Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 64
Alla laugardaga
Vértu viðhúinM
vinnlngi!
(20)(27)^0)
KIN
S LT3
<C
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,oháð dagblað
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
íslenskur skipstjóri á fraktskipi frá Miö-Ameríku og áhöfn hans:
í varðhaldi á írlandi
grunaðir um kókaínsmygl
íslenskur skipstjóri á fraktskipi,
skráðu í Belís í Mið-Ameriku, hef-
ur ásamt áhöfninni verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald á írlandi
fram yfir helgi vegna gruns um
stórfellt smygl á kókaíni. írska
fikniefnalögreglan fékk ábendingu
frá Surinam í Panama, þaðan sem
skipið lagði af stað, um að stór
farmur kókaíns gæti verið um
borð. Skipið leitaði reyndar hjálp-
ar írsku strandgæslunnar á þriðju-
dagskvöld vegna bilunar í stýris-
búnaði og var tekið inn til hafnar í
Castletownbere á suðurströnd ír-
lands, skammt frá Cork. Þar hefur
víðtæk leit farið fram um borð síð-
an á miðvikudagsmorgun.
Talsmaður lögreglunnar í Cast-
letownbere sagði i samtali við DV
um miðjan dag í gær að enn hefði
ekkert kókaín fundist en leitað
yrði gaumgæfilega áfram. Hann
vildi ekki segja hversu mikið kóka-
ín væri talið um borð en sagði það
verulegt magn ef grunsemdir
reyndust réttar.
Skipið, sem nefnist Tia, hefur
verið vaktað af vopnuðum lög-
reglumönnum á meðan leit hefur
staðið yfir. Það er 700 tonn að
stærð og var ekki með farm um
borð þegar það var tekið til hafnar
í írlandi. Samkvæmt ferðaáætlun
átti Tia næst að koma við í Do-
negal, smábæ á norðurströnd ír-
lands.
Þrír eru í áhöfninni auk íslenska
skipstjórans; Breti, Nigeríumaður
og íri búsettur í Cork. Að auki hef-
ur írska lögreglan verið með tvo
íra í yfirheyrslum í Dublin vegna
þessa máls. írsk fíkniefnalög leyfa
lögreglunni að halda mönnum í
varðhaldi í allt að 7 daga án þess
að leggja fram kæru.
Talsmaður lögreglunnar í Cast-
letownbere vildi ekki upplýsa ann-
að um skipstjórann en að hann
væri íslenskur. Um eigendur skips-
ins sagði lögreglumaðurinn að
þeirra upplýsingar bentu til að ís-
lenskur aöili væri þar á meðal.
Enginn þeirra sem DV ræddi við á
íslandi í gær kannaðist við þetta
skip né hafði heyrt að íslendingur
væri skipstjóri á fraktskipi frá
Belís.
Nýlegir tankar
Grimur um kókaínsmygl fékk
byr undir báða vængi þegar lög-
reglan sá nýja suðu í jafnvægi-
stönkum i botni skipsins. í raun
má segja að skipið hafi verið hlut-
að í sundur í ítarlegri leit írsku
lögreglunnar. Lögreglumaðurinn
írski sagði að það hefði tafið leitina
hversu skipið væri ryðgað og illa
farið, rottur hefðu fundist um borð
og hann myndi ekki treysta sér til
að sigla því í stórsjó!
„Við höfum ekki séð ástæðu til
að hafa samband við lögregluna á
íslandi og vil ekki segja hvort við
höfum rætt við íslensk stjórnvöld.
Slíkar upplýsingar veiti ég ekki á
þessu stigi,“ sagði lögreglumaður-
inn í Castletownbere. -bjb
Ríkislögreglustjóri:
Bogi, Jónatan,
Stefán og Þórir
sækja um
Jónatan Þórmundsson lagaprófess-
or, Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu-
stjóri, Þórir Oddsson vararannsókn-
arlögreglustjóri og Stefán Hirst,
skrifstofustjóri hjá Lögreglunni í
Reykjavík, eru meðal umsækjenda að
stöðu ríkislögreglustjóra, samkvæmt
upplýsingum DV i gær. Starfsemi
embættisins mun samkvæmt lögum
hefjast þann 1. júlí á næsta ári. Þar
mun verða eins konar mið- og yfir-
stjóm allrar lögreglunnar í landinu í
framtíðinni með umboð frá dóms-
málaráðuneytinu.
Rannsóknarlögregla rikisins verð-
ur lögð niður og munu helstu verk-
, __efni hennar - rannsókn alvarlegustu
sakamálanna - flest færast út í hér-
uð, þ.e. til allra lögregluembætta
landsins. Hjá ríkislögreglustjóra
verður hins vegar starfrækt rann-
sóknadeild sem sér um skatta- og
efnahagsbrot auk annarra stjórnun-
arverkefna.
Markmiðið með þessum breyting-
um er meðal annars að gera rann-
sóknir og ákærur í sakamálum skil-
virkari. Þannig mun hvert embætti
fyrir sig rannsaka, ákæra sakbom-
inga og fylgja málum síðan eftir fram
að dómsuppkvaðningum. Þannig
mun ákæruvald færast í enn ríkari
mæli en verið hefur til lögregluemb-
ættanna. Eftir breytingamar mun
Ríkissaksóknaraembættið hafa með
höndum alvarlegustu sakamálin. -
-Ótt
L O K I
Þingfulltrúar á flokksþingi Alþýðuflokksins risu úr sætum og klöppuöu fráfar-
andi formanni sínum, Jóni Baldvin Hannibalssyni, lof í lófa að lokinni setning-
arræöu hans á 48. flokksþingi flokksins í gær. Á innfelldu myndinni má sjá Bryn-
dísi Schrami beygja af þegar hún faðmaði mann sinn. DV-myndir ÞÖK
Moröið í Genf:
Morðinginn
dæmdur í
15 ára
fangelsi
Dómstóll I Genf í Sviss dæmdi í
gær 39 ára Frakka í 15 ára óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir morð á
íslenskri konu, Vivan Hrefnu Ótt-
arsdóttur. Hann var einnig ákærð-
ur fyrir tilraun til að nauðga dótt-
ir hinnar látnu.
Vivan fannst látin í íbúð sinni í
Genf að morgni laugardagsins 9.
september árið 1995. Svissneska
lögreglan handtók Frakkann á
veitingastað skömmu síðar en
hann hafði sést í fylgd með Vivan.
Maðurinn viðurkenndi við yfir-
heyrslur að hafa orðið Vivan að
bana og hefur setið i fangelsi síð-
an.
Maðurinn var ólöglega búsettur
í Genf og starfaði sem múrari.
Málið vakti mikinn óhug í Sviss á
sínum tíma. -RR
Mánudagur
Veöriö á morgun:
Slydda og snjókoma
Á morgun verður suðvestan- og síðar suðaustankaldi eða stinnings-
kaldi. Slydda og snjókoma verða um landið sunnanvert en úrkomulítið
nyrðra. Frostlaust verður um tíma um mestallt land.
Veðrið á mánudag:
Kalt og hvasst
Á mánudag gengur í nokkuð hvassa norðanátt með frosti. Snjókoma
verður um landið norðan- og norðaustanvert en él annars staðar.
Veörið í dag er á bls. 65