Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Qupperneq 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996 Sviðsljós Hönnuðurinn Francois Girbaud á heiðurinn af þessum vorfatnaöi sem er röndóttur eins og brjóstsykur. Fatnaöurinn, sem sýndur var á dögunum f New York, er úr nælonefni. Simamynd Reuter Jeff Goldblum hefur ekkert vit á tölvum Eddie Murphy sakaður um ritstuld Tveir bræður í Bandaríkjunum hafa stefht Eddie Murphy og Uni- versal kvikmyndafélaginu fyrir rit- stuld. Bræðumir halda því fram að þeir eigi hugmyndina að Geggjaða prófessornum, nýjustu mynd Eddies. Bræðumir segja að Universal hafi hafnað handriti frá þeim fyrir fimm ámm. Þar segir frá kvenkyns erfða- fræðingi sem uppgötvar leið til að megrast á einu andartaki. t Geggi- aða prófessornum leikur Eddie karl- kyns erfðafræðing sem uppgötvar sams konar aðferð. Eddie er ekki ókunnugur svona lögsóknum þar sem dálkahöfundur- inn Art Buchwald stefhdi honum á sínum tíma fyrir að stela hugmynd- inni að myndinni Coming to Amer- ica. Art vann en Eddie tapaði. Miðvikudaginn 13. nóvember mun aukablað um tækni fylgja DV. í blaöinu verður m.a fjallað um sjónvörp, myndbandstæki og heimabíó. Auk þess verður fjallað um hljómtæki og hvernig þau tengjast hinu sjónræna. Þeir sem vilja koma ó framfæri nýjungum og efni í blaÖið er bent ó aS hafa samband við Jón Heióar ó ritstjórn DV í síma 550-5819sem allra fyrst. Þeir auglýsendur, sem hafa óhuga ó að aug- lýsa í þessu aukablaöi, vinsamlega hafi sam- • band viS Selmu Rut, auglýsingadeild DV, fyrsta, í síma 550-5720 Lovitz gefinn fyrir drama John Lovitz er þekktur fyrir að vera mikill spaugfugl. Hann var lengi í grínþáttunum Saturday Night Live í amerisku sjónvarpi og hefur síðan leikið í mörgum gamanmyndum, svo sem City Slickers eitt og tvö. En núna lang- ar hann til að leika i alvöru drama. Hann bendir á Robin Williams og Tom Hanks sem fyr- irmyndir. Gangi þér vel, Jon. Hollywoodgengið veitir hvað öðru viðurkenningu: Bob Hope heiðraður sem alþjóðastofnun Ekki var þurr hvarmur í salnum þegar glansliðið i Hollywood, gamli skólinn og sá nýi, kom saman á laug- ardagskvöld til að verðlauna hvað annað fyrir glæsilega frammistöðu á hvíta tjaldinu. Mest hefur þó senni- lega verið grátið þegar Elizabeth Taylor ilmvatnsdrottning og Gerald Ford, fyrrum Bandaríkjaforseti og tyggjóæta, kynntu öldnu kempuna Bob Hope. „Heimurinn er betri staður þegar enn er hægt að lifa í voninni og Hope (von) hefur gert heiminn að betri stað fyrir þig og mig,“ sagði Eliza- beth þegar hún afhenti hinum 93 ára gamla skemmtikrafti viðurkenningu fyrir framlag hans til heimslistar- innar. Talað var um Bob gamla sem alþjóðlega stofnun og eru það orð að sönnu. Hátíðargestir risu úr sætum og klöppuðu Hope lof í lófa þegar hann gekk í hægðum sínum upp á sviðið og á meðan lék hljómsveitin hinn góðkunna slagara Takk fyrir minn- ingamar. Meðal frægra og ríkra við athöfn- ina voru menn eins og Kirk Douglas, Gregory Peck og Burt Reynolds. Hátíðin á laugardag var haldin í tilefhi veitingar svokallaðra Americ- an Cinema Awards sem stofnað var til árið 1984 í því skyni að verðlauna skemmtikrafta í Hollywood fyrir af- Leikarinn aldni, Bob Hope, veifar til félaga sinna og starfsbræöra eftir aö Elizabeth Taylor hafði afhent honum viður- kenningu fyrir framlag hans til kvikmyndalistarinnar og skemmtanaiðnaðarins. Um þúsund manns sóttu samkom- una. Símamynd Reuter rek þeirra. Shirley MacLaine einnig í lukkupott- starfsmenn mínir hafa verið leikfé- Bob Hope var ekki einn um að fá inn. lagar í sandkassanum," sagði viðurkenningu heldur duttu þau Ric- „Þetta er búið að vera eins og róló Shirley þegar Gregory Peck hafði af- hard Dreyfúss, Morgan Freeman og í 45 ár og allir þessir dásamlegu sam- hent henni viðurkenninguna. Brooke Shields vill þrjú börn Bandaríska tennisstjaman Andre Agassi veit hvað til síns friðar heyrir. Kærastan hans, leikkonan Brooke Shields, er búin að skipuleggja væntanlegt hjónalíf þeirra út í ystu æsar þótt ekki sé enn búið að ákveða giftingardaginn. Brooke vill eignast þrjú börn. Tvö með skömmu millibili en það þriðja nokkrum árum síðar. Vinsamlegast athugið oð síóasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 7. nóvember. DV Jeff Goldblum, sem leikur tölvu- séníið Dave í Independence Day, á ekki tölvu og kveðst ekkert vit hafa á tölvum. Hann er hins vegar dug- legur djasspíanisti. Jeff er nú við tökur á framhaldi á myndinni Ju- rassic Park þar sem hann leikur aft- ur vísindamann. Jeff er fyrrverandi eiginmaður Geenu Davis en á nú vingott við Lauru Dern. Þau bjuggu reyndar saman um skeið en Laura flutti út fyrr á árinu. Þau eru samt enn góð- ir vinir og hittast reglulega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.