Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 I IV
dagur i lífí
* _________
Magnús Már Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Halló Akureyri:
Eins og
Stundum hefur maður lítið
fyrir stafni - ég man bara ekki
hvenær né hvemig það er.
Miklu oftar er maður í verkefn-
um upp fyrir haus og lætiu- sér
vel lika. Það kemst nefnilega
upp í vana að sniðganga heimil-
ið, láta það mæta afgangi, halda
áfram að puða og ímynda sér að
maður sé ómissandi. Ég er einn
þeirra. Taki ég mér eitthvað fyr-
ir hendur skal það vera 100% og
einhverjum prósentum betur.
Tímann hirðir maður auðvitað
af fjölskyldunni og samskiptum
við vinina. Maður hefur val en
velur ekki.
Svæðið kringum
barkakýlið
Minn dagur, þegar styttist í
úrslitaorrustu verslunarmanna-
helgarinnar, gæti litið svona út:
Vaknað tímanlega, þ.e. eigi sið-
ar en 6.40, svalt bað sé maður-
inn í syfjaðra lagi en rakstur
eins sjaldan og við verður kom-
ið. Svæðið í kringum barkakýl-
ið er alltaf jafnóspennandi. Eftir
að hafa brosað framan í veröld-
ina á venjubundnum júlímorgni
á Akureyri þetta árið, þar sem
kvikasilfrið lafir í 8° C og
bjartasta tið ársins líður hjá svo
brúnaþung að maður sér um-
hverfi bæjarins sem jafnsléttu
og hinn fagri fjallahringur elstu
mönnum löngu gleymdur. Og
þó, það skein jú sól í sl. viku og
maður sættir sig við það. Pabbi
var ötull að minna okkur systk-
inin á, þegar öll munnvik vís-
uðu niður yfir darraðardansi
himinhvolfsins, að við búum jú
á mörkum hins byggilega
heims...
Breoðist morgun-
verourinn
Þegar maður býr á mörkum
hins byggilega heims er stað-
góður morgunverður „ett
máste“, súrmjólk með músli og
banana, brauð með kotasælu og
tómötum ásamt sjóðheitum
bolla, sem Tinna Dögg dóttir
mín gaf mér í jólagjöf, af tei sem
bregst sjaldan. Nái streitan tök-
um á mér er voðinn vís, einkum
og sér í lagi bregðist morgun-
verðurinn. Þá getur dagfar-
sprúður maður breyst í villidýr
- að vísu meinlaust og lítt ógn-
andi eins og tannlaus Tyson, en
skapvondur samt.
Að loknum morgunverði taka
við símhringingar, auðvitað
misspennandi og misárangurs-
ríkar, þar sem ég geri heiðar-
lega tilraun til að Scifna fé til að
fjármagna hátíðina okkar, Halló
Akureyri. Sá misskilningur
virðist hafa komið upp að stór-
ar fúlgur komi nánast sjálfkrafa
í vasa framkvæmdanefndar.
Kannski stafar það af laus-
mælgi minni þegar ég tjáði mig
um líklega veltu um verslunar-
mannahelgi á Akureyri nútím-
ans. Staðreyndin er allt önnur,
sjálft hátíðarapparatið þénar
ekki krónu, ég lítið, en sem bet-
ur fer fá þeir sem í púkkið
leggja margfalda umbun, jafn-
vel hinir líka, þ.e. þeir sem ekki
vilja leggja neitt af mörkum.
Þeir eru margir.
Helv. gemsinn
Nema hvað, fjársöfnunin tek-
ur mikinn tíma, ásamt allri
skipulagningu, og dagurinn
hættir að duga og fjölskyldan
Magnús Már Þorvalds-
son, framkvæmda-
stjóri Halló Akureyrl,
hefur í nógu aö snú-
ast þessa dagana. DV-
mynd gk
tannlaus Tyson
hættir að vera til... Fundur hér
og fundur þar, símhringing,
truflun - og fundargestum leið-
ist: „slökktu á helvítis gemsan-
um, Magnús". Fundi lýkur,
gemsinn á loft og næstum búinn
að gleyma að hringja í Gumma
sem endilega vill leika fyrir ak-
ureyrsk ungmenni og aðra gesti
á Halló Akureyri ’97. Gleymdi
óvart að hringja heim og láta
vita. Af hverju á ég yndislega
konu og böm? Jú, annars, ég er
alltaf að þjóna öðram 100% og
nokkrum prósentum betur.
Dagný hlýtur að skilja það.
Farið á æfingu í Vaxtarrækt-
inni hjá Sigurði vini mínum í
hádeginu, sé ekki fundað þá,
annars kl. 17, verði þvi við kom-
ið hjá manni sem er að leggja
heiminn að fótum sér.
Konan sofnuð
Bíddu viö, þarftu ekki að
vera uppi í KA-heimili núna, þú
ert jú i einnig vinnu hjá KA og
þar bíða þín verkefni sem ekki
hverfa? Pressan er minni þar
sem Essó-móti KA er nýlokið.
Þar vannst frábært starf góðs
KA-fólks.
Bíðum við, klukkan er allt í
einu orðin svo margt að bömin
lögðu höfúð á kodda fyrir 4 tím-
um án þess að sjá pabba þann
daginn og, það sem kannski er
verra, konan líka, og ég sem
ætlaði einmitt að...“
Finnur þu fimm breytingar? 419
Ég get því miöur ekki SETIÐ fyrir hjá þér í dag.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og sautjándu
getraun reyndust vera:
Birgitta Dröfn Þrastardóttir, Ragna G. Hermannsdóttir,
Reynigrund 41 Ásgarði 19.
300 Akranesi. 108 Reykjavík.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birlum við nöfn sigurvegar-
anna.
r > “3
KALSVIAR 'vg. i $ i
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 419
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík