Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 21
JLf'V LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997
Siguröur Kaiser og Gísli Örn Garöarsson hjá Nóttu & Degi. DV-myndir E.ÓI.
„Við erum bara ruglaðir,“ sagði
Gísli Örn Garðarsson, annar höfuð-
paurinn í undirbúningi Bítlatón-
leikanna í Háskólabíói um helgina,
þegar DV spurði hann af hverju í
ósköpunum þeim Sigurði Kaiser hjá
Nóttu & Degi hefði
dottið í
hug að
setja tón-
leikana
upp. Þeir
eru haldnir i
tilefni af 30
ára afmæli
plötunnar
Sgt. Peppers
Lonely Hearts
Club Band sem
kom fyrst út í
byrjun júní
1967. Fyrstu tón-
leikar voru
haldnir í gær-
kvöldi, tvennir
verða i dag og sá síðasti á morgun.
Lögin af plötunni eru flutt af
nokkrum af okkar vinsælustu popp-
urum ásamt nokkrum liðsmönnum
úr Sinfóníuhljómsveit islands. Ólaf-
ur Gaukur útsetur lögin og stjórnar
hljómsveitinni en tónlistarstjóri
uppfærslunnar er Jón Ólafsson.
Aðalsöngvarar eru KK - Kristján
Kristjánsson, Daníel Ágúst Haralds-
son og Stefán Hilmarsson en auk
þeirra syngja Ari Jónsson, Rúnar
Júlíusson, Björn Jörundur Frið-
björnsson og Sigurjón Brink. Alls
eru hátt í 100 manns á
sviðinu í
HiW«rs
«vn9la«e=>'MW-
ÁQÚst
09 stebb'
KKDU einu.
„AUir í bransanum hafa
sagt að við værum geðveikir, að
ætla að setja þetta upp með öllum
þeim tæknilegu og flóknu hlutum
sem fylgja flutningi laganna. Við
höfum reynt að loka eyrunum fyrir
slíku tali og framkvæmum það sem
okkur dettur í hug. Annað hvort vit-
um við ekki betur eða erum bara
djarfari,“ sagöi Sigurður Kaiser þeg-
ar DV hitti þá kappa á æfingu í vik-
unni. Miðað við það litla sem blaða-
maður heyrði og sá af verkinu þá er
það næsta víst að frumsýn-
ingargestir í gærkvöldi hafa
fengið eitthvað fyrir sinn
snúð og vel það.. '
Ólafur Gaukur er líklega sá fyrsti í heiminum
sem útsetur lögin fyrir sinfóníuhljómsveit.
Heimsfrumsýning
í raun má segja að hér sé
um heimsfrumsýningu að
ræða því lögin af plötunni
hafa aldrei, svo vitað sé, ver-
ið flutt opinberlega í þessum
búningi áður. Að sögn Sig-
urðar og Gísla fluttu Bitlam-
ir lögin aldrei í heild sinni á
hljómleikum heldur einung-
is eitt og eitt hér og þar.
son. Hins vegar er aldrei að vita
nema að andi Johns Lennons svífi
Bítlarnir sem eftir lifa koma ekki í Háskólabíó um helgina en aldrei aö vita
nema aö andi Lennons svífi yfir svæöinu!
Þannig hafa útsetningar fyrir sin-
fóníuhljómsveit aldrei verið settar
áður á blað. Ólafur
Gaukur er sá fyrsti
sem það gerir.
Þeir félagar gerðu
heiðarlegar tilraun-
ir til að fá eftirlif-
andi Bítlana til
landsins af þessu
tilefni, eða
fimmta Bítilinn,
George Martin.
Sá síðastnefndi
sendi fax í vik-
unni og afboð-
aði sig á kurt-
eisan hátt.
Sagði að
hefði hann
fengið boðið
örlítið fyrr
þá hefði
hann lík-
lega mætt.
Eins og
DV hefur greint frá
hringdi Ringo Starr í eig-
in persónu og sagðist því miður
ekki geta komið til íslands. Ekkert
heyrðist frá McCartney og Harris-
yfir Háskólabíói um helgina.
Gegnumsýrðir foreldrar
Hvorki Sigurður né Gísli Öm
voru fæddir þegar Sgt. Peppers plat-
an kom fyrst út. Þvi var ekki úr
vegi að spyrja
hvort þeir
hefðu ein-
hvem sérstak-
an áhuga á
bítlatónlist-
inni. Gisli
sagðist vera
alinn upp af
foreldrum sem
hefðu verið
„gegnumsýrð-
ir“ eftir þetta
tímabil. Hann
hefði þvi oft og
iðulega hlust-
að á lögin með
mömmu og
pabba! Sigurð-
ur sagðist
vera að kynn-
ast tónlist Bítl-
anna fyrir al-
vöru í fyrsta
skiptið núna. Hann hefði til þessa
fllað þá sem hefðbundna dægurtón-
list. Núna væra þeir orðnir hans
átrúnaðargoð númer eitt!
-bjb
IBESTAI
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
Útibú Suðurnesjum:
Brekkustígur 39 • 260 Njarðvík
Sími: 421-4313 • Fax 421-4336
Bítlatónleikarnir um helgina:
„Bransinn"
telur þá geðveika!
- rætt við Sigurð Kaiser og Gísla Örn
IAG
UKH a/73
lDDxFM1 íCS-GrS
• Utvarp meí) stöbvaminnum FM (18), MW(6) og LW(6) • 4x1 OW magnari
• Auto Reverse Segulband • Fader-, Balance-, Bassa-, Diskant- og Loudness
stillir • Þjófavörn
Áður kr. 19.900 Tilboð Kr. 14.900 stgr.
Bílgeislaspilari • Hristivörn • Útvarp meö stöövaminnum FM (18) • Þjófavörn
4x30W magnari • Fader-, Balance-, Bassa-, Diskant- og Loudness stillir
Áður kr. 29.900 Tilboð Kr. 25.900 stgr.
clarion
Gæða
hljónitæki
í bílinn
SjÓ