Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 10
io menning Allir vilja Júlíu Leikfélag fslands sýnir i Loftkastalanum: Veðmálið eftir Mark Medoff Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson Þýðing: Jón Bjarni Guð- mundsson Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Tónlistarstjórn: Emilíana Torrini Leikgervi: Ásta Hafþórs- dóttir Það gustar hressilega um liðið á sviðinu í Loftkastal- anum, þar sem Leikfélag ís- lands frumsýndi Veðmálið í gærkvöld. Þó að verkið sé ekki alveg nýtt af nálinni og auk þess á léttu nótunum, hittir það vel í mark í um- ræðu dagsins um tómleika og tilgangsleysi í lífi margra ungmenna auk þess sem það gefur tilefni til hugleiðinga um vináttu og tryggð. Herbergisfélagarnir Leeds (Benedikt Erlings- son) og Nick (Baltasar Kor- mákur) eru ólíkir um margt en þó samtaka í því að hressa upp á grámyglu hversdagsins með því að stofna til veðmáls sem kemur til með að hafa ófýrirséðar afleið- ingar. Nick er íþróttafrík, sem hugsar mest um það að komast yfir sem flestar konur, en Leeds leggur meira upp úr náminu og lumar auk þess á hættulegum tilhneigingum til að plotta með fólk. Textinn er hressilega skrifaður og gaman- semin aldrei langt undan, ólíkt því sem er í Hvenær kemur þú aftur, rauðhærði riddari? eftir sama höfund. Þar er ógnin sýnileg og manntaflið miklu grimmara. Persónumar í Veðmálinu era fjórar því auk þeirra félaga, sem fyrr voru nefndir koma þar fram háskólakennarinn Ron (Kjart- an Guðjónsson) og kona hans Júlía (Mcirgrét Vilhjálmsdóttir). Allir karlamir þrá Júlíu og sjálf tekur hún virkan þátt í taflinu. Uppsetningin í Loftkastalanum undir stjóm Magnúsar Geirs Þórðarsonar er villt á einkar skemmtilegur þar sem þeir túlka andstæðum- ar í fari herbergisfélag- anna. Þessar andstæður koma líka skýrt fram í útliti þeirra, en þar fannst mér halla á. Útlit Leeds var al- veg óaðfinnanlegt, en Nick var gerður hálf hallærisleg- ur með misheppnaða hár- kollu, sem áreiðanlega mætti betrumbæta. Hlutverk Leeds liggur mjög vel við Benedikt, sem missir ekki af neinu í túlk- uninni. Þessi persóna gefur leikritinu dýptina, sem í því felst. Leeds er ólíkinda- tól, kunnuglegur karakter úr mörgum bíómyndum, sem á það til að etja öðrum á foraðið en reynist svo heldur upphurðarlítill sjálf- ur, þegar á reynir. Benedikt vann prýðisvel úr öllum hliðum persónunnar og var magnaður þegar best lét. Kjartan Guðjónsson leik- ur broslegustu persónuna, eiginmanninn kokkálaða, Ron. Þetta er mesta geð- luðra og hann veit engan veginn hvernig hann á að bregðast við framvindu mála. Kjartani vex ás- megin með hverju hlutverki sem hann leikur og hann hefur einstök tök á hljóðlátri kómík. Hann var bráðfyndinn í töktum og tókst ótrú- lega vel að túlka eymingjahátt Rons um leið og hann náði vissri samúð áhorfenda. Margrét Vilhjálmsdóttir leikur hina um- svermuðu Júlíu sem allir vilja eiga. Hún er ófullnægð í hjónabandinu og leitar nú ein- hvers annars. Margrét er fin leikkona en hefði i þessu hlutverki að ósekju mátt draga úr yflrstressuðum tilburðum og ýktum hreyf- ingum sem urðu heldur um of. Leikmynd Stígs Steinþórssonar og leik- munir þjóna verkinu vel og búningar em vel valdir. Með uppsetningunni á Veðmálinu kemur Leikfélag íslands til móts við þá sem vilja eiga þess kost að sjá góða leiksýningu þótt há- sumar sé. Ron (Kjartan Guöjónsson) og Leeds (Benedikt Erlingsson) voru ekki á eitt sáttir um framvindu mála. Kjartan sýndi einstök tök á hljóölátri kómík og Benedikt var magnaður Leeds. agaðan hátt, kraftmikil og hröð og maður veit aldrei á hverju er von næst. Lýsing og tónlist skapa í mörgum atriðum áhrif líkt og í bíó- Leiklist Auður Eydal mynd en leikur á sviði ber þó alltaf í sér þetta persónulega element, sem engin kvikmynd getur höndlað. Persónumar em nokkuð jafnar að fyrirferð í verkinu, en rista misdjúpt. Nick er fremur stöðluð týpa og eins og áður sagði með mest- allt vitið í íþróttaskónum. Baltasar Kormákur fer lipurlega og sannfærandi með hlutverkið. Samleikur þeirra Benedikts Erlingssonar er Söngnautn Það hafa ekki allir söngvarar þann eiginleika til brunns að bera að virðast njóta þess einlæglega og algjörlega að syngja fyrir aðra. Góðir söngvarar geta virkað spenntir eða svolítið taugatrekkt- ir og sungið þó vel. En það er dásamlegt að heyra í söngv- ara sem er ekki bara mátulega afslapp- aður, heldur syngur líka af yndi og nautn - og gerir það framúrskarandi vel. Þannig kom Ingveldur Ýr Jónsdóttir fyr- ir á tónleikum i Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á þriðjudagskvöldið, en Gerit Schuil lék þar með henni á píanóið. Ing- veldur Ýr hefur starfað erlendis um ára- bil, og þar hefur hún fengið þau mörgu og verðugu tækifæri sem ungir söngvar- ar munu sjálfsagt seint fá hér á landi. En hingað er hún nú komin, með reynslu atvinnusöngvarans í farangrinum, áferðarfallega, létta og hlýja mezzó-rödd, músíkalitet og sérstaklega þokkafulla framkomu. Á efnisskrá tónleikanna voru sönglög úr ýmsum áttum, ítalskar antikaríur - franskur impressjónismi, þýsk síðrómantík, amerísk söng- leikjatónlist og íslenskar dægurperlur. Ingveldur Ýr söng á fimm tungumálum á þessum klukkutíma, og það hlýtur að vera strembið út af fyrir sig. Giovanni Paisiello samdi óperu um fagra malarastúlku - óperan gleymd nema ein aría, Nel cor piú non mi sento, sem hefur líka verið margnotuð i tilbrigði af ýmsu tagi. Ingveldur Ýr söng þessa aríu mjög vel - fínlega og með elegans. Önnur klassísk antikaría, Se tu mami, sem var eignuð Pergolesi um árabil, en er nú kennd Parisotti, var líka mjög fallega sungin, og þar dró söngkonan fram bæði dramatík og húmor kvæðisins í túlkun sinni. Síðasta antik- arían, Quella fiamma che maccende, eftir Marcello, var frábærlega sungin og samspil Ingveldur Ýr haföi lög Gershwins fullkomlega á valdi sínu og mótaöi þau einstaklega smekk- lega. Hún er „performer" af guðs náö - var sjálf fullkomlega á valdi tónlistarinnar. DV-mynd E.ÓI. Tónlist Bergþóra Jónsdóttir Ingveldar Ýrar og Gerrits Schuils var jafnt og gott. Þrjú lög eftir Debussy voru næst - og náðu þau Ingveldur Ýr og Ger- rit þeim tökum á þeim sem sjaldgæft er að heyra - En sourdine, og Clair de lune, sindrandi og full stemningar, og Fantoches gamansamt og fjörlegt. Lögin eftir Richard Strauss voru kannski það sem síst hreif á þessum tónleikum, að undanskildu fyrsta laginu, Nótt, sem var frábærlega vel flutt. Túlkun Ingveldar Ýrar á þremur lögum eftir Gershwin verður eftirminnileg. Hún hafði þau al- gjörlega og fullkomlega á valdi sínu og mótaði þau einstaklega smekklega; - listrænt, en án þeirrar væmni sem stundum er klínt á þau. Þarna sýndi Ing- veldur Ýr líka enn einu sinni að hún er „performer" af guðs náð - var sjálf líka fullkomlega á valdi tónlistarinnar. Tón- leikunum lauk með þremur lögum Sig- fúsar Halldórssonar, og var sérstaklega gaman að heyra þessar perlur, sem allir þekkja, í konsertformi. Lagið Vegir liggja til allra átta reynist þá vera tangó en ekki tjútt, eins og við þekkjum það af frábærri útsetningu Jóns Sigurðssonar úr 79 af stöðinni. Á eftir fylgdu lögin Við Vatnsmýrina og Tondeleyjó, og Dagný var flutt sem aukalag. Þessi lög hlýja manni alltaf um hjartarætumar - falleg og melódísk - en það er aðkallandi að útsetja pia- nóröddina upp á nýtt. í laginu við Vatnsmýr- ina til dæmis, em brotnir hljómar í metravís nánast yfirþyrmandi, og stríða gegn stemning- unni i ljóði Tómasar, í stað þess að vinna með henni. En hvað um það, fLutningur laganna var með ágætum þrátt fyrir allt. Þar með lauk sér- staklega finum tónleikum á þessu annars fá- tæklega tónleikasumri, tónleikum þar sem fág- un og fagmennska voru í öndvegi hjá öndvegis- listamönnum. FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 A!j"V Ofviðrið á norðurslóð Grænlenskir, íslenskir og danskir leik- Jf húsmenn hafa frá því snemma í summar Íæft saman Ofviðri Shakespeares í kóngs- ins Kaupmannahöfn. Leikkonan Sigrún Sól hélt utan ásamt Kára Halldóri leik- stjóra sem hefur stýrt vinnu hópsins á æf- ingatímanum. Ólík menningarviðhorf leikaranna eru I ráðandi öfl í sýningunni sem ber heitið Of- I viðrið á norðurslóð. Tungumál þjóðanna | eru jafnráðandi í sýningunni og leikur hver á sínu máli. Eftir helgi verður hópurinn með 2 sýn- | ingar á verkinu í Norræna húsinu við | Hringbraut, þriðjudags- og miðvikudags- ? kvöld. Um verslunarmannahelgina mun leikhópurinn kóróna hátíðarhöld norðan- I lands með sýningar á Akureyri laugardag Guðlaug Elísabet og Þórhallur í hlutverk- um sínum á æfingu Hár og hitt. Glæpsamlegur gamanleikur?! | Höfuðpaurar, leikfélag Þorsteins Gunn- arssonar og Ellerts A. Ingimundarsonar, : frumsýnir í næsta mánuði Hár og hitt á baksviði Borgarleikhússins. Félagarnir I fengu sjálfan Borgarleikhússtjórann, Þór- hildi Þorleifsdóttur, til leikstýringar í sumarleyfi sínu frá stjórn hússins. | Hár og hitt gerist á samnefndri hár- * greiðslustofú. Morð er framið í næsta ná- grenni stofunnar og allar persónur verks- ins höfðu ríka ástæðu til að fremja ódæð- ið. Það er hins vegar ákvörðun áhorfenda | að skera úr um hvern skuli ákæra fyrir i morðið. Samkvæmt vali þeirra verður end- | ir verksins leikinn. Hár og hitt hefur farið sigurför um gervöll Bandaríkin og þrátt fyrir að lýsing j verksins minni fremur á verk eftir Agötu Christie hefur það verið valið besta gam- ; anleikrit Bandaríkjanna. Valið lið leikara standa að sýningunni en auk Höfuðpauranna Þorsteins og Ell- erts leika í henni Edda Björgvinsdóttir, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Jóhann G. j Jóhannsson og Kjartan Bjargmundsson. I Gísli Rúnar Jónsson þýddi verkið og stað- ) færði. Sítrónusystur til Edinborgar The Icelandic Take away Theatre, sem stöllurnar Vala Þórsdóttir, Ágústa Skúla- dóttir og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, stofnuðu fyrir ári æfir um þessar mundir á fullum krafti í Skemmtihúsinu við Lauf- asveg spunaverkið Lemon Sisters. Sýning- in verður frumsýnd í Edinborg í næsta mánuði og sýnt áfram í London á hausti I komanda. Yfirsfjómandi leiklistardeildar | Middlesex háskólans í Bretlandi, John Wright, leikstýrir hinum súru systrum en ; þær eru leiknar af Ágústu og Völu. Þetta i er tragikómísk saga um tvær systur sem eru utangarðsfólk í víðasta skilningi þess orðs, að sögn leikendanna. Verkið er unn- ið upp úr spuna þar sem meiri áhersla er j lögð á hið sjónræna en talað mál. Væntanlega verður verkið tekið til sýn- 1 ingar hér á landi fyrr en síðar. Bókmenntaverðlaun Laxness Þeir sem sendu inn efni til samkeppn- innar um besta handrit eða smásagnasafn j til bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness geta nú vitjað ritverkanna hjá Vöku-Helga- felli gegn því að nefiia nafn verks eða dul- ( nefni höfundar. Úrslit samkeppninnar j verða kynnt í haust. Frestur til að skila handritum í sam- j keppni næsta árs er til 15. apríl 1998. -ST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.