Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
Fréttir
Uppnám vegna fréttaflutnings af salerni í víkingaskipi:
Starfsmaður Siglingastofnunar
réðst á Ijósmyndara
- lögreglurannsókn hafin
Starfsmaður Siglingastofnunar
réðst á ljósmyndara DV og reyndi
að kasta honum í sjóinn þar sem
hann var að störfum við víkinga-
skipiö íslending við Reykjavíkur-
höfn í gær.
Málavextir voru þeir aö blaða-
maður og ljósmyndari voru að
taka viðtal við Gunnar Marel Egg-
ertsson, skipstjóra víkingaskips-
ins íslendings, þegar starfsmann
Siglingastofnunar bar að garði.
Hann var afar ósáttur við nær-
veru fréttamanna, en viðtalið var
m.a. um þá kröfu stofnunarinnar
að salerni skuli vera til staðar í
skipinu, sem byggt er eftir fyrir-
mynd Gaukstaðaskipsins frá ár-
inu 960.
Starfsmaður Siglingastofnunar
hvarf síðan á brott eftir að hafa lýst
óánægju sinni með nærveru DV en
kom aftur að víkingaskipinu, en þá
var kominn hópur 11 ára skóla-
barna sem ætluðu í siglingu með
því.
Gaf hann sig þá á tal við eiganda
víkingaskipsins og tók ljósmyndari
DV mynd af þeim.
Liösauki barst
Skipti þá engum togum að starfs-
maður Siglingastofnunar réðst að
ljósmyndaranum og reyndi að kasta
honum í sjóinn. Blaðamaður reyndi
að skakka leikinn. Starfsmanni Sigl-
ingastofnunar barst síðan liðsauki
tveggja manna, feðga. Veittist sá
eldri að ljósmyndara DV og sagði að
honum væri óheimilt að mynda.
Ætlaði hann síðan að aka á brott en
þegar blaðamaður skrifaði niður
númer bifreiðarinnar stökk sá
yngri á bak hans og reif af blaða-
manni pappíra. Lögreglan kom síð-
an á vettvang vegna málsins.
Mátti ekki mynda
í framburði feðganna kom ekkert
fram um tilgang árásarinnar annað
en þaö að ekki mætti taka myndir á
bryggjunni. Starfsmaður Siglinga-
stofnunar hefur enga skýringu gefið
á símun þætti málsins.
Upplýsingar höfðu borist til rit-
stjómar DV um að tafir hafi orðið á
siglingum skipsins með farþega vegna
kröfu Siglingastofnunar um að salemi
væri komið fyrir um borð.
„Ég er að reyna að uppfylla
þessi skilyrði Siglingastofnunar.
Ég er að smíða skýli þar sem sal-
emi verður. Þetta eru skilyrði sem
ég verð að uppfylla til að fá að
sigla með farþega," segir Gunnar
Marel. -rt
Gunnar Marel skipstjóri á tali við starfsmann Siglingastofnunar. Þegar Ijósmyndari DV tók þessa mynd réðst skoð-
unarmaðurinn á hann og reyndi að koma honum í sjóinn. DV-mynd ÞÖK
Gunnar Marel viö dyr salernisins sem hann er að koma upp í víkingaskipinu.
DV-mynd ÞÖK
Fréttamenn aö störfum:
Hafa aðgang að
öllum opinberum stöðum
- segir formaður Blaðamannafélagsins
„Ég man sérstaklega eftir einu til-
viki fyrir nokkrum árum en þá
lentu sjónvarpsmenn í því að sótt
var að þeim þegar þeir voru á vett-
vangi sjóslyss. Þar voru miklar til-
fmning£ir í spilinu og blaðamönnum
var kennt um það sem aflaga fór,“
segir Lúðvík Geirsson, formaður
Blaðamannafélags íslands, aðspurð-
ur hvort algengt væri að reynt væri
að hindra blaða- og fréttamenn í
starfi.
Lúðvík segist sannfærður um að
um þetta væru til nokkur dæmi og
sérstaklega hér áður fyrr hefði það
komið fyrir að lögregla stöðvaði
menn á vettvangi.
„Blaðamenn og ljósmyndarar
„Ég átti von á því að þetta yrði
jafht og því koma þessar niðurstöð-
ur mér ekki á óvart,“ sagði Jón
Torfi Jónasson í samtali við DV
strax eftir að ljóst varð að kjósa
þyrfti að nýju miili hans og Páls
Skúlasonar en enginn fjögurra fram-
bjóðenda til rektorskjörs fékk hrein-
an meirihluta i kosningunum i gær.
Niðurstöðurnar urðu þær að Páll
hafa alveg ótvíræðan aðgang að öil-
um opinberum stöðum, nema þar
sem lögregla hefur hreinlega girt af
svæði og meinað mönnum aðgang,"
segir Lúðvík Geirsson.
-sv
Skúlason varð efstur með 28,62% at-
kvæða, Jón Torfi annar með 27,2%
atkvæða, Vésteinn Ólason þriðji
með 21,33% og Þórólfur Þórlindsson
varð flórði með 21,24%.
„Við Páll mætumst að nýju í næstu
viku og ég á ekki von á öðru en að
kosningin þá verði álíka jöfn og nú,
þótt auðvitað sé erfitt að spá nokkrú
um það,“ sagði Jón Torfi. -sv
Stuttar fréttir
Flugvirkjar sömdu
Samningar tókust í nótt í kjara-
deilu flugvirkja og viðsemjenda
°g hefur verkfalli þeirra verið af-
lýst. Verr gekk hjá Félagi ísl. at-
vinnuflugmanna en hlé var gert
um áttaleytiö í morgun á samn-
ingafundi sem staðið hafði í tæp-
an sólarhring. Skyndiverkfall
flugmanna skellur á á morgun ná-
ist ekki samningar í dag.
Losun gengur vel
Vel gengur að losa lestar
Víkartinds og 30 gámar hafa ver-
ið Quttir í land undanfama tvo
daga, segir Morgunblaðið.
Úrskurðarnefnd stefnt
Iðnlánasjóður hefur stefnt úr-
skurðarnefnd upplýsingalaga fyr-
ir dóm. Nefndin úrskurðaði um
að sjóðnum bæri að láta lögmanni
í té upplýsingar um styrkveiting-
ar úr sjóðnum. Sjóðurinn vill
ekki veita þessar upplýsingar.
Úrskurði áfrýjað
Ákvörðun Samkeppnisráðs um
stofiiun Flugfélags íslands verður
áfrýjað til áfrýjunamefndar sam-
keppnismála en undirbúningur að
starfsemi félagsins heldur áfram af
fullum krafti, að sögn Einars Sig-
urðssonar, upplýsingafúlltrúa Flug-
leiða í fréttum Stöðvar 2. -SÁ
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í sima 9041600.
39,90 kr. mínútan
Jé $ Nal 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á almenningur að taka þátt í biskupskjöri?
Páll efstur