Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 Margrét Vilhjálmsdóttir leikur eiginkonuna sem er eins og „köttur á heitu blikkþaki". Köttur áheitu blikkþaki Aukasýning verður á leikriti Tennessee Williams, Köttur á heitu blikkþaki, á stóra sviði Þjóðleikhússins annað kvöld. Eins og flest önnur leikrit Willi- ams gerist Köttur á heitu blikk- þaki í suðurrikjum Bandaríkj- anna og er það lýsing á ólgandi íjölskylduuppgjöri í þrúgandi molluhita meðan vifturnar snú- ast letilega i takt við tregafullan blús. Sonur plantekrueiganda er á góðri leið með að drekka frá sér hjónabandið og föðurarfinn en eiginkona hans er reiðubúin að berjast fyrir auðnum og ást þeirra með kjafti og klóm. Leikhús Helstu leikarar eru Baltasar Kormákur, Margrét Vilhjálms- dóttir, Erlingur Gíslason, Helga Bachmann, Halldóra Bjömsdótt- ir og Valdimar Öm Flygenring. Leiksjóri er Hallmar Sigurðsson. Um tónlistina sér gítarleikarinn Guðmundur Pétursson. Þetta er fiórða verk Tennesse Williams sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu, áður hafa verið sýnd Sumri hall- ar (1953), Sporvagninn Gimd (1975) og Leigukjallarinn (1979). Ástarfíkn Á morgun, sunnudaginn 8. júní kl. 20, heldur Vilhelmína Magnúsdóttir fyrirlestur um ást- arfikn í Deiglunni á Akureyri. Ástarfikn er þegar manneskja einbeitir sér jafnmikið eða meira að ástvini sínum (sem getur ver- ið maki, bam, foreldri, vin- kona/vinur) heldur en sjálfri sér. Ástvinurinn er svo ekki fyllilega til staðar, leitar meira í vinnuna, áhugamálin, aðra vini eða áfengi. Um þetta fjallar fyrirlestur Vil- helmínu. Langur laugardagur í dag verður langur laugardag- ur í miðborg Reykjavíkur með tilheyrandi sumarstemningu, uppákomum og verslunarfjöri. Laugaveginum verður lokað að hluta og um alla miðborg verða á ferðinni götuleikhúsið, lúðra- sveit, trúbadorar, sprellleiktæki og fleira. Samkomur Dansleikur á Ingólfstorgi Boðið upp í dans er yfirskrift dansleikjar sem Samtök áhuga- fólks um almenna dansþátttöku, Komið og dansið, standa fyrir á Ingólfstorgi á morgun kl. 14-16. Rangæingafálagið í Reykjavík Árleg skógræktarferð í Heið- mörk verður farin í dag. Mæting í Heiðmörk kl. 13.00. Eftir gróð- ursetningu veröur boðið upp á grillaðar pylsur. Svalt fyrir austan og norðan Vaxandi hæðarhryggur er fyrir norðan land en suðsuðaustur af Hornafirði er 1.007 mb. lægð sem þokast norðaustur. Veðríð í dag Það hefur verið svalt undanfama daga og ekki verður breyting á í dag en spáð er norðaustankalda eða stinningskalda á landinu með skúr- um eða slydduéljum norðan- og austanlands, þar verður hitinn ekki mikill. Eftir næturfrost má búast við að hitinn fari hæst í sex stig. Öllu heppnari verða íbúar á Suður- og Vesturlandi þar sem verður bæði bjartara og hlýrra. Hlýjast verður á suðvesturhominu ellefu stig yfir há- daginn. Sólarlag í Reykjavík: 23.46 Sólarupprás á morgun: 3.07 Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.58 Árdegisflóð á morgun: 8.22 Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri snjóél 2 Akurnes skýjað 6 Bergstaöir úrkoma í grennd 4 Bolungarvík háifskýjaö 2 Egilsstaöir snjóél 1 Keflavíkurflugv. léttskýjaó 8 Kirkjubkl. léttskýjað 8 Raufarhöfn slydduél 0 Reykjavík léttskýjaó 11 Stórhöfói léttskýjaó 8 Helsinki léttskýjaö 21 Kaupmannah. léttskýjaö 22 Ósló léttskýjaó 21 Stokkhólmur léttskýjaö 24 Þórshöfn rigning 8 Amsterdam skýjaó 24 Barcelona léttskýjað 23 Chicago rigning 15 Frankfurt skýjaó 26 Glasgow skýjaó 17 Hamborg léttskýjaö 25 London skýjaö 26 Lúxemborg skýjaö 25 Malaga léttskýjaö 24 Mallorca heiöskírt 28 París skýjaó 26 Róm skýjað 23 New York skýjaö 15 Orlando léttskýjaö 23 Nuuk þokuruðningur 2 Vin skýjaö 19 Washington skýjaö 14 Winnipeg heióskírt 11 Skárr'n ekkert í Kaffileikhúsinu: Balletttónlist á Hljómsveitin Skárr’n ekkert ætlar að vera með útgáfutónleika í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum í kvöld. Mun hljómsveitin leika lög af nýútkominni plötu sem hefur að geyma tónlist sem samin var Skárr’n ekkert leikur nýja við ballettinn Ein sem fluttur var í Borgarleikhúsinu fyrir stuttu. Þetta er önnur plata hljómsveitar- innar en áður hafði hún gefið út tónlist sem samin var fyrir leikrit- ið Konur skelfa. Húsið er opnað plötu kl. 20.30 en tónleikamir hefjast kl. 21. Reggae onjce í Sjallanum á l'safirði í kvöld leikur Reggae on Ice í Sjallanum, ísafirði. Er þetta í fyrsta sinn í sumar sem hljóm- sveitin er þar í sumar. Nú fer óðum að styttast í útgáfu nýju plötunnar en útgáfudagurinn er 13. júní. Skemmtanir Þrennir „Bítlatónleikar" í gærkvöldi vom fyrstu tónleik- amir af fjómm í Háskólabíói þar sem flutt er tímamótaverk The Beatles, Sgt. Pepper’s Lonely He- arts Club Band. Framundan eru þrennir tónleikar; í dag kl. 17 og kl. 20 og á morgun kl. 17. Það er Sinfóníuhljómsveit íslands sem flytur verkið ásamt rokksveit og söngvumm. tónlist í Kaffileikhúsinu í kvöld. Margháttaður Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn. dagsönn *. Gunnar Þorleifsson viö eitt mál- verk sitt. Málverk úr náttúrunni í Menningarmiðstöðinni í j Grindavík stendur nú yfir mál- verkasýning á verkum eftir Gunnar Þorleifsson. Sýnir hann tuttugu og tvö málverk sem sýna náttúruna og fólk í ýmsu ljósi. Þetta er tíunda einkasýning Gunnars en hann stundaði nám við málaraskóla Finns Jónssonar, | Jóhanns Briem og Reklam Instit- | ute í Stokkhólmi. Sýningin stend- ur til 9. júní. Sýningar Mannamyndir Guðrún Pálina Guðmundsdótt- ir opnar myndlistarsýning í Café < Karólínu i dag. Sýnir Guðrún Pálína olíumálverk með manna- myndum sem hún hefur unnið að síðasta ár. Megináhersla er lögð á tjáningu tilfinninga í andlitum en ekki nákvæmar eftirlíkingar af einhverju sérstöku fólki. Guðrún Pálína er Akureyring- ur. Nam hún málaralist í I Hollandi 1982-89, fyrst í AKI í Enschede og síðan framhaldsnám í Jan van Eyck akademíunni í ; Maastricht. Sýningin er fimmta einkasýning hennar. Sýningin stendur til 28. júní. Golf og hlaup í gær hófst islandsmótið í holu- keppni í golfi á golfvellinum í Hafnarfirði. Nýlega er búið að taka í notkun hluta af golfvellin- um sem byggður er i hrauninu fyrir utan Hvaleyrma og þykir hann sérlega skemmtilegur og vel heppnaður. Allir sterkustu golfarar landsins, konur og karl- ar, taka þátt í mótinu sem er með útsláttarfyrirkomulagi og því spennandi fyrir áhorfendur. Keppt er í dag og á morgun er síðan leikið til úrslita. Iþróttir Akraneshlaup Hið árlega Akraneshlaup fer fram í dag og verður keppt í þremur vegalengdum, 3,5 km, 10 km og 21 km. Hjólreiðakeppni hefst kl. 11 og verður keppt í 10 km. Allir þátttakendur fá verð- launapening og sigurvegarar í öllum flokkum í 10 km og 21 km og hjólreiðakeppni fá áletraða bikara. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 148 06.06.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqengi Oollar 70,590 70,950 71,810 Pund 114,710 115,290 116,580 Kan. dollar 51,170 51,490 51,360 Dönsk kr. 10,6900 10,7460 10,8940 Norsk kr 9,8380 9,8920 10,1310 Sænsk kr. 9,0810 9,1310 9,2080 Fi. mark 13,5510 13,6310 13,8070 Fra. franki 12,0660 12,1350 12,3030 Belg. franki 1,9735 1,9853 2,0108 Sviss. franki 48,4800 48,7400 48,7600 Holl. gyllini 36,1500 36,3700 36,8800 Þýskt mark 40,7100 40,9200 41,4700 It. lira 0,04145 0,04171 0,04181 Aust sch. 5,7810 5,8170 5,8940 Port. escudo 0,4031 0,4056 0,4138 Spá. peseti 0,4819 0,4849 0,4921 Jap.yen 0,60840 0,61210 0,56680 irskt pund 104,350 105,000 110,700 SDR 97,10000 97,69000 97,97000 ECU 79,3800 79,8600 80,9400 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.