Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997 Fréttir__________________________________________ Skýrsla forsætisráöherra um þróun launa og lífskjara á íslandi: Miklar skattahækkanir á almenning vekja athygli - skýrslan var hugsuö sem innlegg í samningaviðræðurnar, segir Ragnar Arnalds „Þegar ég óskaöi eftir því við forsætisráðherra að þessar upp- lýsingar kæmu fram þá var ég ekki síst með kjarasamningana í huga. Ég vildi að menn gætu átt- að sig á því hvernig lífskjörin hafa þróast og versnað á mörgum sviðum," sagði Ragnar Arnalds alþingismaður í samtali við DV í gær. Ragnar óskaði eftir þessum upplýsingum frá Davíð Oddssyni forsætisráðherra I október síðast- liðnum og var skýrslan lögð fram í gær. „Auðvitað er ekkert í þessari skýrslu sem kemúr mér beint á óvart. Menn höfðu grun um þetta allt saman en það er afar gott að fá svona heildaryfirlit yfir þessa þróun. Það kemur fram vaxandi fátækt í þessari skýrslu. Það sést best með stóraukningu gjaldþrota einstaklinga og vaxandi skuldum Samgönguráöherra: Neitar að gefa upp kjör toppanna hjá Pósti og síma í svari til Ástu R. Jóhannesdótt- ur, þingmanns jafnaðarmanna, um kaup og kjör stjómenda hins nýja hlutafélags Pósts og síma hf. sem er 100 prósent í eigu ríkisins, neitaði Halldór Blöndal sam- gönguráðherra að gefa upp hver þau eru. Sagði ráðherra að ástæðan fyrir því að Pósti og síma hafi verið breytt í hlutafélag hafi verið að klippa á tengslin við ríkið. Því þyki sér ekki fært að óska eftir þessum upplýsingum. Ágúst Einarsson sagði í umræð- um sem spunnust um þetta á AI- þingi í gær að ráðherra færi með rangt mál. Hér væri um hlutafélag að ræða og samkvæmt hlutafé- lagalögum gætu eigendur beðið um allar slíkar upplýsingar. „Eigendur hlutabréfa í Eimskip geta staðið upp á aðalfundi félags- ins og spurt hver séu laun Harðar Sigurgestssonar forstjóra. Við- komandi fengi svar þai- um þegar í stað,“ sagöi Ágúst. Guðmundur Ámi kallaði svör samgönguráðherra hneyksli. Hann spurði hvort þingmönnum kæmi ekki við það sem væri að gerast hjá Pósti og síma? Hann spurði líka hvort það væri orðið svo að löggjafarvaldinu kæmi ekki lengur við það sem framkvæmda- valdið aðhefst. Ásta R. Jóhannesdóttir boðaði utandagskrárumræður um þetta mál. -S.dór 20% Aukin skattbyrði 18 - prósentur af tekjuskattstofni hjóna með tvö börn • 16 14 12 10 8 6 4 2 0 11,7 12 13,7 15,2 16,2 16,5 18,3 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 heimilanna," sagði Ragnar Am- alds. Skýrslan nær yfír þróun launa og lífskjara á íslandi árin 1991 til 1996 að báðum meðtöldum. Það er margt sem kemur á óvart í skýrsl- unni en fátt meira en sú mikla hækkun á skattbyrði almennings sem átt hefur sér stað. Skattbyrði hjóna með 2 böm af tekjuskatts- stofni hefur hækkað úr 11,7 pró- sentum árið 1991 í 18,3 prósent árið 1996. Þá kemur fram að kaupmáttur atvinnuleysisbóta hefur lækkað úr vísitölunni 100 árið 1990 í 98,9 árið 1996. Kaupmáttur grunnlífeyris aldr- aðra og öryrkja hefur lækkað úr vísitölunni 100 árið 1990 í 94,4 árið 1996. Ellilifeyrir með tekju- tengingu og heimilisuppbótum miðað við þróun launavísitölu hefur lækkað úr vísitölunni 100 árið 1990 í 97,1 árið 1996 og ör- orkulífeyrir úr vísitölunni 100 í 98,4. Lyfjaverð hefur hækkað úr vísi- tölunni 100 árið 1990 í 143,9 í fyrra. Þá greiða notendur heil- brigðisþjónustunnar 16,5 prósent af kostnaði hennar í fyrra en 13,4 prósent árið 1990. Gjaldþrotum einstaklinga hefur fjölgað úr 414 árið 1990 í 871 árið 1996. Skuldir heimila jukust sem hlutfall ráðstöfunartekna úr 75,2 prósentum 1990 í 127,1 prósent árið 1996. -S.dór Dagfari Vanþakklát stjórnarandstaða Ríkisstjórnin hefur spilað út trompunum sínum og tilkynnt að hún hyggist lækka skatta. Það er að vísu ekki mikið og ekki alveg strax en samt ætlar hún að lækka skatta og þegar hún hefur efnt lof- orð sín um skattlækkanirnar ein- hvem timann um næstu aldamót verður hún búin að skila aftur um fimm milljörðum króna af sköttum sem hún ella hefði innheimt. Þetta er að sjálfsögðu gífurlegur höfð- ingsskapur og einstök tillitssemi gagnvart skattborgurunum sem hafa stöðugt kvartað undan skatt- heimtu og skattaáþján og segjast ekki geta lifað vegna skattaokurs. Nú er þessari áþján af þeim létt og nú getur fólk ekki kvartað lengur, eftir að ríkisstjórnin hefur tekið þessa ákvörðun, sem reyndar er gamalt loforð sem ekki hefur verið hægt að efna fyrr en nú, um að lækka skattana seinna. En betra er seint en aldrei og það er góð og gjöful ríkisstjórn sem tilkynnir að hún ætli ekki að inn- heimta skatta sem hún gæti vel lát- ið ógert ef hún innheimti óbreytta skatta. Skattaprósentan lækkar en hún hefði getað hækkað og hún heföi getað staðið í stað og ríkis- stjómin hefði getað náð inn þess- um fimm milljörðum króna ef hún hefði ekki tilkynnt að hún ætlaði ekki að gera það. Þess vegna er þetta ótvírætt ör- læti hjá ríkisstjórninni þegar hún gefur eftir skatta sem enn era óinn- heimtir en yrðu innheimtir ef ekki væri ákveðið að innheimta þá ekki. Einmitt með vísan til þessar- ar göfugmennsku ríkisstjómarinn- ar er það með ólíkindum þegar stjórnarandstaðan kemur fram á þingi og heldur því fram að ríkis- stjórnin sé ekkert merkilegt að gera. Stjórnarandstaðan segir að það eina sem stjórnin sé að gera sé að hún sé að skila til baka sköttum sem hún hafí innheimt áður. Hún er sem sagt ekki að hætta við að innheimta skatta næstu árin, held- ur er hún að skila til baka sköttun- um sem hún hefur áður innheimt á síðustu árum. Stjórnarandstaðan segir að stjórnin hafi innheimt meira í sköttum heldur en ráðgert var og þaö séu þessir umframskattar sem greiðist nú til baka. Og ekki er annað að heyra en stjómarandstöð- unni finnist lítið til þess koma. Hún er nánast að gagnrýna stjórn- ina fyrir að skila sköttunum! Já, það er vandlifað í henni veröld. Ef ríkistjórnin hefði ekkert aðhafst og ekki lækkað skattana, sem hún annaðhvort hefur áður innheimt eöa mundi innheimta í framtíð- inni, þá væri hún skömmuð fyrir of háa skatta. Nú, þegar rikisstjómin ætlar að lækka skatta, er hún skömmuð fyr- ir það að gera ekki annað í skatta- málum heldur en það að skila aftur gömlum sköttum sem hún hefur áður innheimt umfram það sem menn ætluðu að innheimta! Hvern- ig geta menn heimtað að ríkis- stjórnin lækki skatta ef hún má ekki lækka skattana öðru vísi en að lækka skatta sem nemur þeirra upphæð sem hún hefur hækkað skattana? Og hver segir að skatt- amir hefðu átt að vera lægri áður en þeir vora hækkaðir og lækkaðir aftur? Og hver segir að ríkisstjóm- in sé að lækka skattana sem era innheimtir skattar sem vora hærri en reiknað var með? Vill kannske stjórnarandstaðan að ríkisstjómin skili ekki aftur gömlu sköttunum en lækki einhverja aðra skatta sem ekki era innheimtir? Er ekki betra að fá lækkaða þá skatta sem búið er að borga heldur en skatta sem eftir er að borga? Ég bara spyr? Hvers konar stjómarandstaða er þetta? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.