Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Page 29
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
(fislgarviðtalið37
W i >
„Ég er því miöur hræddur um aö þeir séu margir mjög ilia syndugir sem eru að kasta grjóti. Ég heid að þeir ættu aö líta í eigin barm
áöur en þeir reyna aö reka rýtinginn í næsta mann, jafnvel vini og félaga,“ segir Guöjón m.a. í viðtalinu.
eðlilega að fara sem víðast og sjá
sem flesta leiki. Óneitanlega mun
hjartað slá hraðar þegar hann fer í
vesturbæinn, eftir að hafa þjálfað
KR-inga sumrin 1994 og 1995 og unn-
ið bikarkeppnina í bæði skiptin. Enn
hefur félagið ekki náð að vinna ís-
landsmeistaratitil síðustu þrjá ára-
tugi og álagið eykst stöðugt. Þannig
var Lúkasi Kostic vikið úr þjáifara-
starfinu gegn vilja leikmanna eftir
nokkrar umferðir í sumar. Guðjón
vill ekki setjast í neitt dómarasæti
um hvað sé að gerast í vesturbænum
en segir félagið hafa marga góða
leikmenn í sínum röðum. Hann hafl
kynnst fjölda góðs fólks og átt góð ár
hjá KR.
„Áhuginn í vesturbænum er of-
boðslegur, stundum keyrir hann úr
hófi fram og getur orðiö mönnum
fjötur um fót. Menn verða að gá að
sér og doka við, sjá hvert stefnir.
Spennan er greinilega fyrir hendi og
ákveðin orka fer í það. Hins vegar
eru fá félög sem hefðu þó staðist þá
pressu sem á því hefur hvílt. Stund-
um er sagt að menn haldi með þess-
um og þessum félögum en menn trúa
á KR. KR-ingar þurfa ekki að fara í
Frímúrararegluna eða Oddfellow,
þeim nægir að vera í KR. Svo einfalt
er það. Það er ákveðinn lífsstíll að
vera KR-ingur. Félagið stendur hins
vegar á timamótum. Það verður að
gera upp við sig fljótlega hvert stefn-
ir,“ segir Guðjón og er greinilega
ekki sama um afdrif þeirra röndóttu.
íhugaði að skipta um
vettvang
Aðspurður neitar hann því að
hafa fengið formlegt boð um að taka
við af Lúkasi. Margir KR-ingar hafi
hins vegar orðað þetta við sig svona
í gamni. Sögurnar hafi líka farið
fljótt á kreik þegar hann hefði sem
oftar heimsótt systur sina í vest-
urbæinn!
„Ég var búinn að taka þá ákvörð-
un í vor að bíða haustsins með að
taka að mér þjálfun annars staðar,“
segir Guðjón þegar hann er spurður
hvort hann hefði sagt já yið KR ef til
hans hefði verið leitað. „Ég ætlaði að
skoða mín mál betur síðar í sumar
eða haust. Vinna vel úr mínum mál-
um og byrja með hreint borð. Gerði
mér ekki grein fyrir því að skipt yrði
um landsliðsþjálfara. Einhverjir
voru búnir að tala um að breytingar
yrðu hér í haust.“
Hann segir það jafnvel hafa hvarfl-
að að sér um tíma að
skipta alfarið um
starfsvettvang, hætta
knattspyrnuþjálfun og
snúa sér að einhverju
öðru. Það hafi að vísu
aldrei verið komið á
neinn rekspöl. Margir
hafi haft samband við
sig og reifað ýmsa
möguleika, m.a. í
stjórnunarstöðum.
Guðjón vill ekki upp-
lýsa hvaða aðilar þetta
hafi verið, það skipti
ekki lengur máli.
Synirnir inni í
myndinni
Yfir i landsliðsmál
að nýju. Flestum er
kunnugt að tveir elstu
synir Guðjóns, Þórður
og Bjami, era komnir í
fremstu röð knatt-
spyrnumanna okkar
og báðir atvinnumenn,
Þórður hjá Genk i
Belgíu og Bjarni ný-
kominn til stórveldis-
ins í Newcastle. Nú
stendur faðirinn
frammi fyrir þeirri
stöðu að þmfa að velja
þá eða hafna í landsliðið. Hann við-
urkennir strax að hafa velt þessu
talsvert fyrir sér.
„Ég er eðlilega í miklu meira og
betra sambandi við syni mína en
aðra leikmenn. Kem til með að
styðja áfram við bakið á þeim per-
sónulega en styð að sjálfsögðu við
bakið á öllum landsliðsmönnum,
sama hvar þeir eru. Ég var gagn-
rýndur fyrir það á sínum tíma hjá ÍA
að nota strákana í liðinu. Ég ætla
ekki að rifja það upp, þeim sem
gagnrýndu það til hremmingar. Stað-
reyndirnar tala sínu máli - báðir
orðnir atvinnumenn erlendis. Þórð-
ur búinn að vera úti um tíma, átt erf-
iðan feril vegna meiðsla en stendur
enn sterkur í fæturna. Bjarni er nú
ekki að ráðast á garðinn þar sem
hann er lægstur, fer í eitt besta lið
Englands," segir Guðjón með stolti
yfir strákunum.
Hann segir þá báða vera inni í
myndinni sem landsliðsmenn næstu
árin. í raun yrði það erfiðara fyrir
þá að vera valdir frekar en fyrir sig
að velja þá. Það sé hins vegar við-
búið að ef hann velji þá, og þeir
skari ekki fram úr, þá verði höggvið
í það. Umfjöllun fjölmiðla sé ekki
alltaf byggð á rökum. Hann hafi ekki
farið varhluta af því.
Gott samband við
Bjarna
Guðjón segir sættir hafa tekist á
miili sín og Bjarna eftir að þeim varð
sundurorða í Newcastle í fyrra. Það
sé fyrir löngu búið að landa því máli,
eins og hann orðar það.
„Það ríkir fullur trúnaður okkar á
milli og gott samband. Ekkert sem
kemur niður á okkar samskiptum í
dag,“ segir Guðjón sem eftir atvikið
ytra ákvað að taka til í sínum ranni.
Hann fór í áfengismeðferð hjá SÁÁ á
Vogi og hefur eftir hana sótt fundi
AA-samtakanna reglulega.
Margir í sama vanda
Aðspurður segir Guðjón það vissu-
lega hafa verið erfitt skref að fara í
meðferð.
„Það er erfitt meðan á því stendur
að þurfa að taka á sínum málum. í
dag segi ég að maður hefði átt að
gera þetta fyrr. í þessu sem öðru er
auðvelt að vera vitur eftir á. Fjöl-
margir úti í þjóðfélaginu glíma við
og þekkja þetta vandamál. Því miður
tel ég að þetta sé meira rikjandi en
almennt er viðurkennt. Ég er alveg
klár á að menn þurfa að standa upp
og viðurkenna vandann. Verða að
gera sér grein fyrir því að víða er
pottur brotinn. Fyrir mig er þetta
allt annað lif. Mér líður miklu betur
og skynja enn frekar að ég hefði átt
að taka á mínum áfengisvanda
miklu fyrr.“ segir Guðjón.
Hann segir fjölskylduna hafa stutt
dyggilega við bakið á sér. Hann eigi
samhenta og sterka fjölskyldu sem
ekki sé vön þvi að væla. Málin séu
leyst í sameiningu ef svo ber undir.
„Ég tel fjölskylduna hafa fengið
betri mann þó ég sé alls ekki að segja
að ég hafi verið slæmur. Ég hef alltaf
reynt að standa með mínu fólki og
reynt að láta gott af mér leiða þegar
eitthvað hefur á bjátað.“
Stutt í hengiflugið
Guðjón segir íþróttahreyfinguna
ekki vera undanskilda þeim áfengis-
vanda sem þjóðfélagið eigi við að
etja. Þessu þurfi að gefa gaum og
bæta í framtíðinni. Mikilvægt í þeim
efnum sé að íþróttahreyfmgin standi
sig.
„Stundum er sagt að hóflega
drukkið vín gleðji mannsins hjarta.
Sumum getur farist þetta ágætlega
úr hendi, öðrum ekki. Við vitum að
þetta er ákveðinn linudans. Það er
stutt í hengiflugið. Ég þekki það af
eigin raun.“
Guðjón segist hafa fengið sínar
gusur í opinberri umræðu og oft sé
ekki verið að vanda honum kveðj-
urnar. Margir hafi gert í því að
senda honum tóninn. Þetta tilheyri
einfaldlega fortiðinni og hann sé
andlega vel á sig kominn í dag. Lík-
amlega ástandið mætti kannski vera
betra!
„Mestu skiptir að ég er í flnu
standi í dag, tilbúinn að gera mitt
allra besta í þágu KSÍ og þjóðarinn-
ar. Ég finn að þeir eru margir sem
hafa beðið eftir að ég fengi þetta
tækifæri. Hef fengið sterk viðbrögð
við þessari ráðningu. Fyrir mér er
það mikilvægast, ekki hvað gerðist
fyrir einhverjum árum,“ segir Guð-
jón um leið og hann viðurkennir að
lengi megi manninn reyna. Menn
eigi bara ekki að dæma hver annan.
Syndugir sem grýta
„Það er hægt að vitna í orð frelsar-
ans þar sem hann segir: Sá yðar sem
syndlaus er kasti fyrsta steininum.
Ég er því miður hræddur um að þeir
séu margir mjög illa syndugir sem
eru að kasta grjóti. Ég held að þeir
ættu að líta í eigin barm áður en þeir
reyna að reka rýtinginn í næsta
mann, jafnvel vini og félaga. Baktal
og illt umtal segir miklu meira um
þann sem slíku dreifir en þann sem
um er talað.“
Hann vitnar þarna í Biblíuna og
aðspurður segist hann vera mjög trú-
aður, hafi fengið mikið og gott trúar-
legt uppeldi. Hann hafi leitað til æðri
máttar og það gefíð sér mikinn
styrk, strax sem gutti á sjó og sem
unglingur á leiðinni út í lífíð. Hon-
um hafi verið kennt að til væri æðri
og betri máttur sem verndaði mann
fyrir hinu illa. Bænin sé máttug og
gefi mikla ró.
Næst liggur fyrir aö spyija hvort
Guðjón sé hjátrúarfullur. Hann seg-
ist frekar vilja orða það svo að hann
sé forlagatrúar - vilji hafa hlutina í
fóstu ferli. Það hafi hjálpað sér jafnt
sem leikmanni og þjálfara. Hann kýs
að kalla þetta hefðir frekar en hjá-
trú.
Sjaldan verið kallaður
kjarklaus
Talið berst að lokum að fyrsta verk-
efni Guðjóns í nýju starfi, lands-
leiknum gegn Norðmönnum um
næstu helgi. Hann segir frændur
vora vera komna í hóp fremstu
knattspyrnumanna heims. Þeir hafi
t.d. gert sér lítið fyrir og unnið
Brasilíumenn á dögunum. Leikurinn
sé virkilega spennandi verkefni að
byrja á.
„Ég hef sjaldan verið kallaður
kjarklaus maður. Ég horfi til leiks-
ins með tilhlökkun í huga og reyni
að stýra mínum mönnum til sigurs.
Kannski vinnum við þá ekki en við
leitumst eftir því. Ég mun allavega
leitast við að skemmta því fólki sem
kemur í Laugardalinn. Láta hjartað
slá aðeins hraðar með kjarkmiklum
leik,“ segir Guðjón sem er greinilega
tilbúinn i slaginn. Búinn að taka
virkilega til hjá sér eftir súrt og sætt
utan sem innan vallar. Hann er sig-
urtýpa, eins og formaður KSÍ orðaði
það við undirskrift samningsins, hef-
ur unnið fjöldann allan af titlum sem
leikmaður og þjálfari og vonandi
tekst honum að koma landsliðinu á
sigurbraut. Undirritaður ætlar
a.m.k. að mæta í Laugardalinn um
næstu helgi og hrópa hástöfum
ÁFRAM ÍSLAND!
-bjb
a sterkari og betri maður í dag - er tilbúinn í slaginn:
„Það er ekki hægt aö klappa saman lófunum og segja „hott, hott, allir mínir menn“ og að þar meö verði allt klárt," segir Guöjón
um starfiö framundan með landsliösstrákana.