Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 Mörg andlit Dýrlingsins Simon Templar er maður þús- und dulargerva. A myndunum má sjá nokkur þeirra gerva sem Val Kilmer bregður sér í þegar mikið liggur við. kvikmyndir Vissir þú að Systur gera kvik- mynd um Systumar Delia og Nora Ephron eru ábyrgar fyrir Sleepless in Seattle og Michael. Samstarf þeirra byggist á því að saman skrifa þær handrit og Nora leikstýrir. Nora og Deha eru nú í startholunum að gera Hanging Up sem er um þrjár systur. Þær viðurkenna að handritið sé að hluta byggt á ævi þeirra sjálfra. íjailar myndin um erfitt samband systranna þriggja við foður sinn. Ein systranna rifjar upp liðna tið á dánarbeði foður þeirra og hugsar sérstaklega til þess hvemig faðir þeirra mótaði líf allra systranna. Óþarfa hræðsla Um síðustu helgi hrapaði að- sókn að kvikmyndhúsum í Bandaríkjunum um tæp 10% frá því á sama tíma í fyrra. Ástæð- an var sú að enginn þorði að frumsýna stórmynd í kjölfarið á The Lost World: Jurassic Park. Nú er komið í ljós að sú hræðsla var óþörf. Það verður aftur á móti mikið stórmyndaflóð á næstunni og hefst það um þessa helgi með frum- sýningu á Con Air, Speed 2: Cruise Control verður frumsýnd 13. júní, Bat-1 man og I Robin og My Best Friend’s Wedding 20. júní, Air Force One 25. júní, Face-Off og Hercules 27. júní og Men in Black 2. júli. Val Kilmer leik- ur Simon Templar, sem gengur undir nafninu Dýriing- urinn. kraft heilags anda, og Templar kæmi frá stríðsmunkum sem uppi voru á miðöldum. Út frá þessu sömdu þeir ættartré fyrir Dýrling- inn. -HK Philip Kaufman (The Right Stuff, The Unbearable Lightness of Being, Rising Sun) hefur sam- þykkt að leikstýra The In- truder sem er lýst sem þriller í Fatal Attraction stíl. Fjallar hún um lögfræðing sem reyn- ir að vemda fjölskyldu sína fyrir manni sem ofsækir hana. Hann gerir sér of seint grein fyrir þvi að hann hefúr verið leiddur í gildru og er ákærður fyrir morð. Handritið skrifar Ted Tally, sem fékk ósk- arsverðlaun fýrir The Silence of the Lambs. Kaufman var á lausu eftir að kvikmynd sem hann hafði lengi verið að und- irbúa, The Alienist, var ýtt til hliðar hjá Para- mount. Kringlubíó og Laugarásbíó hafa tekið til sýn- ingar Dýrlinginn (The Saint), sem byggð er á skáldsögum Leslie Charteris, kvikmynd og sjónvarpsmyndaseríum (einum þremur) sem gerðar hafa verið um hetjuna Simon Templar. Fræg- asta sjónvarpsserían var gerð á sjöunda áratugnum og þar lék Roger Moore Simon Templar. Þess má geta að þessi sjónvarpssería var sú fyrsta sem ný- stofnað ísenskt sjónvarp hóf sýningar á árið 1967. Simon Templar er heiðursmaður og meistaraþjófur, maður þúsund dulargerva sem ávallt tekst að sleppa úr höndum hvort sem er forhertra glæpamanna eða Inter- pool. Hans aðalstarf er þó að berjast fyrir réttlæti í heim- inum og þar sem miklu óréttlæti er beitt skýtur hann upp kollinum. I hlutverki Simonar Templar er Val Kilmer sem kaus frekar að leika Simon Templar en að bregða sér í Bat- man-búninginn í annað sinn. Kilmer hef- sannað ur sig góður og fjölhæfur leikari en hefur verið leikstjórum óþægur ljár i þúfu og sagði John Frankenheimer, sem leikstýrði The Island of Dr. Moreau, að hann myndi aldrei vinna með honum framar. í hlutverki Emmu Russell, sem Dýrlingurinn finnur þörf hjá sér að vernda, er Elisabeth Shue og er þetta hennar fyrsta stóra hlutverk eftir leiksigin- í Leaving Las Vegas. Fyrir leik sinn í þeirri mynd var hún bæði tilnefnd til ósk- arsverðlauna og Golden Globe-verð- launanna. Leikstjóri Dýrlingsins er Phillip Noyce, ástralskm- leikstjóri sem þykir einkar snjall leikstjóri spennumynda. Hann vakti fyrst at- hygli þegar hann sendi frá sér Dead Calm, sem gerði Nicole Kidman að stjömu, en þær myndir hans, sem bestar þykja, eru Patriot Games og Clear and Present Danger sem gerð- ar eru eftir skáldsögum Tom Clancy um njósnarann Jack Ryan. Saga Dýrlingsins í nærri sjötíu ár hafa bækumar um Dýrlinginn heillað aðdáendur spennusagna. Simon Templar kom fyrst fram í smásögu breska rithöf- undarins Leslie Charteris, Meet the Tiger, sem gefin var út 1928. Tólf árum síðar var Simon Templar orð- inn það vinsæll að Charteris stofn- aði klúbb, Saint Club, þar sem aðdá- endur hetjunnar gátu hist og skraf- að saman um afrek hans. Út frá þessum klúbbi var síðan stofnuð unglingamiðstöð í London og spítali styrktur. Dýrlingurinn var fyrst kvik- myndaður árið 1936 og var um að ræða kvikmyndaseríu sem RKO- stúdióið gerði. Margir leikarar léku Templar á þessum árum, þekktast- ur er George Sanders, sem lék hann í The Saint Strikes Back, The Saint in London, The Saints, Double Trouble, The Saint Takes Over og The Saint in Palm Springs. Ný kynslóð tók vel við sér þegar Roger Moore í hlutverki Dýrlings- ins settist bak við stýrið á Volvo og hélt á vit ævintýranna í mjög vin- sælli breskri sjónvarpsseríu sem sýnd var um allan heim. Öll þessi ár hélt Leslie Charteris áfram að semja sögur um Dýrlinginn og á ferli sínum, sem spannaði marga tugi, samdi hann rúmlega fimmtíu skáldsögur um Simon Templar og fjöldann allan af smásögum. 1992 var hann heiðraður af samtökum sakamálarithöfunda fyrir frábært ævistarf. Hann lést 1993. yfir 1000 pizzur á dogl Leslie Charteris lét þess aldrei getið hvaðan Simon Templer kom eða hverra manna hann var eða hvernig hann varð Dýrlingurinn. Fyrir þessa kvikmynd unnu þeir saman, Phillip Noyce og hand- ritshöfúndamir Jonathan Hens- leight og Wesley Strick við að búa til fortíð Dýrlings- ins. Gáfu þeir sér að upp- runans væri að leita í nafni hans. Þeir gáfu sér að Simon væri komið frá Simon Magus, galdramanni sem reyndi að tileinka sér Leikstjóri Dýr- lingsins, Phillip Noyce, við tök- ur á Dýrlingn- um í Moskvu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.