Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Síða 24
36
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
Er kvótabraskið
að festast í sessi?
„Við fáum daglega mál um
kvótabrask inn á borð hjá okkur.
Ég held að þetta sé bara að festast
í sessi, frekar en að það sé að
aukast.“
Sævar Gunnarsson. formaður
Sjómannasambands íslands.
Halldór er að læra
„Halldór (Ásgrímsson) er efni-
legur. Hann er að læra og við
skulum ekki trufla það.“
Jón Baldvinsson alþingismaður, í
Alþýðublaðinu.
Ummæli
Engin kúariða
„Það er engin hætta á kúariðu
við neyslu þessa kjöts.“
Úlfar Eysteinsson matreiðslu-
meistari, um hvalkjöt, í DV.
Rekum bankastjórana
„Ég tel sjálf, að það eigi að
segja öllum bankastjórum upp og
endurráða þá á sanngjömum
launum.“
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður, í Alþýðublaðinu.
Fátæktin
„Ríkjandi láglaunastefna
stjómvalda og atvinnurekanda er
búin að festa fátækt í sessi hér-
lendis."
Sigurður T. Sigurðsson, formaður
Hlífar, í Morgunblaðinu.
Jetz leikur á Gauki á Stöng í
kvöid.
Jetz á Gauknum
Popp-rokksveitin Jetz með
Gunnar Bjarna úr Jet Black Joe
í fylkingarbrjósti leikur í kvöld á
Gauki á Stöng.
Tölvuleikjapopp
í Hinu húsinu
Hljómsveitin Bag of Joys held-
ur síðdegistónleika í Hinu hús-
inu í dag kl. 17.00. Bag of Joys er
trió úr Breiðholtinu sem skipað
er tveimur strákum og einni
stelpu og saman framleiða þau
tölvuleikjatónlist.
Gloss á Lundanum
I kvöld og annað kvöld mun
hljómsveitin Gloss spila á Lund-
anum í Vestmannaeyjum. í
Gloss eru: Helga, söngur, Matti,
hljómborð, saxófónn, Kiddi,
bassi, Hjalti, gítar, Finnur,
trommur, og Freysi, trompet.
Kiddi Rós á Gullöldinni
í kvöld og annað kvöld leikur
Kiddi Rós fyrir dansi á Gullöld-
inni í Grafarvogi.
Skemmtanir
Þríund í Glæsibæ
í kvöld mun hljómsveitin Þrí-
und skemmta í Danshúsinu í
Glæsibæ. Annað kvöld er það
hljómsveitin Upplyfting ásamt
söngvaranum Ara Jónssyni sem
skemmtir gestum Danshússins.
Stuna og Q4U í Rósen-
bergkjallaranum
Hljómsveitirnar Stuna og Q4U
skemmta í Rósenbergkjallaran-
um í kvöld. Annað kvöld verður
Saktmóðigur með útgáfutónleika
og kynnir plötuna Byggir heims-
veldi úr sníkjum. Einnig koma
fram Fallega gulrótin, Örkuml
og Rass.
Þurrt að mestu
Skammt suður af landinu er 980
mb lægð, sem þokast suðaustur og
grynnist, en norðaustur af Jan
Mayen er 1017 mb hæð.
Veðrið í dag
í dag verður austan- og suðaust-
anátt um allt land, allhvasst eða
hvasst og slydda eða rigning við
suður- og austurströndina, en ann-
ars hægari og þurrt að mestu. Læg-
ir smám saman í kvöld og nótt. Hiti
nálægt frostmarki.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austankaldi og smáél í dag, en hæg
breytileg átt í nótt og skýjað en
þurrt að mestu. Hiti um 2 stig i dag,
en heldur kólnar í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 17.59
Sólarupprás á morgun: 09.23
kl. 6 í morgun
Síðdegisflóð í Reykjavík: 00.15
Árdegisflóð á morgim: 00.15
Veöriö kl. 6 í morgun:
Akureyri
Akurn.es
Bergstaðir
Bolungarvík
Egilsstaðir
Keflavíkurflugv.
Kirkjubkl.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfói
Helsinki
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Lúxemborg
Malaga
Mallorca
Miami
París
Róm
New York
Orlando
Nuuk
Vín
Winnipeg
alskýjaö 0
slydda 2
skýjað 0
heiðskírt 1
hálfskýjaö 0
úrkoma í grennd 2
slydda 1
snjóél á síö. kls. 0
snjókoma 2
alskýjað 2
súld 3
skýjaö -8
alskýjaö 6
haglél á síö. kls. 2
heiöskírt 3
léttskýjaó 12
alskýjað -4
léttskýjað 3
léttskýjað 1
rigning á síö. kls. 5
skýjað 2
skýjað 1
heiöskírt 14
hálfskýjaö 10
rigning 4
heiöskírt 8
alskýjaö -1
skýjaö 22
snjókoma -11
skýjað 5
-12
Magnus Theodór Magnusson myndlistarmaður.
Nota við úr gömlum bryggjum
„Ég sýni í göngugötunni um
fjörutíu verk, sem öU eru gerð úr
timbri sem ég hef viöað að mér
alls staðar að úr heiminum, allt
frá Norður-Noregi til Suður-Amer-
íku. Þá hef ég einnig nýtt mér
bryggjustólpa í Reykjavík, meðal
annars úr þeim bryggjum sem
byggðar voru fyrir peninga frá
Marshall-aðstoðinni árið 1947,“
segir Magnús Theódór Magnús-
son, myndlistarmaður með meiru,
sem sýnir um þessar mundir verk
sín i göngugötunni í verslanamið-
stöðinni í Mjóddinni.
Maður dagsins
Magnús, sem yfirleitt gengur
undir nafninu Teddi, segist þegar
vera búinn að selja verk, meðal
annars til Noregs, en hvar fær
hann hugmyndir að verkum sin-
um? „Ég fæ mikið af hugmyndum
þegar ég er til sjós. Það er langt
síðan ég tók upp á því að fara að
gera skúlptúra. Ég er gamall off-
setprentari og var í tuttugu ár
slökkviliðsmaður og læröi einnig
matreiðslu og var bryti á Fossun-
um og fer túr og túr ennþá, en með
Magnús Theódór Magnússon.
árunum hef ég meira og meira far-
ið út í það aö sinna myndlistinni
og fór til Finnlands 1993 til að
nema. Viðurinn heillaði mig strax
og nú geri ég eingöngu verk úr
viði og það helst gömlum. Elsti
viðurinn sem ég á er úr gömlu Ed-
inborgarbryggjunni á ísafirði, sem
er síðan um aldamót að því er ég
held. Viðurinn úr bryggjunum er
mjög dökkur, nánast svartur, er
það vegna þess að negldir voru
naglar í viðinn til að halda gróðri
frá honum.“
Teddi segist sjálfur hafa staðið i
að selja verk sín: „Mér hefur
ávallt fundist að verk mín passi í
útgerðarfýrirtæki úti á landi, en
það er erfiðara að ná í forstjóra
þessara fyrirtækja heldur en ráð-
herra, það er nánast vonlaust að
komast aö þeim.
Eins og áður segir fer Teddi af
og til á sjóinn: „Þegar vantar bryta
í afleysingar þá er oft hringt í mig
og ég tek túr. Stutt er síðan ég fór
eina ferð með Stuðlafossi og var
þá meðal annars í Norður-Noregi.
Þetta er gott tækifæri til að fara í
leit aö viði þegar í höfn er komiö í
einhverju landi. Ég er hættur að
drekka svo þegar strákarnir fara á
krárnar þá fer ég í viðarleit."
Teddi hefur mörg áhugamál fyr-
ir utan myndlistina, bóklestur og
Indland eru tvö þeirra: „Ég les
mikið og í miklu uppáhaldi hjá
mér eru Sigvaldi Hjálmarsson og
Grétar Fells. Ég hef lengi haft
áhuga á Indlandi og indverskri trú
og hef farið þangað einu sinni.“
-HK
Slönguprjón Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi.
Tveir leikir
í úrvals-
deildinni
Átjándu umferðinni í úrvals-
deildinni í körfubolta lýkur í
kvöld með tveimur leikjum, á
Akranesi leika heimamenn í ÍA
við Tindastól og Njarðvíkingar
fá ísflrðinga í heimsókn. Einn
leikur er í 1. deildinni og fer
hann fram í Sandgerði, Reynir
leikur við Stafholtstungur. Allir
leikimir hefjast kl. 20.00.
íþróttir
í handboltanum verður keppt
í 2. deild í kvöld og eru þrír leik-
ir á dagskrá. Kl. 20.00 leika Kefl-
víkingar á heimavelli sinum við
Hörð og ÍH leikur við KR í Hafn-
arfirði, hálftíma siðar eða kl.
20.30 leika í Höllinni á Akureyri
Þór og Ármann.
Saxófónkvartett
á Myrkum
músíkdögum
í kvöld verða tónleikar í Nor-
ræna húsinu í tónleikaröðinni
Myrkir músíkdagar. Stockholms
Saxofonkvartett mun þar leika
nútímaverk sem samin hafa ver-
ið fyrir slikan kvartett. ÖIl verk-
in eru nýleg, það elsta frá 1992.
Eitt íslenskt tónskáld, Þorsteinn
Tónleikar
Hauksson, á verk á tónleikun-
um, nefnist það Exhalito - fyrir
saxófónkvartett. Svíamir sem
skipa kvartettinn em: Sven Eest-
erberg, sópran, Jörgen Petters-
son, alt, Leif Karlborg, tenór, og
Per Hedlund, baríton. Tónleik-
amir hefjast kl. 20.00.
Bridge
Eitt af frægari varnarspilum sög-
unnar er það sem hér fer á eftir. Það
var spilað fyrir einum 55 áram í
Goldman Pairs-tvímenningskeppn-
inni í New York. Sigurvegarinn í
þeirri keppni var Dick Frey sem var
í miklu stuði í mótinu. Hann hélt á
spilum vesturs og gerðist ansi djarf-
ur þegar hann doblaði þriggja
granda samning eftir 16-18 punkta
grandopnun suðurs. Freku dobli
fylgdi hann eftir með góðu útspili.
Hefðir þú fundið sama útspil og
hann? Sagnir gengu þannig, suður
gjafari og NS á hættu:
* Á54
*• G8
f DG543
4 982
* 7632
* 632
-f 2
* G7653
4 KG8
* ÁK74
■f Á1098
* K4
Suður Vestur Norður Austur
1 Grand pass 2 Grönd pass
3 Grönd dobl p/h
Á þessum árum var tveggja
granda sögnin einföld áskorun í
þrjú og suður átti hámark og lyfti í
þrjú. Sennilega hefur allt verið að
ganga upp hjá Dick Frey í mótinu
úr því hann var svo djarfur að
dobla. Venjulega er það óheppilegt
fyrir vömina þegar allir punktarnir
raðast á aðra höndina því það gefur
sagnhafa yfirleitt möguleika á enda-
spilun. Frey reiknaði með því að fé-
lagi hans i austur ætti sennilega
einn gosa einan punkta og sá eini
sem var líklegur til að koma að not-
um var laufgosinn. Þess vegna spil-
aði Frey út laufdrottningunni í upp-
hafi! Sagnhafi gat enga björg sér
veitt, ekki gat hann gefið þann slag
því þá tekur vörnin 5 slagi á laufið.
Fyrir utan að spila út laufás og síð-
an laufdrottningu var þetta eina út-
spilið sem hnekkti samningnum.
ísak Öm Sigurðsson
* D109
* D1095
f K76
* ÁD10