Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1997, Side 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gaett. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ1997
Þýsk landamæralögregla stöðvaöi för Islendings í lest í Þýskalandi:
Tekinn með 3 kíló
af amfetamíni
- úrskurðaður í gæsluvarðhald í allt að 6 mánuði
Valdís Ósk Hauksdóttir:
Komin
heim til að
afplána
Liðlega tvítug kona, Valdís Ósk
Hauksdóttir, sem dæmd var í 8 ára
fangelsi fyrir stórfellt kókaínsmygl
frá Úrúgvæ til Danmerkur í febrú-
ar, er komin heim til Islands til að
afplána dóm sinn. Þetta er þyngsti
flkniefnadómur sem hefur verið
tekinn til fullnustu hér á landi.
Fangelsismálastofnun ríkisins
féllst á ósk danskra yfirvalda þess
efnis eftir að Valdís hafði sjálf ósk-
að eftir því ytra að fá að afplána
hér. Hún dvelur nú í fangelsinu í
Kópavogi.
Hérlendar reglur munu nú gilda
um afplánun og reynslulausn vegna
dóms Valdísar Óskar. Samkvæmt
dóminum, sem er byggður á stór-
felldu fikniefnahroti, mun hún að
líkindum þurfa að taka út tvo þriðju
af refsingunni, á sjötta ár, áður en
hún fær reynslulausn. Valdís Ósk
var dæmd með Nígeríumanni sem
talinn er hafa skipulagt smyglið.
Hún var talin burðardýr. -Ótt
23 ára íslendingur hefur setið í
gæsluvarðhaldi í Lúbeck í Þýska-
landi frá því í apríl eftir að hann
var handtekinn þar í lest með
verulegt magn af amfetamíni.
Dómur í Lúbeck hefur úrskurðað
að hann skuli vera í gæslu þang-
að til dómur gengur - þó ekki
lengur en sex mánuði.
Samkvæmt upplýsingum DV
var íslendingurinn í lest á leið
frá Amsterdam til Kaupmanna-
hafnar þegar tolleftirlit stöðvaði
för hans við komu lestarinnar til
Lúbeck. Lestin átti þá að halda
áfram með ferju yfir til Dan-
merkur.
Við leit reyndist íslendingur-
inn vera með mikið af am-
fetamíni í fórum sínum - sam-
kvæmt áreiðanlegum upplýsing-
um DV í gær voru það þrjú kíló.
Söluandvirði slíks magns nemur
á annan tug milijóna króna kom-
ið á markað hér á landi.
Þýska lögreglan handtók ís-
lendinginn og lagði hald á efnið.
Eftir það var hann úrskurðaður í
gæsluvarðhald. Ekki liggur fyrir
á þessu stigi hvort íslendingur-
inn hugðist flytja efhið til ís-
lands. Þó liggur fyrir að hann
hafði farið héðan og utan til
Amsterdam þar sem hann náði í
það. Hvað sem því líður telst
brotið framið í þýskri lögsögu -
hann mun því svara til saka og
hlíta dómi í Þýskalandi.
Af hálfu mannsins stendur
vilji tO þess að fara fram á það
við þýsk stjórnvöld að þau hlut-
ist til um að hann fái að afplána
refsingu sína hér á landi. Hvað
það varðar er hins vegar ekkert
hægt að aðhafast fyrr en í fyrsta
lagi þegar dómur gengur í Þýska-
landi.
-Ótt
f
Fargjaldastríð:
Skuldir heim-
• ila stórlækka
Samkvæmt úttekt sem Haukur C.
Benediktsson, hagfræðingur hjá Hag-
fræðistofnun Háskólans, gerði fyrir ís-
landsflug hf. lækka skuldir heimil-
anna beinlínis um 460 milljónir króna
vegna lækkunar flugfargjalda á innan-
landsmarkaði. Þetta er tilkomið vegna
áhrifa verðstríðsins á framfærslu-
vísistöluna.
Ómar Benediktsson, framkvæmda-
stjóri íslandsflugs, segir ánægjulegt að
sú verðlækkun sem félag hans stóð
fyrir í upphafi hafi þannig orðið til
góðs.
„Ég er mjög ánægður með þessar af-
leiðingar. Við stefnum að því að ná
þeirri sætanýtingu sem þarf til að við-
> halda lágu verði," segir Ómar. -rt
-M
Pantið t tíma!
■ 19 ^
dagar til þjóðhátíðar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Bókanir í sínta 570 3030
Matvöruverslanir,
þjónusta í þína þágu
um land allt.
1‘Éft/
■ %
L O K I
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur með gervitunglamynd af skjálftasvæðinu. Ragnar bendir á þann stað þar
sem skjálftavirknin hefur verið mest að undanförnu.
DV-mynd ÞÖK
Hengilssvæðið:
Stórskjálftar
og eldgos?
„Það hefur verið mikið af smá-
skjálftum í dag, engir stórskjálftar, en
virknin hefur minnkað eftir því sem
líða tók á daginn," segir Ragnar Stef-
ánsson jarðskjálftafræðingur.
Ragnar sagði að að skjálftarnir
væru minni nú en verið hefði 1994. En
skjálftasvæðið væri að stækka.
„Við spáum ekki um framvindu
hluta, en við getum sagt hvað gæti
hugsanlega gerst á þessu svæði. Þá
erum við ekki að ræða um eitthvað
sem gæti gerst á morgun, heldur um
það sem almennt gæti gerst á svæðinu
út frá þeirri reynslu sem við höfum.
Með hliðsjón af henni erum við að
tala um jarðskjálfta sem gæti orðið 5,5
stig á svæði frá Hellisheiði og suður
fyrir Skálafell, eða til suðvesturs nið-
ur á Þrengslaveg. í öðru lagi höfum
við reiknað með að á svæði frá Hellis-
heiði vestur að Brennisteinsfj öllum og
Bláfjöllum geti komið skjálfti upp á
6,5 stig. í þriðja lagi gætu jafnmiklar
breytingar og hafa verið að gerast
þama leitt til hraungosa út frá Hengl-
inum í suð- og suðvesturátt. Þau
myndu þó líklega eiga sér lengri að-
draganda," segir Ragnar. JSS/SÁ
Veðrið um helgina:
Mest 19 stiga hiti
Á morgun verður hæg suðlæg átt. Nokkuð bjart verður norðan- og norðaustanlands, en skýjað að mestu og lítils háttar súld eða rigning annars
staðar, einkum þó með suður- og suðausturströndinni. Hiti verður á bilinu 16 til 19 stig að deginum norðan og norðaustan til, en annars 10 til 15 stig.
Á mánudag verður hæg suðlæg eða breytileg átt. Sunnan- og suðaustanlands verður þokusúld en annars þurrt og sums staðar bjartviðri, einkum
inn til landsins. Hiti víðast á bilinu 11 til 17 stig, einna hlýjast norðanlands. Veðrið 1 dag er á bls. 57