Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
5
Fréttir
Kostnaður við rekstur fasteigna á íslandi:
Yfir 100 prósent munur
á húshitunarkostnaði
Sá sem býr á Sauðárkróki í 94 fer-
metra íbúð greiðir 20.264 krónur í
húshitunarkostnað á ári. Sá sem
býr i jafnstórri íbúð á Akureryi
greiðir aftur á móti yfir hundrað
prósentum meira eða 50.153 krómu-
á ári. Á Selfossi greiðir fólk lægri
húshitunarkostnað en í Reykjavík
sem oft hefur verið talin með lægsta
gjaldið en er í 4. sæti yfir landið.
Þetta er eitt af þvi sem kemur
fram í skýrslu ffamfærslunefndar-
innar sem kunngerð var í gær. í
skýrslunni er gerð könnun á kostn-
aði við rekstur fasteigna um allt
land. Þar eru tekin fyrir opinber
gjöld, húshitunarkostnaður og raf-
magnsnotkun.
Þegar allir þessir liðir éru teknir
saman kemur i ljós að ódýrast er að
búa á Selfossi. Þar greiðir fólk fyrir
rafmagn og hita auk opinberra
gjalda 100.205 krónur á ári fyrir 94
fermetra íbúðina. Reykvikingar
greiða 102.011 krónur og Sauðkræk-
ingar 102.898 krónur.
Af þeim stöðum sem skoðaðir
voru er dýrast að eiga 94 fermetra
íbúð I Stykkishólmi. Þar kostar það
137.168 krónur á ári. Næstdýrast er
það í Neskaupstað, 134.888 krónur,
og í þriðja sæti er ísafjarðarkaup-
staður með 130.771 krónu á ári.
-S.dór
mestur munurinn milli Sauðárkróks og Akureyrar
140.000
120.000
Útgjöld vegna
reksturs fastei
Kostnaður á húshitun
50.15349.9iQ 46488
32.902
Reykjavík Akranes Stykklsh. ísafjörður Sauöárkr. Akureyri Neskaupst. Selfoss Vestm. Reykjanbær
Hundahótel Suðurnesja:
Hundar í gæslu
á gamlárskvöld
Þrír ævintýradagar meöan húsrúm leyfir
Innifalið:
Gisting í 3 nætur, morgunverður af hlaðboröi alla
dagana og einn þríréttaður kvöldverður.
Verð kr. 4.950
DV, Suðurnesjum:
„Það er töluvert að gera hér á
gamlárskvöld. Hundaeigendur
komu þá með hunda sina til að
forða þeim frá hávaðanum í flugeld-
unum. Hundamir er mjög hræddir
við sprengingamar,“ sagði Gunn-
laugur Valtýsson, en hann rekur
ásamt fjölskyldu sinni hundahótel
Suðumesja á Hafurbjamastöðum í
Sandgerðisbæ, í samtali við DV.
Hafþór Örn og Erla Dögg taka mikinn þátt í rekstri hótelsins, Þau eru þarna
meö heimilishundinn Snotru. DV-mynd ÆMK
Gunnlaugur tók við hótelinu í
júní í fyrra af kunningjafólki sem
fluttist til útlanda en það hafði rek-
ið hótelið í 3 ár.
„Þau ætluðu að selja aðstöðuna
en það þróaðist þannig að við keypt-
um reksturinn. Það er búið að vera
sæmilegt að gera síðan. Fólk sem
kemur hingað með hunda sína segir
að hér sé góð aðstaða fyrir hunda.
Ég er með 20 búr en ætla að fjölga
þeim 130. Ég hef hug á því að koma
upp gæludýrahóteli. Það er nægjan-
legt rými hér,“ sagði Gunnlaugur
Valtýsson.
-ÆMK
Upplýsingar og bókanir á Hótel Örk, Hveragerði.
Fyrstur kemur - fyrstur fær
LYKIL
HÖTEL
Lykillinn að íslenskri gestrisni.
Hveragerði - Sími 483 4700 - Bréfsími 483 4775
aítarskóli
"^ÖLAFS GAUKS
Innritun er hafin
og er innritað daglega á virkum dögum kl. 14 til 17 í síma 588-3730,
eða í skólanum Stðumúla 17. Fjölbreytt námskeið í boöi jafnt fyrir byrjendur
sem lengra komna á öllum aldri. Skemmtilegt nám. Þú nærö lengra en þú
heldur á skömmum tíma. Venjulegur staögreiðsluafsláttur.
Sendum upplýsingabækling þeim sem þaö vilja.
Sláöu á þráöinn og kannaðu málið.