Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Side 21
TÞ'KT LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
21
Sigurður Gestsson rekur líkamsræktarstöð á Akureyri:
„Þetta eru að mestu leyti
tæki, sem ég hef sjálfur
smíðað. Það eru aðeins örfá
tæki hérna sem ég hef ekki
smíðað og þá aðallega
tölvustýrðar stigvélar og
þess háttar. Ég hanna og
útfæri tækin á minn hátt
en þetta eru engar bylting-
arkenndar breytingar frá
hefðbundnum tækjum enda
hafa ekki orðið neinar slík-
ar breytingar á síðustu
árum. Hönnunartími er
dýr og ég þyrfti fleiri hund-
ruð klukkustundir til að
koma með eitthvað nýtt og
öðruvísi. Það væri samt ör-
ugglega hægt,“ segir Sig-
urður Gestsson, rennismið-
ur og margfaldur íslands-
meistari í líkamsrækt.
Sigurður, sem rekur lík-
amsræktarstöð í kjallaran-
um á íþróttahöllinni á Ak-
ureyri, hefur vakið athygli
fyrir smíð sína á líkams-
ræktartækjum. Hann hefur
smíðað sjálfur flestöll tækin
í líkamsræktarstöðinni á
litlu verkstæði, sem hann á
og rekur á Akureyri. Tölu-
verð eftirspurn er eftir tækjum
Sigurðar og neyðist hann því til að
vísa flestum pöntunum frá en þó
hefur komið fyrir að hann hefur
tekið að sér stór verkefni og smíð-
að til dæmis tæki um borð í skip.
best að kaupa en síðasta stóra
verkefnið sem ég tók að mér
var æfingastöð á Dalvík. Svo
hef ég smíðað tæki í skip því
að hefðbundin tæki passa oft
ekki inn þar sem er lítið pláss
og lágt til lofts. Þar þaif að
sérhanna tækin,“ segir Sig-
urður.
Sigurður segist imynda sér
að það taki um 100 vinnu-
stundir að smíða eitt tæki en
það fari þó eftir því hversu
flókið það er. Hann er af mikl-
um smiðum kominn og segir
að pabbi sinn sé snillingur á
„smíðasviðinu" en sjálfur hef-
ur hann smíðað alla ævi.
Hann segist byggja á reynslu
sinni í líkamsræktinni og
þekkingu á því hvemig líkam-
inn og vöðvamir vinna.
Smíðar mest
á sumrin
Tækin sín, sem flest era 7-12
ára gömul, hefur Sigurður
DV-mynd GHS smíðað á litla verkstæðinu
sínu og þangað fer hann líka
með allt viðhald á þeim. Sig-
urður tekur líka stundum að sér
viðhald fyrir aðra, sérstaklega nátt-
úrulega í þeim tilvikum þar sem um
er að ræða tæki sem hann sjálfur
hefur smíðað. En hlýtur vinnutím-
inn ekki að vera langur þegar að
Sigurður Gestsson á og rekur líkamsræktarstöð á
Akureyri. Hann smíðar flestöll tækin í stöðina sjálfur
og stundum tekur hann að sér verkefni fyrir aðra.
100 vinnustundir
fara í eitt tæki
„Yfirleitt vísa ég fólki frá með
tækin og bendi því bara á hvað sé
svo mörgu er að hyggja?
„Þetta er rosalega langur vinnu-
dagur. Ég vinn annan hvern dag frá
7-22 og svo um helgar líka. Það er
helst að ég hafi tíma til að smíða
tæki yfir sumarið því að þá er
minnst að gera í stöðinni. Það er
ekki þægilegt að setja svona æfinga-
stöð í hendurnar á öðrumj' segir
hann að lokum og gefur í skyn að
hann verði talsvert upptekinn við
smíðarnar í sumar. Það skyldi þó
ekki vera eitthvert stórverkefnið?
Hver veit. -GHS
ISPÓ - Góður og ódýr kostur!
Ispó er samskeytalaust akrýlmúrkerfi.
Yfir 600 hús
klædd á síðast-
liðnum 14 árum.
5 ára ábyrgð.
Gerum tilboð í efni
og vinnu, þér að
kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiösbúö 3-210 Garðabæ - Sími 565 8826
GILDIRFRA
Q2/6-29/6
'£°no Sis
TRÉRKING FOX
DRAUMUR TÍL A-Ð NJÓTA
^ Ars ábyrgð og frí
upphersla eftir mánuð
Auðbrekku 3 • Kópavogi • Sími 564 4489 - 564 4199
Sendum hvert á land sem er
TSBRÆÐURNIR
ÖLAFSSON