Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 JjV
Þriðjudagsmorgunninn 5. nóv-
ember var ólíkur öðrum morgnum
aö því leyti að klukkan hringdi
ekki fyrr en klukkan átta en virka
daga rísum við feðgar úr rekkju kl.
7. Við hjón vorum boðuð á for-
eldrafund í Hagaskóla kl. 9.50 svo
Haukur átti því frí og gat sofið út.
Eftir disk af AB mjólk, lýsi og
Moggann hringdi ég nokkur símtöl
fyrir Magnús frænda og vert á
Hólmavík en hann og Þorbjörg,
eiginkona hans, reka hið glæsilega
veitingahús Café Riis. Nú um helg-
ina eru villibráðardagar á Café
Riis og ég er svona hálfgerður guð-
faðir þessa besta veitingahúss
Strandasýslu, já og jafnvel Vest-
fjarða, og þó víðar væri leitað.
Það var meö kvíðablandinni
spennu sem við Helga fórum til
fundar við Þóru Kristínu kennara
í Hagaskóla. Okkur fannst við vera
mun lengur inni hjá kennaranum
en aörir foreldrar. „Haukur, orm-
urinn þinn, þú verður að taka þig
á í stærðfræðinni." Ég keyrði
Helgu í Blómálfinn. Sjálfur fór ég í
myndver til að leggja síðustu hönd
á myndband sem við vorum að
ljúka gerð á fyrir Landssamtök
sauðfjárbænda.
Sigmar B. Hauksson segir frá mjög annasömum degi í lífi sínu.
Dagur í lífi Sigmars B. Haukssonar, formanns Skotveiðifélags Islands:
dráttur í hinu frábæra félagshapp-
drætti 4. desember næstkomandi.
Meðal glæsilegra vinninga er
veiðiferð til Kanada.
Slakað á í sundi
Eftir stjórnarfundinn hélt ég að
venju í þann sælureit sem ég sæki
í nær daglega, nefnilega Sundlaug
Seltjamarness. Þar slaka ég á bæði
líkamlega og ekki síst andlega. Lít-
ið var um matargerð því Helga
kaupmaður og kapítalisti var á
fundi hjá Kaupmannasamtökun-
um. Við feðgar fengum okkur
snarl. Ég fékk mér soðið pasta með
góðri ólífuolíu og hvítlauk, einfald-
ara getur það varla verið. Ég
spjallaði við Rúnar Bachmann,
mág minn, um veðurútlitið um
helgina og væntanlega veiðiferö.
Ákveðið var að athuga málið betur
á miðvikudagskvöldið og fá fréttir
af snjóalögum og veiði undanfama
daga. Það er ekki annað hægt en
að fylgjast með fréttum af hinu til-
komumikla og stórbrotna hlaupi
úr Vatnajökli.
Eftir bolla af þrælsterku
espresso kaffi settist ég niður og
hélt áfram að vinna að skýrslu
sem ég er að semja fyrir opinbera
Æ fleiri svæði lokast veiðimönnum
Barist fyrir
landréttarmálum
Rúmlega tólf fór smátimi í að
ræða við tvo félagsmenn í Skot-
veiðifélaginu um landréttarmál. Æ
fleiri svæði em að lokast fyrir
veiðimönnum. Það sem verra er að
í of mörgum tilvikum eru einstak-
lingar og jafnvel opinberar stofn-
anir að banna veiðar á svæðum
sem þessir aðilar hafa ekki yfir að
ráða. Landréttarmálin eru að
verða eitt af helstu baráttumálum
Skotvís og fer mikill tími í þennan
málaflokk.
Hugmyndin var að fara í léttan
hádegisverð á Grænum kosti en til
þess var ekki tími því ég þurfti að
líta inn í Mega film. Kl. 13 fór ég á
fund í svokallaðri Hvammsvíkur-
nefnd sem haldinn var í húsnæði
Hitaveitu Reykjavíkur. Fundinum
lauk kl. 15. Ég hringdi þá í blaða-
mann í Boston sem ætlar að senda
mér ýmsar upplýsingar um þessa
áhugaverðu borg en bráðlega mun
ég skreppa þangað og kemur sér
þá vel að fá „inside information".
Villibráðarkvöld undirbúiö
Næsti áfangastaður var skrif-
stofa Skotveiðifélagsins. Þar hitti
ég starfsmanninn okkar, Hjördísi
Andrésdóttur. Hún var að taka til
og raða í hillur. Við vorum að
flytja i nýtt húsnæði og er ekki
búið að tengja símann og taka upp
úr kössum. Við Hjördís ræddum
ýmis mál. Efst á baugi er „opið
hús“ eða rabbfundur sem við hjá
Skotvís höldum fyrsta miðvikudag
hvers mánaðar í Ráðhúskaffi sem
er í Ráðhúsi Reykjavíkur sem
kunnugt er. Á fundinum miðviku-
daginn 6. nóvember ætlar dr. Ólaf-
ur Nielsen að náttúrufræðingur að
spjalla um rjúpuna. Þá á að fjalla
um öryggismál og ýmislegt annað.
Á fundinum 4. desember verður
svo fjallað um matreiðslu á villi-
bráð. Kl. 16.30 á þriðjudögum er
stjómarfundur í Skotveiðifélaginu.
En áður en hann hófst gafst mér
tími til að erindast aðeins fyrir
Magnús vert á Hólmavík. Mat-
reiðslumaður á Café Riis á þessu
villibráðarkvöldi er ungur og efni-
legur matreiðslumaður, Sigurður
Magnússon, sem dagsdaglega er
matreiðslumaður á Hótel Loftleið-
um. Á stjórnarfundinum voru
ýmis mál rædd, svo sem dreifing á
hinu glæsilega blaði okkar og
stofnun um nýjung í ferðageiran-
um. Meira er ekki hægt að segja
um það mál að sinni. Eftir að
Helga kom heim var horft með
öðru auganu á David Lettermann.
Um miðnættið var svo farið í nátt-
fötin og gengið til náða en áður var
kíkt í bók. Um þessar mundir er á
náttborðinu hjá mér bók er nefnist
Eating for Healthy Heart; Explain-
ing the French Paradox. Ég nennti
ekki að lesa margar síður. Ég þarf
að vakna snemma í fyrramálið og
skrifa þessar línur fyrir DV um
dag í lífi mínu.
Finnur þú fimm breytingar? 384
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð átthugustu og
aðra getraun reyndust vera:
Ragnheiður Eliasdóttir Valgerður Björnsdóttir
Álftamýri 50 Hólabergi 38
108 Reykjavík lli Reykjavík
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossí á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þinu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 4.900, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond- bók-
in Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 384
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík