Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Page 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRIL 1997
élst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
StjórnarformaBur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
ABstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Styrjöldin í Zaire
Vonir standa til aö næstu daga hefjist viðræöur á milli
stríðandi fylkinga í þriðja stærsta ríki Afríku, Zaire, að
frumkvæði ríkisstjórnar Nelsons Mandela í Suður-Afr-
íku, en hann er einn margra aðila sem reynt hafa að
koma á vopnahléi í landinu. Litlar líkur eru hins vegar
á að slík samtöl beri árangur nema einræðisherra Zaire,
Mobutu Sese Seko, fallist á að láta af völdum.
Saga þessa stóra lands, sem er mjög auðugt frá náttúr-
unnar hendi, er dæmigerð fyrir þær hörmungar af
mannavöldum sem haldið hafa afrískum þjóðum í
hlekkjum fátæktar undanfarna áratugi. Kongó, eins og
landið hét áður, fékk sjáífstæði frá Belgum árið 1960, án
nauðsynlegs undirbúnings. Hagsmunir erlendra auð-
hringa og stórvelda Evrópu og Ameríku, sem þá voru á
kafi í köldu stríði, leiddu til íhlutunar um málefni lands-
ins. Styrjöld braust út að undirlagi belgísks auðhrings
sem vildi tryggja sér yfirráð námanna í Katanga-héraði
sem nú heitir Shaba. Sameinuðu þjóðimar sendu herlið
á vettvang en framkvæmdastjórinn, Dag Hammarskjöld,
fórst í flugslysi þegar hann reyndi að ná samkomulagi.
Þegar Kongó fékk sjálfstæði var Mobutu yfirmaður
hersins. Hann stóð með vesturveldunum í kalda stríð-
inu, enda talinn af mörgum pólitískt sköpunarverk
bandarísku leyniþjónustunnar. Fyrstu árin var hann
valdið á bak við stjórnmálamennina en fljótlega ýtti
hann þeim til hliðar og tók völdin sjálfur. Það var árið
1965 og á þeim þrjátíu og tveimur árum sem síðan eru
liðin hefur honum tekist að rýja inn að skinninu þjóð
sem er um 41 milljón manna. Efnahagur landsins er í
rúst, þrátt fyrir öll auðæfin í jörðu, og almenningur lifir
í stöðugum ótta við hermenn Mobutus sem farið hafa
rænandi og ruplandi um landið mörg undanfarin ár.
Sjálfur hefur einræðisherrann sankað að sér auðæfum
og komið þeim fyrir í fasteignum og bönkum í Evrópu,
einkum í Sviss og Frakklandi. Talið er að innstæður
hans í svissneskum bönkum hafi til skamms tíma numið
um þrjú hundruð milljörðum íslenskra króna. Skósvein-
ar hans í ríkisstjóm og her Zaire hafa auðvitað líka ein-
beitt sér að því að auðga sjálfa sig á kostnað þjóðarinn-
ar síðustu áratugina.
Þessi ógnarstjórn er meginástæða þeirrar óvæntu og
hröðu sigurgöngu sem einkennt hefur sókn hermanna
uppreisnarmanna í norðausturhluta landsins siðustu vik-
ur og mánuði. Upphaflega voru hemaðarátökin þar fyrst
og fremst tilraun tútsimanna á svæðinu til að losna und-
an ánauð hermanna Mobutus í hémðum sem liggja að
landamærum Úganda og Rúanda, og þá með stuðningi ná-
grannaríkjanna. Árangurinn varð hins vegar mun meiri
en nokkur átti von á. Hermenn Mobutus létu undan síga.
Uppreisnarherinn hefur að sögn lagt undir sig fjórðung
landsins hið minnsta og stefnir enn í átt til Kinshasa, höf-
uðborgarinnar, með það að markmiði að fella Mobutu frá
völdum. Jafnvel bandarískir ráðamenn hafa gefist upp á
einræðisherranum sem á nú einungis stuðning vísan hjá
frönskum stjómvöldum en þau hafa um árabil haft ein-
stakt ástarsamband við afríska einræðisherra á borð við
Mobutu og brjálæðinginn Bokassa sem um langt árabil
réð yfir svokölluðu Mið-Afríkulýðveldi.
Leiðtogi uppreisnarmanna, Laurent Desire Kabila,
hefur barist gegn einræðisstjórn Mobutus um áratuga
skeið en aldrei haft erindi sem erfiði. Nú er líklegt að
honum takist að koma einræðisherranum frá. Hvort það
leiðir til bættra lífskjara almennings eða felur einungis
í sér mannaskipti í valdastólum ræningja er enn óvíst.
Elías Snæland Jónsson
Sl. haust lagði Guðmund-
ur Hallvarðsson ásamt okk-
ur fimm öðrum alþingis-
mönnum Sjálfstæðisflokks-
ins fram á Alþingi tillögu
um að rikisstjórnin skuli
stuðla að því að nú þegar
verði hafnar markvissar
rannsóknir á því hvort olía
eða gas finnst á landgrunni
íslands. Guðmundur hefur
lengi barist fyrir þessu máli
og hefur nú vakið verð-
skuldaða athygli á því.
Fráleitt eða líklegt?
Jarðfræðilega er ísland
gjörólíkt grannlöndum þess.
fsland „álfu vorrar yngsta
land“ má segja að sé klofið
af gosbeltinu mikla, Atl-
antshafshryggnum, frá suð-
vestri til norðausturs. Jarð-
hræringar og eldvirkni eru
tíð, jarðhiti mikill og finnst
víða, þ. á m. á mörgum og
stórum háhitasvæðum sem
eru flest mjög virk.
Þær náttúruaðstæður
sem leiða til myndunar
jarðgass eða olíu eru ekki veitt var leyfi til rannsókna og olíuleitar á landgrunninu fyrir Norðurlandi, út af
óalgengar. Setlög eru af jarð- Eyjafiröi og Skjálfandaflóa. - Niðurstööur þóttu lofa mjög góðu í setlögum sem
fræðilegum ástæðum líklega mældust frá 2 km og allt upp í 4 km þykk.
Olíuleit við
ísland
fremur takmörkuð hér undir landi
og landgrunni. Því meiri hiti þeim
mun skemmri tíma þarf til þeirrar
„þroskunar" sem myndar gasteg-
undir eða olíu. Vonir um slíkar
auðlindir við ísland í vinnanleg-
um mæli tengjast jarðhita við set-
lög með lífrænum leifum.
Takmarkaðar rannsóknir til
þessa
Fyrstu rannsóknir á setlögum
hér við land fóru fram 1971 að
frumkvæði erlendra aðila, vestur
af landinu. Þær þóttu ekki gera
líklegt að þar fyndist olía eða
gastegundir. Á næstu árum var
hafnað óskum 24 annarra erlendra
aðila um leyfi til slíkra rann-
sókna.
Haustið 1978 var erlendum aðila
veitt leyfi til rannsókna og olíu-
leitar á landgrunn-
inu fyrir Norður-
landi, út af Eyja-
firði og Skjálfanda-
flóa. Niðurstöður
ffumrannsókna
sumarið 1979 þóttu
lofa mjög góðu um
að þar mætti finna
slíkar auðlindir í
setlögum er mæld-
ust frá 2 km og allt
að 4 km þykk, en
yfirleitt er miðað
við 1 km þykkt til frekari rann-
sókna.
Frekari rannsóknir voru gerðar
1981 og 1982 og unn-
ið úr þeim. Hugsan-
legt er að leggja
hefði þurft meira í
þær en gert var, t.d.
með fleiri og dýpri
rannsóknarborhol-
um sem kynnu að
hafa gefið betri vís-
bendingar en feng-
ust.
Um mitt ár 1982
var samið um sam-
eiginleg rannsókn-
arverkefni íslands
og Noregs á land-
grunnssvæðum
milli Islands og Jan
Mayen. Ekki hefur
orðið eins mikið úr
þeim og vonir stóðu
til. Þó ber að geta
Kjallarinn
Arni Ragnar
Árnason
alþingismaöur Sjálf-
stæðisflokksins fyrir
Reykjaneskjördæmi
„Af þessum ástæðum teljum við
flutningsmenn ekki forsvaranlegt
að láta kyrrt liggja, heldur verði
stjórnvöld að vinna ótrauð að
framgangi þeirra rannsókna sem
gera þarf.u
endurkastsmælinga 1985 og 1988
og úrvinnslu þeirra.
Niðurstöður þeirra hafa
norskar stofhanir boð-
ið olíuleitarfyrirtækj-
um til kaups, en þau
ekki sýnt þeim áhuga
enn sem komið er.
Sama er að segja af til-
raunum iðnaðarráðu-
neytisins til að koma
þeim á framfæri. Nú er
vaxandi áhugi á að
rannsaka setlög sem
ganga vestur frá Nor-
egi í átt að Jan Mayen;
og olíuleit að hefjast
við Færeyjar.
Ganga þarf úr
skugga um hugs-
anlegar auðlindir
Tillöguflytjendur telja
að ekki séu öll kurl
_________ komin til grafar um
þessa möguleika á
landgrunninu við ísland og að þörf
sé markvissra rannsókna til að
ganga úr skugga um þá. Guð-
mundur Ómar Friðleifsson, jarð-
fræðingur á Orkustofnun, fullyrð-
ir að hér muni líkur á árangri.
Hér getiu- því verið eftir nokkru
að slægjast og hugsanlegt að um-
talsverður ávinningur geti fengist
ef vel tekst til. Af þessum ástæðum
teljum við flutningsmenn ekki for-
svaranlegt að láta kyrrt liggja,
heldur verði stjórnvöld að vinna
ótrauð að framgangi þeirra rann-
sókna sem gera þarf.
Ámi Ragnar Árnason
Skoðanir annarra
Rangt viöhorf
„Ég verð svolítið var við það viðhorf að mörgum
finnst að það sé óeðlilegt að rikisfyriræki taki jafn
afgerandi forystu í uppstokkun og umskiptum á fjár-
málamarkaðinum á íslandi eins og Landsbankinn
gerði með þessum kaupum sínum á hlut Brunabóta-
felagsins í VÍS. Það er eins og margir, sem gagnrýna
þá ráðstöfun, telji að ríkisfyrirtæki eigi að vera ein-
hvers konar steinrunnar stofnanir sem megi ekkert
gera annað en drabbast niður. Ég held að þetta sé
mjög rangt viöhorf."
Kjartan Gunnarsson 1 Viðskiptablaðinu 26. mars.
Starfsemi „fríkortsins"
„Með því að nota kort í viðskiptum skiljum við
eftir okkur elektrónísk spor. Starfsemi „frikortsins"
hefur starfsleyfi tölvunefndcu- sem á að gæta hags-
muna almennings. Og forráðamenn „fríkortsins"
hafa sagt Neytendasamtökunum að þeir munu ekki
nýta sér upplýsingar til að taka upp það sem kalla
mætti „grimma" markaðsstarfsemi. Það er hins veg-
ar ljóst aö starfsemi af þessu tagi skapar aukna
möguleika til aö fylgjast með viðskiptavenjum fastra
viðskiptavina og beina markaðssókninni meira að
hverjum einstökum."
Jóhannes Gunnarsson t Mbl. 26. mars.
Tilræöi við stöðugleika
„Eina kólguskýið sem er í sjónmáli er hugsanleg
stórstókn í þennan kaupauka neytenda frá fýrirtækj-
um sem selja vörur og þjónustu á innlendum mark-
aði. Brauðfyrirtækin hækkuðu vörur sínar um 10%
í síðustu viku, langt umfram orðnar kauphækkanir.
Ef fleiri ætla að grípa gæsina áður en hún hefur sig
til flugs er það beint tilræði við stöðugleika í efna-
hagsmálum. ... Nú þarf sterkt aðhald frá neytend-
um....“
Stefán Jón Hafstein i Degi-Tímanum 26. mars.