Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 X W"
Rússnesk stúlka dúxaði í íslensku og stærðfræði:
c
„Þegar ég var sex ára ákvað ég að
fara í tónlistarskóla og læra á gítar.
Amma fylgdi mér í skólann en það
voru svo margir sem höfðu hugsað
sér að komast að og það var ekki
pláss fyrir mig. Ég fór að hágráta
því mig langaði svo að læra á gítar.
Einn kennaranna sá mig og spurði
hvort ég vildi læra á balalaika í
staðinn en það er rússneskt hljóð-
færi sem líkist gítar. í Rússlandi er
hefð fyrir þvi að nær eingöngu
strákar leiki á balalaika en ég var
eina stelpan allan tímann sem ég
lærði á þetta hljóðfæri," segir Ev-
genía Ignatieva, átján ára rússnesk
stúlka sem dúxaði í íslensku og
stærðfræði í Verslunarskóla íslands
í vor. Þessi hávaxna, bráðmyndar-
lega stúlka útskrifaðist með versl-
unarpróf og hefur hugsað sér að
halda áfram að læra til stúdents-
prófs í Versló. Evgenía fékk auk
þess verðlaun úr Walterssjóði fyrir
besta heildarárangur á Verslunar-
prófi 1996.
Hún kom hingað til lands fyrir
fimm árum ásamt foreldrum sínum
og systur og sló út innfædda í þeirra
eigin móðurmáli og má það heita
einstaklega góður árangur.
Faðir Evgeníu er Nikolaj Ignatiev
SÁ VERKLEGASTI TIL SÖLU
BMW 730IA
Albina, einn meö öllu.
Albinu undirvagn, 17” álfelgur, leöurinnrétting,
10 diska magasín, 8 hátalarar, reyklitað gler,
aksturstölva, sjálfskiptur og margt margt fleira.
Sjón er sögu ríkari.
VERÐ 2.380 þús - SÉRTILBOÐ 1.950 þús. stgr.
Upplýsingar í síma 896 0144 eöa 567 0144 (Högni).
DV-myndir ÞÖK
kurteisir og fágaðir ef miðað er við
Rússa. Það eru kannski aðrir kurt-
eisari en íslendingar en það er mik-
ill munur á íslendingum og Rúss-
um. Ég er þó ekki meö því að segja
að Rússar séu dónar," segir Evgen-
ía. |
Fjölskyldan er hjartanlega sam-
mála um að íslendingar séu afar
kurteist og almennilegt fólk.
„Ég hef ferðast víða um heiminn
og hef samanburðinn. íslendingar
eru ekki einungis kurteisir miðað
við Rússa heldur einnig ef miðað er
við margar aðrar þjóðir," segir
Nikolaj.
Ekki skemmtilegt,að
vera unglingur a Islandi
Evgeníu þykir drykkjulæti ung-
linganna á íslandi orðið talsvert
vandamál en drykkja þekkist ekki á
þennan hátt í Rússlandi meðal unga
fólksins. Algengara er að fullorðið
fólk eigi við drykkjuvandamál að
stríða. Að sögn Evgeníu fara ung-
lingar í Rússlandi í bæinn um fimm
eða sexleytið og koma heim klukk-
an ellefu eða hálftólf því ekkert er
að gerast eftir það. Unglingar á ís-
'landi fara sem kunnugt er ekki út
fyrr en í kringum ellefu og koma
heim um þrjú eða fjögur. Evgenía
reynir að fara milliveginn en henni
finnst ekkert sérstaklega skemmti-
legt að vera unglingur á fslandi.
Hún á engan kærasta.
Les rússneskar
bókmenntir
„Ég nota frítímann mikið til þess
að lesa bækur. Núna er ég hrifnust
af rússneskum bókmenntum. Ég er
núna að lesa eina ofsalega góða bók
sem heitir Hetja nútímans eftir
Lermontov. Ég las að vísu ekki
Evgenía hampar stolt bikurunum sem hún hreppti fyrir besta árangur í íslensku og stærðfræði.
en hann er tengiliður Lada í Rússl-
andi og framkvæmdastjóri Bifreiða
og landbúnaðarvéla á íslandi. Fjöl-
skyldan bjó áður í bænum Togliatti
sem er við ána Volgu. Hann var
sendur hingað til lands ásamt konu
sinni Liliu Ignatieva til þess að
starfa fyrir Lada. Systir Evgeníu
heitir Olga en hún er tveimur árum
eldri en Evgeníá. Olga er í heim-
speki og ensku í Háskóla íslands.
Hún var að heimsækja ættingja í
Rússlandi þegar blaðamann bar að
garði.
[
Til Oxford í(enskunám
Einkunnir Evgeníu eru afar háar.
Hún fær hæstu einkunn eða 10 í sjö
fögum, 9,5 í þremur fögum, 9,0 í fjór-
um fogum, svo að eitthvað sé nefnt.
Lægsta árseinkunnin hennar er 8,0
lægsta prófseinkunnin hennar var
7,5 í ensku. Margir hefðu sætt sig
við þá einkunn en ekki Evgenía.
Hún var afar ósátt við sjálfa sig og
heitir því að gera betur næst. Til
marks um það ætlar hún að leggja
land undir fót í sumar og skella sér
til Anglo World í Oxford þar sem
hún hyggst bæta enskukunnáttu
sína. Meðaleinkunn Evgeníu var
9,44.
„Ég held að ástæðan fyrir því að
mér hafi gengið svona vel að læra
íslensku sé hversu ung ég var þegar
ég fluttist hingað en ég var þrettán
ára gömul. Mér fannst tungumálið
alls ekki erfitt. Mér gekk alltaf mjög
vel í skólanum í Rússlandi og var
alltaf hæst í mínum bekk,“ segir Ev-
genia.
Evgenía segir námið í barnaskó-
lanum í Rússlandi miklu erfiðara
en á íslandi. Hún var nánast tveim-
ur árum á undan jafnöldrum sínum
í stærðfræði þegar hún kom hingað
til lands. Stærðfræðin fór ekki að
þyngjast fyrr en í menntaskólanum,
fannst henni.
Fróðleiksfúst barn
„Við hjónin erum afar stolt af
dóttur okkar og árangri hennar. Að
vísu kom velgengni hennar alls
ekki á óvart en hún hefur þann eig-
inleika að vilja alltaf vera best í því
sem hún gerir. Mér finnst að það
þurfi að gæta þess að hampa henni
ekki of mikið fyrir þennan árangur.
Það leiðir ekki til góðs ef henni
verður spillt," segir Lilia Ignatieva,
móðir Evgeníu.
Lilia segir Evgeníu hafa verið
yndislegt barn sem ávallt hafi verið
fróðleiksfús og djúpt þenkjandi.
Hún hafi alltaf verið tilbúin að deila
því sem henni áskotnaðist með öðr-
um bömum.
„Þegar Evgenía var þriggja ára
stelpa í Rússlandi sá hún risastóra
flugvél i fyrsta sinn. Aftan úr flug-
vélinni var reykur sem hún hélt að
héldi vélinni uppi. Evgenía var vön
því að bílamir keyrðu um á vegin-
um og átti bágt með að skilja að
flugvélarnar gætu hangið þarna í
lausu lofti. Hún hugsaði mjög rök-
rétt strax þá,“ segir Lilia.
Lanaar til að verða
blaoakona
„Ég er ákveðin í því að klára
stúdentspróf í Verslunarskólanum.
Ég fer ekki til Rússlands með for-
eldrum mínum ef þeir þurfa að fara
áður en ég hef lokið stúdentsprófi.
Ég get alveg hugsað mér að búa
hérna áfram. Það getur vel verið að
ég fari í Háskólann hér á landi. Ég
er mikið að hugsa um að fara í við-
skiptafræði en er þó ekki ákveðin.
Ég hef svolítið velt því fyrir mér að
gerast blaðakona," segir Evgenía.
„Mig langaði alveg eins til að fara
til Þýskalands og læra þýsku en
mér fannst ég ekki hafa nægilega
undirstöðu í þýsku. Ég held að
tungumálin nýtist mér afskaplega
vel þegar ég fer í Háskólann. Ég get
alveg hugsað mér málatengda við-
skiptabraut. Það er vel hugsanlegt
að ég fari ekki til Rússlands eftir
stúdentsprófið heldur innriti mig í
Háskóla íslands. Ég get alveg hugs-
að mér að búa hér á landi. Ég er
ekki að segja að það sé betra að búa
héma heldur en í Rússlandi," segir
Evgenía.
Islendingar kurteisir
„Það er mjög ólíkt að búa á ís-
landi og í Rússlandi. Fólkið er ólíkt
en mér finnst Islendingar áberandi