Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996 25 py__________________________________Fréttir Fræknir fjárhundar kepptu um smalahundabikarinn - sigurvegarinn aö þessu sinni var Harpa Reynisdóttir á Hæli í Flókadal, með tíkina Snerpu Guömundur Guömundsson, Harpa Reynisdóttir og Gunnar Þorsteinsson lentu í verölaunasætum í smaiahundakeppninni á Hesti sem haldin var sl. sunnudag. DV, Borgarfirði: Sjö hundar kepptu ásamt eigend- um sínum um smalahundabikarinn á Hesti á sunnudag, að viðstöddum hátt á annað hundrað áhorfendum. Þetta var þriðja smalahundakeppnin sem haldin hefur verið en þær hafa allar verið haldnar á vegum Vestur- landsdeildar Smalahundafélags ís- lands. Sigurvegarinn að þessu sinni var Harpa Reynisdóttir á Hæli í Flókadal, með tíkina Snerpu. í öðru sæti varð Guðmundur Guðmundsson á Kaðalstöðum með Sokka sem varð í fyrsta sæti í fyrra. í þriðja sæti varð svo Gunnar Þorsteinsson á Brekku með hundinn Kát en fram kom að mjótt hefði verið á mununum í þriðja sætinu. Hundamir eru allir af svokölluðu „border collie“-kyni. „Ekkert rosaleg, náttúrlega dálítil undirbúningsvinna. Ég held að hún sé ákaflega sjáifgerð," svaraði Harpa, aðspurð hvort ekki lægi mikil vinna með tíkinni á bak við fyrsta sætið. Snerpa er tveggja og hálfs árs og búið að nota hana sem fjárhund í rúmlega ár. Þær Harpa og Snerpa urðu í öðm sæti í keppninni í fyma þegar nýbyrj- að var að þjálfa Snerpu svo það er ekki ofsagt að hún sé sjálfgerður fjár- hundur. Á Hæli em fjórir hundar og segir Harpa að annar hundur á bæn- um, Skarði, sjái um að sækja kýmar út á tún á sumrin, það nægi að segja: „Skarði, farðu og sæktu kýmar!“ þá rölti hann eftir þeim. í fyrstu fjár- hundakeppninni varð Harpa í þriðja sæti ásamt Skarða þannig að það hef- ur verið jöfn og stöðug stígandi hjá henni - annað sætið í fyrra og fyrsta nú. Eiginmaður Hörpu, Jóhann Pjet- ur Jónsson, keppti með Skarða í gær. Þeir komust ekki á verðlaunapall að þessu sinni en hrepptu þriðja sætið í keppninni í fyrra. Keppt er á lokaðri braut og gengur keppnin út á að smalinn lætur hund- inn reka fjórar kindur fyrir fram ákveðna leið í gegnum brautina. í fyrsta áfanga eru kindumar látnar bíða eftir smalanum í um 150 metra fjarlægð. Hundurinn á þá að fara í víðan boga fyrir kindumar og stöðva þar og koma þeim síðan til smalans. Því næst á hundurinn að reka kind- umar frá smalanum um 150 metra leið í gegnum tvö hlið og stöðva þær síðan í afmörkuðum hring og róa þær. Lokahlutinn felst svo í því að reka kindurnar inn í litla rétt. Tíma- takmörk era ekki nákvæm en missi hundar alla stjórn á kindunum era þeir úr leik og þeir mega aðeins bíta i sjálfsvöm. Gunnar Einarsson á Daðastöðum, sem er frumkvöðull í þjálfun fjár- hunda hérlendis, hefur dæmt í keppninni frá upphafi. Hann sagði m.a. að vonir stæðu til að í framtíð- inni yrði keppni sem þessi haldin í hveijum fjóröungi landsins sem for-. keppni fyrir landsmót. -OHR Tíkin Snerpa frá Hæli fór létt meö aö reka kindurnar rétta leið i fjárhunda- keppninni á Hesti og hlaut fyrsta sætiö aö launum. DV-myndir OHR Enn unnið í máli mannsins frá Sierre Leone: Framsalið alvarlegra vegna fyrirvara Finna - segir Tómas Jónsson, lögfræðingur Christophers Bundeh „Finnar hafa gert fyrirvara um 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu og getá þar með ekki tryggt mönnum munnlega málsmeðferð. Almennt þýðir það að hugsanlegt sé að engin formleg réttarhöld fari fram,“ segir Tómas Jónsson, lögfræðingur Chri- stophers Bundeh, mannsins frá Si- erre Leone sem íslendingar fram- seldu til Finnlands í byijun septemb- Allt landiö eitt atvinnusvæði Páll Pétursson félagsmálaráð- herra hefur kynnt í ríkisstjóminni tvö lagafrumvörp, annað um vinnu- markað og vinnumiðlanir en hitt um atvinnuleysistryggingar. í frumvörpunum felst að allt landið verður eitt atvinnusvæði og vinnu- miðlanir færast úr umsjá sveitarfé- laga til sérstakrar stofnunar á veg- um félagsmálaráðuneytisins, Vinnumálastofnunar rikisins. Tilgangur frumvarpanna er að gera vinnumiölanir almennt virkari og draga úr misnotkun atvinnuleysis- bóta. Öli laus störf verður skylt að til- kynna tii stofhunarinnar og þeir sem eru án vinnu skulu bera sig eftir nýju starfi hjá stofnuninni, eða vinnumiðl- un á hennar vegum. í frumvarpinu um atvinnuleysis- tryggingar er meðal markmiða að menn geti ekki verið á bótum leng- ur en tiltekinn hámarkstíma, en jafnframt skal Vinnumáiastofnunin hafa fmmkvæði að miðla störfum til hinna atvinnulausu, sem mönn- um verður gert skylt að þiggja, eða detta ella út af bótum. -SÁ er vegna nauögunarmáls þar í landi. Christopher hefúr árangurslaust reynt að fá mál sitt tekið upp aftur vegna þess að hann var ekki við- staddur áfrýjunarúrskurðinn þar sem honum var vikið úr landi áður en hann var kveðinn upp. Sem fym segir gerðu Finnar á sínum tíma fyr- irvara vegna 6. greinarinnar en hún á einmitt að tryggja öllum mönnum réttláta málsmeðferð fyrir dómi. Tómas segir enn alvarlegra að Is- lendingar hafi framselt manninn þegar í ljós kemur að Finnar hafi gert umræddan fyrirvara. „Ég hyggst halda áfram með þetta mál og mun leita til mannréttinda- dómstólsins í Strassburg til þess að fá úr því skorið, í fyrsta lagi hvort framsal íslendinga stangist ekki á við mannréttindi og í öðra lagi hvort Finnar hafi brotið af sér,“ segir Tóm- as Jónsson. Halldóra Gunnlaugsdóttir, unn- usta Christophers, hefur verið í Finnlandi frá því að hann var fluttur út. Samkvæmt heimildum DV hefur hún árangurslaust leitað til þar- lendra lögfræðinga til þess að reyna að fá málið endurapptekið. -sv Starfsfólk veitingastaöarins Hard Rock bryddaöi upp á þeirri nýbreytni á fimmtudagskvöldiö aö klæöa sig í alis kyns grímubúninga. Starfsfólkiö þjónaöi viöskiptavinum til borös í margvíslegum búningum og gervum og ekki var ann- aö aö sjá á gestum, sem troöfylltu veitingastaöinn, en aö þeim líkaöi þessi uppákoma vel. Hér má sjá starfsfólk Hard Rock í grímubúningunum sínum. DV-mynd S 8mAauoíýBÍngar Nóuember tilboð fyrir aöeins kr. 7. færðu myndatöku afbörnunum pínum cm? eina stækkun, 30x40 sentímetra, innrammaða og 10 jólakort. Úrvals jólagjöf Að auki áttu kosti á að velja úr 10-20 öðrum myndum af börnunum og þær færðu með 50% afslætti frá gildandi verðskrá efpú pantar strax. Hringdu og láttu senda þér frekari upplýsingar, en biddu ekki og lengi. nlboöiö gildir aöeins ákveöinn tíma. (j3 ódýrari^) Ljósmyndastofan Mynd sími: 565 4207

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.