Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Síða 7
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
7
DV Sandkorn
Túkall
Þaö var i Sandkomi á dögunum
sagt frá tveimur náungum á Akur-
eyri sem eru kallaöir Fimmkall og
Tíkall sökum þess
hve sparsamir
þeir eru. Þeir eru
margir sem fara
vel meö fé og eru
fyrir bragðið kall-
aðir nískir eða að-
haldssamir. Frið-
rik Guðmundsson,
forstjóri Tanga á
Vopnafirði, er
sagður fara vel
með og fyrir bragðið hefur hann
fengið viöumefhið Túkall hjá Vopn-
firðingum. Hann veit vel af þessu og
hefur húmor fyrir því. Eitt sinn sat
hann fund hjá atvinnumálanefnd
Vopnafjarðar og gerði grein fyrir at-
vinnuástandinu hjá Tanga. Þá barst
í tal Rússa-fiskurinn og sagði Friö-
rik þau viðskipti hafa gengið vel.
Barst þá í tal farmur af slíkum fiski
sem talið var að hefði verið ónýtur.
Friðrik sagði það ekki hafa verið.
Fiskurinn var verkaður í salt. „Við
græddum vel á þessum farmi, það
má segja að við höfum keypt hann á
krónu en selt hann á túkall," sagði
Friðrik Guðmundsson.
Efasemdir
Það vakti nokkra athygli þegar
tilkynnt var um samruna Flugleiða
og Flugfélags Norðurlands undir
nafhinu Flugfélag
íslands. Margir
muna enn þau ár
þegar Flugfélag ís-
lands og Loftleiðir
háðu hér harða
samkeppni á flug-
leiðum milli
landa. Loks fór
svo að bæöu fyrir-
tækin vora i and-
arslitrunum og á
buUandi rikisstyrkjum og aðstoð. Þá
gekkst ríkisstjómin í að sameina
fyrirtækin og Flugleiðir hf. var
stofnað. Því er þetta rifjað upp að
það var í þriðja sinn sem Flugfélag
Islands gafst upp. Áður höfðu tvö
fyrirtæki undir þessu nafhi gefist
upp. Því eru efasemdir á lofti um að
kalla nýja flugfélagið Flugfélag ís-
lands og meira að segja nota merki
þess gamla. Hjátrúarfullir segja þetta
ekki boða neitt gott.
Hafnarfjarðar-
brandari
Það era ekkert margir Hafnar-
fiarðarbrandarar sannir. Þeir era
þó til eins og sá sem átti sér stað í
vikunni. Menn
hafa lent í hinu
mesta puði við að
skafa snjó af bíl-
um sínum á
morgnana hér á
höfuðborgarsvæð-
inu. Einn morgun-
inn, þegar ástand-
ið var hvað verst
og ekki sást í bíl-
ana fyrir snjó, fór
Hafhfirðingur einn út um morgun-
inn tfi að skafa snjó af bil konu
sinnar. Hann skóf og skóf enda
nokkuð frost og snjórinn og klakinn
mjög fastur á öllum rúðum. Allt í
einu kom til hans nágranni og
þakkaði honum hugulsemina að
skafa fyrir sig af bílnum. Hafiifirð-
ingurinn hafði farið bílavillt og stóö
nú bíll nágrannans tilbúinn til akst-
ur en bíll konunnar hlaðinn snjó.
Syndgarí huganum
í Sandkomi í fyrradag birtum við
hina bráðskemmtilegu vísu eftir Jón
Kristjánsson, alþingismann og for-
mann fjárlaga-
nefhdar, um séra
Hjálmar Jónsson
og þá truflun sem
hann verður fyrir
af hávaða gesta á
Óöali þegar nekt-
ardansmeyjar
sýna listir sínar.
Aðeins þunnt þil
er í milli skrif-
stofu séra Hjálm-
ars og skemmtisala Óðals. Vísan er
svona.
Húsið er pakkað af fáklæddum
fálum,
nú fáum við glögglega taktinn
skilið.
Séra Hjálmar ’ann situr á nálum
og svitnar af skelfingu bak við
þilið.
En það er til önnur útgáfa af síð-
ustu línunni i visunni eftir Jón. Þá
verður botninn svona.
Séra Hjálmar ’ann situr á nálum
og syndgar í huganum bak við
þilið
Umsjón Sigurdór Sigurdórsson
Fréttir
Slippstöðin á Akureyri:
Samningurinn við
Rússana í höfn
DV, Akureyri:
Samningar milli Slippstöðvar-
innar á Akureyri og rússnesks út-
gerðarfyrirtæki um að Slippstöðin
vinni að viðhaldi og endurbótum á
tveimur af togurum rússneska fyr-
irtækisins hafa verið undirritaðir.
Fyrri togarinn kom reyndar til
Akureyrar um síðustu mánaðamót
og var látinn liggja við ankeri á
Pollinum í vikutíma þar til tekist
hafði að drepa rottur sem fundust
um borð í skipinu. Togarinn er nú
kominn á svæði Slippstöðvarinnar.
Hinn togarinn er væntanlegur í lok
mánaðarins.
Ingi Bjömsson, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar, segir að
vinnan við skipin muni standa yfir
í þrjá mánuði og verkefnastaða
Slippstöðvarinnar sé mjög góð
næstu mánuðina. Rússneska fyrir-
tækið, sem á togarana, gerir út alls
45 togara og binda forráðamenn
Slippstöðvarinnar á Akureyri vonir
við að vel takist til með þau verk-
efiii sem þegar hefur veriö samið
um en það gæti hugsanlega leitt til
frekari samninga milli fyrirtækj-
anna.
-gk
Básafell
og Kambur
sameinast
„Kambur er með 2.200
þorskígilda kvóta. Auk þess er
vinnsla fyrirtækisins öðruvísi en
annarra og sérhæfð í að fram-
leiða söltuð fiskflök en mjög fáir
em í því,“ segir Amar Kristins-
son, framkvæmdastjóri sjávarút-
vegsfyrirtækisins Básafells á ísa-
firði, aðspurður um væntanlega
sameiningu Básafells og Kambs.
Stjórnendur Básafells og
Kambs á Flateyri hafa undirritað
viljayfirlýsingu um sameiningu
fyrirtækjanna en að sögn Arnars
fer tiltölulega ólík starfsemi fyr-
irtækjanna vel saman. -SÁ
Áfengissmyglið:
Þrír lausir
úr haldi
Þrír menn, sem voru í haldi
vegna aðildar að stóra smyglmál-
inu, vom í gær látnir lausir úr
gæsluvarðhaldi.
Um er að ræða smygl á alla vega
þremur gámum af áfengi, aðallega
Jenkins vodka. Rannsóknarlögregla
ríkisins telur að um tvö mál óskyld
sé að ræða. Fyrst voru tveir menn
handteknir, tollvörður og innflutn-
ingsaðili vegna smygls á tveimur
gámum af víni.
Nokkrum dögum síðar vtir þriðji
maðurinn handtekinn vegna smygls
á einum gámi. Krafist var framleng-
ingar á gæsluvarðhaldi yfir honum
en Héraðsdómur Reykjavikur hafn-
aði því í gær. Málið er áfram í rann-
sókn hjá RLR. -RR
Sveitarfélögin:
Sameinast
í félagi um
sorpurðun
DV, Vesturlandi:
Stofhað hefur verið hlutafélag um
urðun sorps á Vesturlandi með þátt-
töku allra sveitarfélaga á Vestur-
landi og heitir félagið Sorpurðun
Vesturlands hf.
Skipting hlutafjár í félaginu, sem
er um það bil 28 milljónir króna, fer
eftir íbúatölu hvers sveitarfélags og
hefur Akraneskaupstaður þegar lýst
því yfir að Akumesingar muni
kaupi hlutabréf í félaginu fyrir átta
milljónir króna. Þegar hafa 2,6 miflj-
ónir króna verið greiddar - i desem-
ber 1996 - og 5,4 milljónir króna
verða greiddar í ár.
„Ef allt gengur eftir verður urð-
að í Fíflholti á Mýrum, skammt
sunnan Brúarfoss, en við erum
að bíða eftir úrskurði umhverfis-
ráðherra. Þetta er bara fyrsta
skrefið í því að bæta úr brýnni
þörf til að bæta ástand sorpurð-
unar á Vesturlandi sem víðast
hvar hefur verið í ólagi. Síðan á
eftir að fara út í flokkunina og
reyna að endumýta eins mikið af
úrgangi og hægt er,“ sagði Pétrn-
Ottesen, formaður sorpnefndar
sveitarfélaga á Vesturlandi, í
samtali við DV. -DVÓ
Velti bílnum
Ung stúlka missti stjóm á bíl
síniun á Eyrarbakkavegi við Ós-
eyrarbrú í gær. Mikil hálka var á
veginum og fór bíllinn veltur út
fyrir veg og skemmdist mikið.
Stúlkan var í belti og slapp með
skrekkinn. -sv
-heimilistæki
standa undir
nafhi!
Brauðrist
Mínútugrill
Djúpsteikingarpottur
Kaffivél
Gufustraujárn
Straujárn
Baðvog 200g
Handþeytari
Eldhúsvog
5.790,-
2.59
Umboðsmenn:
Reykjavik: Hagkaup. Byggt & Búifl, Kringlunni.Magasln. BYKO. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, KI.Borgfirðinga, Borgamesl. Blómstun/ellir,
Hellissandi. Guflni E. Hallgrlmsson, Grundarfirfli.Versun Einars Stefánssonar, Búðardal. Helmahomið, Stykkishólmi. Vestflrðlr: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði.
Rafverk.Bolungan/lk.Straumur.isafirði. Norðurland: Kf. Stelngrlmsfjarðar, Hólmavlk. Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetnlnga, Blönduósi.
Skagfirðingabúð.Sauðárkróki.KEA, byggingavðrur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. KEA Siglufirði. Kf. Þingeyinga, Húsavlk. Urð, Raufarhðfn. Lónið, Þórshðfn.
Austurland: Sveinn Guðmundsson.Egilsstððum. Verslunin Vik, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK Hðfn. Suðurland: Mosfell, Hellu.
Arvirklnn, Selfossi. Rás, Þoriákshófn. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavlk. Rafborg.Grindavlk. Fjarðarkaup, Hafnarfirði.
VISA
EURO og VISA raðgreiðslur
TEFAL
-fetiiramar
800