Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 14
14 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 JÖ'V Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: (SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. íþróttir fyrir drykkjurúta Stjórnendur landsmóts ungmennafélaganna í Borgar- nesi héldu rétt á málum, þegar rónalæti á mótssvæðinu komu þeim í opna skjöldu. Þeir sendu verstu drykkju- rútana heim til Grindavíkur og höfðu vit fyrir hinum, sem voru móttækilegir fyrir leiðbeiningum. Drykkjuvandræði íþróttahreyfingarinnar komu skýrt í ljós á landsmótinu í Borgarnesi. í allt of miklum mæli eru íþróttafélög ekki lengur varðstöðvar gegn neyzlu geðbreytilyfia á borð við áfengi, heldur beinlínis orðin að uppeldisstöðvum í drykkjuskap, orgi og ælu. íslenzkir unglingar eiga erfiða daga. í heimahúsum horfa þeir upp á helgardrykkjuskap fullorðins fólks, sem virðist segja eitt allsherjar pass í uppeldismálum. Marg- ir foreldrar virðast halda, að uppeldi sé einhver óvið- komandi atburður, sem sennilega eigi sér stað í skólum. Skólamir eru ekki í stakk búnir til að sinna uppeldis- skyldum foreldranna. Þeir hafa raunar ekki reynzt geta sinnt fræðslu til jafns við skóla í útlöndum. Þeir eru and- vígir uppeldi, því að þeir láta bömin að mestu leika laus- um hala í samræmi við hugmyndafræði agaleysis. Á sumrin eru börnin send í svonefnda vinnuskóla, sem eru í raunninni kennslustofnanir í hangsi og kæru- leysi og vinnusvikum. Engin von er til þess, að íslenzk- ir unglingar komist klakklaust og óbrenndir á hugarfari frá þessum sérkennilegu geymslustofnunum. íslenzkir foreldrar og skólamenn hafa meðtekið nú- tímann með þeirri skekkju, að frelsi skuli konia í stað uppeldis. Þess vegna elst fólk upp hér á landi án þess að kunna að haga sér. Það elur hvað annað upp og ákveður sjálft, að það sé smart að liggja í svínastíunni. Ýmis kerfi á íslandi, svo sem ríki og sveitarfélög, hafa litið á íþróttahreyfmguna sem tæki til að koma í stað mistaka þjóðarinnar í uppeldismálum. Kenningin er sú, að börnin læri heilbrigt samstarf og heilbrigða sam- keppni í leik og þjálfun innan íþróttafélaga. í þessu skyni verja opinberu kerfin gífurlegum fjár- munum til stuðnings íþróttum. Bæjarfélög greiða mest- an hluta mannvirkjanna, sem notuð eru tU íþrótta. Tug- ir milljóna liggja á lausu til íþrótta í bæjarfélögum, sem ekki eiga til hnífs og skeiðar á öðrum sviðum. Ekkert bannar, að opinberu kerfin með digru sjóðina setji sér einhver markmið um að fá eitthvað annað í staðinn en linnulausar boltakeppnir, sem tröllríða heil- um bæjarfélögum svo, að þar eru menn tæpast viðmæl- andi um framfarir og gengi bæjarfélagsins. Sum íþróttafélög og sumar deildir innan íþróttafélaga reyna að sinna uppeldishlutverki. Önnur félög láta sig slíkt engu skipta og sums staðar er beinlínis unnið að spillingu æskulýðsins, svo sem sýnir dæmið frá Grinda- vík, þar sem verið er að framleiða drykkjurúta. Eðlilegt er, að auknar verði kröfur um, að íþróttafélög vinni fyrir hinum opinbera stuðningi með því að taka þátt í uppeldisþörfum þjóðfélagsins og reyni meðal ann- ars að sýna ungmennum fram á andstæður heilbrigðra íþrótta og meðvitundarlítils drykkjuskapar. Þótt við höfum á þremur kynslóðum stokkið aftan úr miðöldum inn í vestrænan nútíma, hefur okkur tekizt að læra að þrífa okkur, halda á hníf og gaffli og laga okkur á ýmsan hátt að siðum þjóða. Við getum alveg eins lært að hætta að orga og æla af völdum drykkjuskapar. Mikilvægt skref í þá átt felst í, að íþróttahreyfmgin taki sér tak og komi þeim skilaboðum á framfæri til fé- lagsmanna sinna, að mannasiðir séu prýðilegir. Jónas Kristjánsson Stækkun NATO er ekki í höfn Leiðtogafundur Atlantshafs- handalagsins (NATO) í Madrid i vikunni komst að þeirri niður- stöðu, sem var fyrirsjáanleg, að þremur ríkjum, Póllandi, Tékk- landi og Ungverjalandi var hoðið til aðildarviðræðna. Jafnframt eru tvö ríki sérstaklega nefnd, Rúmen- ía og Slóvenía, sem eiga að bíða þar til bandalagið verður stækkað næst. Loks er vikið vinsamlegum orðum að Eystrasaltsríkjunum og áhuga þeirra á því að ganga í bandalagið. Með þessum hætti náðist sam- staða um lokaályktun leiðtoga- fundarins, þar sem hvert ríki hafði neitunarvald í samræmi við sáttmála NATO. í bandalagi, sem snýst um hemaðarlegt samstarf, hlýtur hvert aðildarríki að hafa neitunarvald, þvi að enginn verð- ur með meirihlutaákvörðun ann- arra neyddur til að fóma eigin ör- yggishagsmunum. Fyrsta skrefið Þótt sameiginleg niðurstaða hafl náðst í Madrid, eru ríkin þrjú ekki komin í bandalagið. Stefnt er að því, að samningaviðræðum við þau verði lokið fyrir árslok 1998 og á 50 ára afmælishátíð NATO í apríl 1999 verði aðildarríkin 19 í stað 16 nú. Þegar litið er til þeirra skilyrða, sem nýju aðildamíkin verða að uppfylla, er ljóst, að NATO verður að fylgja ströngum kröfum bæði í hermálum og stjómmálum. Ríkin þurfa að breyta skipan herafla síns og leggja fram aukna flár- muni í því skyni. Málið þarf að bera undir þjóðir nýju aðildar- landanna eða þjóðþing. í þeim átökum mun áróðurinn frá þjóð- emissinnum og kommúnistum í Rússlandi hafa einhver áhrif. Samhliða því sem rætt er við ríkin þrjú, þarf NATO að endur- skilgreina vamarstefnu sína í ljósi breyttra aðstæðna. Hvert ein- stakt aðildarríki þarf að huga að eigin hagsmunum. Á þetta að Erlend tíðindi Bjöm Bjarnason sjálfsögðu jafnt við um ísland sem aðra. Spurt verður, hvort áhuginn á sérstakri samvinnu Evrópuríkja aukist eða áherslan verði jafnmik- il og til þessa á tenglsin yfir Atl- antshaf. Frakkar í fýlu Frakkar vom í forystu þeirra, sem vildu fimm ný ríki í stað þriggja, og báru hag Rúmena sér- staklega fyrir brjósti. Jacques Chirac Frakklandsforseti lét þau orð falla, að NATO myndi ekki lifa af, ef þess væri ekki gætt, að hæfilegt jafnvægi væri á milli Evrópu og Bandaríkjanna innan bandaiagsins. Þetta ætti bæði við um herstjómir og pólitískar ákvarðanir. Frakkar munu svara tapi sínu í Madrid með því að leggja aukna áherslu á, að Evrópuríki eigi að gæta sérgreindra evrópskra ör- yggishagsmuna. Innan NATO hef- ur verið um það samið, að í þvi skyni geti Evrópuríkin treyst á herafla bandalagsins. Þá er lík- legt, að Frakkar og vinir þeirra muni leggja aukna áherslu á Vest- ur-Evrópusambandið (VES) og hlut Evrópusambandsins (ESB) í öryggismálum. Frakkar era í forystu þeirra innan NATO, sem vilja draga úr Atlantshafstengslunum. Hags- munir íslands ganga þvert á klofn- ing milli Evrópu og Norður-Amer- íku í öryggismálum. Spenna í Bandaríkjun- um Það var ekki fyrr en í forseta- kosningabaráttunni síðasta haust sem BiU Clinton tók af skarið og lýsti yfir afdráttarlausum stuðn- ingi við stækkun NATO. Skýrðu ýmsir þennan áhuga forsetans með vísan til mikils flölda banda- rískra kjósenda af pólskum ætt- um. Samningurinn um stækkun NATO verður að hljóta stuðning aukins meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. í Bandaríkjun- um lætur tiltölulega fámennur hópur sig það nokkru skipta, hvort NATO stækkar eða ekki. Á hinn bóginn er framvindan innan þess hóps á þann veg, að andstæð- ingar stækkunar verða sífellt há- værari. Rök þeirra em þau, að verið sé að ábyrgjast vamir landa gegn hættu, sem ekki sé lengur fyrir hendi. Stækkunin verði síð- an til þess að ergja Rússa, sem enn ráði yfir kjamorkuvopnum og öðmm gjöreyðingarvopnum. Nær væri að semja við Rússa um fækk- un þessara vopna í vinsemd en styggja þá. 20 öldungadeildarþingmenn og 50 sérfræðingar í utanríkismálum hafa ritað Bandaríkjaforseta bréf og mótmælt stækkun NATO. Hið sama em uppi á teningnum í leið- ara bandaríska blaðsins The New York Times. Þannig er ljóst, að miklar umræður eru framundan um málið meðal áhrifamanna í Bandaríkjunum en atkvæða- greiðsla um það í öldungadeild- inni verður líklega næsta vor. Nokkrir leiötogar á góöri stund á fundinum í Madríd. Kohl viröist vera aö gera grín aö Tony Blair. skoðanir annarra W T ------------------------------------- Valdaránið í Kambódíu j „Síðustu átökin í höfuðborg Kambódíu virðast vera óskiljanlegar deilur milli jafn spilltra stjóm- málahreyfinga. Það er ekki um slíkt að ræða. Þetta er í raun valdarán. Sorgleg saga Kambódíu hefur leitt til þess að sumir stjórnarerindrekar og aörir telja lýð- ræði þar vonlaust. Vissulega hefur þessi Suðaustur- Asíuþjóð fengið meira en sinn skerf af áföllum og þá fyrst og fremst þjóðarmorði Rauðu kmeranna. Fáir stjómmálaskýrendur töldu þó lýðræði vonlaust 1993 j þegar 89 prósent þjóðarinnar gengu að kjörborðinu i þrátt fyrir hótanir um ofbeldi og raunverulegar árás- j ir. Kosningunum á vegum Sameinuðu þjóðanna var lýst sem fyrirmynd að uppbyggingu lýðræöis. En hin- ir hugrökku kjósendur fengu ekki þann alþjóðlega stuðning sem þeir þörfnuðust," Úr forystugrein Washlngton Post 10. jútí. i Hækka skatta á tábaki „Nú liggur fyrir frumvarp um lítillega hækkun j skatta á tóbaki í öldungadeildinni. Ekkert slíkt ! frumvarp liggur fyrir í fulltrúadeild. Þaö er góð hug- mynd að hækka skatta á tóbaki og þaö verulega. Þeir mættu hækka um helming og tekjumar á að nota til að efla heilsuvemd bama. Þaö hefur löngum verið stefna repúbikana að skattleggja ekki atferli sem er hvetjandi, aðeins það atferli sem berjast þarf gegn. Af hverju á það ekki við um reykingar jafnt og fiárfestingu og sparnað.“ Úr forystugrein WasMngton Post 10. júlí. Herinn gegn mafíunni „Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins eru upp- veðraðir af tillögum ítölsku ríkisstjómarinnar til efhahagslegra endurbóta. Á sama tíma berast þau boð frá Róm að til standi að senda hermenn til Napólí í þeim tilgangi að fella veldi mafíunnar í eitt skipti fyrir öll. Allt að 85 manns hafa látið lífið og margir særst í mafiustríöinu sem staðiö hefur yfir síðustu sex mánuði í Napólí. Þetta veldi mafíunnar er falleinkunn fyrir stjómmálakerfið á Ítalíu. Þessi leið að senda 600 dáta út á götur borgarinnar í full- um herklæðum lyktar af pólitískri örvæntingu.“ Úr forystugreln Politiken 8. júlí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.