á þetta. Það er óeðlilegt að menn séu að millifæra peninga á þennan hátt. Það höfum við orðið að gera, það er að taka af hagnaði símaþjónustunnar til að greiða nið- ur tapið af póstinum. Það er hins vegar ekki hægt að reka póstþjón- ustuna til lengdar með miklum halla og því vom póstburðargjöldin hækkuð,“ sagði Guðmundur Bjöms- son. Hann sagði ástæðurnar fyrir tap- inu á póstþjónustunni vera nokkr- ar. Ein væri sú að í landinu væri mjög stórt net af póstútibúum og að það væri dýrt að dreifa pósti á Is- landi. Þá væri það staðreynd að póstþjónusta á íslandi hefði verið seld á lægra verði en gerðist í lönd- unum í kringum okkur. Hann sagði einnig að tilkoma símsenditækja og jafnvel póstur á Internetinu hefðu haft áhrif á rekstur póstsins en þó ekki jafn mikil og margir héldu. -S.dór SIMVAKINN sýnir og geymir símanúmer þess sem hringir hvort sem þú ert heima eða að heiman. Geymir allt að 120 rtúmer með dagsetningu og klukku. Verð kr. 4.490 stgr. 1 htei Síöumúla 37, 108 Reykjavík Sími 588 2800 - Fax 568 7447 mmmn ? en bílgræjurnar frá Bónus Radíó mælast á Ríchter... * ^ !■ . * Breytingar á » þjónustu SVR Vegna framkvæmdanna við Hverfisgötu, sem miða að því að gera hana að tvístefnuakstursgötu, geta strætisvagnar SVR ekki sinnt vegfarendum á svæðinu frá Hlemmi að Lækjartorgi. Á leið sinni vestur þurfa vagnarnir að aka Sæbraut eft- ir hádegi. Eftir breytingarnar færist þjónustan hins vegar nær verslun- um og annarri þjónustu. í nýju leiðakerfi SVR, sem tekur gildi 15. ágúst nk., er gert ráð fyrir að aka á 4-6 mínútna fresti í hvora átt milli Lækjartorgs og Hlemmtorgs um Hverfisgötu. Framkvæmdirnar, sem um er rætt í sambandi við Hverfisgötu, munu snerta leiðir 1, 2, 3, 4 og 5 því vagnar á þessum leiðum munu ekki geta ekið götuna frá því að fram- kvæmdirnar hefjast 23. júní. -sv Sala á Stone Free hafin Forsala aðgöngumiða á fyrstu sýningar leikritsins Stone Free, sem frumsýnt verður 12. júlí nk. í Borg- arleikhúsinu, er hafin. Ekki stóð til að hefja miðasöluna fyrr en í lok júní en vegna fjölmargra fyrir- spurna var tekin sú ákvörðun að hefja miðasölu nú þegar. Tekið hef- ur verið við pöntunum og er þegar búið að taka frá stóran hluta frum- sýningarmiða. Miðasalan var opnuð kl. 13 þann 18. júní og fyrstu 7 mín- úturnar seldust rúmlega 50 miðar. Mishermt var í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins 12. júní sl. að sýn- ingar á verkinu hæfust þá um kvöldið. Sú var ekki raunin enda heQast sýningar sem fyrr segir 12. júlí. -ggá nw U)íMliw iÁVl' æ ihMtd mmi Lwmmw&ii W f-1 —s Skipholti 19 Sími: 552 9800 Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886 AUK/Ð URVAL - BETRA VERÐ / 3.990)- 15.900, - 28.900, - 32.900, - 3.990,- 3.990,- 4.590,- 10.900,- 8.900,- SOUND SYSTEM TARGA GoldStcir SENC#R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.