Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Side 6
6
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 DV
rréttir
Ásakanirnar um afdrif þotu TWA flugfélagsins:
Leyniskjalið var
til á Internetinu
1 stuttar fréttir
Klósettvandræði í MIR
Geimfaramir í rússnesku
Igeimstöðinni MIR eiga í dálitl-
um vandræðum með salemis-
málin. Allir geymar em að fyll-
I ast og ekki er von á nýjum fyrr
[ en eftir margar vikur vegna
j íjárhagsvandræða á jörðu niðri.
bjargar
Jacques
Chirac
Frakklands-
forseti sýndi
samstöðu
með forsæt-
isráðherra
sínum, Ala-
in Juppé,
sem á i vök
að verjast
vegna gagnrýni samherja, með
því að hafa hann með á öllum
fundum sínum með John
Major, forsætisráðhema Bret-
lands, á leiðtogafundi ríkjanna.
Fleiri drekka vín
Fleira ungt fólk í Frakklandi
drekkur nú létt vín en áður þótt
ekki drekki það jafn mikið og
reglulega og þeir sem eldri era.
Vilja þá blönku með
Franskir sósíalistar hvöttu
til þess í gær að fátækari lönd
Evrópusambandsins yrðu með í
myntbandalaginu frá upphafi
þess árið 1999.
Hundruð barna týnd
Hundruð bama, sem eiga að
vera í umsjá félagsmálayfir-
valda á Bretlandi, hafa hrein-
lega horfið og veit enginn hvar
þau eru niðurkomin. Þetta kom
fram í réttarhaldinu yfir
fjöldamorðkvendinu Rosemary
West.
Syndin er lævís
Spánn er syndumspiOtasta
landið meðal helstu iðnríkj-
anna, ef marka má könnun
sænska blaðsins Svensk Export
Strategi, og Frakkland kemur
næst á eftir.
Enginn komst lífs af
Enginn komst lífs af þegar
farþegaþota með 141 mann inn-
anborðs fórst í suðvesturhluta
Nígeríu á fimmtudagskvöld.
Puerto Rico fyrirmyndin
Haft var
eftir Benja-
min Net-
anyahu, for-
sætisráð-
herra ísra-
els, í gær aö
hann væri
andvígur
fullveldi
Palestínumanna og að hann
kysi heldur að ríki þeirra yrði
sjálfstjómarsvæði í anda
Puerto Rico eða Andorra.
Jeltsín fluttur
Borís Jeltsin Rússlandsfor-
seti var í gær fluttur af hjarta-
sjúkrahúsinu þar sem
kransæðaaðgerðin var gerð á
annan og þægilegri spítala.
Reuter
Kauphallir erlendis:
Bjartsýni eftir
endurkjör Clintons
Endurkjör Bills Clintons í emb-
ætti forseta Bandaríkjanna í vikunni
hafði jákvæð áhrif á hlutabréfamark-
aðinn í Wall Street og víðar um
heim. Dow Jones hlutabréfavísitalan
hækkaði og setti sögulegt met á
fimmtudag þegar hún fór yfir 6.200
stig. Kjöriö virtist þó ekki hafa áhrif
til hækkunar í London því þar lækk-
aði FT-SE 100 vísitalan niður í 3.900
stig á fimmtudag.
Verð á sykri á heimsmarkaði
lækkar enn og tonnið var i 258 doll-
urum í byrjun vikunnar. Lækkun á
kaffiverði virðist hafa stöðvast í bili.
Eldsneytisverð á heimsmarkaði
lækkaði lítillega í vikunni en verður
enn að teljast veralega hátt. Reuter
Pierre Salinger, blaðafulltrúi
Johns F. Kennedys heitins Banda-
ríkjaforsetar sagði í gær að
leyniskjal það sem hann sagði
sanna að bandaríski sjóherinn hefði
fyrir slysni skotið niður farþega-
þotu TWA flugfélagsins i sumar
hefði verið aðgengilegt á Intemet-
inu í tvo mánuði. Allir 230 sem voru
í vélinni létu lífið þegar hún fórst
undan ströndum New York.
Salinger viðurkenndi í viðtali við
frönsku sjónvarpsstöðina TFl að
hann hefði ekki fengið skjalið frá
bandarískum leyniþjónustumanni,
eins og hann hélt áður fram, heldur
frá ónafngreindum Frakka sem fékk
Rúmlega áttatíu þúsund böm
undir þriggja ára aldri gætu dáið á
næstu þremur vikum í austurhluta
Saírs ef ekki verður hægt að koma
neyðaraðstoð til sveltandi flótta-
manna, að því er yfirmaður mat-
vælaaöstoðar SÞ sagði í gær.
„Fólk er þegar farið að deyja og
við áætlum að rúmlega áttatíu þús-
und börn undir þriggja ára aldri
muni deyja fyrir lok mánaðarins,"
sagði Cahtherine Bertini, fram-
kvæmdastjóri matvælaaðstoðarinn-
ar, WFP.
það frá Bandaríkjamanninum.
„Ég komst reyndar að því í gær-
kvöld að skjalið hafði verið á Inter-
netinu í tvo rnánuði," sagði Salinger
í sjónvarpsviðtalinu í gær. Hann
sagði að það sýndi að sjóherinn
hefði gert tilraunir með flugskeyti í
13.000 feta hæð í þeirri trú að allar
flugvélar flygju i 21.000 feta hæð.
TWA þotan hefði hins vegar flogið
lægra og að flugturninum hefði
láðst að tilkynna sjóhemum það.
Þótt Salinger væri tvísaga um
hvar hann hefði fengið skjalið sagðist
hann engu að síður standa við þær
fullyrðingar sem þar kæmu fram um
þátt sjóhersins í flugslysinu.
Bernard Pacoul, yfirmaður líkn-
arsamtakanna Lækna án
landamæra, sagöi í gær að senni-
lega hefðu rúmlega 13.600 flótta-
menn f austurhluta Saírs dáið úr
hungri á undanfórnum þremur vik-
um. Þar eru fómarlömb stríðsátak-
anna ekki með talin.
Pacoul sagði það þumalputtareglu
að við aðstæður eins og þær sem nú
ríktu á þessum slóðum dæju tíu
flóttamenn af hverjum tíu þúsund á
degi hverjum.
Forseti alþjóðanefndar Rauða
Bæði varnarmálaráðuneytið
bandaríska og alríkislögreglan FBI
vísuðu staðhæfingum Salingers á
bug. Talað hefur verið um að
sprengja, flugskeyti eða vélarbilun
hafi valdið slysinu en niðurstaða
rannsóknarinnar liggur ekki fyrir.
Salinger sagðist ekki hissa á við-
brögðum yfirvalda og lét að því
liggja að gögnunum hefði verið
leynt til að koma Clinton forseta
ekki í vandræði fyrir kosningamar
á þriðjudag.
„Það verður gaman að sjá, nú
þegar kosningarnar eru afstaðnar,
hvort breyting verður á rannsókn-
inni,“ sagði Salinger. Reuter
krossins, Comelio Sommaruga,
hvatti til þess í gær að Vesturlönd
sendu herlið til Saírs til að aðstoða
hjálparstofnanir við að komast til
flóttamanna með aðstoð.
„Það er engin önnur leið,“ sagði
hann 1 viðtali við Reuters fréttastof-
una eftir blaðamannafund um neyð-
arástandið í Saír, þegar hann var
spurður hvort Vesturlönd ættu að
senda hersveitir til aðstoðar.
Stjórnvöld í Rúanda lýstu í gær yfir
andstöðu sinni við þátttöku Frakka i
slíkum herleiðangri. Reuter
ISalman
Rushdie til
Danmerkur í
Inæstu viku
Breski rit-
höfundurinn
Salman
Rushdie er
væntanlegur
til Kaup-
mannahafnar
í næstu viku
til að veita
viðtöku bókmenntaverðlaunum
Evrópusambandsins, þrátt fyrir
að deila um öryggisgæslu hans
hafi nærri orðið dönsku ríkis-
stjóminni að falli.
I sameiginlegri yfirlýsingu
dönsku Rushdie-nefndarinnar,
menningarmálaráðuneytisins og
stjórnar listaborgarinnar ’96
kemur fram að ekki verður gert
uppskátt hvar athöfnin fer fram
og Rushdie mun heldur ekki
veita nein viðtöl meðan á heim-
sókninni stendur.
Ekki guðlast
að bölva Maríu
||mey á Ítalíu
Dómari á Ítalíu hefur úrskurð-
að að það sé ekki glæpur að blóta
Maríu mey þótt öðru máli gegni
þegar sjálfúr guð á í hlut. Úr-
skurður dómarans hefur vakið
reiði innan Páfagarðs og komið
af stað umræðum um eðli og nátt-
úru guðdómsins.
Forsaga málsins er sú aö öku-
[ maður nokkur, sem lögregla
stöðvaði fyrir þremur árum,
brást hinn versti við aðgerðum
: lögreglunnar og bölvaði í sand og
j ösku, m.a. fékk heilög guðsmóðir
óþyrmilega að fmna fyrir því.
Ökumaðurinn var ákærður fyrir
guðlast en dómarinn sýknaði
| hann.
L’Osservatore Romano, hálfop-
jj inbert málgagn Páiágarös, lýsti
; vanþóknun sirrni á úrskurðinum
| og sagði hann móðgun við hinn
trúaða mann.
Heimilislaus
betlari nýjasta
fyrirsæta CK
Það hafa heldur betur orðið
umskipti í lifi hins 25 árabreska
liðhlaupa Shauns Yates. Ekki eru
nema nokkrir dagar síðan hann
breyttist úr tötralegum heimilis-
lausum betlara í fyrirsætu fyrir
j tískukónginn Calvin Klein.
*: „Ég er bara ánægður með að
1 vera kominn af götunni,” sagði
| Shaun Yates í viðtali við breska
æsiblaðið Sun.
Tískukóngurinn sá mynd af
Yates í bók um heimilislausa í
London og leist svo vel á að hann
lét leita hans um land allt. Leitin
j bar árangur og áður en langt um
j líður verður piltur farinn að
j vinna með Kate Moss og öðrum
flottum fyrirsætum.
Clinton búinn
aö finna starfs-
mannastjóra
Bill Clinton
j Bandaríkja-
forseti ætlar
að tilnefna
Erskine Bow-
S les. fyrrum
Í starfsmann f
I Hvíta húsinu
: og núverandi
I fjármálamann. í embætti starfs-
Ímannastjóra síns í stað Leons
Panettas sem lætur af embætti.
Bowles hefúr orð á sér fyrir að
vera mjög trúr forsetanum og Clin-
ton hefúr leitað mikið til hans,
1 m.a. leika þeir oft golf saman.
IRobert Reich atvinnumálaráð-
herra tilkynnti í gær aö hann
ætlaði að hætta tO aö vera meira
með fjölskyldunni. Reuter
Chirac til
Pierre Salinger meö leyniskjalið sem hann segir sanna að bandaríski sjóherinn hafi skotið farþegaflugvél niður und-
an New York i sumar. Símamynd Reuter
Vesturlönd verða að tryggja aðstoð í Saír:
Dauðinn bíður 80.000
barna á næstu 3 vikum