Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Page 18
18
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 I>"V
„Ég tók daginn snemma ásamt
átján daga gömlum syni mínum
sem enn hefur ekki fengið nafn.
Hann féllst reyndar á að fá sér lúr
eftir morgunsopann. Fjölskyldan
fór síðan öll á fætur klukkan átta.
Við drifum okkur í leppana og
lögðum af stað inn í daginn. Fyrsti
viðkomustaður var Grænaborg þar
sem eldri sonur minn, Jóhann
Kristófer, dvelur á daginn. Síðan
fórum við hin, sambýlismaður
minn, Stefán Jónsson, og litli bróð-
ir í burðarrúmi upp í Borgarleik-
hús. En þar voru aðstandendur
sýningarinnar Gulltáraþöll að
leggja lokahönd á undirbúning fyr-
ir forsýningu á Listahátíð á laugar-
daginn kemur.
Við höfðum ekki tíma til þess að
fá okkur morgunmat heima þannig
að ég fékk mér tvær ristaðar
brauðsneiðar og kafFi þegar ég kom
upp í Borgarleikhús. Þar sem við
unnum hörðum höndum var Lilla
skotið á brjóst öðru hvoru. Hópur-
inn var að hittast í fyrsta skipti eft-
ir mánaðarhlé þar sem meðlimir
þessarar sýningar voru flestir að
koma úr öðrum athyglisverðuni
verkefnum. Sýningin okkar, Gull-
táraþöll, er unnin upp úr tveimur
Ása Hlín Svavarsdóttir leikstýrir leiksýningunni Gulltáraþöll á Listahátíö. Frumsýnt veröur á laugardag á Litla sviöi
Borgarleikhússins. Sýningin er byggö á ævintýraheimi íslenskra þjóösagna.
brauði. Konurnar í eldhúsinu eru
annálaðar fyrir góðan mat sem
jafnframt er ódýr.
Syrgði með
Hollendingum
Klukkan 16 var æfingin búin og
við þustum heim tU þess að hitta
heilsugæsluhjúkrunarkonuna sem
heimsækir okkur vikulega og vigt-
ar LiUa. Síðan var aftur lagt á
brjóst og blundað í stóra rúminu í
smátíma. Eftir það skipti ég um
bleiu á þeim litla. Þá fór ég fram í
eldhús og bakaði tvær lummur og
gúmlaði þeim í mig. Ég notaði
tækifærið meðan barnið svaf. Síð-
an setti ég í vélina og þurrkarann.
Að því búnu kom maðurinn minn
heim ásamt Jóhanni Kristófer,
syni mínum. Það var hjóladagur
hjá honum þann daginn og hann
hafði að venju ýmislegt að segja
þegar hann kom heim. Hann sagð-
ist vera búinn að finna nafn á litla
bróður sinn. Hann er ákveðinn í að
skíra hann Unnstein eftir bróður
besta vinar hans sem hann lynti
eitthvað vel við þann daginn. Við
Oagur í lífi Ásu Hlínar Svavarsddttur leikstjóra:
Leikstýrt og gefið brjóst til skiptis
ævintýrum úr íslenskum þjóðsög-
um. Við fléttuðum þessum tveimur
ævintýrum saman. Við bjuggum til
atriðagrind sem leikararnir
spunnu síðan út frá. Leikritið var
skrifað jafnóðum og búningar,
hljóðmynd og annað fæddist jafn-
framt. Stíllinn á sýningunni hefur
viss áhrif frá fígúratívu- austur-
evrópsku brúðuleikhúsi þar sem
einn af höfúndum sýningarinnar,
Helga Arnalds, hefur verið í nánu
samstarfi við hið annálaða Drake
brúðuleikhús í Prag.
Það fyrsta sem við gerðum var
að horfa á videoupptöku af síðustu
æfingu. Við vorum ekki með text-
ann en skoðuðum lokabreytingar
sem verða á texta og öðru slíku.
Við sátum þarna og ræddum þetta
fram og til baka. Það gekk mjög vel
að fara í gegnum leikritið en þaö er
lítill tími til stefnu þannig að við
þurfum að halda vel á spöðunum.
Ao pair í
Borgarleikhúsinu
Sambýlismaður minn kom með
mér í leikhúsið til þess að gæta
litla drengsins þessa fjóra daga sem
æfingar standa yfir. Hann sagðist
vera nýja au pair stúlkan. Hann
kom með litla manninn tfi mín þeg-
ar þurfti að leggja hann á brjóst.
Þetta var fyrsti dagurinn minn í
Borgarleikhúsinu eftir að ég átti
strákinn. Ég vinn einnig við að tal-
setja teiknimyndir þannig að ég fór
í það strax daginn eftir að ég kom
heim af sjúkrahúsinu. Þegar mað-
ur er lausráðinn leikari og leik-
stjóri fær maður ekki launalaust
frí hvenær sem er.
Við borðuðum í Borgarleikhús-
inu í hádeginu. í matinn var hrís-
grjónakássa sem var listilega góð
með hrásalati og heimabökuðu
hlömmuðum okkur í sófann og fór-
um að horfa á knattleik, England,
Holland og syrgðum með Hollend-
ingum þetta mikla burst. Að því
búnu var mér færður þessi dýrind-
is spagettíréttur sem maðurinn
minn hafði eldað kvöldinu áður
þar sem ég sat. Eftir það dingluð-
um við okkur og undirbjuggum
okkur undir næstu törn á morgun.
Finnur þú fimm breytingar? 362
4452
Já, en ég er aö prjóna þetta handa yöur, herra forstjóri.
Nafn:.
Heimili:-
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sextugustu og
aðra getraun reyndust vera:
1. Júlíana Hilmisdóttir
Arnarheiði 20
810 Hveragerði
2. Jenný Magnúsdóttir
Blöndubakka 6
109 Reykjavík
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og sénda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi að
verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif-
unni 7, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 363
c/oDV, pósthólf 5380
125 Reykjavík