Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 26
26
sumarmyndasamkeppnin
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
Sumarmyndasamkeppni DV og Kodakumboðsins er lokið:
Sumarmyndasamkeppni DV og
Kodakumboðsins er nú lokið og sex
myndir hafa verið valdar til verð-
launa. Eins og undanfarin ár var
gífurlega góð þátttaka í sumarmyn-
dasamkeppninni og bárust mörg
þúsund myndir. Margar þeirra voru
mjög góðar. í dómnefnd sátu Gunn-
ar V. Andrésson og Brynjar Gauti
Sveinsson, ljósmyndarar á DV, og
Halldór Sighvatsson frá Kodakum-
boðinu. Vinningsmyndina sendi
E.Ó.A., Nýlendugötu 45 í Reykjavík.
Hann/hún fær ferð fyrir tvo með
Flugleiðum til Flórída. Önnur verð-
laun eru Canon EOS 500 myndavél
með 35 mm linsum. Hana fær Halla
Hersteinsdóttir, Réttarholtsvegi 75 í
Reykjavík. Þriðju verðlaun hreppir
Guðbjörg Kvien, Ástúni 14 í Kópa-
vogi, en það er Canon Prima Super
28 V myndavél. Fjórðu verðlaun fær
Sonja Hákansson, Hofgörðum, Sel-
tjamarnesi, fyrir mynd sína, Á
Hornbjargi, Rebbi kannar bjargið.
Hún fær Canon Prima Zoom Shot
myndavél í verðlaun. Fimmtu verð-
laun hreppir Úlfar Sveinbjömsson,
Blómvangi 15 í Hafnarfirði, fyrir
mynd sína, Paradís. Hann hlýtur
Canon Prima AF-7 í verðlaun.
Sjöttu verðlaun féllu í skaut Önnu
Sigurðardóttur, Hrísateigi 12, fyrir
mynd hennar, í berjatínslu.
Vinningshafar eru beðnir að
koma með filmur sínar af vinnings-
myndunum til stækkunar í Hans
Petersen í Kringlunni. Þær verða
hafðar til sýningar við verðlaunaaf-
hendinguna 25. sept., kl. 17.30, í
verslun Hans Petersens í Kringl-
unni.
sjötta sæti
varð myndin í berja
tínslu sem Anna Sigurðardóttir
sendi inn.
þriðja sæti
varð mynd sem gæti
heitið Hleypið mér út og Guð-
björg Kvien tók.