Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
PROFNAM A VORONN 1997
Öldungadeild
GRUNNSKÓLASTIG
(íslenska, stærðfræði, danska og enska)
Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem
ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni.
Fornám: Samsvarar 10. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa
náð tilskildum árangri í 10. bekk eða vilja rifja upp.
Undirbúningur fyrir nám á framhaldsskólastigi.
FRAMHALDSSKÓLASTIG
Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjamagreina: íslenska, danska,
enska og stærðfræði. Auk þess eðlisfræði, efhafræði, félagsfræði,
námstækni, saga, stærðfræði 112 og 122 og tjáning.
Sjúkraliðabraut: heilbrigðisfræði, líffræði, líffæra- og lífeðlisfræði,
líkamsbeiting, næringarfræði, sálfræði, siðfræði og skyndihjálp.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði fyrir nemendur í grunn- og fram-
haldsskólum. Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir
þörfum.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla.
Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er haldið í lágmarki.
INNRITUN fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkisrkjuvegi 1, dagana
9. og 10. janúar frá kl. 17-19.30.
Innritun ífrístundanám fer fram 12. og 13.janúar kl. 16.30-19.30.
• •
KVOLDSROLIH
KOPAVOGS#
Tungumálanámskeið:
Kennt er í byrjenda-, framhalds-
og talæfingaflokkum.
DANSKA - NORSKA
SÆNSKA - FRANSKA - ÍTALSKA
ÞÝSKA - KATALÓNSKA
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
Bókhald - íslenska - Vélritun - Andlitsteiknun
Vatnslitamálun - Brauðbakstur- Ljósmyndun
Körfugerð - Leðurvinna - Öskjugerð
og fjöldi annarra námskeiða
Innrítun í síimim:
5641527,5641507 og 554 4391
Kl. 17.00-21.00.
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur a\\t mll/í o
og stighœkkandi
Smaauglysingar
birtingarafsláttur
DV
550 5000
Utlönd
Endaslepp hnattferö í loftbelg:
Branson lenti í
í morgun
Alsír
Breska auðkýfingnum Richard
Branson varð ekki að ósk sinni um
að verða fyrsti maðurinn til að
fljúga umhverfis jörðina í loftbelg
þar sem hann neyddist til að lenda
belg sínum, Virgin Global Challen-
ger, í Alsír í dögun í morgun, tæp-
um sólarhring eftir að hann lagði af
stað frá hinni fomu borg Marra-
kesh í Marokkó. Ástæðan fyrir lend-
ingunni var bilun í tækjabúnaði.
„Þeir ætla að reyna að lenda um
leið og birtir, ef þess er nokkur kost-
ur,“ sagði Mike Kendrick, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins, á fundi
með fréttamönnum sem hann boð-
aði til í skyndingu eldsnemma í
morgun á hóteli í Lundúnum.
Kendrick sagði að engin ástæða
væri til að óttast um líf Bransons og
tveggja manna sem eru með honum
um borð í loftbelgnum.
„Enginn er meiddur, þetta er ein-
göngu tæknilegs eðlis,“ sagði
Kendrick.
Hann sagði að Branson hefði haft
samband við sig um talstöð úr loft-
belgnum og skýrt sér frá tækni-
vandamálinu.
„Richard sagði: „Mér þykir fyrir
því að þurfa að valda þér vonbrigð-
um, Mike, en við verðum að lenda.
Segðu öllum að okkur þyki þetta
miður“.“
Kendrick sagði ekki ljóst hvert
vandamálið væri en sagði þó Ijóst
að það snerti ballestina og helíumið
um borð.
Kendrick sagði í nótt að loftbelg-
urinn hefði verið kominn niður í
fiögur þúsund feta hæð þegar hann
var lægst á lofti en hann hefði síðan
komist aftur upp í tólf þúsund feta
hæö. Belgurinn yrði að fljúga yfir
fiallgarð en síðan myndu Branson
og félagar reyna að lenda honum á
sléttlendi.
Talið er að loftbelgur Bransons og
aðstoðarflugmanna hans, þeirra
Pers Lindstrands og Alex Ritchies,
sé sá stærsti í heimi.
„Þetta er eitthvert stórkostlegasta
ævintýri sem nokkur maður getur
lent í á ævi sinni,“ sagði Branson
við fréttamenn áður en hann lagði
upp í flugferðina í gær.
Reuter
Richard Branson kveöur fjölskyldu sína áöur en lagt var í langferöina I loftbelgnum í gær. Bilun í tækjabúnaöi varö
hins vegar til þess að hann þurfti aö binda enda á feröalagið í Alsír í morgun. Símamynd Reuter
Sprengju-
árásir ógna
friðarviðræð-
um um
N-írland
Grunur leikur á að írski lýð-
veldisherinn, IRA, beri ábyrgð á
sprengjuárás á tvær lögreglubif-
reiðar í Londonderry í gær-
kvöld. Engan lögreglumann sak-
aði í árásinni.
í Belfast yfirheyrði lögreglan
tvo menn sem handteknir voru
eftir að írski lýðveldisherinn
skaut flugskeyti að dómshúsinu
á mánudag. í kjölfar þeirrar
árásar barst lögreglunni fiöldi
tilkynninga um sprengjur en til-
kynningarnar reyndust gabb.
Árásirnar undanfarna daga
þykja stofna friðarviðræðunum
um Norður-írland í hættu. John
Major, forsætisráðherra Bret-
lands, sem er hvatamaður að
friðarviðræðunum, sagði flug-
skeytaárásina í Belfast á mánu-
daginn valda því að erfitt væri
að ímynda sér að Sinn Fein,
pólitískur armur írska lýðveld-
ishersins, gæti tekið þátt í frið-
arviðræðunum. Sinn Fein, sem
fær ekki að taka þátt í viðræð-
unum fyrr en IRA stöðvar
sprengjuherferð sína, hefur
hvatt til fiölflokkafriðarvið-
ræðna þegar í stað. Reuter
Rmm særðust í
sprengjuárásum
í Bagdad
írönsku stjórnarandstöðusamtök-
in Mujahidee Kalq greindu frá því í
gær tvær sprengingar hefðu skekið
Bagdad og fimm manns særst í
sprengjuárás á aðalbækistöðvar
þeirra í höfuðborg íraks. Sökuðu
samtökin yfirvöld í íran um árás-
ina. Samtökin eru með herbækistöð
í Irak, nálægt landamærunum við
Iran.
Að sögn Mujahidee-samtakanna
skemmdist sjúkrahús í Bagdad við
árásina og einnig hús samtaka íra-
skra rithöfunda.
írakar og íranar saka hverjir
aðra um að hýsa stjórnarandstöðu-
hópa. Yfirvöld í Bagdad hafa sakað
írönsk yfirvöld um banatilræðið við
eldri son Saddams Husseins íraks-
forseta. írönsk stjómvöld neita allri
aðild.
Reuter
Fujimori ákveðinn í að
láta ekki undan skæruliðum
Alberto Fujimori, forseti Perú,
áréttaði í gær þá afstöðu stjómvalda
„að láta ekki undan hryðjuverka-
mönnum" er hann ræddi við frétta-
menn í óvæntri heimsókn sinni í fá-
tækrahverfi í Lima.
Forsetinn sagði stjómvöld ákveð-
in í að forðast blóðbað og vonast eft-
ir friðsamlegri lausn á gísladeilunni
sem nú hefur staðið yfir í þrjár vik-
ur. Nú em enn 74 gíslar í haldi
skæruliða í bústað japanska sendi-
herrans í Lima.
Fujimori hætti reglubundnum
heimsóknum sínum i fátækrahverf-
in þegar skæruliðar tóku nokkur
hundruð gísla í veislu hjá sendi-
herranum í desember og heimtuðu
frelsi félaga sinna sem sitja í fang-
elsum. Forsetinn kveðst hafa tekið
upp heimsóknir á ný til að sýna að
lífið héldi áfram eins og venjulega í
Perú.
Reuter