Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Qupperneq 18
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 1 IV
18 dagurilífi
Heiðar Guðbrandsson við verkfallsvörslu:
Skrílsleg framkoma á Hvammstanga
Þriöjudaginn 27. maí fór ég á
fætur kl. 7, haföi þá sofið frá kl. 23
í vatnsrúminu minu. Svefninn var
kærkominn þar sem ég hafði ekki
sofið í rúmi í átta nætur. Til
greina hafði komið að „víkinga-
sveit“ verkfallsvarða færi til
Drangsness og aðstoðaði Hólmvik-
inga við að koma í veg fyrir lönd-
un þar. Hópur manna hafði farið
um nóttina frá ísafirði til aðstoðar.
Ég sótti rafpóstinn á Intemetið og
þar lágu boð frá skólastjóra grunn-
skólans. Ég sit í fræðslu- og æsku-
lýðsnefnd Súðavíkurhrepps, er þar
formaður, og voru boðin þess eðlis
að ég þurfti að sinna þeim strax.
Skólastjórinn fékk rafpóst um af-
stöðu mína til mála og sveitar-
stjóra gerði ég grein fyrir málum á
netinu. Þá skrifaði ég stutt bréf
fyrir verkalýðsfélagið.
Vegatálmar verkfalls-
brjota
Unnar Reynisson frá Suðureyri
fór með mér frá Súðavík inn í
Djúp og suður Strandir. Klukkan
var orðin 12.10 og við fréttum að
hópurinn, sem hafði farið til
Drangsness, hefði komið að vega-
tálmum sem verkfalisbrjótar á
Drangsnesi höfðu komið upp til að
veijast verkfallsvörðum. Drangs-
nesingar komust upp með að stela
vinnunni af nágrönnum sínum i
þetta sinn og slasa einn verk-
fallsvörð og var þaö ekki annaö en
búast mátti við þegar við
harðsvíraða lögbrjóta er að eiga.
Eftir átökin á Drangsnesi fóru
verkfallsverðimir, sem vora frá ísa-
firði og Hólmavík, til Hvamms-
tanga. Þar hafði frést af verkfalls-
broti. Togarinn Framnes var kom-
inn inn til löndunar með ferska
rækju og hugðust verkfallsverðir
stöðva þá löndun. Ég fylgdist með
lýsingum þeirra á stöðu mála i síma
meðan ég ók inn Djúp og suður
Strandir. Okkur var ætlað að bæt-
ast í liðið á Hvammstanga en kom-
um of seint. Verkfallsverðir gáfúst
upp fyrir skrílslegri framkomu á
Hvammstanga um nónbil og vorum
við þá að komast í Staðarskála.
Með sjónaukann á vakt
Á þessum sama tíma hafði Páll
Pálsson landað í Grundarfirði
og enginn mannafli verið til
að sinna því. Verkfallsverð-
ir fengu sér að borða í
Staðarskála og þar var
farið yfir stöðuna.
Talið var að nokkur
skip myndu reyna að
landa og að Andey
væri komin með
fullfermi af frystri
rækju. Ef hún
kæmi ekki til Súða-
víkur um nóttina
var talið víst að
hún myndi leita eft-
ir löndun annað
hvort á Hvamms-
tanga eða í Grandar-
firði. Seinni staður-
inn var þó talinn
líklegri þar sem
skemmra var
þangað af
miðim-
Óljósar fréttir bárast frá Sauðár-
króki um að þar ætti að landa um
nóttina þrátt fyrir að Málmey lægi
þar í höfn og væri að landa. Ótrú-
legt þótti að Sauðkrækingar
gengju í störf verkfallsmanna en
mér var þó falið að skoða aðstæð-
ur.
Ég taldi
meiri
ástæðu til að vakta Hvammstanga
og bað Sirrý að fara við annan
mann út fyrir Hvammstanga og
fylgjast með skipaferðum. Aðrir
verkfallsverðir áttu að hvílast á
Blönduósi. Sjálfur fór ég út undir
Drangey. Þangað elti ljósmyndari
DV mig og tók myndir af mér þar
sem ég var á vakt með sjónaukann
minn fram eftir nóttu. Ég sá skip
stefna inn í Skagafjörðinn og mér
varð fljótt ljóst að þar færi rækju-
skipið Andey frá Súðavík. Nú var
ljóst að hlutimir yrðu að gerast
ásamt þeim sem höfðu komið
sér fyrir á Blönduósi, voru
ræstir út.
Ætluðu að landa
Við Unnar fóram niður á
höfii og ræddi ég þar
við verkamenn-
ina sem biðu
eftir skip-
inu.
Gerði
ég
þeim
grein
fyr-
um
Heiöar á vakt meö sjónaukann í Skagafiröinum.
DV-mynd Pétur Ingi
ir þvi að óheimilt væri að ganga í
störf verkfallsvarða en allt kom
fyrir ekki. Þeir ætluðu að landa.
Þegar skipið lagðist að var fyrsti
bíllinn að koma á höfnina og
streymdu verkfallsverðir að með-
an skipið var bundið. Formaður
verkalýðsfélagsins mætti á bryggj-
una og gerði verkamönnunum
grein fyrir því að rangt væri að
blanda sér í þessa viðkvæmu
deilu. Nokkuð fast var gengið fram
af báðum aðilum að tryggja sér
stöðu á bryggjunni og tókst okkur
að troða okkur í það pláss sem
mestu skipti. Fljótlega varð
pattstaða við skipið og
engu landað. Fjölmiðla
dreif að. Sjónvarpið
hafði fylgst með verk-
fallsvörðum um nóttina
og kom fyrst á vettvang.
Treystum heima-
mönnum
Engu var þokað á Króknum og
fór skipið eftir hádegi. Þá var Ijóst
að sáttasemjari rikisins myndi
leggja fram miðlunartillögu dag-
inn eftir og heima biðu verkefni
þess vegna. Við Unnar fóram þá
upp á skrifstofu verkalýðsfélagsins
og kvöddum.
Sundlaugin reyndist lokuð þeg-
ar hér var komið sögu. Unnar sett-
ist því undir stýri og ók .heim á
leið. Ég hallaði sætinu aftur og
sofnaði. í Hrútafirði hittust verk-
fallsverðir og ákváðu að halda
heim eftir að fréttist af þvi að And-
ey stefndi á Raufarhöfn. Við treyst-
um heimamönnum þar til að koma
í veg fyrir verkfallsbrot. í Gervidal
við ísafjarðardjúp er heit laug og
þangað stefndum við Unnar. Baðið
var mjög afslappandi og endur-
nærandi og héldum við eftir það til
okkar heima. Ég kom heim til
Súðavikur aðfaranótt 29. maí.
Finnur þú fimm breytingar? 414
Komdu inn fyrir. Mér skilst á dóttur minni aö þú sért karlmaður.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir fjögurhundruðustu og tólftu
getraun reyndust vera:
Sverrir Örn Hlöðversson, Svandís Bára Steingrímsdóttir,
Hrauntjörn 2, Kveldúlfsgötu 25,
800 Selfoss. 310Borgarnes.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur aö verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 414
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík