Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Síða 50
-* myndbönd
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
Cage í hlutverki sínu í hasarmyndinni Flótti á fyrsta farrými:
Leikarinn Nicolas Cage hefur
komist vel áfram í draumaverk-
smiðjunni Hollywood og leikur
hann aðalhlutverkið í háspennu-
tryllinum Flótti á fyrsta farrými eða
Con Air sem verið er að sýna í bíó-
húsum borgarinnar um þessar
mundir. En hver er hann, þessi
dökkhærði prins með sorglegu aug-
un?
Nicolas Cage heitir réttu nafni
Nicolas Coppola. Hann er bróður-
sonur leikstjórans Francis Ford
Coppola. Cage vildi þó frekar kom-
ast áfram á eigin verðleikum en
frægu eftirnafni sínu og tók hann
því upp eftirnafnið Cage. Nafnið
sótti hann til teiknimyndahetju í
hasarblaði.
Rómantískur herramaður
@megin:Nicolas Cage býr ásamt eig-
inkonu sinni, leikkonunni Patriciu
Arquette, í hvítum gamaldags kast-
ala í Hollywoodhæðum. En innan
dyra er ekki að finna rykfallnar dý-
flissur eða dreka heldur geysistórt
safn hasarblaða. Það má því segja
" að í Nicolas Cage mætist nútíð og
fortíð. Annars vegar er hann mjög
upptekinn af poppmenningu nútím-
ans og telur Mikka mús og Batman
til helstu átrúnaðargoða sinna. Hins
vegar er hann talinn vera gamal-
dags og rómantískt ljúfmenni. Sú
hlið sést e.t.v. best á tilhugalífi hans
og núverandi eiginkonu hans, Pat-
riciu Arquette. Hann hitti hana
fyrst fyrir niu árum og féll strax fyr-
ir henni. Hann vildi giftast henni
strax en hún var óviss um tilfinn-
> ingar sínar og skrifaði lista yfir
hluti sem hann skyldi ná í til að
sanna ást sína. Á listanum voru
m.a. svört orkedía og eiginhandará-
ritun þekkts rithöfundar. Cage lagði
þetta á sig en Patricia hryggbraut
hann því ást hans var svo yfirþyrm-
andi. Níu árum seinna hittust þau
síðan aftur og Cage bað hennar um-
svifalaust. Patricia játaðist honum
og nú eru þau hamingjusamlega
gift. Farsæll endir á gamaldags æv-
intýri eða hvað?
Erfið æska
Cage, sem er yngstur þriggja
bræðra, ólst upp á Long Beach í
Kaliforníu. Æskuár Cage virðast
hafa verið honum nokkuð erfið.
Móðir hans sem var dansari eyddi
mörgum árum æsku hans á geð-
sjúkrahúsum og skildi við föður
hans þegar Cage var 12 ára gamall.
Cage segir samband sitt við fóður
sinn, August Coppola, ekki hafa ver-
ið sem skyldi eftir að móðir hans
hélt því fram í reiðikasti að Cage
væri ekki sonur foður síns.
Leikferillinn
Cage flutti til San Francisco með
fjölskyldu sinni þegar hann var tólf
ára gamall. Þremur árum síðar sté
hann sín fyrstu skref á sviði og eft-
ir það fóru hjólin að snúast. Stuttu
síðar lék Cage í sinni fyrstu kvik-
mynd. Frumraunin var ómerkileg
unglingamynd sem hét The Walley
Girl og kom út árið 1982. Á eftir
fylgdu nokkrar misgóðar myndir.
Cage vakti þó talsverða athygli fyr-
ir leik sinn í myndinni Byrdy sem
Alan Parker leik-
stýrði og kom út
árið 1984. Árið 1987
vakti Cage enn á
sér athygli þegar
hann lék á móti
leik- og söngkon-
unni Cher í gaman-
myndinni
Moonstruck.
Cage hefur sannað sig sem fjöl-
hæfur leikari og hefur hann leikið
jafnt í rómantískum gamanmynd-
um sem hörku hasarmyndum. Sú
mynd sem hann hefur þó e.t.v. vak-
ið mesta athygli fyrir er myndin
Wild at Heart í leikstjóm Davids
Lynch. Sú mynd fellur þó hvorki
undir rómantiskar gamanmyndir
né hörku hasarmyndir heldur fjall-
ar um undarlegar ástríður og of-
beldi.
Úskarsverðlaun
Cage var tilnefndur til Golden
Globe-verðlauna fyrir frammistöðu
sína í myndinni Moonstmck árið
1987 og fyrir frammstöðu sína í
gamanmyndinni Honeymoon í Veg-
as árið 1992.
Árið 1996 er þó trúlega mesta
happaár Cage til þessa. Það ár hlaut
hann Golden Globe-verðlarm og ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinni í mynd-
inni Leaving Las Vegas. Það er því
óhætt að segja að Nicolas Cage sé
fjölhæfur leikari sem getur brugðið
sér jafnt í gervi harðsvíraðra glæpa-
manna sem rómantískra herra-
manna. -glm
Meira en
dísætur
diskódansari
Stjarna leikarans Johns Travolta skín
skært þessa dagana eftir margra ára lægð á
níunda áratugnum.
Travolta er kunnastur fyrir leik sinni í
dans- og söngvamyndinni Grease sem kom út
fyrir tæpum tveimur áratugum. Margir tengja
nafn Travolta ósjálfrátt við diskótímabilið því
þá skein stjama hans skært. En hver er hann
þessi fótalipri diskódansari sem aftur hefur
, skotist upp á stjömuhimininn?
Hamingjusamur í æsku
Ólíkt mörgum öðrum leikurum segist Tra-
volta hafa verið hamingjusamur í æsku. Hann
var yngstur sex systkini og því dekurrófan á
heimilinu. Systkinin voru öll listræn í sér og
höfðu gaman af því aö leika. Móðir þeirra
• kenndi þeim leiklist heima við og þau léku á
heimatilbúnu sviði sem faðir þeirra hafði
smíðað.
Gæfunnar freistað
Travolta sá ekki ástæðu til þess að ganga
menntaveginn og hætti í skóla fimmtán ára
gamall til þess að freista gæfunnar í New
York. Stóra tækifærið kom árið 1978 þegar
Travolta hreppti aðalhlutverkið í dans- og
söngvamyndinni Grease. Hann var þó ekki
með öllu ókunnur kvikmyndum því hann
hafði þá þegar leikið í fjórum kvikmyndum.
Þar á meðal var diskómyndin Saturday Night
Fever sem naut mikilla vinsælda. Eftir þetta
lék John Travolta í nokkrum misgóðum
myndum fram til ársins 1989 þegar hann lék á
móti Kirstie Allie í myndinni Look Who’s
Talking. í stað þess að fylgja vinsældum
John
Travolta.
myndarinnar eftir eyddi Travolta
næsta ári í heimsreisu. Þegar árið
var liðið voru flestir búnir að
gleyma John Travolta en hann var
ekki af baki dottinn. Árið 1994 kom
hann aftur með miklum stæl i mynd
leikstjórans Ouentins Tarantinos,
Pulp Fiction. Pulp Fiction markaði
upphafið að nýju skeiði í leikferli
Travolta sem sýndi að hann er
meira en snoppufríður diskódreng-
ur. Travolta hefur ekki gert sömu
mistökin og eftir Look Who’s
Tcdking þvi hann hefur verið iðinn
við kolann undanfarin ár. Það má
því teljast öruggt að John Travolta
fellur ekki í gleymskunnar dá á
næstu árum.
-glm