Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Síða 37
jLí^T LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
Verður Alexander Lebed arftaki Borísar Jeltsíns á forsetastóli?
Ég er fæddur sigurvegari og minn tími mun koma
„Þetta er eins og timburmenn.
Manni finnst maður hafa fengið of
mikið að drekka en þó ekki eins
mikið og maður vildi.“
Þessi orð lét Alexander Lebed, ný-
skipaður yfirmaður öryggisráðs
Rússlands, falla þegar ljóst var að
hann hafði hlotið um 11 milljónir at-
kvæða eða 14,7 prósent fylgi i fyrri
umferð rússnesku forsetakosning-
anna um síðustu helgi. Velgengni
hans kom flestum stjórnmálaský-
rendum á óvart og raunar honum
sjálfum líka, þrátt fyrir að hann
hefði slegið um sig með yfirlýsing-
um eins og: „Ég er fæddur sigurveg-
ari og minn tími mun koma.“
fréttaljós
á laugardegi
Jeltsín sá sér strax leik á borði,
gerði Lebed að yfirmanni öryggis-
mála og tryggði sér um leið stuðn-
ing hans fyrir aðra umferð forseta-
kosninganna sem fram fer 3. júlí.
Saman hafa þeir félagar meirihluta-
fylgi en eftir er þó að sjá hvort 11
milljónir stuðningsmanna Lebeds
munu greiða Jeltsín atkvæði sitt.
Það er því óvíst hvort óvæntur
frami hans er byrjunin á glæstum
stjórnmálaferli eða einungis stuttur
stans á valdastóli í Kreml. Hvað
sem því líður hefur hann tekið afar
stórt stökk inn á hið pólitíska svið í
Rússlandi.
Alexander Lebed kemur ásamt eiginkonu sinni, Innu, tii kjörstaöar 16. júní.
Lebed hlaut 14,7 prósenta fylgi sem veitti honum lykilstöðu í seinni umferð
forsetakosninganna. Bæði Jeltsín og Zjúganov biðluðu til hans. Lebed
ákvað að fylgja þeim hugmyndum „sem væru illa útfærðar en ættu sér fram-
tíð“. Símamyndir Reuter
ir fjögur ár - og jafnvel fyrr ef
heilsu Jeltsíns hrakar á ný.
En hvernig maður er Lebed? Ef
marka má orð eiginkonu hans,
hinnar rauðhærðu Innu, er Lebed
ástríkur eiginmaður sem veit fátt
betra en að fara í gönguferð með
hundinn. Þau eiga tvo syni og eina
dóttur.
Þótt Lebed hafi vísað í timbur-
menn hér í upphafi er slíkt ástand
honum mjög fjarri því að langt er
síðan hann hætti að drekka. Hann
kveðst hafa hætt svo að um stjóm
landsins sæi að minnsta kosti einn
allsgáður maður. Þótti hann þar
skjóta fóstum skotum að Jeltsín og
meintri ofdrykkju hans. Halli
Jeltsín sér aftur að flöskunni eftir
kosningamcU' er ekki að vita nema
Lebed komist alla leið á toppinn
fyrr en seinna.
Reuter/Agence France Presse
9 0 4 * 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
*
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó ,
og Kínó f
LOTTDsáw
9 0 4 * 5 0 0 0
t Velheppnuð kosn-
f ingabarátta varð
reyndar til þess að
Ý sögusagnir komust á '
. kreik um að stjómvöld
í Kreml fjármögnuðu
hana í þeim tilgangi að
kljúfa raðir andstæðinga
Jeltsíns.
Líkur Jeltsín
Nú, þegar
Lebed virðist
ætla að
Af stríðsmönnum kósakka
Alexander Lebed er 45 ára og var
á sínum tíma i fallhlífarherdeildum
hersins. Hann á ættir að rekja til
stríðsmanna kósakka og varð hers-
höfðingi 38 ára. Hann varð hetja fyr-
ir framgöngu sína í fyrrum sov-
étlýðveldinu Moldavíu, árið 1992. Þá
tókst honum að bæla niður bardaga
milli stjórnarhers Moldavíu og rúss-
neskra aðskilnaðarsinna. í kjölfarið
naut Lebed mikillar hylli aðskilnað-
arsinna í Moldavíu og meðal her-
manna sinna sem þekktir voru fyr-
ir snyrtimennsku. Þá þótti hann
góður félagi.
Árið áður hafði hann tekið þátt í
vörnum Jeltsíns við Hvíta húsið í
Moskvu þegar harðlínukommúnist-
ar reyndu að endurvekja Sovét-
stjórnina. Ferill Lebeds einkennist
þó ekki aðeins af glæstmn hetjudáð-
um; hann á sér dekkri hliðar. Hann
var fallhlífarhermaður í stríðinu í
Afganistan og tók þátt í að brjóta á
bak aftur sjálfstæðistilburði í Baku
sem kostaði yfir 100 manns lífið.
Kokhreysti
Velgengnin í þjónustu hersins
endurspeglaðist í kokhreysti hans
fyrir kosningarnar í sumar. Þar
kallaði hann Jeltsín stóran mínus
og Pavel Gratsjov, vamarmálaráð-
herra og fyrrum yfirmann sinn,
annars flokks. Þegar Jeltsín og
Gratsjov sendu rússneskar her-
sveitir inn í Tsjetsjeníu 1994,
í þeim tilgangi að kæfa upp-
reisn aðskilnaðarsinna, var
Lebed með fyrstu mönnum
til að gagnrýna þá ákvörð-
un. Hann sagði að ef ein-
hverjir ættu að berj
ast þar syðra væru
það synir og sonar-
synir ráðherr-
anna. Togstreitan
milli Lebeds og
Gratsjovs jókst sí-
fellt og endaði
með því að Grat-
sjov fékk Jeltsín
til að reka Lebed
úr hernum
fyrrasumar.
Lebed hóf þá
baráttuna á
borgaralegum
vettvangi, gagn-
rýndi mjög
hernaðarum-
svifin í
Tsjetsjeníu og
kallaði Gratsjov
mellu. Hefndin var því sæt þegar
Gratsjov var látinn fjúka í vikunni
og Lebed gerður að æðsta yfirmanni
öryggismála. Jeltsín varð að greiða
stuðning Lebeds einhverju verði.
Endurmisn laga og reglu
Lebed náði ekki sérstökum ár-
angri í þingkosningunum 1995 en
hefur setið á þingi. Hann er ekki
maður margra orða. Rödd hans er
rám af keðjureykingum og svo djúp
að hún minnir helst á fallbyssudr-
unur. Því er Lebed stundum illskilj-
anlegur og ekki skrýtið þótt margir
hafi talið að hann væri á rangri
hillu í pólitík.
í kosningabaráttunni klæddist
Lebed einkennisbúningi hersins og
boðskapur hans var einfaldur. Með
djúpri og rámri röddu boðaði hann
frjáls markaðsviðskipti en sagði um
leið víðtækri spillingu og glæpum
stríð á hendur. Hann boðaði endur-
reisn laga og reglu og stöðvun
stríðsreksturs í Tsjetsjeníu.
Einfóld en snjöll auglýsingaher-
ferð í sjónvarpi, auk slagorða eins
og „Sannleikur og regla“ og „Ég get,
þess vegna verð ég“, aflaði honum
fylgis úr röðum kommúnistans
Zjúganovs og þjóðernissinnans
Zhírinovskis. Lebed virtist höfða
jafnt til þeirra sem horfðu með
söknuði til horfinna sovétdaga og
óánægðra fylgjenda efnahagsum-
bótanna.
ráða úrslitum forsetakosninganna,
rifjast upp aðdáun Jeltsíns á þess-
um ódæla hershöfðingja. Sú aðdáun
byggist ekki síst á því hversu líkir
þeir eru, bæði í framkomu og þegar
saga þeirra er skoðuð. Báðir eru af-
urð sovéska valdakerfisins en upp-
reisnargjamir. Báðir brutu þeir af
sér hlekki og féllu í ónáð fyrir vik-
ið. Jeltsín 1987, þegar hann yfirgaf
forsætisnefnd sovéska kommúnista-
flokksins og fór út í pólitíska
óvissu, og Lebed 1994, sem varð til
þess að Gratsjov rak hann úr stöðu
yfirmanns 14. herdeildar rússneska
hersins í fyrra.
Jeltsin lítur gjarna á Lebed sem
yngri útgáfu af sjálfum sér enda
varð fátt um viðbrögð þegar Lebed
gerði lítið úr honum í kosningabar-
áttunni; sagði meðal annars að
Jeltsín hefði ekki látið neitt gott af
sér leiða, ætti að segja af sér og fara
að rækta jarðarber.
Tilveran er ótrygg á valdastólum
Kremlar eins og atburðir síðustu
daga sýna glögglega. Ekki síst fyrir
lítt reynda stjórnmálamenn eins og
Lebed. Þótt bakland Lebeds þyki
traust þar sem 11 milljónir kjósenda
eru annars vegar og honum verði
seint fórnað, þykir sýnt að hann
muni eiga erfitt uppdráttar geri
hann atlögu að spilltum yfirmönn-
um Kremlar. Auk þess kann staða
hans að veikjast til muna ef viðhorf
almennings breytist þannig að
hann verði einungis álitinn
v vænn fengur á króki
Jeltsíns en ekki þungavigt-
armaður á eigin forsend-
um.
Hætti að
drekka
Alexander Lebed og Borís Jeltsín innsigla bandalag sitt þegar sá síöarnefndi
var geröur aö yfirmanni öryggisráös Rússlands og ráögjafi forsetans í örygg-
ismálum. Talið er aö Jeltsín sjái eftirmann sinn á forsetastóli í Lebed.
Sigri Jeltsín í
kosningunum 3.
júli kann draum-
ur Lebeds að ræt-
ast innan tíðar.
Jeltsín hefur látið
þau orð falla að
hann sjái Lebed
sem mögulegan
eftirmann sinn á
forsetastóli árið
2000. Til lengri
tíma litið getur
skjótur frami
gamla fallhlífar-
hermannsins
veitt honum for-
skot fyrir forseta-
kosningarnar eft-
Þrír heppnir KrakkaklúbbsmedHmir hljóta ís-
venkifráKjörisogkubbaspNfráKjörisogLEGO.
V íris Edda Heimisdóttir nr. 6368
V Bjarki Einarsson nr. 9008
V Ester Anna Pálsdóttir nr. 5467 v
Allir sem tóku þátt fá ávísun á tvo græna
Hlunka frá Kjörís.
U&ultóítaMúMDU/ DV, ifpöife og LEGO þakka kssrfega
fýrir þáttiökuna.
Vinningarnir verða sendir í pósti næstu daga.
Vinningshafar
í litasamkeppni
Krakkaklúbbs DV,
Kjöríss og LEGO
4-