Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Síða 37
UV LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
Svíar segja álit sitt á íslendingum:
sviðsljós
Eru skapstyggir,
fara ekki í röð og
segja ekki takk
„íslendingar eru 267 þúsund.
Þegar þeir fara á þorraþlót éta þeir
hrútspunga og kæstan hákarl. Að
því búnu drekka þeir eins og svín
þar til fætumir bera þá ekki leng-
ur,“ segir í grein eftir Robert Asch-
berg í Aftonbladet fyrir skömmu.
Að sögn greinarhöfundar eru ís-
lendingar miklir villimenn ef þeir
eru bornir saman við Svía. Þeir
troðast í stað þess að fara í raðir.
Þeir halda dyrum ekki opnum og
þakka hvorki fyrir sig né segja
gjörðu svo vel. Þeir eru þungir í
skapi, þrætugjamir og fram úr
hófi þjóðemissinnaðir og allir hafa
þeir gengið í skóla með Björk.
íslendingar eru Albanir Norður-
Atlantshafsins sem eru skapstygg-
ir og sjálfstæðir. Þeir treysta eng-
um öðrum en öðrum íslendingum.
Hafið tekru- margan íslendinginn.
íslendingar sem flytja til útlanda
fara flestir heim eftir sjö ár. ís-
lenskum karlmönnum þykir gam-
an að slást og rífast.
Þessar sögur sagði vinkona
Aschbergs honum. Hún á heima í
Svíþjóð og segir að stundum hringi
til hennar íslendingar og spyrji
hvort þeir megi flytja til hennar
heimilisfangið til þess að þeir fái
bætur frá sænska ríkinu. Þegar
hún segir nei verða þeir fúlir. Sam-
kvæmt íslenskum hefðum ætti hún
að sætta sig við það. Þegar íslend-
ingar koma í heimsókn til hennar
róta þeir í skápum og öllum eigum
hennar. Stundum koma þeir í
heimsókn án þess að láta vita af
sér og dvelja í tvær vikur.
Vinkona Aschbergs giftist
sænskum manni. Hann fór í heim-
sókn til íslands með henni og öll
ættin safnaðist saman til þess að
sjá hann. Hver einasta kerling
kleip hann í kinnina en með því
buðu þær hann velkominn í ætt-
ina.
Lyklavöld kvenna
íslendingur sem verður blankur i
Kuala Lumpur leitar uppi annan ís-
lending sem hjálpar honum. Það er
ekki til á Islandi neitt sem heitir fé-
lagslegt kerfl sem jafnast á við það
sænska. Ættin sér um það. Þetta er
arfleifð frá víkingatímanum, sagði
vinkona Aschbergs. íslenskar konur
hafa mikið vald sem kallað er lykla-
völd. Kjarnaflölskyldan byggist á
ömmu, mömmu og barni. Þær hafa
lykla að öllum húsunum og sjá þar
um allt á meðan karlmennimir eru
úti á sjó að leika sér eða ræna og
rupla.
Þrír pabbar í einni
fjölskyldu
Vinkona Aschbergs á hvorki
meira né minna en tólf systkini en
systkinaskarinn á þrjá feður. ís-
lendingar eru ekki nákvæmir með
trúlofanir og giftingar - þeir eru
einfaldlega saman. íslendingar játa
aldrei hvor öðrum ást sína og eru
ekki notalegir hverjir við aðra. Ef
íslenskur strákur segir: „Heyrðu,
paddan þín,“ getur stelpan verið
viss um að hann er hriflnn af
henni.
Skírnarnafnið er mikilvægara
heldur en föðumafnið, einnig í
símaskránni. Ef leitað er að Islend-
ingi í símaskránni er skírnamafn-
ið fyrst og þarf því að leita að því.
íslendingar setja heimsmet í að
kaupa bækur vegna þess að þær
fara vel í bókahillunni.
Ameríkanarnir sem vinna á vell-
inum í Keflavík fá ekki að yfirgefa
svæðið. Ef þeir gera það berja ís-
lenskir karlmenn þá í spað. Amer-
íkanarnir byrjuðu með sjónvarps-
útsendingar á íslandi. Þá þurftu ís-
lendingar lika að fá sjónvarp. Það
varð lélegt sjónvarp en Kanasjón-
varpið var eftir það bannað.
Stunur úr blokkinni
íslensk kona stundi svo mikið
þegar hún og maðurinn hennar
elskuðust að nágrannamir heyrðu
það. Eftir sólarhringinn vissu allir á
eynni að hún stundi. Allir vita allt
um alla á íslandi.
Aschberg hefur sjálfur komið til
íslands og honum þykir fólkið
skemmtilegt. Honum þótti gaman
að synda í heitum útisundlaugum á
kvöldin og skemmta sér með hinum
á Tunglinu. Hann drakk brennivin,
sem kallaðist svartidauði, með létt-
bjór og man ekki nákvæmlega hvað
geröist eftir það. Því meira sem vin-
kona hans segir honum um íslend-
inga þeim mun meira langar hann
þangað.
Þýtt og endursagt
úr Aftonbladet
Að áliti Svíans Roberts Aschbergs eru íslenskir karimenn mikið fyrir að rífast og slást.
45
Hafnarfjörður
Verkakvennafélagið Framtíðin
Tillögur stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins um stjórn og aðrar trún-
aðarstöður liggja frammi á skrifstofu félagsins að Strandgötu 11, Hafn-
arfirði, frá og með mánudeginum 11. nóvembertil og með fimmtudegin-
um 14. nóvember nk.
Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 14. nóvember
og er þá framboðsfrestur útrunninn.
Tillögum þarf að fylgja meðmæli 20 fullgildra félagsmanna.
Verkakvennafélagið Framtíðin
á góðum barna-,
dömu-og herrafatnaði
laugardag I sunnudagl
kl. 10-17 |kl. 13-17
Borgartúni 20
SÍMVAKINN
sýnir og geymir
símanúmer þess sem
hringir hvort sem þú
ert heima eða að
heiman.
Geymir allt að
120 númer með
dagsetningu og
klukku.
Verð kr. 4.490 stgr.
htei
Siðumúla 37, 108 Reykjavík
Sími 588 2800 - Fax 568 7447
r
TRYGGING HF.
óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst í umferðaróhöpp-
um. Bifreiðamar verða seldar í því ástandi sem þær eru og kaupendur skulu kynna
sér á staðnum.
Subaru Impreza 1996
Opel Astra Caravan 1996
Opel Vecra 1995
Peugeot 205 1995
Peugeot 205 1995
Jeep Cherokee 1994
Skoda Favorit 1991
VW Polo 1991
MMC Colt 1990
Subaru 1800 st 4x4 1989
MMC Lancer 1989
Dodge Aries 1989
Toyota Corolla 1988
Daihatsu Charade 1988
Subaru Justy J12 1988
Daihatsu Charade 1987
Mazda 323 1987
BMW316 1985
Ford Escort 1985
Ford Escort 1984
Mazda 929 1986
Subaru Justy J12 1987
Skoda Felicia 1995
Bifreiðamar verða til sýnis mánudaginn 11. nóvember 1996 í Skipholti 35, (kjall-
ara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskum skilað fyrir kl. 16 sama dag til Tryggingar hf.
Laugavegi 178, 105 Reykjavfk sími 540 6000.