Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 6
6 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 stuttar fréttir Tala látinna hækkar Tala þeirra sem látist hafa i jarðskjálftunum sem riðu yflr austurhluta Venesúela hækkar | enn og herma síðustu fregnir að 68 manns hafi látist. Betra samband Áhöfn MIR-geimstöðvar- innar, sem skemmdist í árekstri, reyndi i gær ný sam- skiptatæki í þeim tilgangi að ná betra sambandi við jörðu áður en viðgerð hefst af fullum krafti. Hillary hvetur konur Forsetafrú Bandaríkjanna, | Hillary Clinton, hélt í gær ávarp á kvennaráð- stefnu í Vín. Þar hvatti hún konur í austri til að berjast fyrir auknum lýð- réttindum. Hún sagði jafnframt að sú barátta yrði erf- iö. Maður í manns stað Samflokksmenn Ranariddh prins, annars forsætisráðherra Kambódíu, hyggjast fá mann til að taka sæti hans sem flokks- formanns. Segja þeir það nauð- synlegt eftir að Ranariddh flúði land. Einnig hafa þeir í hyggju að tilnefna annan í stól forsætisráðherra. Fyrsti vinningshafinn Alþjóða Rauði krossinn sagði frá því í gær að fyrsti milljóna- mæringurinn hefði litið dags- ins ljós í nýju happdrætti hans á Internetinu. Kalla Hwang úrhrak Yfirvöld í Norður-Kóreu j sögðu í gær að Hwang Jang-yop væri úrhrak og brjálaður maður. Hwang er hæst setti embættismað- urinn sem flúið hefur land. Hann sagði í liðinni viku að Norður-Kórea væri að undirbúa stríð. Stórbruni í Taílandi Að minnsta kosti 78 manns létust, þar af 10 útlendingar og 2 böm, þegar eldur braust út á fiölsóttu hóteli í Bangkok í Taílandi í gær. Hermenn til Napólí Rikisstjórn Ítalíu hefur samþykkt að senda 500 manna herliö til Napólí í þeim tilgangi að hjálpa lögreglunni að brjóta á bak aftur veldi mafíunnar og koma í veg fyrir frekari klíkustríð. Handtaka stríðsglæpamanna í Bosníu: Rússar fordæma að- gerðina harkalega Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagðist ekki hafa fregnir af óróa í Bosníu eftir skyndilega her- ferð friðargæslusveita á vegum NATO í gær gegn meintum stríðs- glæpamönnum Bosníuserba. Bresk- ar sérsveitir handtóku meintan stríðsglæpamann og skutu annan til bana. „Ég held að aðgerðin hafi verið viðeigandi og átt rétt á sér,“ sagði Clinton sem staddur var í Búkarest í gær. Rússar voru ekki á sama máli og Clinton og fordæmdu aðgerðina harkalega. Þeir sögðu slíkt „kúrek- askyndiáhlaup" ógna Daytona frið- arsamkomulaginu. „Rússland ber enga ábyrgð og hef- ur ekki í hyggju að taka á sig ábyrgð á þeim afleiðingum sem að- gerð af þessu tagi gæti haft í för með sér,“ sagði í yfirlýsingu frá ut- anríkisráðuneyti Rússlands. Þessi orð gefa til kynna að upp sé komið ósamkomulag milli Rússa og Atl- antshafsbandalagsins, það mesta síðan 1995. Alþjóðanefnd Rauða krossins bað Atlantshafsbandalagið í gær um að skoða ásakanir eiginkonu Radovans Karadzics á hendur friðargæslulið- unum er tóku þátt í aðgerðinni. Sagði hún að þeir hefðu misnotað merki Rauða krossins. Karadzic, sem er yfirmaður Rauða krossins á svæðum Bosníuserba, sagði að her- mennirnir hefðu komið á sjúkrahús borgarinnar Prijedor og þóst vera með lyfiasendingu frá Rauða kross- inum. Ætlunarverk þeirra hafi hins vegar verið að handtaka yfir- mann sjúkrahússins, Milan Kovacevic. Reuter Þrír menn bera á milli sín hind í suðvesturhluta borgarinnar Opole í Póllandi þar sem mikil flóö hafa geisaö. Úrheliisrigning síðustu viku hefur valdið miklum flóðum í suðurhluta landsins. Á þriðja tug manna hefur látist og tugir þúsunda hafa oröiö að yfirgefa heimili sín. Símamynd Reuter Leiðangur geimfarsins Pathfinder á Mars: Óvænt sigurför „Framar mínum björtustu von- um,“ er ein vinsælasta setningin í herbúðum geimvísindamannanna sem vinna úr gögnum sem berast frá leiðangri geimfarsins Pathfinder á Mars. Að sögn vísindamannanna gat engan órað fyir því hve miklar upp- lýsingar felast í þeim gögnum sem borist hafa frá Mars. Þeir segja far- artækið Sojourner hafa unnið ómet- anlegt verk. Með notkun þess hafi verið sýnt fram á að Mars og jörðin séu mjög líklega „tvíburasólir" með tilliti til þess hvernig þær mynduð- ust. „Þessi ferð hefur endurskrifað sögu Mars,“ sagði Brian Muirhead, einn stjórnenda rannsóknarverkefn- isins. Hann bætti því við að mikil vinna væri fyrir höndum og að nýjar upp- lýsingar ættu enn eftir að líta dags- ins ljós. „Á meðan geimfarið og farartæk- ið Sojourner eru í lagi höldum við áfram að safna gögnum," sagði Muirhead. Reuter Markaðir í London: Hækkun í vaxtagleði Svona eins og rétt til að undir- strika það að kaupsýslumenn þurfi að venjast 100 stiga falli á einum degi hoppaði Dow Jones-vísitalan upp um 44 stig eftir að hafa lækkað um 120 stig á miðvikudag. Þetta stóra fall kemur skömmu eftir næst- mesta fall sögunnar í júnílok. Vísi- talan stendur því nú í rétt tæpum 7900 stigum og nálgast áttunda þús- undið óðfluga. Eins og þeirra er von og vísa eltu hlutabréfamarkaðimir í Evrópu bandaríska markaðinn og féllu i byijun dagsins. Þegar svo fregnir bámst af lítilli vaxtalækkun breska seðlabankans tóku bréfin í London kipp. í Þýskalandi féll DAX-vísital- an í kjölfar gengislækkunar dollar- ans. -vix Bssjste 95 akt Mr®@ia Kauphallir og vöruverð erlendis j 180 $/t A 21000 20500 20000 19500 19000 18500 18000 15000 rxnnn 14839,23 XZÚW 'Á1 - 'j' Heimta bann við umskurði Ríkisstjórnin i Egyptalandi | leyfir ekki að umskurður verði gerður á konum á sjúkrahúsum þrátt fyrir að dómstólar hafi úrskurðað j| bannið ógilt. Heilbrigðisráðherra lands- j ins, Ismail Sallam. sagði í gær | að ríkisstjórnin hafnaði úr- I skurði hæstaréttar landsins. „Að tengja umskurð við ís- lamska trú er móðgun við | trúna,“ sagði Sallam. Mannréttinda- og kvenrétt- | indahópar hafa einnig harmað I úrskurð hæstaréttar og sagt að hann hafi gefið læknum grænt ljós á framkvæmd slíkra aðgerða þrátt fyrir þær hættur sem fylgi þeim. Samkvæmt könnun sem stjórnvöld í Egyptalandi gerðu fyrr á þessu ári höfðu 97 pró- sent þeirra kvenna sem spurð- ar vora verið skornar. Hóta að drepa embættismann Lögreglan á Spáni hóf í gær skipulagða leit að sfiórnmála- manni sem meðlimir úr hópi aðskilnaðarsamtaka Baska ‘ rændu og hótuðu að drepa ef ekki yrði farið að kröfum : þeirra. „Ég vona að ég hafi rangt ( fyrir mér en ég óttast mjög að ■ ETA geri alvöru úr hótunum sínum,“ sagði yfirmaður ríkis- 1 stjómar Baska, Jose Antonio I Ardanza, í útvarpsviðtali í gær. Hundrað lögreglumanna og hermanna kembdu stórt svæði Eí gær í leit að hinum 29 ára borgarfulltrúa, Miguel Angel Blanco, sem rænt var á leið til vinnu sinnar sl. þriðjudag. Meðlimir ETA hótuðu að | drepa Ardanza ef ekki yrði far- ið að kröfum þeirra og 500 fé- í lagar þeirra úr samtökunum sem allir sæta fangelsisvist Íyrðu fluttir í fangelsi nærri heimalandi sínu i dag. Þeir era nú á víð og dreif í fangelsum á Spáni. Ríkisstjórnin ákvað að láta kröfur samtakanna sem vind um eyrun þjóta. „Við látum ekki kúga okkur eða tökum upp einhverja | skiptistefnu við hryðjuverka- menn,“ sagði Jaime Mayor Or- ea innanríkisráðherra. Sýklalyf ekki besta lausnin við eyrnabólgu IÞað er ekki besta lausnin að meðhöndla sýkingar í mið- eyra með sýklalyfium. Þetta er niðurstaða alþjóðlegra sér- fræðinga. Segja þeir að tími sé til kominn að læknar hætti að gefa sýklalyf í eins stórum stíl og tíðkast hefur. Þó sýkingar af þessu tagi, sem eru algengar hjá börnum, hafi oft mikinn sársauka í for með sér og þeim fylgi mikill | grátur þá geti sýklalyf í mörg- um tilfellum aðeins aukið v skaðann í stað þess að lækna j meinið, segja sérfræðingarnir. Sérfræðingarnir athuguðu I rannsóknir um meðhöndlun á | sýkingum í miðeyra og drógu j þá ályktun að í flestum tilvik- um væri tímaeyðsla að með- höndla sýkingar með sýkla- í lyfium. Þegar sýklalyf era gefin 1 bömum án þess að ástæða sé til eru auknar líkur á að líf- verarnar myndi ónæmi. Rannsóknir á börnum með Ssýkingu í miðeyra sem fengu óvirk efni i stað sýklalyfia I sýndu, að sýkingin læknaðist I í yfir 80 prósent tilvika án Ilyfja. sem vinna gegn örver- um. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.