Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Page 2
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 ÖV
★ »
★
★
★
fréttir
t ^ ;
Formannsslagurinn í Alþýðuflokknum:
Kemur mér á óvart hve
margir eru óákveðnir
- sagði Karvel Pálmason, fyrrverandi alþingismaður
„Ég hef talaö við mjög margt
fólk hér á þingrnu í dag. Það sem
kemur mér á óvart varðandi for-
mannskjörið er hve margir hafa
ekki enn gert upp hug sinn. Ég
hélt að nær allir hefðu mótað sér
skoðun á því hvom þeirra, Sig-
hvat eða Guðmund Áma, þeir ætla
að kjósa,“ sagöi sá þrautreyndi
pólitíkus, Karvel Pálmason, fyrr-
verandi alþingismaður, á flokks-
þingi krata síðdegis í gær.
Aðrir sem rætt var við um for-
mannskjörið sögðust ekki þora að
spá um úrslit. Reykjavíkurfulltrú-
amir hallast aö sigri Sighvats en
Reyknesingamir, sem eru langfjöl-
mennastir á þinginu, telja Guð-
mund Áma sigurstranglegri.
í gær var mikið starfað á þing-
inu við að vinna frambjóöendun-
um fylgi. Þaö má segja að notuð
hafi verið aðferðin maður á mann.
Fylgismenn beggja frambjóðend-
anna vom á ferðinni allan daginn
og ræddu við þingfulltrúa. For-
mannseöiin sjálf gengu um bros-
andi og tóku í hendur fólks.
Varðandi varaformannskjöriö
hafa þau Ásta B. Þorsteinsdóttir
og Gunnar Ingi Gunnarsson gefið
kost á sér. Össur Skarphéðinsson
hefur enn ekki gefið upp um hvað
hann gerir. Hins vegar gekk hann
um meðal fólks og ræddi við
marga, rétt eins og frambjóðend-
urnir gerðu. Hann var af mörgum
sagður heitur í málinu.
Það vekur athygli að ákveðið
hefur verið aö þegar formanns-
kjörið liggur fyrir verði gert fund-
arhlé. Það er gert til þess að fylk-
ingarnar geti áttað sig á stöðunni
fyrir varaformannskjörið. Venju-
lega fer það fram strax á eftir for-
mannskjörinu, án þess að hlé sé
gert.
Formannskjörið hefst klukkan
15.30 í dag.
-S.dór
Viögeröir á vegum, eftlr hamfarirnar á söndunum, eru hafnar.
DV-mynd Elnar R. Sigurðsson
Endurbygging á Skeiðarársandi:
Nægt brúar-
efni til
segir vegamálastjóri
Flokksþing Alþýðuflokksins:
Jón Baldvin
bað um póli-
tískt Skeiðar-
árhlaup
- í ræðu sinni
„Það er ekki hægt að segja að við
séum byrjaðir að byggja upp vegi og
brýr á Skeiðarársandi en fyrstu að-
geröir, sem felast í því aö gera slóð-
ir og veita vatni og bjarga því sem
þarf að bjarga til að afstýra frekara
tjóni em hafnar," sagði Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri í samtali
við DV í gær.
Vegamálastjóri segir að næsta
skreflð verði aö taka út efhisþörf
vegna viðgerðanna en bæði stálbit-
ar og viöir í brýrnar séu þegar til
hjá Vegagerðinni eða í landinu.
„Við höfum ekki haft áhyggjur af
því að viö ættum ekki nóg til að
gera þessar fyrstu aðgerðir sem
nauðsynlegt verður að gera,“ sagði
vegamálastjóri. Stálbitar séu tiltæk-
ir í Reykjavík og raunar heilar brýr
í grenndinni því ekki sé langt síöan
stálgrindabrýmar á Hrútá og
Fjallsá vom aflagðar og standa þær
tilbúnar til að veröa fluttar á Skeið-
arársand.
Vegamálastjóri segir aö sökklam-
ir undir tveimur af þremur stöplum
Skeiðarárbrúar sem féllu undan at-
ganginum í flóðinu hafl fundist og
séu óskemmdir. Sjálfir stöplamir
hafi klippst ofan af þeim en hægt
verði að steypa upp nýja í þeirra
stað. „Við erum ánægöir með að
mikiö af Skeiðarárbrú skyldi lifa
þetta af og það sýnir að hugmynda-
fræðin viö hönnun brúarinnar á
sínum tíma var ekki út í bláinn,"
sagði Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri. -SÁ
Ræða Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, fráfarandi formanns
Alþýðuflokksins, þegar hann setti
48. þing flokksins í gær, gekk að
langmestu leyti út á sam-
eina krafta allra jafiiaðar-
manna í landinu í kosninga-
bandalag gegn Sjálfstæðis-
flokknum í næstu kosning-
um. Hann sagði landsmenn
hafa séð i beinni sjónvarps-
útsendingu hveming Skeið-
arárhlaupið á dögunum
breytti landslaginu þar sem
það fór um. Hann sagði að
nauðsyn væri á pólitísku
Skeiðarárhlaupi til að
breyta hinu pólitíska lands-
lagi til að auðvelda samstarf
jafnaðarmanna á komandi
árum.
„Hefði betur byrjað á
þessu fyrr“
Einnig skammaði hann
Sjálfstæðisflokkinn mikið og
sagði að samstarf við hann í
framtíðinni væri ekki inni í
myndinni.
Gamall krati stóð nærri tíð-
indamanni DV sagði þegar
ræðunni lauk: „Hann hefði
betur byrjað á þessu fyrr.“
Jón Baldvin sagði að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði byggt upp
valdakerfi í landinu sem gerði hon-
um kleift að vera alltaf í þeirri
stöðu að geta valið sér samstarfs-
flokk í ríkisstjóm. Þessu þyrfti að
breyta. Sjálfstæðisflokkurinn væri
afturhaldssamur sérhyggjuflokkur.
Hann benti á að GATT-samningur-
inn væri notaður fyrir lítinn hóp
bænda gegn neytendum. Sjávarút-
vegsstefnan væri samin fýrir fá-
mennan hóp manna sem hefði sam-
eign þjóðarinnar fyrir sig. Og loks
að Evrópumálin væm ekki sögð á
dagskrá.
Hjörleifur og Davíð
„Það er enginn munur oröinn á
málflutningi Hjörleifs Guttormsson-
ar, foringja vinstri manna í Alþýðu-
bandalaginu, og Davíðs Oddssonar.
Þaö eina sem skilur málflutning
þeirra að eru raddimar," sagði Jón
Baldvin.
Hann kenndi Jóhönnu Siguröar-
dóttur um ósigur Alþýðuflokksins í
síðustu þingkosningum. Hann
nefndi hana að vísu ekki á nafn en
talaði um að fólk sem lyft hefði ver-
ið til æðstu metorða í flokknum
hefði hlaupið til og stofhað Þjóð-
vaka.
Hægt að bræða saman
brotasilfur
„Við þurfum að byggja upp sterk-
an jafhaðarmannaflokk meö verka-
lýðshreyfinguna að baki sér til þess
að geta boöið Sjálfstæðisflokknum
byrginn," sagði Jón Baldvin.
Hann sagðist vilja sjá kosning-
abandalag allra jafnaðarmanna í
næstu þingkosningum. Hann talaöi
þar um fólk úr öllum stjómmála-
flokkunum sem í raun væru jafnað-
armenn og þvi yröi að gefa valkost.
Þaö kosningabandalag gæti orðið
upphaf að stofnun jafiiaðarmanna-
flokks sem yrði sverð og skjöldur ís-
lenskrar verkalýðshreyfingar. Það
væri vel hægt að bræða saman slíkt
brotasilfur. -S.dór
stuttar fréttir
Þing Norðurlandaráðs
Á mánudag hefst 48. þing
Norðurlandaráðs og er það nú
haldið í Kaupmannahöfn.
Áherslu er beint aö þremur
sviöum; hinu eiginlega nor-
ræna samstarfi, samstarfi við
grannsvæðin og við Evrópu.
Davíð á þinginu
| Davíö Oddsson forsætisráð-
| herra situr Norðurlandaráðs-
þingið í Kaupmannahöfh og í
tenglsum við það fund með for-
sætisráðherrum Norðurlanda
og Eystrasaltsríkja.
Harftur árekstur
Harður árekstur tveggja bfla
varð á Suöurlandsvegi við
j Hafravatnsafleggjarann um
| fimmleytið í gær. Ökumaður og
farþegi úr öðrum bUnum voru
fluttir á slysadeild en meiðsl
þeirra munu ekki vera alvar-
leg.
Minningarathöfn
Stutt minningarathöfn um
hermenn frá Bretlandi og
; bresku samveldislöndunum
verður haldin í hermannagraf-
reitnum í Fossvogskirkjugarði
á morgun, sunnudag, klukkan
j 10.45. ÖUum er velkomið að
taka þátt í athöfninni.
Ánægja meft tilraunina
Nýkjörin stjóm Framsóknar-
félags Reykjavíkur hefur lýst
j yfir ánægju með þá tilraun sem
i| fólst í framboði Reykjavíkur-
listans. Sfjómin er þeirrar
skoðunar að samstarf þeirra
fjögurra flokka sem mynda
meirihluta borgarstjómar hafi
tekist með miklum ágætum.
Langhottskirkja
Kjörmenn í sóknameftid
Langholtskirkju hafa sent opið
bréf tU sóknamefndar. Þar er
farið fram á að söfnuðurinn fái
j þau réttindi og ábyrgö að kjósa
sóknarprest Langholtskirkju en
ekki sóknamefnd.
Launabóta krafist
Samband íslenskra banka-
I manna ætlar að krefja bankana
j um 20 þúsund króna launabæt-
ur fyrir hvem starfsmann áður
en skrifaö veður undir næstu
’ samninga. Gerðardómur úr-
í skurðaði í gær að þeim bæri
ekki hækkun launa.
ÚA og KEA í náift sam-
starf
Stjóm útgeröarfélags Akur-
j eyringa hefur samþykkt að
| ganga tfl viðræðna við Kaupfé-
lag Eyfirðinga um náið sam-
! starf í sjávarútvegi. RÚV
I greindi frá þessu.
-RR
■nmhhhmmmhmmhhmmbummbbbm
rödd
FOLKSINS
904 1600
Á Sjávarútvegsháskóli
Sameinuðu þjóðanna
að vera á Akureyri?
Þú getur svarafi þessari
spurningu meö því aö
hringja! síma 9041600.
39,90 kr. mlnútan
Jí 1 Nal
Jón Baldvin Hannibalsson, fráfarandi for-
maður Alþýðuflokkslns, flytur ræðu sfna.
DV-mynd ÞÖK