Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Síða 50
58
afmæli
LAUGARDAGUR 22. JUNI1996
Bergsveinn Breiðfjörð Gíslason
Bergsveinn Breiðfjörð Gíslason
verkstjóri, Laugarásvegi 3, Reykja-
vík, er sjötiu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Bergsveinn fæddist í Rauðseyjum
í Breiðafirði og ólst þar upp. Hann
lærði skipasmíðar á Akureyri
1941-45 hjá Gunnari Jónssyni skipa-
smíðameistara.
Bergsveinn vann við skipasmíðar
í Landssmiðjunni og í Bátalóni í
Hafnarfirði. Hann réðst sem teikn-
ari til Vita- og hafnamálastofnunar
1947. Hann varð siðan verkstjóri hjá
stofnuninni við hafnargerðir. Því
starfi gegndi hann þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir 1991, að
undanskildum tveimur árum er
hann var sveitarstjóri í
Stykkishólmi, 1966-68.
Fjölskylda
Bergsveinn kvæntist
1946 Sigrúnu Sigurðar-
dóttur, f. 23.11. 1920, hús-
móður. Hún er dóttir Sig-
urðar Einarssonar, bónda
í Gvendareyjum, og
Magnúsínu Guðrúnar
Björnsdóttur. Bergsveinn
og Sigrún skildu 1983.
Böm Bergsveins og Sig-
rúnar eru Brynja, f. 11.8. 1947, hús-
freyja í Litlagerði á Hvolsvelli, gift
Theodór Guðmundssyni verkstjóra
og eru börn þeirra Guðni, Hlynur
og Bergsveinn; Sigurður, f. 22.6.
1949, stýrimaður og fisktæknir í
Bergsveinn Breiö-
fjörö Gíslason.
Kópavogi, kvæntur
Helgu Bárðardóttur hús-
móður og eru dætur
þeirra Sigrún, Dröfn og
Bryndís; Lára, f. 20.8.
1953, húsmóðir í Kópa-
vogi, gift Guömundi Guð-
jónssyni bifreiðastjóra
og eru börn þeirra Sigur-
laug Helga og Ríkharður
Leó; Alma, f. 1.9. 1955,
húsmóðir í Reykjavík,
gift Guðna Magnússyni
trésmið og eru synir
þeirra Janus Freyr,
Magnús Már og Kári; Freyja, f. 8.1.
1958, húsmóðir, gift Guðlaugi Páls-
syni vélstjóra og eru börn þeirra
Amþór, Björk, Sandra og Egill.
Systkini Bergsveins: Kristinn
Breiðfjörð, f. 9.10.1919, bóndi og síð-
ar verkamaður í Stykkishólmi;
Svava, f. 11.9. 1922, lengst af hús-
móðir á Patreksfirði, nú í Kópavogi;
Kristjana, f. 23.1. 1925, húsmóðir í
Reykjavík.
Hálfsystkini Bergsveins, sam-
feðra, eru Lárus Ágúst, f. 17.8. 1905,
d. 2.11. 1990, lengst af bóndi á
Þórunúpi og í Miðhúsum í Hvol-
hreppi; Ingveldur, f. 4.4. 1904, lengst
af húsmóðir á Patreksfirði; Jóna
Sigríður, f. 8.1. 1909, saumakona í
Reykjavík.
Foreldrar Bergsveins: Gísli Berg-
sveinsson, f. 13.7. 1877, d. 15.5. 1939,
bóndi og sjómaður, og Magdalena
Kristjánsdóttir, f. 13.11. 1897, hús-
móðir, en hún dvelur nú á elliheim-
ilinu á Patreksfirði.
Böðvar
Böðvarsson
Böðvar Böðvarsson
húsasmíðameistari,
Garðastræti 14, Reykja-
vík, verður sextugur á
morgun.
Starfsferill
Böðvar er fæddur í
Reykjavík. Hann lauk
sveinsprófi í húsasmíði
við Iðnskólann í Reykja-
vík 1956 og meistaraprófi í
húsasmíði við Meistara-
skólann í Reykjavík 1959.
Böðvar var framkvæmdastjóri
verktakafyrirtækjanna Böðvars S.
Bjarnasonar sf. 1963-83 og Hámúla
hf. 1983-86. Meðal verkefna Böðvars
S. Bjamasonar sf. má nefna Árbæj-
arskóla, Fossvogsskóla, íþróttahús
Kennaraháskóla íslands og Hvassa-
leitisskóla, heilsugæslustöðina á
Seltjarnamesi, Fjölbrautaskólann i
Breiðholti, íbúðir aldraðra við
Lönguhlíð, hús Rafmagnsveitu
Reykjavíkur við Suðurlandsbraut,
og fjöldann allan af raðhúsum, fjöl-
býlis- og einbýlishúsum. Meðal
verkefna Hámúla hf. má nefna fjöl-
býlishúsið við Stangarholt og dag-
heimili á sama stað.
Á sínum yngri árum spilaði
Böðvar handknattleik með ÍR, þjálf-
aði einnig hjá félaginu og sat í
stjórn þess.
Böövar Böövarsson.
Fjölskylda
Guðrúnu Alfreðsdóttur,
frá Vestmannaeyjum,
þau skildu 1980. Foreldr-
ar hennar: Alfreð Sturlu-
son, látinn, og Steinunn
Jónsdóttir.
Börn Böðvars og Guð-
rúnar: Alfreð Sturla, f.
27.2. 1961, heimspekingur
og ljósahönnuður, sam-
býliskona hans er Helga
Rún Pálsdóttir, klæð-
skeri og leikmynda- og
búningahönnuður, þau
eiga einn son, Andra Pál,
f. 19.9. 1995; Steinunn, f. 23.5. 1962,
stjómmálafræðingur; Soffia, f. 16.8.
1965, BA í spænsku, í sambúð með
Yngva Markússyni rafvirkja.
Systkini Böðvars: Jón, f. 2.5.1930,
cand. mag. í ísl. fræðum; Vilhelm-
ína Sigríður, f. 13.6. 1932, hús-
mæðrakennari og húsmóðir; Val-
borg Soffia, f. 18.8. 1933, leikskóla-
stjóri; Bjarni, f. 16.11. 1934, húsa-
smiður; Sigmundur, f. 29.9.1937, lög-
fræðingur. Hálfsystur Böðvars,
samfeðra: Alberta; Guðný, f. 19.6.
1942.
Foreldrar Böðvars: Böðvar Sth.
Bjarnason, f. 1.10.1904, d. 3.10.1986,
frá Gerði á Akranesi, og Ragnhildur
Jónsdóttir, f. 31.3. 1904, d. 23.6. 1993,
frá Rein á Akranesi.
Böðvar gengur yfir Fimmvörðu-
háls á afmælisdaginn, það er Jóns-
messunótt, og þeir sem vilja hitta
hann eru beðnir að vera vel skóað-
ir.
Böðvar kvæntist í október 1960
Kjörfundur í Reykjavík
vegna forsetakosninga laugardaginn 29. júní 1996 hefst
kl. 9 og lýkur kl. 22 þann dag.
Sérstök athygli kjósenda er vakin á eftirfarandi ákvæöi
81. gr. kosningalaganna:
„£r kjósandi kemur inn í kjörfundarstofuna gerir hann kjörstjórn
grein fyrir sér meö því að framvísa nafnskírteini eða á annan
fullnægjandi hátt. Efhann þannig á rétt á að greiða atkvæði
samkvæmt kjörskránni afhendir oddviti honum einn kjörseðil."
Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur
átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórnin mun á kjördegi hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavík-
ur og þar hefst talning atkvæða þegar að loknum kjörfundi.
Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag er 563 2263.
Reykjavík, 21. júní 1996
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur
Hjörleifur B. Kvaran
Arnmundur Backman
Eggert Ólafsson
Erla S. Árnadóttir
Sjöfn Kristjánsdóttir
Snorri
Þorsteinsson
Snorri Þorsteinsson.
Snorri Þorsteinsson,
mjólkurfræðingur hjá
M.D. Foods í Árósum,
Suðurgötu 6, Sauðár-
króki, verður fertugur
á morgun.
Starfsferill
Snorri fæddist á
Hofsósi og ólst þar
upp. Hann hóf nám í
mjólkurfræði hjá
Kaupfélagi Skagfirð-
inga á Sauðárkróki 1974, stundaði
nám í þeirri grein 1976-77 og síðan
við Dalum 1978-79.
Snorri starfaði hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga á Sauðárkróki 1976 og
1977, starfaði í Danmörku 1979-80,
var mjólkursamlagsstjóri á Nes-
kaupstað 1980-82, hóf störf hjá M.D.-
Foo’ds 1982 og vann á vegum fyrir-
tækisins i Saudi-Arabíu 1982-84, síð-
an í Danmörku um skeið, í Brasilíu
til 1990 og síðan aftur í Danmörku.
2.7.
Fjölskylda
Eiginkona Snorra er Anne Hoff-
meyer matvælafræðingur. Hún er
dóttir Torben og Idu Hoffmeyer.
Sonur Snorra og Anne er Pauli
Thorsteinsson, f.
1993.
Snorri er næstyngstur
átta systkina. Systkini
Snorra eru Páll, f. 1941,
yfirgjaldkeri hjá Vega-
gerðinni, búsettur í
Kópavogi; Maria, f.
1943, lektor við HÍ, bú-
sett í Reykjavík; Dóra,
f. 1944, forstöðumaður
á Sauðárkróki; Gestur,
f. 1945, útibússtjóri við
Búnaðarbankann á
Sauðárkróki; Anna
Pála, f. 1947, gjaldkeri hjá Búnaðar-
bankanum á Sauðárkróki; Þor-
steinn Þorsteinsson, f. 1948, banka-
stjóri við Norræna fjárfestingabank-
ann í Helsinki; Broddi, f. 1951,
tæknifræðingur hjá Pósti og síma,
búsettur í Reykjavík; Rósa, f. 1958,
bókasafnsfræðingur við Ámastofn-
un, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Snorra voru Þorsteinn
Hjálmarsson, f. 14.2. 1913, d. 26.3.
1981, kennari, stöðvarstjóri Pósts og
síma á Hofsósi, og k.h., Pála Páls-
dóttir, f. 25.10. 1912, d. 1993, kennari
á Hofsósi.
Snorri heldur upp á afmælið sitt
á íslandi.
Helga A.
Pálsdóttir
Helga Anna Pálsdóttir, húsfreyja
að Eyjum í Kjós, nú til heimilis að
Borgarhóli, Kjósarsýslu, er sjötug í
dag.
Fjölskylda
Helga er fædd í Þýskalandi og ólst
þar upp í Kuchnitz en hún kom að
Eyjum í Kjós sem vinnukona árið
1949. Þar vann hún almenn land-
búnaðar- og húsmóðurstörf
Helga giftist 11.6. 1950 Ingólfi
Guðnasyni, f. 27.10. 1919, fyrrver-
andi bónda að Eyjum í Kjós, en þau
bjuggu þar til 1994. Foreldrar hans:
Guðni Guðnason, bóndi að Eyjum,
og Guðrún Hansdóttir húsfreyja.
Börn Helgu og Ingólfs: Guðni
Gunter, f. 10.6. 1951, býr að Eyjum;
Anna Pálína, f. 15.2.
1953, d. í apríl 1955;
Anna Guðfinna, f. 4.4.
1955, maki Kristinn
Helgason, þau búa í
Keflavík og eiga þrjú
börn; Hermann Ingi, f.
24.3. 1956, maki Birna
Einarsdóttir, þau búa
að Hjalla, Kjós, og eiga
þrjú böm; Páll Heim-
ir, f. 1.12. 1958, maki
Marta Karlsdóttir, þau
búa að Eyjum og eiga
tvö börn; Guðrún Lilja,
f. 30.12. 1959, hún býr í
Kópavogi og á fjögur
börn; Valborg Erna, f. 8.2. 1965,
maki Ómar Ásgrímsson, þau búa í
Reykjavík og eiga tvo syni.
Systkini Helgu: Gunter, látinn;
lil hamingju
með
afmælið
22. júní
90 ára
Ingibjörg
Stephensen,
lengi búsett
og kenndi við
Breiðablik á
Seltjamar-
nesi,
nú að Skóla-
braut 3, Sel-
tjarnarnesi.
Eiginmaður hennar var Björn
Jónsson vélstjóri
Ingibjörg er að heiman.
85 ára
Jóhann Valdimarsson,
Áflheimum 48, Reykjavík.
Sóley Magnúsdóttir,
Hvolsvegi 26, Hvolsvelli.
Friðmey Benediktsdóttir,
Háaleitisbraut 123, Reykjavík.
Sigurliði Jónasson,
Engimýri 11, Akureyri.
70 ára
Magnús Thorvaldsson,
Kaplaskjólsvegi 39, Reykjavík.
Jónatan Ásvaldsson,
Laxárvirkjun VII, Aöaldæla-
hreppi.
Svanhild Ágústsson,
Garðavegi 3, Keflavík.
50 ára
Guðjón A. Einarsson,
Akurgerði, Seltjamamesi.
Bima Lárusdóttir,
Efri-Brunná, Saurbæjarhreppi.
Sigríður Sigurgeirsdóttir,
Engjaseli 81, Reykjavík.
40 ára
Elías Jakob Ingimarsson,
Strandgötu 13, Hvammstanga.
Jóhanna Jóna Andrésdóttir,
Skipasundi 42, Reykjavík.
Sigurlína Eiríksdóttir,
Túngötu 10, Eyrarbakka.
Eva Ingibjörg Sumarliðadótt-
ir,
Þinghóli, Glæsibæjarhreppi.
Ellert Eggertsson,
Hraunbæ 90, Reykjavík.
Sveinn Jóhannesson,
Sólheimum 26, Reykjavík.
Sæmundur Jóhann Ingvason,
Furugrund 76, Kópavogi.
Karl Cuong Quoc Du,
Suðurmýri 48, Seltjamarnesi.
Ottó Sveinsson,
Vallarbraut 1, Akranesi.
Vilhjálmur Baldursson,
Smáratúni 16, Selfossi.
Helga Anna Pálsdóttir.
Waltraut, býr í Englandi;
Elvíra, býr í Lubeck í
Þýskalandi; Ingibjörg,
býr í Hafnarfirði;
Irmgard, d. 1994; Horst,
býr í Lubeck í Þýska-
landi.
Foreldrar Helgu: Paul
Wiggert, f. 7.12. 1901, d.
1960, verkamaður, og
Erna Wiggert (fædd
Riher), f. 30.1. 1905, d.
1981, húsmóðir, þau
bjuggu í Þýskalandi.
Helga tekur á móti gest-
um á Hjalla frá kl. 15.