Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 'É' 10 ★ Ih „Þetta er hressileg hakkavél að ganga í gegnum,“ segir Bergljót Jónsdóttir og röddin hljómar eins og það sé ekkert meira um það að segja. Bara hressileg hakkavél að stýra umfangsmikilli listahátíð með á annað hundrað atriðum, þúsund listamönnum og nær 40 þúsund gestum; tíu dagar þar sem allt er á öðrrnn endanum og fólk veit ekki lengur hvað það heitir þegar líður að leikslokum. Þegar ég tala við Bergljótu er Listahátíðinni í Björgvin lokið. Þetta er stærsta listahátíðin í Nor- egi ár hvert. Bergljót er í vinnunni þótt hún hafi eiginlega verið ákveð- in í að taka sér frí einn dag. Umdeild í norsku „Eg fékk fráhvarfseinkenni og varð bara að halda áfram,“ segir hún til að útskýra af hverju hún er ekki heima og slappar af. Bergljót hefur síðustu vikur verið umtalsefni og umdeildasta persónan í norsku listalífi. Menningarvitam- ir keppast um að hlaða á hana lofi - eða ausa yfir hana skömmum ef miður fer. Sjálf lætur hún moldviðr- ið sér í léttu rúmi liggja. Sofnuð í sveitamennsku Bergljót tók við sem stjómandi listahátíðarinnar í Björgvin fyrir tveimur árum. Þá var svo komið að hátíðin var að leggja upp laupana. Fjórir stjórnendur höfðu á sex árum verið ráðnir til að rétta skútuna af en án árangurs. Þá kom Bergljót til sögunnar og þessi hálf- gleymda héraðshátíð, sem var að verða harmóníkuleik og þjóðdöns- um að bráð, breyttist brátt á ný i alvöru listahátíð. Allir fjölmiðlar Noregs eru uppfullir af efni frá og um listahátíðina - lofið hástemmt og gagnrýnin líka hörð. „Auðvitað er alltaf eitthvað gagn- rýnt. Þannig á það að vera. Ég full- yrði að hátíðin hefur vakið meiri at- hygli nú en nokkru sinni áður og hér hefur verið meira spennandi að gerast en áður,“ segir Bergljót. Bæði gagnrýnin á hátíðina og allt lofið um hana snýst um stjórnun- arstíl Bergljótar. Hún fylgir einörð þeirri stefnu að listahátíðin skuli kynna fyrir almenningi það mark- verðasta sem er að gerast í alþjóðlegu og norsku listalífi. Hvort einstakir listamenn hafa öðlast frægð er annað mál. Pavarotti er uamall ham- oorgari! Þeir frægu eiga sem sé ekki allir upp á pallborðið hjá Berg- ljótu. Fyrir hátíðina heyrðust raddir um að gaman væri að fá stór- stjömu á borð við Pavarotti. En, nei, takk. Bergljót hafði ekki áhuga á honum og lét þau orð falla að stórsöngvarinn væri eins og hamborgari. Allir vissu hvemig hann væri og hvemig hann hefði verið fyrir 10 árum en nú væri hann ekkert spenn- andi. „Það kom aldrei til greina að fá Pavarotti. Ég veit þess vegna ekki af hverju allt þetta tal um hann byrjaði. Ég byrjaði ekki á því. Pavarotti var einu sinni góður en þessi sýning sem hann ferðast nú með um heiminn er ekkert spennandi," segir Bergljót. Súrrealismi frá Póllandi En Bergljót hefur líka fengið gagnrýni fyrir að flytja inn hálfs Bergljót Jónsdóttir hefur ekkert á móti hamborgurum. annars tíma súrreal- ískt leikrit frá Pól- landi. Það skildu fáir. Miðarnir seldust lítið sem ekkert og þama þótti mönnum Bergljótu rétt lýst. Hún tekur áhættu og sumt heppnast ekki. En þegar boðið er upp á 111 at- riði hlýtur áhuginn á einstökum at- riðum að vera mismikill meðal al- mennings. En án þess að taka áhættu gerist fátt spennandi. Gamlir hamborgarar eins og Pavarotti eru bara ekkert spennandi. DV-mynd Scan-Foto Þúsund listamenn Bergljót segir að gagnrýnin, sem hún hefur fengið, hafi alltaf verið uppbyggileg. Hún geti því ekki kvartað og allra síst undan allri at- hyglinni sem listahátiðin hefur hlot- ið. Bergljót er ráðin til fjögurra ára og er þvi hálfnuð með tímabil sitt. Hún flutti með fjölskyldu sína til Noregs fyrir tveimur árum og hefur búið þar síðan. Starfinu verður hún að sinna allt árið og nú í sumar eru heimsóknir á þrjár alþjóðlegar listahátíðir fyrst á dagskránni ásamt skottúr til ís- lands. Um leið verður að gera ráð- stafanir fyrir næstu listahátíð og jafnvel þá þarnæstu. Fyrir eina listahátið þarf að leita til um þús- und listamanna. Fjármál- in verða einnig að ganga upp. Norska ríkið borgar 40% af kostnaðinum en af- gangurinn verður að fást með sölu aðgöngumiða og stuðningi fyrirtækja og sveitarfélaga. Áður en Bergljót fór utan var hún í forsvari fyrir íslenska tónverka- miðstöð og eftir það bar hún ábyrgð á norrænni listahátíð í Reykjavík. Þar á eftir var henni boðið að taka að sér listahátíðina í Björgvin. Hún segir að Norðmenn hafi tekið sér vel þótt stundum gangi þeim illa að skrifa nafnið hennar. Kommumar eiga það til að snúa öfugt eða vanta alveg. En það er aukaatriði. Björgvin er yndislegur bær, segir Bergljót og þar hefur henni verið tekið opnum örmum. Gísli Kristjánsson Luciano Pavarotti var ekki nógu góður í augum og eyrum Bergljótar og hóf því ekki upp raust sína í Björgvin. Blaðaum- sagnir um Bergljótu „Bergljót hefur á ný tekið upp þá alþjóölegu stefnu sem átti allt- af aö vera aöall hátíðarinnar en viö höfum saknaö sárt síöustu árin. Þess vegna heldur hún sennilega ekki sæti sinu lengi; þaö vantar meiri sveita- mennsku!" Arbeiderbladet, 27. maí 1997 „Listahátíóin siglir nú ígóöum byr. Bergljót Jónsdóttir listahá- tíóarstjóri hefur haldió það lengi um stjórnvölinn aö hún getur meö réttu haldió því fram aó þetta sé hentiar hátíö frá upphafi til enda. “ Aftenposten, 28. maí 1997 Er Bergljót Jónsdóttir alger- lega úti aö aka eáa velur hún at- riöi eftir pöntunarlistum? Þaö er i það minnsta full ástœöa til aó spyrja hverju listahátíöarstjórinn hefur hugsaó sér aö miöla til áhorfenda meö aö bjóóa upp á einn og hálfan langdreginn klukkutíma af pólskum súrreal- isma?" Dagbladet, 28. mal 1997 I I I ( ( ( ( i i I ! & í í i € -4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.