Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Side 31
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
39
að fara til baka einhvern tímann en
ég veit ekki hvenær," segir Nikolaj.
Evgenía segist ekki muna eftir
neinum erfiðleikum þegar hún bjó í
Rússlandi. Lífið var ágætt og það
var gaman að vera til. Evgenía hafði
gaman af því að vera í tónlistarskó-
lanum en hefur ekki haldið náminu
áfram hér á landi. Hún vissi ekki að
fjölskyldan yrði svona lengi í burtu
og skildi því hluta af hljóðfærunum
eftir. Eina hljóðfærið sem hún tók
með sér var gömul balalaika. Píanó-
ið og nýju balalaikuna skildi hún
eftir. Evgenía segir íjölskylduna
ekki hafa verið fátæka.
„Við erum ástfangin af íslandi.
Það er afar fallegt land á öllum árs-
tíðum og í hvaða veðri sem er. Við
höfum ferðast talsvert um landið og
að mínu mati er svæðið í kringum
Mývatn fallegast. Við ráðgerum að
ferðast á Vestfirðina í sumar því
þangað höfum við aldrei komið,“
segir Lilia. -em
Evgenía Ignatieva ásamt foreldrum sínum, Liliu Ignatievu og Nikolaj Ignatiev.
SUNNUÖAG KL. H í KAPELLUhRAUNl
Buffkakan Sylvester Stallone er til í
að vera með ...
. . . en hamborgarakarlinn Bruce
Willis er enn að lesa.
mjög mikið í kringum prófin því ég
hafði ekki tíma til þess. Ég er mikið
fyrir hreyfingu og fer oft í sund.
Mér finnst mjög gaman að fara út að
labba og ég og systir mín gerum það
oft. Við erum mjög nánar,“ segir
Evgenía.
Móður Evgeníu þykir hún eyða
alltof miklum tíma heima í stað
þess að vera meö öðru ungu fólki í
bænum eða í bíó.
Þegar Lilia og Nikolaj komu til ís-
lands urðu systurnar eftir hjá £ifa
sínum og ömmu. Evgenía sagði að
þær hefðu verið vanar að búa hjá
afa sínum og ömmu og það hefði
ekki verið neitt öðruvísi heldur en
að búa hjá foreldrum sínum. Pabbi
hennar og mamma bjuggu einnig í
Jemen um tíma. Evgenía saknar afa
síns og ömmu en huggar
sig við það að þau
komi í heimsókn á
sumrin ásamt því að
hún fari sjálf til
Rússlands. Lilia fer
með manni sínum
hvert sem hann
er sendur og
segist
ekki þurfa að vinna úti því tekjur
Nicolaj séu svo góðar. Hún kunni
jafn vel við sig i Jemen og á íslandi
þó löndin séu afar ólík.
„Jemen er afskaplega fallegt land
og það var allt í lagi að búa þar fyr-
ir erlendar konur. Það var mjög
ólíkt því að búa á íslandi að sjálf-
sögðu. Það var heldur erfiðara fyrir
innfæddar konur því þær þurftu að
ganga með slæður og hylja sig frá
hvirfli til ilja. Þær mega ekki fara
neitt án þess að hafa karlmann í
fylgd með sér. Ég gat þó farið ein í
bíó ef ég vildi,“ segir Lilia.
Auðveldara að hagnast
í Rússlandi núna '
„Það er mjög erfitt að bera saman
líf okkar í Rússlandi og líf okkar
hér á Islandi. Þegar við bjuggum í
Rússlandi voru kommúnistar við
völd og allt var skammtað og enginn
varð ríkur. Núna ætti að vera auð-
veldara að hagnast og lifa sómasam-
legu lífi í Rússlandi þegar kommún-
istar ráða ekki lengur. Nú er allt
undir manneskjunni sjálfri komið.
Það var ekki hægt að eignast neitt
áður fyrr í Rússlandi. Ég hef verið
sendur til Jemen á vegum fyrirtæk-
isins og það var líka ágætt," segir
Nikolaj.
„Það er mjög erfitt að svara því
hvort við komum til með að
ílengjast hér. Mér líka afar
vel hérna, loftslagið er mjög
gott og fólkið viðkunnanlegt.
Auðvitað hugsum
við okkur
iðsljós
Sly og Whoopi með versta
bögubósanum í Hollywood
Sylvester Stallone og Whoopi
Goldberg eru ekki beint viðkvæm
fyrir sjálfum sér. Annars hefðu þau
ekki fallist á að leika sjálf sig í
háðsádeilu eftir Joe Eszterhas,
versta handritshöfund Hollywood í
seinni tið.
Bruce Willis er að lesa handrit
Eszterhas, sem heitir An Alan Smit-
hee Film, eða Kvikmynd eftir Alan
Smithee, en framleiðandinn Robert
Evans og einkaspæjarinn Anthony
Pellicano eru til í að vera með.
Mynd þessi á að vera eins konar
falsheimildarmynd og vísar heiti
hennar í þá venju í Hollywood að
leikstjóri setji nafnið Alan Smithee
á aðstandendalistann þegar hann
vill ekki að hans eigið rétta nafn
birtist þar af einhverjum ástæðum.
Það gerðist til dæmis um daginn
þegar Konuilmur með A1 Pacino var
sýnd í bandarísku sjónvarpi. Leik-
stjórinn Martin Brest var óánægður
með hvernig myndin var klippt og
skorin og neitaði því að setja nafn
sitt við hana.
Handrit Jóa segir frá breskum
leikstjóra, Alan Smithee, sem er að
gera mynd með þremur stórstjöm-
um. Hann er þó ekki alls kostar
hrifinn af fyrirtækinu og vill ekki
að nafn sitt komi þar nærri. Samtök
leiksfióra leyfa hins vegar aðeins
eitt dulnefni, nefnilega Alan Smit-
hee. Því em góð ráð dýr.
Whoopi Goldberg kemur til með
að leika hlutverk sem upphaflega
var skrifað fyrir Arnold litla
Schwarzenegger en hann svaraði
aldrei tilboði Eszterhas og því var
ekki um annað að ræða en að tor-
tíma honum, ef menn skilja sneið-
ina.
„Það er búið að reka Amold úr
handritinu mínu,“ segir Joe. Og
hvernig skyldi það nú hafa verið
gert? „Með handknúinni ritvél. Það
sem Arnold getur gert, getur
Whoopi gert betur,“ segir Joe og
snýr út úr vinsælum gömlum slag-
ara.
Tveir vinsælir ungir leikstjórar,
blökkubræðumir Hughes, velta því
nú alvarlega fyrir sér að vera með,
bæði sem leikarar og leikstjórar, og
fleiri frægir era að íhuga málið.
Varnarlióió - laust starf:
Tölvumaður á hugbúnaðarsviði
á sjúkrahús, flotastöðvar
Varnarliðsins
„Computer specialist, Software“ for Naval Hospital
Sjúkrahús Varnarliösins á Keflavíkurflugvelli
óskar aö ráöa tölvunar- eöa kerfisfræöing
á hugbúnaöarsviöi.
Starfið felur í sér aö samræma tölvuþáttinn viö
stjórnunarlega stefnu sjúkrahússins, sjá um
öryggismál kerfisins samkvæmt stöðlum og meta
áhættuþætti hverju sinni hvaö varðar öryggi gagna
og aðgang aö kerfinu og gera tillögur þar um ef
þurfa þykir.
Starfiö felur einnig í sér uppsetningu og þjálfun
starfsfólks sem m.a. tengist nýjungum sem teknar
eru í notkun.
Kröfur:
Umsækjandi sé tölvunar- eöa kerfisfræðingur meö
sem víötækasta reynslu á sviöi vélbúnaöar,
sérstaklega fyrir netkerfi.
Þarf aö geta unnið sjálfstætt og aö eiga gott meö
samskipti viö annaö fólk sem er stór hluti starfsins.
Mjög góörar enskukunnáttu er krafist, bæöi á talaö
mál og skrifað.
Skriflegar umsóknir á ensku berist til
Varnarmálaskrifstofu utanríkisráöuneytis, ráðningar-
deild, Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ, eigi síöar
en 30. júní 1996.
Starfslýsing liggur frammi á sama staö og er mjög
nauðsynlegt að væntanlegir umsækjendur lesi hana
áður en þeir sækja um, þar sem að ofan er aðeins
stiklaö á stóru um eðli og ábyrgð starfsins.
Shell
Rally-Cros