Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997
Fréttir
Sandkorn dv
Bruni í íbúðarhúsi í Bolungarvík á páskadagsmorgun:
Erum öreigar eftir
þennan hræðilega atburð
- segir Ólafur Benediktsson sem slapp naumlega úr eldinum ásamt 17 ára dóttur sinni
íbuöarhúsið í Bolungarvík brann nánast til kaldra kola og aöeins útveggir og
hluti af þakinu standa eftir. Dv-mynd H.Kr.
„Tryggingarnar voru að tilkynna
okkur að við fengjum aöeins mark-
aðsverð ef við byggðum eða keypt-
um á öðrum staö i bænum. Mark-
aðsverð er ekki neitt neitt þannig aö
það er ljóst að við erum öreigar eft-
ir þennan hræðilega atburð. Ég get
ekki séð hvernig þessi tryggingarfé-
lög ætla að hjálpa fólki í nauð. Við
eigum ekki neitt, ekki einu sinni föt
til að vera í,“ segir Ólafur Bene-
diktsson, slökkviliðsstjóri í Bolung-
arvík, en hann og 17 ára dóttir hans
sluppu naumlega út úr brennandi
húsi í Bolungarvík að morgni
páskadags.
Húsið brann nánast til kaldra
kola og aðeins útveggimir og hluti
af þakinu standa eftir. Ólafur og
fjölskylda hans misstu ailt í eldin-
um, innbú og alla persónulega muni
sem Ólafur segir að sé sárasti miss-
irinn.
„Við vitum að við erum heppin
að vera á lífi og þökkum guði fyrir
það. En það er svart fram undan eft-
Önundarfjörður:
Eldur í
sveitabæ
Eldur kviknaði í sveitabænum Hóli
í Önundarfirði á páskadagsmorgun.
Heimilisfólkið á bænum réð nið-
urlögum eldsins áður en slökkvilið
kom á vettvang. Skemmdir eru
minni háttar af eldi og reyk en elds-
upptök eru ekki að fullu kunn, að
sögn lögreglunnar á ísafirði. - RR
Reykjavík:
Tveir handteknir
vegna innbrota
Tveir menn voru handteknir í
gærmorgun vegna gruns um aöild
að nokkrum innbrotum í höfuð-
borginni um helgina.
Mennimir voru handteknir
sinn á hvorum bílnum í Grafar-
vogi og í þeim fannst hluti af þýfi
úr myndbandaleigu, söiutumi og
bílum sem brotist hafði verið inn í
um helgina.
í kjölfar handtöku mannanna og
yfirheyrslna yfir þeim fannst
meirihluti þýfisins í gær. Máhð
telst því upplýst. -RR
ir þennan hræöilega atburð og að
vita það síðan í framhaldinu að við
erum öreigar og eigum ekkert. Við
getum ekki hugsað okkur að byggja
aftur upp á sama stað með þessar
minningar að baki okkar þar sem
við erum á snjóflóðahættusvæði.
Sveit Antons Haraldssonar frá
Akureyri fór með sigur af hólmi á
Landsbankamótinu í sveitakeppni
i bridge eftir harða keppni við
sveit Landsbréfa. Sveit Antons var
Spurning um sekúndur
„Þetta var spuming um sekúndur
en ekki mínútur. Við feðginin vor-
um tvö heima en konan mín á næt-
urvakt á sjúkrahúsinu. Ég vaknaði
viö hvelli og vælið í brunaboðanum
og þá var komin reykjarsvæla inn í
skipuð Akureyringunum Antoni,
Pétri Guðjónssyni, Sigurbirni Har-
aldssyni, Magnúsi Magnússyni,
Siglfirðingnum Steinari Jónssyni
og Reykvíkingnum Jónasi P. Er-
herbergi hjá mér. Eg þaut fram og
inn í herbergi til dóttur minnar.
Ég sá að það var eldur í millivegg
milli stofu og eldhúss. Dóttir mín
var vöknuð og ég sagði henni að
fara í fót. Þegar ég sneri við og ætl-
aði að ná i fot sjálfur var orðinn
svartur reykjarmökkur um allt. Ég
þreif í borð til að brjóta rúðu í
glugga á herberginu. Það tókst í
fimmtu eða sjöttu tilraun og við
komumst út og rétt náðum andan-
um. Ég var á nærbuxunum þegar ég
komst yfir til nágrannanna og lét
vita af eldinum. Það er lygilegt hve
fljótt eldurinn braust út og húsið
varð alelda á örskammri stundu,"
segir Ólafur.
Slökkviliðið náði að verja næsta
hús sem komið var í töluverða
hættu vegna eldsins. Það tók
slökkviliðið um hálftíma að ná tök-
um á eldinum sem þá logaði um allt
húsið. Upptök eldsins eru talin vera
út frá sjónvarpi í stofu.
sigur
lingssyni.
Spilaramir í sveit Antons eru
allir að vinna sinn fyrsta íslands-
meistaratitil í sveitakeppni, nema
Steinar sem varð íslandsmeistari
árið 1993. Sigurbjöm Haraldsson
er yngsti Islandsmeistari frá upp-
hafi, nýorðinn 18 ára gamall. Verð-
ur það met sennilega seint slegið.
Þegar 7 umferðum af 9 var lokið
í úrslitakeppninni benti fátt annað
til þess en að sveit Landsbréfa
væri búin að tryggja sér fyrsta sæt-
ið. Landsbréf höfðu þá 146 stig en
sveit Antons 128 stig. í næstsíðustu
umferð vann sveit Búlka stórsigur,
25-4, á sveit Landsbréfa á meðan
sveit Antons vann Hjólbarðahöll-
ina, 24-6. Sveitir Antons og Lands-
bréfa mættust i lokaumferðinni og
Antoni nægði jafntefli. Niðurstað-
an var 16-14 sigur fyrir Anton og
sigurinn var þeirra. Lokastaða
efstu sveita varð þannig:
1. Anton Haraldsson 168 stig.
2. Landsbréf 164
3. VÍB 152
4. Samvinnuferðir-Landsýn 150
5. Eurocard 149,5
6. Búlki 137
Reiknaður var út árangur ein-
stakra para í mótinu og voru Ein-
ar Jónsson og Eiríkur Hjaltason i
sveit Hjólbarðahallarinnar með
bestan árangur, 17,41 stig að með-
altali í 10 hálfleikjum. í öðru sæti
vom Jón Baldursson-Sævar Þor-
bjömsson (Landsbréf) með 17,22
stig (13 hálfl.) og Magnús Magnús-
son-Pétur Guðjónsson með 17,18 í
14 hálfleikjum. -fs
Verð ég
límdur?
Framganga starfsmanna í leik-
skóla í Hafnarfirði sem sagt var frá
á dögunum vakti mikla athygli,
enda teljast það hvorki eölilegar né
beinlínis viðteknar uppeldisaðferðir
að líma fyrir
munn barna,
og límbönd eru
reyndar notuö
til allt annars.
Sagan segir
okkur hins
vegar af ung-
um dreng-
hnokka sem
var venju
fremur erfiður
við móður
sína, svo erfiður að móðirin sá
ástæðu til að hækka róminn og
setja ofan í við þann stutta. Dreng-
urinn virðist hafa gert sér grein
fyrir þvi að hann hafði gengiö of
langt, og hann hafði greinilega haft
veður af „uppeldisaðferðunum" í
Hafnarfirði því hann sneri sér að
móður sinni eftir skammarlestur
hennar og spurði hræddur á svip-
inn: „Verð ég nokkuð límdur,
mamma?"
Þurfið
að vakna
Fararstjórar í skemmtiferðum
íslendinga erlendis lenda i einu og
öðru sem kallar á skjótar úrlausnir
og er ekkí allt skemmtilegt við-
fangs. Ferða-
langur nokkur,
sem kom ný-
lega frá Kanarí-
eyjmn, sagði
sögu af því að
nokkrir íslend-
ingar, sem þar
dvöldu fyrir
skömmu, hefðu
iðkað það að
fara í golf á
hverjum
morgni en þeir voru reyndar
óhressir með það hversu snemma
þeim var úthlutað rástimum á
morgnana. Gengu þeir á fund Kjart-
ans L. Pálssonar, fararstjóra Sam-
vinnuferða-Landsýnar, og vildu
knýja á um breytingu. KKrtan, sem
er sjóaður og sjaldan kjaftstopp, leit
yfir sendinefhdina, virti menn fyrir
sér og sagði svo: „Þið eruö nú orðn-
ir svo gamlir greyin að þið þurfið
hvort sem er að vakna til að pissa.“
Hvað var
hann með?
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja á Akureyri, handlék
einhverja pappíra af miklum krafti
er hann mætti í viðtal á Stöð 2 á
dögunum hjá þeim Páli Magnússyni
og Ólafi Friðrikssyni. Pappírarnir
komu reyndar ekki við sögu í út-
sendingunni
fyrr en viðtal-
inu var lokið
en þá sneri
Þorsteinn Már
sér að Páli og
sagðist ekki
hafa getað af-
hent honum
pappírana. Nú
velta menn fyr-
ir sér hvaða
pappíra forstjórinn var með og hafa
þær spumingar vaknað hvort hér
hafi verið um að ræða hlutabréf í
Samherja sem fréttastjórinn hafi átt
að fá í beinni útsendingu.
Góð ferð
Það voru sagöar sögur um ótrú-
legustu mjólkurflutninga frá Akur-
eyri til Reykjavíkur í verkfallinu í
síðustu viku, enda fór varla nokkur
maður að norð-
an án þess að
vera hlaöinn
þeirri nauðsyn
sem mjólk
óneitanlega er.
Á ráðstefnu á
Akureyri í síð-
ustu viku um
áfengis- og
vímuefnanotk-
un unglinga
var rnættm- Þórarinn Tyrfingsson,
formaður og yfirlæknir SÁÁ, sem
hélt fróðlegt erindi eins og við
mátti búast. Þórarinn byrjaði hins
vegar fyrirlestiu- sinn á að segja
ráðstefnugestum frá þvi að hann
hefði gert óvenjugóða ferð til Akur-
eyrar að þessu sinni, hann hefði
komist í búð til að kaupa rjóma og
hefði þannig getað bjargað ferming-
arveislu sem til stóð innan fjöl-
skyldunnar.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ) ÁKR. 10.000,00
1980-1.fl. 15.04.97 - 15.04.98 kr. 412.927,80
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 26. mars 1997.
SEÐLABANKIÍSLANDS
-RR
Nýkrýndir íslandsmeistarar í sveitakeppni í bridge meö verölaun sín. Frá vinstri eru Jónas P. Erlingsson, Pétur Guö-
jónsson, Anton Haraldsson, Magnús Magnússon, Sigurbjörn Haraldsson og Steinar Jónsson. Dv-mynd is
Landsbankamótið í sveitakeppni i bridge:
Norðlenskur