Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 15 Sjúkrahúsin og frelsið Greinarhöfundur segir ástæöu þess aö biöraðir sjáist ekki lengur í Rúss- landi vera fátækt. Sú kenning var bor- in fram fyrir skemmstu i efnahagsmálablaðinu Vísbendingu, „að að- ferðir hins frjálsa markaðar" væru auð- veld leið til að leysa úr vandræðum í rekstri sjúkrahúsa hér á landi og losna við biðraðir eftir aðgerðum. Ekki þyrfti annað en koma á samkeppni rikisrek- inna sjúkrahúsa og einkasjúkrahúsa og hefðu þau öll „frelsi“ til að taka verulegan hluta kostnaðar af sjúk- lingunum sjálfum. Til stuðnings þessari kenningu, sem Stak- steinar Morgunblaðsins tóku upp með velþóknun, var bent á ríkis- kommúnismann í Sovétríkjunum og viðar. Þar ríkti einatt vörus- kortrn- á mörgum sviðum og biðraðir voru algengar, en „þessi vandamál hurfu eins og dögg fyrir sólu“, segir Vísbending um leið og menn stigu „fyrstu skref inn í frjálst hagkerfi". Skipt um vanda Þessi röksemdafærsla er bæði hölt og skökk. Vissulega hrjáði vöruskortur og biðraðir íbúa Sovétríkjanna. Og vissulega má sjá tölvert vöruúrval í borgum Rússlands í dag, m.a. vegna hömlulítils innflutnings á öllu mögulegu, meira að segja vodka. En „vandamál" neyslufrels- is eru samt ekki leyst. Þau hafa bara breyst. Þeir sem peninga hafa eiga úr meiru að velja en áður. En mikill hluti venjulegs fólks fer alls ekki í biðraðir vegna þess að hann býr við slíka fátækt að hann á ekki fyrir brýnum nauðþurft- um. Ef ekki sjást lengur hinar frægu biðraðir eftir kjöti sem menn áður þekktu getur það m.a. þýtt að færri neyta kjöts og fleiri sjaldnar en áður vegna auraleysis. Eitthvað svipað hefur verið að gerast á rússneskum sjúkrahús- um. Þar hafa menn (misjafnt eftir héruðum) fikrað sig áfram með blöndu af ókeypis þjónustu og markaðsþjónustu. Útkoman er sú að allt of margir efnalitlir sjúk- lingar komast ekki fyrir innan ríkiskvótans og verða því af lækn- isþjónustu með öllu. Rússnesk blöð hafa rakið átakanleg dæmi af foreldrum sem ekki hafa getað kostað lífsnauð- synlegar aðgerðir á börnum sín- um. Sjúkrahúsvist fer í vaxandi mæli eftir því hvort menn eru efn- aðir eða ekki. Eitthvað svipað ger- ist hvar sem heilbrigðisþjónusta er markaðsvædd. Og einkavæðing- in sparar ekki fé - hvergi er þessi þjónusta dýrari en einmitt í Bandaríkjunum. Engin venjuleg fyrirtæki Þegar menn óttast markaðstil- burði á sviði heilbrigðismála, þá óttast menn ekki „frelsi" eins og Vísbending heldur fram heldur misrétti, neyð - og bruðl. Sjúkra- hús geta aldrei orðiö „venjuleg fyrirtæki". Vegna þess að siðað samfélag getur ekki leyft sér að mismuna sjúku fólki eftir því hvort það getur borgað eða ekki. Vegna þess að þeir sem eiga að kaupa þjónustuna í mark- aðsvæddu kerfi (sjúklingar) eru ófrjálsir i sinni „eftirspurn": þeir eru neyddir til að leita þjónust- unnar og síðan háðir því sem handhafar þröngrar sérþekkingar segja þeim. Læknar eru hvorki betri né verri en aðrir menn og því er vafasamt að setja þá í þá stöðu að þeir séu í nafni arðsemi fyrirtækis (einkarekins sjúkra- húss) og afkasta teymdir í átt til „oflækninga“ - of margra óþarfa rannsókna og aðgerða, sem vita- skuld hækka heildarkostnað af heilbrigðisþjónustu að miklum mun. Markaðsvæðing sjúkrahúsa kallar og á rándýrt eftirlitskerfi, sem þó getur hæglega brugðist. Eins og nú nýlega í Bretlandi, þar sem einkafyrirtækjum var falið með útboðum að losna við hættu- legan úrgang frá sjúkrahúsum. Sumir verktakarnir brenndu ekki sprautur, vefjasýni, sýklagróður, gröft og líkamsparta eins og þeim bar skylda til heldur földu á af- skekktum stöðum - til hagræðing- ar og styrktar sinni arðsemi vita- skuld. Gáum að þessu. Ámi Bergmann Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur „Sjúkrahúsvist fer í vaxandi mæli eftir því hvort menn eru efnaðir eða ekki. Eitthvað svipað gerist hvar sem heilbrigðisþjónusta er markaðsvædd. “ Einhlítt og almennt Undanfarið höfum við orðið að sæta því að eiga ekki duglegustu og klárustu unglingana í raunvís- indagreinum skólanna. Foreldrar, sem ekki eru of sterkir í þeim greinum, geta lítið hjálpað. En þó, það er hægt að venja börnin til ákveðins skilnings á því sem við nefnum stærðfræði og því sem við nefnum eðlisfræði. Þetta er hægt að skýra sem einfaldar hugsunar- forsendur, sem allir geta vel skilið. Almennt Algebra, það hræði- lega hókus pókus orð, var þýtt sem bókstafa- reikningur á íslensku. En bókstafirnir í þeim útreikningum og kúnstum gilda al- mennt. Það er að segja, þetta er eins konar formúlureikn- ingur, þar sem unnið er með formúlurnar sjálfar, í stað þess að kunna slíkar og setja tölugildi inn. Við kunnum formúlur eins og „þvermál hrings sinnum pí“ gefur okkur ummálið. Þá mælum við eða ákveðum þvermálið, til að vita ummálið. Þetta er almenn for- múla. Alveg eins er algebra al- mennur reikningur. Þegar menn svo kunna almenna reikninginn þá geta þeir búið til sérstakar for- múlur sem hægt er að setja tölu- gildi inn í. í iðngreinum og ýms- um praxís. Það er því dálítið á sig leggjandi sem foreldri að skýra þetta eðli í framsetningu á því sem lítur út á blaði sem einhver „bók- stafareikningur". Það er að láta unglingana grípa það að framsetn- ingin geti verið almenn í stærð- fræði en oftast sérstök í t.d. verk- fræði þar sem verkleg viðmiðun liggur fyrir. Að fá unglinginn til að greina á milli almennrar fram- setningar og sérstakrar er mikið atriði fyrir hann til að skilja stærðfræði sem verkfæri. Einhlítt Þegar kemur að því sem við „...það er hægt að venja börnin til ákveðins skilnings á því sem við nefnum stærðfræði og því sem við nefnum eðlisfræði. Þetta er hægt að skýra sem einfaldar hugsunarforsendur sem allir geta vel skiiið.“ nefnum eðlisfræði er samsvarandi mikil- vægt hugtak orðið einhlítt. Það er for- senda eðlisfræði að atburðarás muni verá einhlít. Það er að segja, muni fara fram á einn hátt en ekki marga, muni fara fram í tíma. Þegar við lýsum atburðarás notum við einfaldan- ir, oftast úr stærð- fræði, til þess að lýsa því sem ger- ist. Þar höfum við alltaf skekkju- mörk, vegna þess að lýsingin, sem við notum, er ekki eins einhlít og það sem raunverulega ger- ist. Við skulum taka dæmi af ótta bílakaupenda á muni mánudagsbíls og miðvikudags- bíls. Mánudagsbíll er fram- leiddur eftir að hitinn hefur verið tekinn af bílaverksmiðjunni um helgina, mannskapurinn er mætt- ur timbraður og illa á sig kominn eftir rifrildi og slagsmál. Slíkur bíll verður því með hluti sem dögg hefur sest á og handverk er í ólagi. En miðvikudagsbUlinn er miklu betri, stálið orðið hlýrra og rakaminna, mannskapurinn bú- inn að jafha sig. En muninn sér enginn þegar bílarnir eru nýir. En mánudags- bíllinn er talinn verða drusla fyrr. Sölumaðurinn og framleiðandinn halda því fram að bílarnir séu eins. Þegar þessir bílar, sem virðast eins, koma til notk- unar koma ýmis hnignunareinkenni fyrr fram í mánu- dagsbílnum, eða því trúa bílamenn. En þeir eru framleiddir með sams konar hlut- um af sama mannskap. Þetta er eins og í náttúrunni, hún er ein- hlít að fara eftir öllum raunveru- legum áhrifaþáttum en lýsingin sleppir alltaf einhverjum áhrifa- þætti. Eðlisfræði er því óeinhlít lýsing á einhlítri náttúru. Oft mjög nærri, oft með mikilli skekkju. Ef unglingar skilja þetta sætta þeir sig frekar við íagið vegna grunnskilnings á um hvað það fjallar. Þorstein Hákonarson Kjallarinn Þorsteinn Hákonarson framkvæmdastjóri Með og á móti Samvörður 97 Þáttur í friðarsam- starfí „Gildi þessarar æfingar liggur fyrst og fremst í því að þessir að- ilar komu til landsins til samæfinga með íslenskum almannavöm- um og björgun- araðilum. Sú reynsla sem fæst með því að taka á móti þeim hingað er ómetanleg, burtséð frá því hvort aðgerðirnar sem slíkar verði svipaðar eða með sama sniði ef til raunverulegra nátt- úruhamfara kemur. Það er unnið eftir almannavarnaáætlunum undir stjóm Almannavama rík- isins og vettvangsstjórn lýtur i einu og öllu þeirra stjóm á vett- vangi. Það hefur gildi fyrir Al- mannavamir og björgunarsveit- imar á íslandi hafa gagn af því að vera i sliku samstarfi þó ekki sé nema til að kynnast nýjum tækjum, vinnuaðferðum og al- þjóðlegu umhverfi sem svona björgunarsveitir skapa. Aðalá- herslan frá hendi utanríkisráð- herra er að sjálfsögðu sú að ís- lendingar taka með þessu virkan þátt í friðarsamstarfi Atlants- hafsbandalagsins. Við upp- hafsæfingar á Keflavíkurflug- veOi hafa þessir erlendu þátttak- endur sýnt aö þetta er þrautþjálf- að lið og mikil ánægja innlendra aðila er með þessa samvinnu." Friðhelgi forsmáð „Með þátttöku í Samverði 97 setur ríkisstjórnin íslenska al- mannavarna- kerfinu ótæk- an starfs- ramma. í fyrsta lagi er gert ráð fyr- ir röngu stjórn- kerfi á æfing- unni, með því að yfirmenn úr bandaríska hernum eiga að hafa umsjón með erlendum „björgunaraðO- um“ og stýra því hverjir fara í hvaða verkefni, eftir því sem óskir um aöstoð berast frá ís- lensku almannavörnunum. Er- lendi mannskapurinn er í fæst- unr thvikum þeir sem líklegir væru til að koma ef svo óliklega færi að slíkrar aðstoðar væri þörf erlendis frá. í öðru lagi er friðhelgi merkja almannavama og Rauða krossins forsmáð með því að blanda saman heræfingu og almannavörnum. VOji menn í ófriði halda Genfar- sáttmálann þá skjóta þeir ekki á það sem merkt er almannavörn- um eða Rauða krossi. Þess vegna eiga hermenn ekki að vera undir þessum merkjum og eru al- mannavarnir víðast hvar undir borgaralegri stjórn. í þriðja lagi truflar æfingin ekki bara umferð á aðalferða- mannatíma á íslandi, heldur hafa starfsmenn Almannavarna ríkisins ekki getað sinnt brýnum verkefnum vegna erOsins við undirbúning æfingarinnar. Þessi æfing er i þágu herfræði- legra og utanríkispólitískra markmiða NATO. Samvörður 97 er ekki sú æfing sem almannavarnirnar þurftu." -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.