Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 DV útlönd Major fagnar eftir aö samið var um aö aflétta banni á nautakjötsútflutning: Ekki annað en vopnahlé John Major, forsætisráðherra Breta, fagnaði sigri þegar fundur leiðtoga Evrópusambandsríkja á Flórens á Ítalíu samþykkti að aflétta útflutningsbanni á bresku nauta- kjöti í áfóngum. Bannið var sett á í mars vegna ótta um að kjöt úr naut- gripum sýktum af kúariðu gæti valdið viðlíka sjúkdómi hjá fólki sem neytti afurðanna. Major sagði að hörð afstaða sín hefði tryggt skjóta lausn málsins. Malkolm Rif- kind utanríkisráðherra tók þátt í sigurgleðinni og sagði að Bretar mundu hætta málþófi sínu i þeim tilgangi að tefja fyrir starfsemi Evr- ópusambandsins. En meðan Major fagnaði komust stuttar fréttir Norðmaður til Burma Norðmenn hafa sent fulltrúa sinn til Burma í þeim tilgangi að veita stjórnarandstöðufor- ingjanum Aung San Suu Kyi aðstoð og vernd. Deildu um ofbeldi John Bruton, forsætisráð- herra Ira, og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, deildu hart um ofbeldi írska lýðveldishers- ins meðan írska lögreglan rann- sakði verksmiðju sem framleitt hefur sprengjur fyrir skæru- hernað á Norður-írlandi. Hundsaði þingiö Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti, sem nú undirbýr sig af krafti fyrir aðra umferð forseta- kosninganna, hafnaði lagafrum- varpi þingsins um yfirfærslu valda forsetans. Frumvarpið var talið hættulegt og gefa möguleika á að tveir aðilar tækju sér völd forseta. Þrýst á Kínverja Greenpeace-samtökin fóru fram á við leiðtoga kjarnorku- velda heims að þeir beittu Kín- verja þrýstingi svo þeir hættu við tillögu um að bann við til- raunasprengingum yrði endur- skoðað eftir 10 ár. Kynþrælar mótmæltu Fyrrum kynþrælar japanska hersins í Kóreu mótmæltu við heimsókn japanska forsætisráð- herrans til Seoul. Gefa sig ekki Bandaríkjamenn segja útilok- að að þeir hætti við að vinna gegn endurkjöri Boutros Boutros-Ghali sem aðalritara Sameinuðu þjóðanna. Demókratar sigruðu Demókratar sigruðu í um- deildum þingkosningum í Al- baníu en stjórnarandstaðan boðar nýjar kosningar vegna ásakana um kosningasvindl. Reuter Erlendir markaðir: Bensínverð hefur lækkað Bensínverð hefur lækkað nokkuð undanfarna viku og er 95 oktana bensín nú komið niður í 199 dollara. 98 oktana bensín hækkaði talsvert í byrjun vikunnar, eða upp í 210 doll- ara, og er nú komið niður í 203 doll- ara. Verð á hráolíu hefur einnig lækkað litillega. Lífleg viðskipti hafa verið með hlutabréf í erlendum kauphöllum og hefur hlutabréfavísitalan í New York hækkað aðeins. Hlutabréfa- vísitalan í Lundúnum og Frankfurt hefur þó farið niður á við og svipað gildir í Tókýó og Hong Kong. Ekki hefur borist nýtt verð á kaffi og sykri. Reuter sérfræðingar Evrópusambandsins að þeirri niðurstöðu að einungis hefði verið samið um vopnahlé í löngu og ströngu striði sem alls ekki væri lokið. Einungis hafi verið samið um ramma til að vinna eftir þegar útflutningsbanninu yrði aflétt í áföngum. Eftir væru áralangar samningaviðræður, ágreiningur og hefðbundnar ESB-máiamiðlanir. Þannig var haft í flimtingum að at- kvæði Pólverja mundu skipta sköp- um þegar ákveðið yrði að aflétta banninu en ekki er búist við að þeir fái aðild að Evrópusambandinu fyrr en nokkru eftir aldamót. Gríðarleg vinna er framundan og lendur hún mestmegnis á Bretum. Þeir eiga eftir að sannfæra vísinda- menn, dýralækna og embættismenn ESB um að engin hætta stafi af breskum nautakjötsafurðum. Og ekki er búist við að tekið verði á John Major, forsætisráðherra Breta, er kampakátur og kveðst hafa unnið fullan sigur í kúaripudeilunni. breskum rökum með silkihönskum, ekki síst vegna málþófs þeirra þar sem þeir héldu starfi Evrópusam- bandsins í gíslingu vegna málsins. Göran Persson, forsætisráðherra Svía, sagði að slíkum hlutum yrði ekki gleymt og að Bretar mundu gjalda þessa afar dýru verði. Sérfræðingar segja að Evrópu- sambandslöndin munu fyrst mýkj- ast í afstöðu sinni til bresks nauta- kjöts eftir að öryggisráðstafanir Breta hafi verið grannskoðaðar, staðfestar og samþykktar af að minnsta kosti fjórum nefndum. Fyrst þá kæmi málið til samþykktar framkvæmdastjómarinnar. Meðan Major talaði um að fyrsti áfangi í að aflétta banninu yrði í haust sagði framkvæmdastjóri landbúnaðar- mála ESB að fyrsti áfangi þýddi ein- ungis að menn kæmu sér saman um drög að viðræðugrundvelli. Reuter Bill Clinton Bandaríkjaforseti réttir hér Cörlu McGhee, iandsliðskonu í körfubolta, ólympíueldinn við sérstaka athöfn sem fram fór við Hvíta húsið í gær. Þaðan var hlaupið með eldinn áleiðis til Atlanta. Við þetta tækifæri fór Clinton hörðum orðum um kirkjubrennur í suðurríkjunum undanfarnar vikur. Símamynd Reuter Leiötogar 13 arabaríkja funda í Egyptalandi uni helgina: Ætla að forðast allar hótanir í garð ísraela Þrettán leiðtogar arabaríkja komu til Egyptalands í gær og munu funda um friðarferlið fyrir botni Miðjarð- arhafs í dag og á morgun. Er þetta fyrsti fundur leiðtoganna í sex ár en þeir munu reyna að sætta ólík sjón- varmið sín í milli og þrýsta á nýja ríkisstjóm Israels að halda friðar- ferlinu áfram. Meðan hægrisinnaðir frammá- menn í ísrael kvörtuðu yfir hótunum í sinn garð sögðu leiðtogarnir, sem komu til fundarins, að þeir vildu ein- ungis að ísraelar virtu þegar gerða samninga, þar á meðal regluna „land fyrir frið“ sem lögð hefur verið til grundvallar friðarumleitununi síö- ustu fimm ára. Sú regla er í uppnámi eftir sigur hægriaflanna í ísraelsku þingkosningunum. Arabaleiðtogarnir undirstrikuðu að þeir mundu forðast hvers kyns hótanir í garð Israela á fundi sínum um helgina. Sögðust þeir vilja gefa Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels, tækifæri til að hverfa frá þeirri harðlinustefnu sem hann boðaði í kjölfar kosninganna fyrir þremur vikum. David Levi, utanríkisráðherra Israels, sem talinn er hófsamur í nýrri hægri stjórn, sagði að friði yrði ekki komið á með hótunum. Hann reyndi að mýkja stefnu Net- anyahus og gaf í skyn að komast mætti að samkomulagi um framtíð Gólanhæða. Sýrlendingar krefjast þess að ísraelar skili aftur öllu her- teknu landsvæði en Netanyahu hef- ur dregið til baka tilboð israela um að skila hluta landsvæðanna. Reuter Kauphallir og vöruverð erlendis bqi&iieebi FT-SE100 JSUU /\ 3800 1 3700J7 3600' 3727,5 M A M J -■ ~ ; ÖZO ■■■ 320 /fxi 315^ 310 305'9 306,3 M A M J DV Kosningabaráttan: Kynjastríð haf- ið á íslandi Reuter-fréttastofan segir frá 1 því í skeyti í gær aö eftir að i Vigdis Finnbogadóttir forseti 1 hafi snuprað þjóðina fyrir að [ hunsa kvenframbjóðendur hafi I kosningabaráttan á íslandi breyst í stríð milli kynjanna. Er vitnað til viðtals kvenna- blaðsins Veru við Vigdísi. Segir j að lítið fylgi við kvenframbjóð- j endurna í skoðanakönnunum hafi farið I taugarnar á forset- i anum en hún hafi verið fyrsta I konan í heiminum sem kjörin 1 var forseti. Segir M viðbrögð- ; um Péturs Kr. Hafsteins sem ' finnst ummæli Vigdísar ósann- gjöm og að þau gefi í skyn að | hún styðji Guðrúnu Agnars- dóttur. Ólafur Ragnar Gríms- son tjáði sig ekki við Reuter- fréttastofuna vegna málsins. Fjöldahandtökur við Stonehenge Tæplega 30 manns voru | handteknir í gærmorgun við I Stonehenge-steinminjarnar á | Englandi þegar þeir reyndu að I fara inn á svæðið til að fagna lengsta degi ársins. Fylgjendum trúarbragða frá því fyrir Krist hefur verið bannað að koma nærri steinminjunum frá því 1986 en þá var lýst yfir sex kíló- »j metra bannsvæði umhverfis minjamar á lengsta degi ársins. Flestir hinna handteknu vora 1 kærðir fyrir háreisti á al- j mannafæri og fíkniefnaneyslu. Bannsvæðið umhverfis minjarnar var samþykkt eftir árviss átök milli lögiæglu og ýmissa sértrúarhópa, þar á meðal Drúída, sem iðka trúar- brögð sem voru til staðar á Englandi fyrir kristni. 1985 voru hundruð handtekin við I minjarnar eftir hörð átök við lögreglu. Reuter | HREINSANIRIRUSSLANDI Borís Jeltsín forseti hefur rekið harðlínumenn úr starfsmannaliði Kremlar í kjölfar ráðningar Alexander Lebeds sem yfirmanns öryggismála Jeltsín þarfnaðist stuðnings Lebeds, sem varð í 3. sæti í tyrri umferð forseta- kosninganna, ivon um aðsigraí annarri umferð 3. júli. Þaretur hann kappi við kommúnistann Gennadi Zjúganov Pavel Gratsjev (48 ára) Varnarmálaráðherra Irá I maí 1992. Kom Jeltsín til hjálpar í valdaránstilraun kommúnista 1991 og í valdabaráttunni við þingiö 1993. Er hataöur vegna aðildar sinnar að blóöugum átökum í Tjetsjeníu. Hatast við Lebed. Fimm hershöfðingjar Lebed krafðist brottrekstrar fimm hershöfðingja sem hann segir hafa hvatt Gratsjev til að bejrast gegn brottrekstri sínum með því setja herinn í viðbragðsstöðu. Enginn brottrekstranna var gerður opinber. Alexander Korzhakov (46 ára) Lífvörður Jeltsíns og nánasti ráðgjafi frá 1985. Korshakov stóð með Jeltsín í bliðu og stríðu sem yfirmaður öryggisgaeslu forsetans og naut einstaks aðgangs að honum. Mikhaíl Barsukov (48 ára) Yfirmaður leyniþjónustu ríkisins frá í júlí 1995. Fjögurra stjörnu hershöfðingi sem eyddi öllum starfsferli sínum innan múra Kremlar. Oleg Soskovets (47 ára) Aðstoðarforsætisráðherra frá í april 1993. Teknókrati sem var ábyrgur fyrir rússneskum iðnaði og hergagnaframleiðslu. Aðrar ráðstafanir með tilkomu Lebeds: Oleg Lobov (49 ára) Ritari öryggisráðsins. Var vikið til hliðar í stöðu aðstoðarforsætisráðherra vegna ráöningar Lebeds. Gæti yfirtekið hlutverk Soskovets gagnvart iðnaðinum. Yuri Baturin (47 ára) Öryggisráðgjafi forsetans. Var einnig vikið til hliðar vegna ráðningar Lebeds. Gegnir áfram hlutverki ráðgjafa en ákveðið seinna á hvaða sviði það verður. REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.