Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 28
28
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 JLí"V
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
Lee Suk-hyung, einn frægasti markvörður í heimi, er kominn til Islands til að leika með FH:
Kynntist og varð
ástfanginn af íslenskri
stelpu á HM '95
Einn fremsti og þekktasti mark-
vörður heims, Lee Suk-hyung, mark-
vörður suðurkóreska landsliðsins í
handknattleik, er kominn hingað til
lands, genginn til liðs við íslendinga,
sjálfa erkióvinina frá því í HM í
handbolta i fyrra, og ætlar að verja
markið hjá FH næsta vetur. Lee
kynntist íslenskri fjölskyldu af suð-
urkóreskum ættum meðan á HM
stóð, varð ástfanginn af heimasæ-
tunni, Klöru Jennýju Kim, og hefur
átt í sambandi við hana síðan. Það
má því með sanni segja að ástin hafi
dregið hann til íslands og hér verður
hann að minnsta kosti næsta árið til
að gleðja augu íslenskra handbol-
taunnenda og vera nærri unnustu
sinni.
Klara og Lee hittust fyrst á HM ’95
í Smáranum í Kópavogi. Klara segist
hafa fariö þangað með pabba sínum,
Óskari Taechol Kim, til aö horfa á
Suður-Kóreumenn leika en „Ég man
ekki gegn hverjum,” segir hún. Þau
Lee hafa samþykkt að segja sögu
sína í einkaviðtali við DV. Eftir leik-
inn fóru feðginin og heilsuðu upp á
leikmennina og buðu þeim öllum í
kvöldverð á veitingastað sem fjöl-
skyldan rekur, Café Kim við Rauðar-
árstíg, enda hafa þau gjama boðið
þangað löndum sínum sem hafa átt
leið til landsins og reynt að hjálpa
þeim eftir bestu getu.
Klara og Lee urðu tljótlega mjög
ástfangin og ákvað fjölskylda Klöru
því að fara með þennan hávaxna og
myndarlega markmann í bíltúr og
bjóða honum heim. Gott samband
myndaðist milli Lee og Kim-fjölskyl-
dunnar enda eru þau öll ákaflega létt
í skapi og handknattleiksmaðurinn
lífgar heilmikið upp á heimilislífið
með hugulsemi sinni við húsmóður-
ina og leik sínum við soninn Skúla
Óskar, 11 ára. í framhaldinu komst á
traust samband milli Lee og Klöru og
Kim-fjölskyldan, sem hefur rekiö veitingastaöi í Reykjavik undanfarin ár, hefur gjarnan boöiö til sín fólki frá Suður-Kóreu
sem hefur átt leið um ísland. Þau buöu landsliöi Suöur-Kóreumanna til sín á HM í fyrra og í framhaldi af þvi fór mark-
vöröurinn Lee aö vera meö Klöru. Klara er í efri röö til vinstri viö hlið Jennýjar, móöur sinnar. Lee er til vinstri í fremri
röð, Skúli og svo Óskar lengst til hægri.
hafa foreldrar hennar reynt að stuðla
að því að þau geti kynnst betur.
Ógeðslega hár
símareikningur
„Þegar hver leikur var búinn
hringdi hann í okkur og við vorum í
sambandi við hann áfram, líka eftii'
að hann fór heim. Skúli var mjög
hrifinn af honum enda á hann engan
bróður og þegar við feðgarnir heim-
sóttum Suður-Kóreu í fyrrasumar
höfðum við samband við hann. Við
höfum líka verið í símasambandi við
hann og símareikningurinn hjá okk-
ur hefur verið ógeðslega hár. Lee hef-
ur líka oft hringt hingað,“ segir Ósk-
ar og bætir við að símareikningur-
inn hafi snarlækkað í desember því
að þá hafi Kiara verið í Suður-Kóreu.
Kim-feögarnir fóru í heimsókn til
ættingja sinna i Suður-Kóreu í fyrra-
sumar og notuðu þá tækifærið til að
heimsækja Lee. Klara eyddi svo með
honum tíu dögum í Seúl um jólin
þegar hún heimsótti í fyrsta skipti á
ævinni gamla heimalandið ásamt
móður sinni, Kuija Jenný Kim.
Klara horfði á Lee leika æfingaleiki
með liðinu sem hann lék með þar úti
og þau eyddu tímanum saman á
kvöldin auk þess sem hún hitti ætt-
ingja sína.
500 metra
skyggni í sólskini
Klara segir að það hafi ekki verið
„neitt sérstakt’‘ að heimsækja Suður-
Kóreu, þó að hún væri að koma
þangað í fyrsta skipti og hljóti að
Þjálfari FH:
Gefur nýjar víddir að fá Lee
„Þetta hefur mjög mikla þýðingu fyrir okkur og okkar mark-
menn og handboltann yfir höfuð að fá svona mann inn. Hann
æfir öðruvísi og hugsar öðruvísi. Á æfingum er hann alltaf að
vinna og hugsa um hvemig hann geti bætt sig. Þetta endur-
speglast í hreyfingum hans og því hvemig hann staðsetur sig.
Hann er með gríðarlegan metnað og gefur alltaf allt sitt í þetta.
Það gefur okkur nýjar viddir að fá hann inn,“ segir Gunnar
Beinteinsson, þjálfari FH.
„Hann er öðruvisi þjálfaður en við. Hann hefur griðarlega
sterkar lappir. Hann virðist ekki vera með neitt súperþrek,
| hvorki betra né verra en við. Það kom mér á óvart því að ég
hélt kannski að hann væri með meira þol,“ segir hann um nýja
I markvörðinn.
Gunnar segir að FH-ingar séu ekki á flæðiskeri staddir með
markvörslu þó að þeir hafi fengið Lee til sín en Lee geti miðl-
að af reynslu sinni og fyllt upp í ákveöið gat því að FH-ingar
eigi annars vegar ung£m markmann og hins vegar mjög reynd-
an markmann. Ekki sé vitað hversu lengi Lee verði hjá félag-
inu, hvort hann verði aðeins eitt eða kannski tvö ár en hann
muni skila miklu til yngri leikmanna félagsins.
„Hann er mjög hress, er að sprella mikið og hefur fallið vel
inn í hópinn. Það em engin vandamál. Hann lét sig bara gossa
og viö tókum honum eins og hann er,“ segir Gunnar. Lee talar
litla ensku en Gunnar segir það ekki koma að sök því að
tengdafaðir hans hafi stundum mætt með honum á æfingar og
túlkað og svo hafi leikmenn FH bara bablaö við hann enskuna
og notað fingramál. Það komi minna að sök hversu litla ensku
hann talar því að hann sé markmaður.
Leikmenn FH verða í fríi frá skipulögðum æfingum í júlí og
svo hefjast þær aftur um verslunarmannahelgina. Lee byrjar
fljótlega í léttri hálfsdagsvinnu og svo fer hann á enskunám-
skeið í byrjun júlí.
-En er ekki dýrt fyrir FH að fá hingað þennán úrvals mark-
mann?
„Það er mun ódýrara en menn gera sér grein fyrir. Tengda-
faðir hans tekur þátt í þessu, hann býr hjá honum og menn
reyna að fá stuðning hér og þar þannig aö kostnaðurinn fyrir
FH er ekki mjög mikill," segir hann.
-GHS
Í“raÍHÍlHHwWWKWBB«iS&i
^LAKRiKA
VELKOMIN
liðið 19 ára
Genginn til liðs
við óvininn
Eins og flestir íslendingar muna
vakti Lee gríðarlega athygli fyrir
markvörslu sína meðan á HM '95
stóð og var í öðru sæti yfir þá mark-
menn sem vörðu hvað flest skot í
keppninni. Hann varði 41% þeirra
hafa heilmiklar taugar til landsins,
hún hafi „ . . . ekki verið mikið að
taka eftir því. Ég var bara áð heim-
sækja fólk. Þetta var bara eins og
heima hjá mér. Tungumálið er talað
heima þannig að mér fannst þetta
ekkert öðruvisi,“ segir Klara. Hún er
tvítyngd, talar bæði íslensku og
kóresku, segist vera „antisportisti"
en mikill bókaormur og lesa allt sem
hún komist í tæri við. Hún leggur nú
stund á nám til stúdentsprófs og
stefnir að læknisfræði í framtíðinni.
Óskar segir að Klara hafi ekki þol-
að hávaðann í bílunum og alla meng-
unina í Seúl, þessari tíu milljón
manna borg. Þar hafi aðeins verið
um 500 metra skyggni í sólskini og
heiðskíru veðri. Umferðin sé líka
mun þyngri þar úti heldur en hér og
það taki mun lengri tíma að komast
milli staða. Efnahagslega standi Suð-
ur-Kóreumenn hins vegar vel, I Seúl
sé virkilega sterk peningalykt,
„sterkari en á íslandi," að hans sögn,
og almenningur sé mjög vel stæður.
„Faglærður iðnverkamaður hefur
ekki lægra kaup þar en hér. Vinnuaf-
lið er ekki lengur ódýrara þar og
kostnaður við framleiðsluna er ekki
minni,“ segir Óskar sem sjálfur er
fæddur í Norður-Kóreu og starfaði í
Þýskalandi þar sem hann hitti konu
sína áður en þau fluttust til íslands
1974.
Komst í lands-
Lee Suk-hyung er 25 ára,
fæddur í borginni Tae-Gú í
Suður- Kóreu þar sem býr ein
milljón manna, og er
elstur þriggja systk-
ina. Hann missti
föður sinn að-
eins 13 ára
gamall og
varð móðir
hans að sjá
þeim systkin-
unum far-
borða af laun-
um sínum fyrir
vinnu hjá trygg-
ingafélagi. í gagn-
fræðaskóla byrjaði
hann að æfa hand-
knattleik, keppti með
skólaliðinu og hélt áfram
að æfa gegnum mennta-
skóla og háskóla meðan
hann var að læra
íþróttafræði.
Fjölskylda Lee var
á sínum tíma ekki
neitt sérlega áhugasöm um íþróttir
og segir Lee að það hafi verið að eig-
in frumkvæði sem hann fór að æfa
handbolta. Hann hafi alltaf haft mik-
inn áhuga á íþróttum. Þegar hann
var í menntaskóla fór honum að
ganga mjög vel í markinu, hann
hafði góðan þjálfara og fékk gríðar-
lega góða þjálfun á þeim tíma. Lee
hélt áfram að leika handbolta á há-
skólaárunum, lék með háskólaliði og
útskrifaðist sem íþróttafræðingur.
Sama ár og Lee byrjaði i háskóla,
19 ára gamall, var hann valinn til að
leika með landsliði Suður-Kóreu og
hefur leikið með því síðustu sex
árin, jafnframt því sem hann hefur
leikið með liði á vegum bjórfyrirtæk-
is í Seúl. Engin atvinnumannadeild
er í Suður-Kóreu heldur fara leik-
mennimir úr skólaliðunum í lið í
eigu fyrirtækja þegar skólanum lýk-
ur. Þeir auglýsa vörur fyrirtækisins
og geta einbeitt sér að íþróttinni.
„Allir leikmenn eiga sér drauma.
Á menntaskólaárunum stefndi ég að
því að komast í gott háskólalið og
mig langaði að komast í landsliðið.
Þegar ég var búinn að ná þangað
langaði mig að komast út í heim,“
segir Lee og gefur þar með til kynna
að hann hafi í sér ævintýraþrá eins
og svo margt annað ungt fólk.
komið á leiki en hér troðfylltust
íþróttahúsin þegar liðin væru að
leika.
„Það var meiriháttar tilfinning. Ég
gat ekki gleymt þessu. Þetta var ein
af ástæðunum fyrir því að ég kom til
íslands,“ segir hann.
• Lee segir að Suður-Kóreumenn
hafi ekki búist við að ná langt í HM,
ef til vill 20. sæti af 24, við komuna
hingað til lands. Leikmennirnir
höfðu ekki þjálfað nema i viku fyrir
keppnina. Þeir gerðu þó sitt besta og
náðu mun betri árangri en þeir áttu
von á. Þeir höfðu reiknað með að
tapa fyrir Islendingum, Ungverjum
og fleiri liðum en svo fór þó ekki.
Suður-Kóreumenn náðu 11. sæti í
keppninni.
Kynntist
sundi hjá FH
Eftir að Lee kynntist Klöru lét
hann í ljós þá ósk að komast til ís-
lands og fór Óskar á stúfana til að
kanna hvort áhugi reyndist vera hjá
íslenskum liðum. Hann talaði við
Geir Hallsteinsson og reyndust FH-
ingar áhugasamir um að fá Lee hing-
að. Hafnfirðingunum tókst að skapa
aðstæður til að taka á móti Lee og út-
vega honum bíl hjá styrktaraðila en
um tima var tvísýnt um hvort hon-
um tækist að sleppa við herþjónustu
og fá að fara hingað til lands. Það
tókst þó að lokum og er Lee nú kom-
inn og stundar æfingar í Kaplakrika.
Honum líst mjög vel á aðstæður.
„Æfingarnar fara allt öðruvísi
fram hérna, þær eru miklu fjöl-
breyttari,“ segir Lee sem kom til
landsins fyrir tæpum hálfum mánuði
skota sem hann fékk á sig og var
með sama hlutfall og markvörður
Kúbumanna sem varði langflest skot
í keppninni. Lítið var vitað um liðið
frá Suður-Kóreu fyrir keppnina og
lögðu Islendingar því talsverða
vinnu í að kynna sér liðið. Það bar
þó ekki betri árangur en svo að Suð-
ur-Kóreumenn fóru létt með aö sigra
okkar menn og talaði DV meðal ann-
ars um „háðulega útreið“ ís-
lenska liðsins eftir leikinn.
„Það má segja að íslend-
ingar og Suður-Kóreu-
menn hafi verið
aðalóvinirnir í HM.
Nú er ég genginn
til liðs við óvin-
inn því að hing-
að er ég kom-
inn,“ segir Lee
og hlær. Hann
segist ekki
hafa getað
gleymt því eftir
íslandsdvölina
í fyrra hversu
mikill áhugi
væri hér á hand-
bolta. I Suður-
Kóreu hafi
kannski 100-200
áhorfendur
og fór þá strax á sína
fyrstu æfingu hjá FH.
Hann kveðst vera
ánægður með lið-
ið, andrúmsloft-
ið hjá félaginu
sé greinilega
mjög gott. „I
Suður- Kóreu
byrjum við á
þekkja
greini-
lega til-
hugsun-
ina og
þykir hún
ákaflega
fyndin.
Honum
tókst þó
fljótlega að ná
tökum á sund-
inu og getur
nú synt 25
metra bringu-
sund.
Tekinn inn
á heimilið
Kim-fjölskyldan býr i fallegu
en sérstöku húsi í Amames-
inu, kúluhúsinu sem margir
þekkja, og hefur ijölskyldan
tekið Lee inn á heimilið eins
og sinn eigin son til að hann geti
kynnst Klöru betur. Þegar rætt er
við Jennýju og Óskar kemur í ljós að
þau eru ósátt við að hann sé kallað-
ur tengdasonur þeirra, eins og kom-
ið hefur fyrir í fjölmiðlum, enda sé
hann það alls ekki. Fyrir þeim er
eðlilegt að taka hann inn á heimilið
og gera hann að fjölskyldumeðlimi
meðan unga parið er að kynnast og
taka ákvörðun um framtíðina.
Aðspurður hvort trúlofun eða gift-
ing sé í aðsigi verður hann alvarleg-
ur og Klara, sem hefur brugðið sér
frá, sest aftur inn i stofu. Hún vill
giæinilega vera viðstödd þessa um-
ræðu. Lee segir að slík mál veröi að
hugsa mjög vandlega og er ekki til-
búinn að gefa út neinar yfirlýsingar.
I samtali við Klöm kemur fram að
þeim þykir óþægilegt að kastljós fjöl-
miðlanna beinist að sambandi þeirra
enda séu þau enn að kynnast og fjar-
lægðin milli íslands og Suður-Kóreu
mikil.
Þegar viðtalið birtist í DV verður
Klara farin til Suður-Kóreu til náms
í móðurmáli sínu í sumarháskóla en
sú ferð var skipulögö í fyma meðan
allt var enn óljóst hvort og þá
hvenær Lee tækist að komast að hjá
íslensku félagi. Hún kemur aftur eft-
ir nokkrar vikur og þá getur unga
parið farið að eyða tímanum saman
og kynnast hvort öðru betur. Lee fer
fljótlega að vinna hálfsdagsvinnu hjá
10-11 með handboltanum og lífið
kemst aftur í fastar skorður þegar
Klara kemur heim.
-GHS
Lee kom til íslands fyrir tæpum tveimur vikum og er þegar farinn að æfa meö FH
enda tókst félaginu aö fá bíl fyrir hann hjá stuðningsaðila. Það kom honum á
óvart hversu fjölbreyttar æfingarnar eru, hjólaö og hlaupiö í hvaða veðri sem er.
Þegar hann kom kunni hann ekki að synda og hann hlær hressilega þegar hann
segir frá því að hann hafi í byrjun veriö sendur í grunnu laugina til að leika sér
að bolta með litlu strákunum. Lee líst vel á aðstæður hjá FH enda finnst honum
vera mjög góður andi hjá félaginu.
Símareikningurinn hefur veriö syndsamlega hár á
heimili Kim-hjónanna undanfariö ár en það færist
vonandi til betri vegar því að markmaöurinn
frægi, Lee Suk- hyung, er kominn til íslands til
að verja markið fyrir FH og vera samvistum
við unnustu sína, Klöru, sem hann kynntist á
HM hér í fyrra. Hjónaleysin eru þó ekki alltaf
jafn heppin því að Klara er nú farin til Suöur-
Kóreu til aö læra móðurmál sitt í sumarhá-
skóla. Þá ferð skipulögðu þau Lee f fyrra
áöur en Ijóst varð að hann kæmi til íslands.
DV-myndir Hari
meœenmms
AFQREiÐSLA
“•BÚNiNGSKLEFAR
SJÓNARHÓLl
FÉLAGSHEIMIL
lyftingum og ýmsum æfingum og fór-
um svo í boltaæfingar og að spila en
hér fara leikmennirnir í sund, hjóla
og hlaupa úti í rigningu," segir Lee
og telur hjólaæfingarnar erfiðastar.
Sundið er honum algjör nýlunda en
sundiðkun handboltamanna kynnt-
ist hann á einni af fyrstu æfing-
unum hjá FH.
„Ég hafði aldrei farið í
sund áður og kunni ekki
að synda og þess
vegna var ég send-
ur til litlu strák-
anna í grunnu
laugina að
leika mér að
bolta,“ seg-
ir hann og
Kim-fjöl-
skyldan
veltist
um af
hlátri.
Þau