Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
63
Til hamingju
með afmælið
10. nóvember
Ásta Jónasdóttir húsmóöir, Ból-
staðarhlíð 45, Reykjavik, er áttatíu
og flmm ára í dag.
Starfsferill
Ásta fæddist á Sauðárkróki og
ólst þar upp. Hún stundaði ýmis
störf utan heimilisins, einkum
skrifstofustörf, og vann hjá Skipa-
útgerð rikisins í fimmtán ár.
Fjölskylda
Fyrri maður Ástu var Bjarni
Pálsson frá Hrísey, f. 27.7. 1906, d.
1967, vélstjóri og framkvæmdastjóri
í Reykjavík. Hann var sonur Páls
Bergssonar, útgerðarmanns í Ólafs-
firði, og Svanhildar húsmóður Jör-
undsdóttur (Hákarla- Jörundar),
formanns og útgerðarmanns í Hrís-
ey, Jónssonar.
Seinni maður Ástu var Skúli
Guðmundsson, f. 6.11. 1902, d. 1987,
kennari í Reykjavík. Hann var son-
ur Guðmundar Þorleifssonar, múr-
ara í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar
Filippusdóttur húsmóður.
Börn Ástu eru Svanhildur
Bjamadóttir, f. 8.2. 1937, skrifstofu-
maður hjá Flugleiðum, og á hún
fimm syni; Jónas Bjarnason, f. 23.6.
1938, efnaverkfræðingur
hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, kvæntur
Kristínu Hjartardóttur og
eiga þau einn son; Svavar
-Bjamason, f. 26.7. 1943,
tæknifræðingur hjá Pósti
og síma, kvæntur Brynju
Halldórsdóttur og eiga
þau tvo syni og tvær dæt-
ur.
Systkini Ástu: Rann-
veig Jónasdóttir, f. 18.10.
1903, nú látin, lengst af
kennari við Austurbæjar-
skólann í Reykjavík; Regína Mar-
grét, f. 30.4. 1905, d. 31.8. 1923; Guð-
björg, f. 7.5. 1908, ekkja eftir Sigurð
Birkis, söngmálastjóra Þjóðkirkj-
unnar; Kristján, f. 12.5. 1914, d. 27.7.
1947, læknir i Reykjavík, var
kvæntur Önnu Pétursdóttur.
Fóstursystkini Ástu: Hansína
Sigurðardóttir, nú látin, var frá
fæðingu hjá foreldrum hennar, gift
Magnúsi Magnússyni sem einnig er
látinn; Páll Daníelsson, f. 1913, sjó-
maður í Reykjavík; Ingibjörg H.
Jónsdóttir, f. 1917, nýlátin, var frá
sex ára aldri hjá foreldrum hennar,
og Hansína Bjamadóttir var í nokk-
ur ár hjá foreldrum hennar, ekkja
eftir Jón V. Bjarnason garðyrkju-
bónda.
Foreldrar Ástu voru
Jónas Kristjánsson, f.
20.9. 1870, d. 3.4. 1960,
læknir og alþm. á
Sauðárkróki, og k.h.,
Hansína Benedikts-
dóttir, f. 17.5. 1874, d.
21.7. 1948, húsmóðir.
Ætt
Jónas var sonur Krist-
jáns, b. á Snærings-
stöðum í Svínadal,
Kristjánssonar „ríka“, b. í Stóradal,
bróður Péturs, afa Þórðar Sveins-
sonar, yfirlæknis á Kleppi. Kristján
var sonur Jóns, b. á Snæringsstöð-
um í Svínadal, Jónssonar, b. á Bala-
skarði, Jónssonar, „harðabónda" í
Mörk i Laxárdal, Jónssonar, ættföð-
ur Harðabóndaættarinnar. Móðir
Jónasar var Steinunn, systir Jó-
hannesar Nordals, fóður Sigurðar
Nordals. Steinunn var dóttir Guð-
mundar, b. í 'Kirkjubæ í Norðurár-
dal, Ólafssonar, bróður Frímanns,
afa Valtýs Stefánssonar ritstjóra og
hálfbróður Páls, langafa Ólafs
Ólafssonar landlæknis. Móðir Guð-
mundar var Sigríður, systir Vatns-
enda-Rósu. Bróðir Sigiúðar var Jón,
langafi Þuríðar óperusöngkonu og
Einars fræðimanns Pálsbarna. Sig-
ríður var dóttir Guðmundar, b. í
Fornhaga, Rögnvaldssonar og Guð-
rúnar, hálfsystur Guörúnar,
langömmu Guðrúnar, móður Frið-
riks Friðrikssonar æskulýðsleið-
toga. Guðrún var dóttir Guðmund-
ar, b. í Lönguhlíð, ívarssonar, bróð-
ur Bjöms, langafa Stefáns, afa Dav-
íðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Björn var einnig langafi Bjöms,
föður Þórhalls biskups, föður
Tryggva forsætisráðherra.
Hansína yar dóttir Benedikts,
prófasts á Grenjaðarstað, Kristjáns-
sonar, hálfbróður Kristjáns, b. á
Snæringsstöðum. Móðir Hansínu
var Regína Magdalena Hansdóttir
Sívertsen, kaupmanns í Reykjavík
Sigurðssonar Sívertsens, kaup-
manns í Reykjavík, Bjarnasonar Sí-
vertsens, kaupmanns í Hafnarfirði.
Móðir Hans var Guðrún Guð-
mundsdóttir, systir Helga Thorder-
sens biskups, afa Ragnheiðar Mel-
sted (Hafstein), ömmu Hannesar Þ.
Hafstein sendiherra. Móðir Hans-
ínu var Christiane Hansdóttir
Linnets, verslunarstjóra í Hafnar-
firði, og k.h., Regine Seemp.
Ásta er að heiman á afmælisdag-
inn.
Ásta Jónasdóttir.
Margrét Karlsdóttir
Margrét Karlsdóttir, zbóndi og
húsfreyja að Skipholti I, Hruna-
mannahreppi, er sextug í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist í Efstadal í
Laugardal og ólst upp í Laugardaln-
um og Biskupstungunum. Hún lauk
barnaskólanámi í Reykholti í Bisk-
upstungum og hefur verið bóndi og
húsfreyja í Skipholti frá 1957.
Fjölskylda
Margrét giftist 13.6. 1958 Guð-
mundi Stefánssyni, f. 3.3. 1931,
bónda. Hann er sonur Stefáns Guð-
mundssonar og Guðrúnar Kjartans-
dóttur, búenda í Skipholti.
Börn Margrétar og Guðmundar
eru Sigrún, f. 4.4. 1958, skrifstofu-
máður í Reykjavík, en sonur henn-
ar er Ásgeir Kristjánsson; Úlfar, f.
17.7. 1964, bifreiðastjóri á Flúðum,
en sonur hans er Guðmundur
Hrannar; Sigþrúður, f. 9.5. 1967,
kennaiú á Hofsósi, en dóttir hennar
er Ylfa Birgisdóttir; Karl, f. 24.1.
1969, bóndi í Skipholti, en
unnusta hans er Valný
Guðmundsdóttir og er
sonur hennar Flosi Þór.
Systkini Margrétar era
Helga Karlsdóttir, f. 9.7.
1928, húsfreyja á Gýgjar-
hóli; Jón Karlsson, f. 8.10.
1929, bóndi í Gýgjar-
hólskoti; Guðrún Karls-
dóttir, f. 10.1. 1931, hús-
freyja i Miðdalskoti; Ingi-
mar Karlsson, f. 1.6.1932,
nú látinn, rafvirki í
Reykjavík; Guðni Karls-
son, f. 2.10.1933, starfsmaður í ráðu-
neyti, búsettur í Kópavogi; Amór
Karlsson, f. 9.7.1935, bóndi í Arnar-
holti í Biskupstungum; Gunnar
Karlssonm, f. 26.9. 1939, prófessor
viö HÍ; Ólöf Karlsdóttir, f. 17.6.1943,
skrifstofumaður á Selfossi.
Foreldrar Margrétar voru Karl
Jónsson, f. 1.7. 1904, d. 4.6. 1979,
bóndi í Efstadal og í Gýgjarhólskoti,
og k.h., Sigþrúður Guðnadóttir, f.
8.10. 1896, d. 29.4. 1967, húsfreyja.
Ætt
Karl var sonur Jóns, b.
á Ketilsstöðum og í
Efstadal, Grimssonar, b.
á Laugardalshólum,
Jónssonar. Móðir Gríms
var Valdís Grímsdóttir,
stúdents í Skipholti,
bróður Einars, langafa
Oddleifs, afa Helga leik-
stjóra og Ólafs biskups
Skúlasona. Einar var
einnig langafi Gríms,
afa Ármanns Kr. Ein-
arssonar rithöfundar. Grímur var
sonur Jóns, b. í Skipholti, Jónssonar,
hálfbróður Fjalla-Eyvindar.
Móðir Karls var Guðný, systir Ein-
ars Arnórssonar ráðherra. Guðný
var dóttir Arnórs, b. á Minna-Mos-
felli, Jónssonar, b. á Neðra-Apavatni,
Jónssonar. Móðir Guðnýjar var Guð-
rún Þorgilsdóttir, b. á Stóruborg í
Grímsnesi, Ólafssonar.
Sigþrúður var dóttir Guðna, b. á
Gýgjarhóli, Diðrikssonar, vinnu-
manns í Flóa, Diðrikssonar, b. í
Laugarási, bróður Þorsteins, langafa
Sigurðar, föður Eggerts Haukdals.
Diðrik var sonur Stefáns, b. í Neðrad-
al, Þorsteinssonar. Móðir Stefáns var
Guðríður Guðmundsdóttir, ættföður
Kópsvatnsættarinnar, Þorsteinsson-
ar. Móðir Diðriks í Laugarási var
Vigdís Diðriksdóttir, b. á Önundar-
stöðum, Jónssonar og Guðrúnar,
systur Böðvars, prests í Holtaþing-
um, afa Þuríðar, langömmu Vigdísar
forseta. Guðrún var dóttir Presta-
Högna Sigurðssonar.
Móðir Sigþrúðar var Helga, syst-
ir Guðlaugar, móður Ásgríms Jóns-
sonar listmálara. Helga var dóttir
Gísla, hreppstjóra í Vatnsholti í
Flóa, Helgasonar, b. á Grafarbakka,
Einarssonar. Móðir Gísla var Mar-
ín Guðmundsdóttir, ættföður Kóps-
vatnsættarinnar, Þorsteinssonar.
Móðir Helgu var Guðlaug, systir
Guðrúnar, langömmu Einars Jóns-
sonar myndhöggvara. Guðlaug var
dóttir Snorra, b. í Vatnsholti, Hall-
dórssonar, ættföður Jötuættarinn-
ar, Jónssonar.
Margrét er að heiman.
Margrét Karlsdóttir.
Svala ívarsdóttir
Svala ívarsdóttir innheimtufull-
trúi, Heiðarbraut 38C, Akranesi,
verður sextug á morgun.
Starfsferill
Svala fæddist í Reykjavík, ólst
þar upp og í Breiðafjarðareyjum og
Stykkishólmi. Hún lauk gagnfræða-
prófi, stundaði nám við Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur og við Póst- og
símamálaskóla íslands.
Auk húsmóðurstarfa vann Svala
hjá Kaupfélagi Stykkishólms, við
Póst og síma á Akranesi og hjá Raf-
veitu Akraness, nú Akranesveitu.
Svala hefur setið i stjóm Alþýðu-
flokksfélags Akraness og stjóm
kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á
Vesturlandi. Hún hefur starfað í
Rebekkustúkunni Ásgerði nr. 5
IOOF á Akranesi og gegnt trúnað-
arstörfum á vegum hennar.
Fjölskylda
Eiginmaður
Svölu var Sig-
urður Ástvald-
ur Hannesson,
f. 22.2. 1938, d.
3.8. 1990, vél-
virki og bif-
vélavirki hjá
Sementsverk-
smiðju ríkis-
ins. Hann var
sonur Hannesar Fri-
manns Jónassonar,
verkstjóra á Akranesi,
og Ástríðar Torfadóttur
húsmóður.
Börn Svölu og Sigurð-
ar Ástvalds eru Ástríð-
ur, f. 29.4. 1962, gæða-
stjórnandi í frystihúsi á
Patreksflrði, og eru börn
hennar Svala, f. 29.11.
1980, og Heiðrún, f. 12.9.
1996; Sigrún Valgerður,
f. 29.6. 1963, verkstjóri í
lyfjafyrirtæki í Danmörku, en mað-
ur hennar er Lasse Folkmann And-
ersen og era börn þeirra Daníel
Ivan, f. 31.10. 1988 og Heidi, f. 6.5.
1990; Hannes Frimann, f. 26.5. 1964,
byggingatæknifræðingur i Mosfells-
bæ og eru böm hans Thelma Sjöfn,
f. 22.8. 1984, Sigurður Kári, f. 18.5.
1986 og Helena Rakel, f. 18.8. 1996,
en sambýliskona Hannesar er Svan-
dís Sturludóttir og er dóttir hennar
Eva, f. 1.7.1986; íris Guðrún, f. 31.8.
1972, leiðbeinandi á Pat-
reksfirði, og er dóttir
hennar Elín Guðný, f.
11.8. 1994, en sambýlis-
maður Irisar Guðrúnar
er Valgarður L. Jóns-
son.
Systkini Svölu: Björg, f.
25.8.1928, ræstingastjóri
við Hrafnistu í Hafn-
arfirði; Helga, f. 7.2.
1930, starfsstúlka við
Landspitalann; Örlygur,
f. 2.4. 1931, véltækni-
fræðingur; Brynjar Guðbjöm, f. 8.1.
1932, skipasali; Leifur, f. 23.1. 1934,
verslunarstjóri.
Foreldrar Svölu: ívar Mövel
Þórðarson, f. 4.1. 1904, d. 5.5. 1983,
bóndi í Arney á Breiðafirði og
verkamaður, og Sigrún H. Guð-
bjömsdóttir, f. 4.2. 1900.
Haldið verður upp á afmælið í
Oddfellowhúsinu, Kirkjubraut
54-56 á Akranesi, laugardaginn
16.11. kl. 18.00-21.00.
Ármann Eiríksson - leiðrétting
í afmælisgrein, sem birtist 9.10. sl., um Ármann Ei-
ríksson fimmtugan féll niður dánardægur eiginkonu
hans, Erlu Guðrúnar Gestsdóttur. Hún fæddist 22.10.
1948 en lést 28.6. 1992. Eins féll niður starfsheiti föð-
ur hans, Eiríks R. Ferdínandssonar sem var skó-
smíðameistari. Þá ber að geta þess að Ármann var
varalandsforseti JC ísland - ekki landsforseti.
Hlutaðeigendur er beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
Svala ívarsdóttir.
90 ára
Kristmundur Bjamason,
Laufási 14, Egilsstöðum.
Sólveig Einarsdóttir,
Hrafnistu i Hafnarfirði.
85 ára
Armann Bjarnason,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
Aðalheiðin- Halldórsdóttir,
Hvassaleiti 58, Reykjavík.
Dagmar Jóhannesdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
80 ára
Magnea Rannveig
Þorgeirsdóttir,
Laugavegi 133, Reykjavík.
Júlíana Sigurjónsdóttir,
Álfheimum 54, Reykjavík.
75 ára
Kristinn Ólafur Karlsson,
Smyrlahrauni 47, Hafnarfirði.
Kristinn Þorsteinsson,
Öldugötu 37, Hafnarfirði.
70 ára
Jörgen Ólason,
Yrsufelli 32, Reykjavík.
Theódór Pálsson,
Sveöjustöðum, Ytri-Torfustaða-hr.
Ragnhildur Finnbjörnsdóttir,
Háti’öð 8, Kópavogi.
60 ára
Freyja F. Sigurðadóttir,
Hamrahlíð 25, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Einar
Sigurðsson. .
Hún er stödd í Dómeníska
lýðveldinu á afmælisdaginn.
Guðjón H. Jónsson,
Álfaskeiði 96, Hafnarfirði.
Ásthildur Jónsdóttir,
Ásbúð 59, Garðabæ.
Hrefna Pétursdóttir,
Lyngbrekku 4, Kópavogi.
Kolbrún Þórhallsdóttir,
Lækjargötu 4, Reykjavík.
50 ára
Kári Jakobsson,
Furagrund 52, Kópavogi.
Garðar Jónsson,
Ásum, MosfeUsbæ.
Gylfi Viðar Ægisson,
Hringbraut 32, Hafnarfirði.
Björn Gunnlaugsson,
Háhæð 25, Garðabæ.
40 ára
Ólöf Jónsdóttir nemi,
írabakka 12, Reykjavík.
Kristín María Westlund,
Leirubakka 28, Reykjavík.
Albert Jensen,
Syðra-Brekkukoti,
Arnarneshreppi.
Þórdis Þórarinsdóttir,
Ránargötu 6, Grindavík.
Þröstur Birkir Steinþórsson,
Garðbraut 43, Garði.
Júlíana Gísladóttir,
Bogahlíö 9, Reykjavík.
Kiistín Sigríður Garðarsdóttir,
Ljósabergi 32, Hafnarfirði.
Kristín H. Valdimarsdóttir,
Jöklaseli 15, Reykjavík.
Bylgja Scheving,
Kötlufelli 9, Reykjavík.
Grímsbœ
v/Bústaðaveg
Skreytingar við öll
tœkifœri. Frí heimsending
fyrir sendingar yfir 2.000 kr.
Sími 588-1230