Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1997, Side 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað t DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ1997
Fingur á gikknum
Talandi um skotvopnaeign Suöur-
nesjamanna. Pað var einmitt Harpa
Lind Haröardóttir fegurðardrottning
íslands frá Njarövík ræsti hiö fjöl-
menna Krabbameinshlaup í vik-
m unni. Hún notaði þó aöeins start-
byssu til verksins. Harpa Lind verö-
ur aö teljast heldur óárenniieg meö
fingurinn á gikknuni.
DV-mynd Pjetur
Suðurnesja-
menn vel
vopnaðir
DV, Suðurnesjum:
Byssueign Suöurnesjamanna
f Vk eykst jafnt og þétt. 1791 skotvopn
- byssur - eru skráð á Suðurnesj-
um. Miðað við fjölda byssna og
fólksfjölda má ætla að tæplega 9.
hver Suðurnesjamaður eigi
byssu.
Leyfin eru 1160 talsins, 13.
hver Suðurnesjamaður er því
með byssuleyfi. Skotdeild
íþrótta- og ungmennafélags
Keflavíkur er með stórglæsilega
aðstöðu fyrir skotmenn á svæði
sínu á Heiði. Þar er keppt í skot-
fimi á Smáþjóöaleikunum.
Gárungarnir segja að byssu-
eign Suðurnesjamanna sé að
komast upp fyrir skoteign Varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli.
c Góð samvinna hefur verið á
milli bandaríska áhugamanna og
íslendinga um skotvopn. -ÆMK
L O K I
Vinnudeilan á VestQöröum leyst:
Verkfalli frestaö
- miðlunartillaga ríkissáttasemjara samþykkt
Ný miðlunartillaga ríkissátta-
semjara var samþykkt í kosningum
félagsmanna ASV í gær með 69,2
prósentum atkvæða. Úrslit lágu
fyrir á slaginu háifátta í gærkvöldi.
Kjörsókn var um 70 prósent. Verk-
falli því sem staðið hefur i sjö vik-
ur hefur því veriö frestað. Rétt eins
og þegar fyrri tillagan var felld
koma þessi úrslit lítið á óvart. Auð-
heyrt var á verkfallsmönnum fyrir
vestan í gær og fyrradag að mikil
þreyta væri komin í mannskapinn
og menn orðnir langeygir eftir
lausn á málinu.
Styttri samningstími
Helsti munurinn á þessari tillögu
og svo þeirri sem var felld í siðustu
viku er sá að samningstíminn stytt-
ist. í stað þess að samningar gildi
til ársloka árið 2000, gilda þeir til
15. febrúar sama ár. Upphafshækk-
un launa breytist úr 5,2% í 5,35%
og eingreiðslan hækkar úr 12 þús-
und krómrni í 15 þúsund.
Formenn úr þagnarbindindi
Bæði Einar Jónatansson, formað-
ur VSV, og Pétur Sigurðsson, for-
maður ASV, virtu ósk Þóris Einars-
sonar ríkissáttasemjara um að tjá
sig ekki opinberlega um miðlunar-
tillöguna fyrr en að kosningum
loknum.
„Ég er ekkert sáttur við
útkomuna í sjálfu sér en ég er
sáttur við mitt fólk og hvað það
stóð vel saman alveg til loka. Ég er
líka alveg sáttur við að það hafi
tekið þennan kost. Mér flnnst hann
kannski ekki hagkvæmur en hann
er skynsamlegur í stöðunni. Fólk
hefúr valið þann kostinn að láta
staðar numið núna,“ sagði Pétur
Sigurðsson, formaður ASV, þegar
úrslit lágu fyrir.
„Nú er það verkefhi okkar að
afla sjónarmiðum okkar fylgis
innan verkalýðshreyfingarinnar
þannig að eftir tvö ár sameinist
hreyfingin um að krafan um 100
þúsund króna lágmarkslaun verði
sett á oddinn."
„Það er auðvitað þungu fargi af
okkur létt. Ég er mjög ánægður
með að þetta skuli vera leyst.
Tillagan er kannski eins og við
mátti búast. Það þurfti að höggva á
hnútinn og þessi samningur er
heldur hærri heldur en gengur og
gerist á hinum almenna
vinnumarkaði. En deilan er leyst
og það er fyrir öllu,“ sagöi Einar
Jónatansson, formaður VSV, um
úrslit atkvæðagreiðslunnar.
Gæti haft alvarlegar afleið-
ingar
Verkfallið á Vestfjörðum er eitt
hið lengsta og harðasta sem ís-
lendingar hafa séð í marga ára-
tugi. Verkfallsverðir hafa gengið
hart fram í að stöðva löndun vest-
firskra skipa, ekki aðeins fyrir
vestan, heldur um allt land.
Þetta langa verkfall hefur tekið
verulega á Vestfirðinga, bæði
verkafólk og fyrirtæki. Þegar
verkfallið stóð sem hæst voru
miklar umræður um það að fyrir-
tæki flyttu starfsemi sina frá
Vestfjörðum. Einnig hefur verið
eitthvað um að einstaklingar hafi
ákveðið að bregða búi og flytja í
aðra landshluta. -vix
Jens Magnfreösson greiöir atkvæöi í kosningunum um miðlunartillöguna á ísafiröi síödegis í gær. DV-mynd Höröur
Kosið um
sameiningu
Dy Dalvík:
Gengið verður til kosninga um
sameiningu sveitarfélaganna fjög-
urra við utanverðan Eyjafjörð, - Ár-
skógsstrandar-,Dalvíkur-,Hríseyjar-,
og Svardafaðardalshrepps í dag.
Kjörfúndir hefjast á öllum stöðum
kl. 10 og lýkur kl. 18 nema á Dalvík.
Þar kl.22. Þá hefst strax talning at-
kvæða og samkvæmt heimildum
DV ættu úrslsit kosninganna að
liggja fyrir um miðnætti. HIÁ
Snjókoma
Nokkur snjókoma hefur verið
með norður- og austurströndinni
síðan í gær.
Á Siglufirði varð jörð hvít af snjó
en hann tók fljótlega upp. Þó er
hvítt í fjöllum. Svipaða sögu er að
segja frá Eskifirði en þar eru fjöll
einnig hvít.
Að sögn Veöurstofunnar er búist
við framhaldi á éljum við norður- og
austurströndina. -sf
Veðrið á morgun:
Hiti 4-14 stig
Á morgun verður nokkuð hvöss norðaustanátt með slyddu eða rigningu
um landið austan- og norðaustanvert en úrkomulaust að mestu um land-
ið vestanvert. Hiti verður á bilinu 4-14 stig, hlýjast suðvestanlands.
Veðrið á mánudag:
Hlýnandi veður
Á mánudag lítur út fyrir austlæga átt með hlýnandi veðri og vætu um
mikinn hluta landsins.
Veðrið í dag er á bls. 57.
j*"-**»