Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 7
7
éttir
LAUGARDAGUR 12. JULI 1997
Haffjarðará:
{ Uppnám vegna
1 43 punda
, stórfisks
Það var heldur betur uppí fótur
og fit seint í fyrrakvöld. Sú saga
kom ofan úr Haffjarðará í Hnappa-
dal að 43 punda lax hefði verið að
j veiðast þar á flugu. Það var erlend
veiðikona sem átti að hafa veitt fisk-
' inn eftir marga tíma baráttu við
) stórfískinn. Ef þetta hefði verið rétt
væri þetta langstærsti laxinn á
flugu hérlendis en Jakob heitinn
Hafstein veiddi 36 punda lax í Laxá
í Aðaldal.
„Nei, laxinn stóri veiddist ekki í
Haffjaröará í gærkvöld en stórlax
kom inn í veiðihúsið og hann var 43
pund. En fiskurinn hafði fengist í
, fiskeldistjörn i nágrenni árinnar,"
sagði Einar Sigfússon er við spurð-
I um um stórfiskinn.
) „Það var leiðsögumaður við ána
sem kom með fískinn í hádeginu í
| gær og sýndi hann öllum sem vildu.
Þess vegna hefur þessi saga komist
á kreik. Þótt sumir laxarnir í ánni
séu stórir eru þeir ekki svona stór-
ir. Erlenda veiðikonan, sem átti að
hafa veitt fiskinn, veiddi 17 punda
fisk og þar munar þónokkru. Það
veiddust 15 laxar í gær og áin hefur
^ gefið rúmlega 100 fiska, sem er mjög
) gott,“ sagði Einar enn fremur.
j Svo mögnuð var sagan orðin að
Stöð tvö þótti rétt að senda menn á
staðinn til að mynda ferlíkið sem
I átti að hafa veiðst í ánni.
G.Bender/S.dór
Veiðisaga:
Græðgin
i framar öllu
Hún María Hiinadóttir varð fyrir
I óvenjulegri veiðireynslu þegar hún
skrapp upp að Reynisvatni með fjöl-
skyldunni.
„Það gekk bara ansi vel hjá okkur,
við höfðum aldrei nokkurn tíma feng-
ið svona mikið. Rétt eftir að við móð-
ir mín hentum út urðum við báðar
varar og héldum að við hefðum krækt
hvor í aðra. En samt var eitthvað
Ískrýtið við þetta og við drógum inn.
Þá kom í ljós þessi gráðugi 2-3 punda
fiskur sem hafði gert sér lítið fyrir og
j kokgleypt tvo öngla í einu. Þeir voru
nákvæmlega jafn langt niðri í honum.
1 Við þurftum að hafa heilmikið fyrir
því að losa þá. Ég veit ekki um neinn
, annað veiðimann sem lent hefur í
þessu,“ sagði María. -GGÁ
Internetið um
gervihnött
I DV, Akranesi:
Vegna viðgerða og breytinga á
legu Cantat-sæstrengsins munu
sambönd INTIS til útlanda verða
færð á gervihnattatengingu síðar í
| mánuðinum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Pósti og síma munu Evrópusam-
bönd, þar með talið samband Isnet
I við Nordnet, sem eru á Cantat,
verða færð yfir á gervihnattasam-
j band þann 15. júlí kl. 8.00. Sömuleið-
I is verða Kanadasambönd, þar með
talin sambönd Isnet við Montreal,
flutt á gervihnött daginn eftir á
sama tíma. Búist er við að viðgerð
taki 2-3 vikur. -DVÓ
Ryggefjord með fullfermi:
Góð veiði hjá ís-
lensku skipunum
Norska loðnuskipið Kristian
Ryggefjord er á leið til Vestmannaeyja
með fullfermi af loðnu sem skipstjór-
inn segist hafa fengið í grænlenskri
lögsögu. Að sögn Hjalta Sæmundsson-
ar, aðalvarðstjóra hjá Landhelgisgæsl-
unni, mun Fiskistofa væntanlega
skoða afla skipsins við komuna til
Vestmannaeyja.
Guðmundur Huginn Magnússon,
skipstjóri á Hugin VE, var á heimleið
með fuilfermi í gær. Hann sagði ís-
lensku skipin hafa fengið góðan afla
nokkuð sunnan miðlínunnar milli ís-
lands og Grænlands. Hann hafi orðið
var við dönsk loðnuskip sem stefndu
á stað sem er þar sem skipstjóri Krist-
ian Ryggefjord tilkynnti um afla sinn.
Guðmundur sagði vera bjart yfir
afláhorfúm.
„Loðnan er frekar dreifð en við
sáum stóra torfu á landleiðinni sunn-
an við það svæði sem menn hafa ver-
ið að veiða á. Mér sýnist vera góðar
horfur á áframhaldandi veiði,“ segir
Guðmundur Huginn. -rt
ÞtarSka loönuskipiö
Kristian Ryggefjord
tilkynnti fullfermi
Mokveiöi hjá
íslensku skipunum
Norska loönuskipiö Kristian Ryggefjord kvaðst vera aö veiöa rétt utan viö
íslensku fiskveiöilögsöguna viö Grænland. íslensku skipin mokveiddu þar
skammt frá.
Grænland