Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996 5 Fréttir Skýrsla Hagsýslu rikisins um stjórnsýslu Háskólans: Margt gott í skýrslunni en annað beinlínis rangt - segir Þórólfur Þórlindsson prófessor „Ég tel ekki að þessi skýrsla sé áfellisdómur fyrir Háskóla íslands. Það er margt gott í skýrslunni, sumu er ég ósammála og sumt er beinlínis rangt. Skýrslan í heild er gagnleg og athyglisverð. Þar er velt upp ýmsum hugmyndum til um- hugsunar og athugunar," sagði Þórólfur Þórlindsson prófessor um skýrslu Hagsýslu ríkisins um stjómsýslu Háskóla íslands. DV birti sem kunnugt er ýmsa punkta úr skýrslunni í liðinni viku. Það er ljóst að háskólamenn eru ánægðir með sumt í henni en alfar- ið á móti öðm og segja að líka sé margt rangt sem þar kemur fram. „Hagsýsla ríkisins leggur til í skýrslunni að fækkað verði rann- sóknastofnunum Háskólans niður í 4. Þessu er ég ósammála en er alveg tilbúinn til að skoða þessi mál vel. Við verðum að gæta þess að hér innanlands viljum við hafa fjöl- breytt rannsóknastarf. Það kemur til greina að efla samskipti og sam- vinnu stofnana en einhver sam- keppni verður að vera hér innan- lemds í íslenskum rannsóknum. Þess vegna held ég að það sé ekki til bóta að steypa rannsóknastofnun- um saman í fáar stórar stofnanir. Það má fækka þeim eitthvað en ekki að steypa þeim saman,“ sagði Þórólfur. Hann var inntur álits á hugmynd- inni um framkvæmdastjóra við hlið rektors: „Ég er ekki hlynntur þeirri hug- mynd. Ég tel mikilvægt að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð sé sem mest á einni hendi. Það sem ég óttast er að ef á að skilja fjármál og fram- kvæmdir frá hinum akademísku málum skapist vandræði. Ég vil að fagleg ábyrgð og fjármál fari sem mest saman. Ég tel hins vegar að það sé rétt mat hjá skýrsluhöfúnd- veturinn Styl Grand fjallgönguskór, léttir og liprir. Teg.: 752 Litur: grænn. St. 36-46. Verö kr. 7.290 Teg.: 751. Litur: brúnn. St. 36-46. Verö kr. 8.990 Carmans dömu- kuldaskór, kulda- fóöraöir. Litir: brúnt og svart. St. 36-42. 'erö kr. 6.495 póstseoðum samdsð** Alfheimum 74, sími 581 2966 um að rektorsembættið þurfí að ekki gert með því að setja fram- ur á móti tel ég að það gæti orðið til rektor sér við hlið,“ sagði Þórólfur efla. Það verður, að mínum dómi, kvæmdastjóra viö hlið rektors. Aft- bóta ef rektor væri með aðstoðar- Þórlindsson. -S.dór í Víkingalottóinu! Að loknum útdrætti á morgun verður aukaútdráttur í Víkingalottóinu þar sem dreginn verður út einn stór vinningur. Sami miðinn gildir í báðum útdráttunum svo að þátttakendur fá tvö tækifæri til að vinna á sama miðann. Vinnufélagar, starfsmannafélög og vinahópar! Muniö eftir kerfisseðlunum. kl.tf Til mikils að vinna! Fyrst verður útdráttur með hefðbundnu sniði. I seinni útdrættinum verður dreginn út einn vinningur sem er sameiginlegt framlag norrænu fyrirtækjanna sem standa að Víkingalottóinu. Til þess að hljóta hann þarf að hafa sex tölur réttar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.