Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 15 Stýrt eftir stjörnunum Það er ungri dóttur minni að þakka að ég var óvenju þjóðhátíðarlegur á sautjánd- anum. Sú dálitla varð 7 ára daginn áður og hafði hlakkað mjög til þess þroskadags. Svo bókstafleg var tilhlökkunin að hún missti aðra barna- tönnina í efri gómi að morgni afmælisdagsins. Ekkert er eins þroskandi á sjö ára af- mælisdaginn og að fórna barnatönn fyrir fullorðins- tönn. Stúlkan sú er að mínu mati afar falleg eins og hún á kyn til. Mér þótti bros hennar frítt með barnatönnum á sínum stað. Það merkilega ér að hún brosir líka fallega þótt það vanti framtönn. Böm á þess- um aldri hafa þennan merki- lega eiginleika. Fullorðnir geta ekki leyft sér slíkan munað og gera það sem betur fer fáir. Seinþroska á uppeldissviði Stúlkan var enn í afmælis- skapi að morgni þjóðhátíðar- dagsins og dreif foreldra sína með sér. Ég verð að játa þær syndir, þrátt fyrir að hafa komið fjórum börnum á legg með nokkurri aðstoð eigin- konunnar, að ég hef aldrei verið sterkur í skrúðgöngum. Móðirin hefur séð um þann þátt eins og svo marga sem ég hef komist hjá. Yngsta bamið tekur ekki mark á úrtölurödd- um fóðurins og vill í skrúð- göngu, fá fána og blöðra og allt tilheyrandi. Hún hefur gott lag á föður sínum og snýr hattur. Þá hefði ég getað lyft hattinum er ég mætti gömlum samstúdínum mínum. Leiktækjabið og freistingar Mannmergð var í miðbæn- um og fleiri þjóðhátíðarlegir að sjá en ég. Biðraðir við leik- tækin minntu helst á stóra skemmtigarða í Bandaríkjun- um þar sem biðtími mælist í klukkustundum. Barnið vildi í tækin og við biðum. Það ýrði aðeins úr lofti en ekki nóg til þess að ég gæti brugð- ið regnhlífinni á loft. Það þótti mér miður enda fátt þjóðhátíðarlegra. Ég þoldi biðina meðan stúlkan beið í hálftíma eftir að komast í uppblásinn hoppkastala en var orðinn nokkuð hrakinn á geði og gegnkaldur meðan ég beið nær klukkustund eftir að hún kæmist í einhvers konar teygjuhopp. Þegar loks kom að því varði sú skemmtun í 18 sekúndur. Við vorum búin að ganga fram og aftur um hátíðar- svæðið og það var kominn kuldahrollur í mig. Ég sá eft- ir að hafa ekki farið í frakka. Barnið vildi meira. Sölubás- arnir voru freistandi. Þar voru afgreidd brjóstsykur- snuð sem trauðla voru í barnsmunna. Stærðin á þess- um tólum virtist fremur henta kálfum. Móðirin keypti svart snuð. Það þarf ekkert að lýsa andliti og fingrum barns sem japlað hefur á þessu um hríð. Þar dugar ekkert annaö en þvottur að hætti Sofifiu honum eftir þörfum. Innra með sér hefur pabbinn raunar ekkert á móti þessu. Hann er seinþroska á uppeldissviðinu en það er ekki seinna vænna að drifa sig í skrúð- göngu. Skrúðgangan var þó ekki fyrr en eftir hádegið. Ég sá því fram á hvíldarstund en þær mæðgur voru ekki á því. Morgunstund gefur gull í mund að þeirra mati. Þær höfðu ákveðið að ná í langafa á elliheimilið og fara með hann á Austurvöll í morgunsárið. Þar var að vænta þjóðhátíðarávarps for- sætisráðherra og ekki má gleyma því að Vigdís forseti ætlaði aö leggja blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar, að vanda með að- stoð nýstúdenta. Minning um gamalt Sigtún Vigdís var þarna að sinna skyldu sinni í sextánda og síðasta sinn með aðstoð stúdentanna. Mér varð hugsað til þess að ég hef ekki nennt að gera mér sérstaka þjóð- hátíöarferð á Austurvöll frá því að ég fékk sjálfur hvítan koll fyrir margt löngu. Þá var Vigdís í allt öðru hlutverki sem frönskukenn- ari okkar. Við félagarnir, miklir töffarar í þá tíð, vorum að vísu ekki að spekúlera sérstaklega í blómsveigum eða ræðuhöldum og létum það fram hjá okkur fara á Austurvelli, þótt nýstúdentar vær- um. Það var um kvöldið og nóttina sem Austurvöllur hafði meira að- dráttarafl að ógleymdri baráttu við að troða okkur inn í gamla Sigtún sem þá var rekið við Aust- urvöll. Við þær aðgerðir rifnaði jakki nýstúdentsins í tvennt, hékk aðeins saman á kraganum. Blessaður sá Davíð Það var meiri ró á Austurvelli þegar við hjónin mættum með yngsta barn okkar og langafann nær aldarfjórðungi síðar. Vigdís stóð sig vel að vanda sem og fjall- konan. Davíð flutti ávarp og bað okkur að stytta vinnutímann. Ég blessaði landsföðurinn í hljóði. Það eina sem ég náði ekki alveg að túlka í ræðunni hjá Davíð voru lokaorðin. Þar þakkaði hann Vig- dísi og flutti henni góðar kveðjur alþjóðar. Þá vék hann að forseta- frambjóöendum og sagði: „Það sannast mundi að sá nær hæst sem sinni ættjörð stendur næst og stýrir eftir stjömum þeim, sem stefna heim.“ Átti hann við Ólaf Ragnar eða Pétur? Þeir hafa báðir strítt honum. Ólafur sagði hann hafa skítlegt eðli og Pétur studdi Þorstein í slagnum mikla um for- mannsstólinn í Sjálfstæðisflokkn- um. Var það kannski Guðrún P.? Það getur varla verið því hún stýrði heim fyrir kosningar. Átti hann við Ástþór sem hefur leyfi til að stýra flugvélum eftir stjörnun- um eða sá forsætisráðherra stjörn- ur þar sem Guðrún Agnarsdóttir var? Þeir sem með mér voru nenntu ekki að spá í dulmál ráðherrans. Laugardagspistill Jónas Haraldsson Það lá miklu meira á að kaupa blöðru. Ekki venjulega blöðru sem maðrn- blæs sjálfur í heldur blöðru fyllta gasi. Þessar blöðrur valda meiri sorg hjá bömum 17. júní en önnur fyrirbrigði. Það má glöggt sjá þegar þær stíga tugum og hundruðum saman til himins ef litlar hendur missa takið á band- inu. Fyrirfram býst þó enginn við að týna sinni blöðru með þessum hætti. Langafi splæsti því gas- blöðru á barnið áður en hann fór í þjóðhátíðarsteikina í hádeginu. Skrúðganga, fáni og blaora Skrúðgangan í okkar heima- byggð hófst skömmu síðar. Þær mæðgur gengu en ég náði samn- ingum um að aka fjölskyldubíln- um að samkomustaðnum og gæta um leið gasblöðrunnar. Ég þurfti því ekki að ganga í takt á eftir skátum, lúðrasveit og lögreglu- þjónum. Hins vegar þótti mér nauðsynlegt að sýna mig á hátíð- arsvæðinu. Það er aldrei að vita hvenær það dettur í mann að fara í framboð og þá er betra að hafa kynninguna á hreinu. Barnið réð því hins vegar að fljótlega var farið í miðbæ Reykja- víkur. Dóttir okkar vissi af Brúðu- bílnum þar og ótal leiktækjum. Það ætlaði hún að nýta sér. Ég verð að lýsa því yfir að ég var þjóðhátíðarlegur með afbrigð- um þegar við hjón gengum með stúlkuna gegnum Hljómskálagarð- inn. Ég var í mínum hátíðarfótum, með regnhlíf eins og enskur lá- varður auk þess sem ég hélt á þjóðfánanum og gasblöðru. Þær mæðgur leiddust nokkuð frá þjóð- hátíðarviðundri þessu. Það eina sem vantaði á múnderinguna var frænku í Kardimommubænum. En þetta var ekki eina freisting- in. Barnið vildi líka bleika brjóst- sykurfroðu á priki sem ég kann ekki að nefna nema á útlensku. Mér var hugsað til nýju tannar- innar sem gægðist niður morgun- inn áður og ýtti barnatönninni burt. Þetta gat ekki verið það sem sú tönn óskaði sér helst i þjóðhá- tíðargjöf. Ég reyndi þvi að gera barnið fráhverft froðunni með því að bjóða upp á ís, helst í vestur- bænum þar sem ég veit um ágæta ísbúð. Það bragð mitt heppnaðist. Barniö sleppti froðunni og ég komst með mína konu og barn í bílinn og stillti miðstöðina á vetr- arstillingu. Þannig kom ég lífi í þjóðhátíðarkroppinn þar til ég kældi hann á ný með vesturbæj- arísnum. Hvað meinti Davíð? Dóttir okkar var sæl með sinn þjóðhátiöardag. Það var fyrir mestu. Hún hélt meira að segja gasblöðrunni. Mamman var sæl með það að hafa farið fyrst með langafann í bæinn og ekki síður að hafa náð þjóðhátíðartökum á pabbanum á heimilinu. Pabbinn tók gleði sína á ný þegar honum hitnaði. Það eina sem sat eftir óleyst í þanka foðurins var niður- lagið á ræðu Davíðs. Hver á að stýra eftir stjömum þeim, sem stefna heim?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.