Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 44
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 Á^"\T 52 snak Góð þátttaka á meistaramóti Skákskóla íslands Á annað hundrað nemendur stunduðu nám við Skákskóla ís- lands á nýloknu skólaári og virðist ekki annað sýnt en að skákáhugi bama og unglinga sé að aukast á nýjan leik eftir nokkra lægð síðustu ára. Bryddað var upp á ýmsum nýj- ungum á skólaárinu undir stjóm Helga Ólafssonar skólastjóra. Meðal annars var boðið upp á kennslu á Selfossi, í Kópavogi og i Hafnarfirði, auk hefðbundinna námskeiða á heimavelli Skákskólans í Faxafeni. Námskeið fýrir efnilegustu nemend- ur landsbyggðarinnar var haldið á Akureyri, reynt var að auka við þátttöku stúlkna með stofnun sér- staks stúlknahóps, staðið fyrir full- orðinsnámskeiðum, auk þess sem stórmeistaramir Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar Stefánsson fóru hringferð um landið, tefldu fjöltefli og héldu fyrirlestra. Starfsári Skákskólans lauk með meistaramóti skólans sem fram fór sl. sunnudag. Mótið vekur jafnan mikla eftirvæntingu því að til mik- ils er að vinna. Auk veglegs farand- bikars hreppir sigurvegarinn ferð og uppihald á skákmót erlendis og næstu sæti em verðlaunuð með vönduðum skákbókum. Velflestir okkar efnilegustu skák- manna tóku þátt í mótinu en kepp- endur voru alls fjörutíu og fimm, allt nemendur skólans. Fyrst vora tefldar þrjár atskákir með 30 mín- útna umhugsunartíma en síðan fjór- ar kappskákir með tímamörkum 90 mínútur á 35 leiki og svo 30 mínút- ur til að ljúka skákinni. Mótstjóri var Helgi Ólafsson en skákstjóri Ólafur S. Ásgrímsson. Leikar fóru svo að Bergsteinn Einarsson og Jón Viktor Gunnars- son deildu sigrinum með 6 vinninga af 7 mögulegum. Þeir munu heyja tveggja skáka einvígi um meist- aratitilinn og utanferðina sem fram fer á mánudags- og þriðjudagskvöld. Bergsteinn slapp taplaus frá mótinu en gerði jafntefli við Einar Hjalta Jensson og Braga Þorflnnsson. Jón Viktor tapaði í 2. umferð fyrir Guð- jóni H. Valgarðssyni en vann alla aðra andstæðinga sína. í 3. sæti varð Bragi Þorfinnsson með 5,5 vinninga og hagstæðari sti- gatölu en Einar Hjalti Jensson en þeir fengu báðir 5,5 v. Fimmta sæt- ið kom í hlut Matthíasar Kormáks- sonar með 5 vinninga - jafnmarga og Davíð Kjartansson, Hjörtur Daðason og Þórir Júlíusson. Næstir komu Kristján Eðvarðsson, Bjöm Þorflnnsson, Hjalti R. Ómarsson og Sigurður P. Steindórsson með 4,5 vinninga. Meðal þeirra sem fengu 4 vinninga var Aldís Rún Lárusdóttir sem varð hlutskörpust stúlkna. Vandað mótsblað var gefið út með skákum mótsins og sá Eyjólfur Ármannsson um innslátt. Hann vakti athygli skákþáttarins á eftir- farandi skák þar sem hvítur saumar laglega að andstæðingnum í enda- tafli. Lyktir skákarinnar minna helst á kennsluefni úr Skákskólan- um þar sem hvítur brýst í gegn og kemur mótherjanum í leikþröng. Hvftt: Einar Hjalti Jensson Svart: Stefán Kristjánsson Caro-Kann vöm. 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rf6 5. Rxf6+ exf6 Þetta er svolítið einkennilegt byrjunarafbrigði. Svartur tekur sjálfviljugur á sig tvípeð og gefur hvítum þar að auki eftir peðameiri- hluta á drottningarvæng. Á móti kemur að svartur fær frjálst tafl - ólíkt mörgum öðram afbirgðum Caro-Kann varnarinnar - og hefur vissa möguleika á að sækja að peða- meirihluta hvíts. Þess vegna hafa kappar eins og Ulf Andersson Vassily Smyslov og Viktor Kortsnoj teflt þetta afbrigði með góðum ár- angri. 6. RÍ3 Beittara er talið 6. c3 Bd6 7. Bd3, eða strax 6. Bc4. Nú skipar svartur áreynslulaust út liði. 6. - Bd6 7. Be2 0-0 8. 0-0 He8 9. c4 Bg4 10. h3 Bh5 11. Bd2 Rd7 12. Bc3 RfB 13. Hel Bc7 14. d5 c5!? 15. Rh4 Dd6 16. g3 Bg6 Betra er að einfalda taflið með 16. - Bxe2 með eilítið lakari stöðu á svart. 17. Bg4 Rd7? 18. Hxe8+ Hxe8 19. Da4! Hd8 20. Bxd7? í stað 20. Rxg6 hxg6 21. Dxa7, sem vinnur peð, án þess sjáanlegt sé að svartur fái nægar bætur. 20. - Dxd7 21. Dxd7 Nú gefur 21. Dxa7 Dxh3 22. Dxc5 Bxg3 svörtum færi á að hræra í stöðunni. 21. - Hxd7 22. Hel Kf8 23. Rxg6+ hxg6 24. b4 Bd6 25. b5 b6 26. Kg2 He7 Svartur gerir sér ekki grein fyrir hve biskupaendataflið er erfitt. Betra er 26. - f5 en vinningslíkur hvíts era allgóðar, þökk sé völduð- um frelsingjanum á d-línunni. Þetta er sígilt dæmi um tvípeð til trafala. Takið eftir að svartur getur ekki gert sér mat úr fjórum peðum sín- um gegn þremur peðum hvíts á kóngsvæng. 27. Hxe7 Kxe7 28. Kf3 Kd7 29. Ke3 BfB 30. g4 Kd6 31. Ke4 Kd7 32. a4 Kd6 33. a5 Kd7 34. a6! Bd6? Nú fór síðasta tækifærið til að leika 34. - g5, sem gefur nokkra jafn- teflisvon. 35. f4 Be7 36. h4! BfB 37. Bb2 Kd6 38. Bal Kd7 39. Bc3 Kd6 40. f5! Hittir á réttu áætlrmina. Hvitur hótar nú 41. fxg6 fxg6 42. h5 gxh5 43. gxh5 og síðan Kf5-g6. 40. - g5 41. fxg5 fxg5 42. f6! g6 43. Bd2 Bh6 44. Be3 BfB Svartur var í leikþröng. 45. Bxg5 Kd7 46. Bf4 Kd8 47. d6 Kd7 48. Kd5 g5 49. Bg3 - Svartur gafst upp. Ef 49. - Bh6 50. Bf2 Bf8 51. Bxc5! bxc5 52. b6 axb6 53. a7 og ný drottning í næsta leik. Hrina helgarskákmóta í sumar. Ef áætlanir Jóhanns Þóris Jóns- sonar, ritstjóra tímaritsins Skákar, ganga eftir eiga skákunnendur gott sumar í vændum. Tímaritið Skák hefur auglýst fjögur helgarskákmót í sumar í samvinnu við heimamenn og verður teflt á býsna áhugaverð- um stöðum. Fyrsta mótið - sem er 46. í röð helgarmótanna - verður á Trékyllis- vík á Ströndum helgina 20.-22. júní. Tefldar verða 11 umferðir og um- hugsunartími er 30 mínútur á skák. Mótið hefst kl. 18 á föstudegi og lýk- ur með verðlaunaafhendingu og lokahófí á sunnudagskvöldi. í ágúst geta skákmenn síðan sam- einað sumarfrí á Austfjörðum og taflmennsku. 47. helgarskákmótið verður 15.-17. ágúst í Mjóafirði; síð- an verður teflt í Skjöldólfsstaða- Umsjón JónLÁrnason skóla á Jökuldal 19.-21. ágúst (milli- helgaskákmót) og loks í Borgarfirði eystri helgina 22.-24. ágúst. Að lokinni þessari hrinu verða helgarmótinu orðin 49 að tölu en fimmtugasta mótið er fyrirhugað í haust. Væri það vel til fundið þar sem tímaritið Skák fagnar 50 ára af- mæli á þessu ári. Margir hafa spurst fyrir um helg- armótin vinsælu sem nú verða end- urvakin eftir nokkurt hlé. Því er bú- ist við gríðarlegri þátttöku og eru menn beðnir að skrá sig sem fyrst, eins og segir í auglýsingu mótanna. 43ja Generali EM í bridge 1997: Island sendir lið í báða flokka Fertugasta og þriðja Evrópumót- ið í bridge, sem stutt er af stórfyrir- tækinu Generali, hefst um næstu helgi í borginni Montecatini á ítal- íu. „Generali-samsteypan hefur á að skipa 81 tryggingarfyrirtæki í 50 löndum. Montecatini er falleg borg á Mið-Ítalíu nálægt Flórens, Pisa og Siena. ísland sendir landslið bæði í opna flokkinn og kvennaflokkinn og hafa bæði lið verið að æfa vel und- anfarið. Ekki minnist ég þess að nein til- kynning hafi verið gefin út um lið- skipan en með ötulli rannsóknar- blaðamensku tókst mér að komast að því. Engum á óvart er liðið í opna flokknum skipað sömu spilur- um og komust frækilega í fjórð- ungsúrslit Ólympíumótsins á Ródos í fyrra. Það era: Aðalsteinn Jörgensen-Matthías Þorvaldsson Jón Baldursson-Sævar Þor- bjömsson Þorlákur Jónsson-Guðmundur Páll Arnarson Fyrirliði er Bjöm Eysteinsson, landsliðseinvaldur Um tilurð kvennalandsliðsins veit ég minna en það skipa eftirtald- ar konur: Esther Jakobsdóttir-Valgerður Kristjónsdóttir Ljósbrá Baldursdóttir-Jacci McGreel Guðrún Óskarsdóttir-Anna ívars Fyrirliði er Bjöm Theódórsson. Mótið hefst 14. júní og lýkur 29. jaúní. Vegna fjölda þátttökuþjóða, sem era 36 í opna flokknum og 26 í kvennaflokki, verða spilaðir þrír 24 spila leikir annan hvem dag og tveir hinn. Þetta er ströng spilaáætl- un sem ætti að koma okkar mönn- um til góða því það hefir sýnt sig að úthald þeirra hefir ekki brugðist. ítalir eru núverandi Evrópu- meistarar og það fer vel á því, að þeir verji titilinn á heimavelli. Reyndar hefir landslið þeirra staðið sig mjög vel undanfarið og því lík- legt að þeir verði erflðir heim að sækja. Auk Evrópumeistaratitilsins er spilað um fjögur sæti í næstu heimsmeistarakeppni sem haldin verður í Túnis í október 1997. Vegna góðrar frammistöðu landsliðsins í opnum flokki undanfarin ár, þá er gerð krafa um að það nái einu af fjóram efstu sætunum í Montecat- ini. Við skulum að lokum rifja upp eitt skemmtilegt spil frá síðasta Evr- ópumóti, sem haldið var í Portugal árið 1995. ísland hafnaði þá í 8. sæti sem var lakari árangur en búist hafði verið við. N/A-V * A853 W A82 -+ K7 4 DG52 ---N— * 642 V A v A ♦ 9864 s 4 K109763 4 KG107 4+ KG6 •+ ADG10 4 A8 Spilið kom fyrir í leik íslands og Hvíta-Rússlands. í opna salnum varð Jakob Kristinsson sagnhafi í sex spöðum. Austur spilaði út tígli sem Jakob drap með kóngi. Hann tók síðan spaðaás, spilaði meiri spaða og svínaði gosanum. Umsjón Stefán Guðjohnsen Vestur drap á drottningu og hugs- aði lengi uns hann spilaði að lokum hjarta. Austur trompaði og Jakob var vonsvikinn að verða einn niður. Við hitt borðið sátu Guðmundur Páll og Þorlákur a-v en sagnir gengu þannig: Norður Austur Suður Vestur 14 pass 14 pass 24 pass 4G pass 5* pass 64 pass pass pass. dobl redobl Allir Guðmundur útspilsdoblaði og Hvit-Rússinn redoblaði að bragði. Þorlákur fann að sjálfsögðu hjarta- útspilið og Guðmundur trompaði. Hann spilaði síðan laufi og sagnhafi varð að svína. Nú snerist allt um trompdrottninguna og þar eð Þor- lákur hafði sýnt sjölit í hjarta vora líkurnar betri fyrir því að hann væri stuttur í spaða og sagnhafi féll í sömu gryfju og Jakob. Einn niður og 4 impar græddir hjá íslandi. OFFSETPRENTAR ísafoldarprentsmiðja óskar eftir að ráða offsetprentara sem getur hafið störf sem fyrst. Vaktavinna. Upplýsingar í síma 550 5986 Kjartan I 0 i 4 D9 W D1097543 4- 532 4 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.