Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
Fréttir
DV
^ Meint misneyting fyrrverandi lögmanns Húsnæðisstofnunar:
Eg stend uppi öreigi
- segir Geir Snorrason eftir viðskipti sín við fyrrverandi lögmann Húsnæðisstofnunar
Veðflutningar
lögmanns Húsnæðisstofnunar
■2..000 þúa
x■ : ^ MeHtigerti 6, t
;§|| Akranesi
V ' ‘—■z**—- (kaupverð 250 þús.)
Hús lögmanns Húsnæðisstofnunar
' Engjasel 63, Reykjavík
Grundarstígur 12,
Bolungarvík
(kaupverð 300 þús.)
Veuslama
lögmannsins kaupir
Hringbraut 119,
Reykjavík
Strandgata 36,
Neskaupstað
(kaupverð 2.000 þús.)
Vesturvegur 8,
Seyðisfirði
(kaupverð 300 þús.)
íbúð fyrrverandi
eiginkonu iögmannsins
Miðvangur 41
Hafnarfirði
%
XS
íbúð fynverandi eiginkonu,
VMB, Strandasel 5, Reykjavík
aSSI&i
800 þús.
tn
„Ég sem er 75% öryrki, stend
uppi algjör öreigi eftir viöskiptin
við fyrrverandi lögmann Húsnaeðis-
stofnunar og bíð bara eftir því að
verða kastað út úr íbúðinni minni í
Gyðufellinu. Ég á ekkert og get
ekki fengið mér lögfræðing í málið,
bara setið uppi með skömmina og
vandræðin,“ segir Geir Snorrason.
Geir er einn þriggja sem kærðu
lögmanninn fyrir misneytingu, veð-
svik og skjalafalsanir. Þremenning-
arnir bundu vonir við að ríkissak-
sóknari myndi fylgja málinu eftir.
Sú von varð að engu með bréfi emb-
ættisins frá 14. júlí sl. í því segir að
eigi sé krafist frekari aðgerða í mál-
inu af hálfu ákæruvaldsins.
Geir Snorrason og þeir þremenn-
ingarnir sökuðu lögmanninn um að
hafa notfært sér þau í eiginhags-
munaskyni og m.a. keypt í þeirra
nafni húseignir, m.a. af Húsnæðis-
stofnun, og flutt síðan áhvílandi
veðlán af verðmeiri húseignum sín-
um og vandamanna sinna yfir á
þessar nýkeyptu og mun verðminni
eignir. Þessir veðflutningar eru
sýndir á meðfylgjandi grafi.
Blekktur til samvinnu
Geir segir í samtali við DV að lög-
fræðingurinn hafi smám saman
blekkt sig til samvinnu eftir að hann
leitaði til hans í greiðsluerfiðleikum í
kjölfar skilnaðar. Bæði Geir og lög-
maðurinn voru á þessum tíma giftir
konum frá Filippseyjum og kveðst
Geir hafa lánað fyrri konu lögmanns-
ins hárhæð og hafi staðið á endur-
greiðslu. Hann leitaði því fúlltingis
eiginmannsins fyrrverandi með að fá
upphæðina greidda og til að fá al-
menna greiðsluerfiðleikaaðstoð á veg-
um Húsnæðisstofhunar í kjölfar harð-
vítugra skilnaðarmála. Hvort tveggja
gekk fljótt og vel að sögn Geirs.
Mikiö vill meira
„Upp úr þessu fer lögmaðurinn
að biðja mig að skrifa upp á fyrir
sig sem mér fannst sjálfsagt að gera
þar sem maöurinn hafði verið mér
hjálplegur. Mér fannst varla geta
verið varasamt að gera þetta fyrir
þetta hátt settan mann hjá traustri
stofmm,“ segir Geir.
Hann segir að þessar uppáskrift-
ir hafi fljótt undið upp á sig og orð-
ið vegna stærri og stærri upphæða
og skuldbreytinga. „Loks fer hann
fram á að ég láni sér nafnið mitt til
þess að kaupa íbúð af Húsnæðis-
stofnun austur í Neskaupstað
Geir Snorrason: Orðinn öreigi.
DV mynd S
vegna þess að hann megi það ekki
sjálfur. Hann bað mig því að kaupa
hana á pappírunum en sagðist
strax myndu flytja íbúðina yfir á
nafn konu sinnar og sjálfs sín,“ seg-
ir Geir. Geir segist hafa fallist á
þetta og hafa um leið skrifað upp á
opið afsal.
Geir segir að embættismaðurinn
hafi síðan brugðist trausti sínu ger-
samlega. Vegna þessara samskipta
við lögmanninn hafi hann lent í
þvílíkum hremmingum að íbúö
hans í verkamannabústöðum í
Gyðufelli hefur nú verið boðin upp
og þaðan verði hann senn að fara.
„Þegar upp er staðið var hann
búinn að skrá framlengingar og
skuldbreytingar sem ný lán og í
a.m.k. einu tilfelli hefur hann bætt
einni milljón framan við það sem
ég skrifaði upp á og rúmlega 400
þúsund þannig orðin tæp ein og
hálf milljón. Hann lofaði mér að
kippa öllu í liðinn en sveik allt og
nú er ég, öryrkinn, orðinn alger ör-
eigi,“ segir Geir.
Kerfiö tregt
Geir segir að þegar hann fór af
stað með að kæra lögmanninn hafi
hann alls staðar rekist á veggi: „Ég
var rekinn út frá rannsóknarlög-
reglunni og sagt að fara bara til for-
stjóra Húsnæðisstofnunar með
þetta. Þá talaöi ég við þá í Ríkis-
endurskoðun og þar var mér sagt
að fara með málið til ríkissaksókn-
ara sem ég gerði og lét dagstimpla
öll gögnin inn en hélt eftir ljósrit-
um af öllu saman. Síðar fékk ég
viðtal við Hallvarð Einvarðsson
ríkissaksóknara sem sagðist vera
búinn aö lesa öll gögnin yfir og
senda til rannsóknarlögreglunnar.
Jafnframt sagði Hallvarður að ef
höfðað yrði mál á hendur lögmann-
inum yrði mér séð fyrir lögfræð-
ingi. Ég var því hinn rólegasti."
Geir segir að vonbrigðin hafi því
verið algjör á dögunum þegar hon-
um barst bréfið frá ríkissaksókn-
araembættinu. „Þessi rannsókn
hefur nú tekið tvö ár og það eina
sem út úr þessu kemur er að ríkis-
saksóknaraembættið telur að lög-
maðurinn í Húsnæðisstofhun hafi
ekki aðhafst neitt saknæmt. Ekki
einu sinni það að hann opnaði
bankabækur í mínu nafni og skráði
sjálfan sig sem prókúruhafa," segir
Geir. -SÁ
Veðflutningamálið hjá Húsnæðisstofnun:
Engar sakir finnast
- segir Jón Erlendsson saksóknari
Við teljum ekki ástæöu til að
ákæra lögmanninn. Það er vegna
þess að við teljum ekki að við kom-
um neinni sök yfir hann,“ sagði Jón
Erlendsson saksóknari í samtali við
DV.
Saksóknaraembættið hefur fallið
frá ákærum á hendur fyrrverandi
lögmanni sem starfaði hjá Húsnæð-
isstofnun þar til fyrir nokkrum
mánuðum síöan með bréfi dagsettu
14. júlí sl. undirrituðu af Jóni Er-
lendssyni saksóknara. Forsaga
málsins er kæra á hendur lögmann-
inum frá þremur einstaklingum
sem áttu í viöskiptum við hann og
voru m.a. skráöir eigendur verðlít-
illa fasteigna sem lögmaðurinn síð-
„Ég verð að vísa því til fram-
kvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar
að svara þessu,“ sagði Grétar Guð-
mundsson, aðstoöarframkvæmda-
stjóri Húsnæðisstofnunar, í gær.
DV spurði hann í fjarveru Sigurð-
ar Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar, um við-
brögð við úrskurði embærtis ríkis-
an veðsetti. Kært var vegna ætlaöra
auðgunarbrota lögmannsins.
í stjórnsýsluúttekt sem KPMG
Endurskoðun hf. gerði fyrir hönd
Ríkisendurskoðunar í nóvember
1995 er m.a. fjallað um þessi við-
skipti lögmannsins og kærenda og
veðflutninga sem gerðir voru á milli
fasteigna sem voru skráðar í eigu
kærenda, lögmannsins sjálfs og ým-
issa venslamanna hans. í skýrsl-
unni kemur fram að eignimar voru
veðsettar fyrir um 6,5 milljónum
króna hærri upphæð en raunveru-
legt virði þeirra var. Það er sú upp-
hæð sem telja má tapaða Húsnæðis-
stofnun.
saksóknara um aö aðhafast ekki
frekar gegn fyrrverandi lögmanni
Húsnæðisstofnunar.
Jón Erlendsson saksóknari segir
að um hafi verið að ræða kærumál
þriggja einstaklinga á hendur fyrr-
verandi lögmanni Húsnæðisstofn-
unar. Engar sakir hafi fundist hjá
lögmanninum og Húsnæðisstofn-
sendur þess að fallið væri frá ákæru
á hendur lögmanninum í Ijósi þess-
arar niðurstöður endurskoðend-
anna. Hann sagði að hún væri ekki
tilefhi til málssóknar og Húsnæöis-
stofnun væri ekkert að kæra mann-
inn.
Lögmaður sem DV ræddi við
sagði að ríkissaksóknaraembættið
hefði það á valdi sínu hvort ástæða
væri til málssóknar eða ekki og
þyrfti ekki að rökstyðja ákvarðanir
sínar. í þessu máli gætu forsendur
embættisins verið þær að það liti
ekki á málið sem svik gagnvart
Húsnæðisstofnun, heldur einungis
viðskipti milli stofnunarinnar og
þeirra aðila sem áttu hlut að mál-
un sé ekki málsaðili.
Eins og fram kemur í öðrum
fréttum blaðsins um málið var það
mat KPMG Endurskoðunar hf. í
árslok 1995 að vegna veðflutninga
lögmannsins yfir á verðlitlar eign-
ir víðs vegar um landið væru í árs-
lok 1995 um 6,5 milljónir króna í
uppnámi hjá Húsnæðisstofnun.
inu. Hugsanlegt væri einnig að ekki
hefði enn reynt á hvort einhver
gæti borgað af himun margfluttu
lánum yfir á verðlausar eignir.
DV leitaði álits Jakobs R. Möllers
hæstaréttarlögmanns á niðurstöðu
ríkissaksóknara en Jakob var verj-
andi Sigurðar Helga Guðjónssonar,
framkvæmdastjóra Húseigendafé-
lagsins, í meiðyrðamáli Húsnæðis-
stofnunar gegn Sigurði. Jakob sagöi
að í ljósi skýrslu KPMG Endurskoð-
unar hf. og þeirra skýrslna sem
gefhar voru í fyrmefndu meiðyrða-
máli þá vekti niðurstaða ákæru-
valdsins nokkra undrun. Jakob
vildi hins vegar ekki tjá sig frekar
um niðurstöðu ákæruvaldsins. -SÁ
Grétar var spurður hvort það teld-
ist ekki næg ástæða fyrir við-
brögðum af hálfu Húsnæðisstofn-
unar. Hann vildi ekki tjá sig um
það og vísaði sem fyrr á forstjóra
stofnunarinnar, Sigurð Guð-
mundsson, en Sigurður er nú í
sumarfríi. -SÁ
Stuttar fréttir
Dræmt í smugunni
Orri ÍS hefur reynt fyrir sér
með rækjutroll í Smugunni í tvo
sólarhringa, en árangur verið
heldur lítill, skv. fréttum Rúv.
Orri er fyrsta skipið sem fer í
Smuguna á þessu sumri.
Fá ekki að lesa
Fimm menn, ákærðir fyrir
fikniefnasmygl í Hollendings-
málinu, fá ekki að lesa framburð
hver annars samkvæmt úr-
skuröi Hæstaréttar. Héraösdóm-
ur hafði úrskurðað að þeim væri
það heimilt. Misræmi er í fram-
burði mannanna hjá lögreglu.
Rúv sagði frá.
Aðalskipulag staðfest
Guðmundur Bjamason um-
hverfisráöherra hefur staðfest
aöalskipulag fyrir Grímseyjar-
hrepp á fundi sínum með
hreppsnefhd. Því er ætlað að
vera grundvöllur fyrir framtíð-
arþróun byggðarlagsins næstu
20 árin.
Halim Al finnst ekki
Lögregla í Tyrklandi hefur
leitað Halims A1 í nokkra daga
án árangurs, að sögn Rúv. Hans
er leitað vegna brota á umgengn-
isrétti Sophiu Hansen við dætur
þeirra, en samkvæmt hæstarétt-
arúrskurði eiga þær að vera hjá
henni í júlí og ágúst.
Hlutverk hjá Jackson
Ung, íslensk fyrirsæta, Anna
Rakel Róbertsdóttir, leikur aðal-
hlutverkið í nýjasta myndbandi
stórstjömunnar Michaels
Jackson, að sögn Stöðvar 2. -jss
DV spurði saksóknarann um for-
Viöbrögð Húsnæðisstofnunar:
Forstjórinn verður að svara
- segir aðstoðarforstjórinn um ákvörðun ríkissaksóknara