Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 N&Íf&lú^e- FATASKÁPAR A FÍNU VERÐl Hæð: 206 cm Dýpt: 60 cm Breiddir: 40 cm 6.980,- 50 cm 7.500,- 60 cm 7.980,- 80 cm 9.990,- 100 cm 11.500,- Aukalega fæst milliþil og ----------3 hillur á 3.100,- FYRSTA FLOKKS FRÁ /rdnix HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420 Útlönd Ný könnun BBC um hjúskaparmál Karls Bretaprins: Fleiri á móti giftingu Tveir þriðju hlutar Breta sem þátt tóku í skoðanakönnun sjón- varpsstöðvarinnar BBC um hjúskap- armál Karls Bretaprins segja að hann eigi ekki að taka við krúnunni kvænist hann heitkonu sinni, Camillu Parker Bowles. 67 prósent aðspurðra sögðu nei þegar spurt var hvort Karl ætti að kvænast aftur og verða konungur. Könnunin var sú fyrsta sem gerð er eftir að Karl hélt Camillu veislu í tilefni flmmtugsafmælis hennar um síðustu helgi. Veislan þótti ótvírætt merki um þær tilfinningar sem Karl ber í brjósti til konunnar sem hann Camilla Parker Bowles og Karl. hefur elskað á laun í 25 ár. Karl og Camilla hafa tekið fullt mið af heldur óvinveittu viðhorfi í hennar garð eftir skilnað Karls og Díönu í fyrra. Hafa þau haft sig lítt í frammi opinberlega og gætt þess vel að ekki náist mynd af þeim saman. Hins vegar var litið á aimælisveisluna sem þátt í að bæta ímynd CamiIIu og sannfæra Breta um þá stöðu sem hún gegnir í lífi Karls. Hann er nú 48 ára og bíður þess enn að Elísabet móðir hans, 71 árs, hleypi honum að hásæti krúnunnar. En sú gamla sýnir engin merki um að hún ætli að draga sig í hlé. Reuter Notfærðu þér ^.skriftarseðlaTÚ' þegar þú ferð í fríið! í sumar gefst áskrifendum DV kostur á að hringja og flytja áskriftina yfir á Áskriftarseðla DV sem gilda á öllum bensínstöðvum Shell á ^skriftarseðlat auðveldir og þægilegir! Þú, sem áskrifandi DV, hringir einfaldlega til okkar í síma 550 5000 og segir hve lengi þú verður í burtu. Nokkrum dögum síðar berast þér Áskriftar- seðlar DV í pósti og tryggja þér DV á næstu Shellstöð á meðan þú ert í fríinu. *Gegn framvísun á Áskriftarseðlum DV færð þú að auki afslátt af SS pylsu og Coke fyrir alla fjölskylduna á næstu Shellstöð! *Þar sem þessar vörur fást. Shellstöövarnar SÍMI 550 5000 Stuttar fréttir i>v Áfall Mótmælendur og sambands- sinnar á Norður-írlandi stefndu friðarviðræðum í voða eftir að þeir höfnuðu tillögu um að aðskilja viöræður um frið frá viðræðum um afvopnun skæruliða IRA. George Mitchell, oddviti friðarviðræðnanna, sagði þetta áfall. Vongóð Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, fundaði um deil- una fyrir botni Miðjarðarhafs og sagðist vongóð um að friðar- viðræður ísraela og Palestínu- manna gætu haflst á ný. Tekinn af lífi Joseph Roger O’Dell, sem dæmdur var 1985 fyrir að nauðga og myrða Helen Shartner, var tekinn af lífi með banvænni sprautu. Fjárstuðningur Fjármálamaður í Hong Kong veitti hópi ráögjafa Repúblikana- flokksins tryggingu fyrir tæplega eins milljarða króna láni sem síðan var veitt áfram til flokksins fyrir kosningamar 1994. Tekinn í sátt Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, hefur ákveðið að Ghazi al-Jabali, palestínskur lögreglustjóri, fái aftur stöðu sem mikilvægur maöur, VIP. Al-Jabali var grunaður um tengsl við hópa skæruliða innan Frelsissamtaka Palestfnuaraba, PLO. Ávinningur Javieer Solana, framkvæmda- stjóri NATO, sagði að ávinningur NATO af stækkun væri gríöarlegur og sagðist trúa því að sambandið við Rússa yrði áfram traust þrátt fyrir andstöðu þeirra við stækkun bandalagsins. Nýr forseti Charles Taylor, fyrrum stríðs- herra, verður væntanlega lýstur rétt kjörinn forseti Líberíu í dag, eftir sjö ára borgarastríð sem hann átti sjálfur upptökin að. Fengu meðmæli Joao Havelange, forseti Alþj óðaknattspymusambandsins, FIFA, mælti með tilboði Argentínumanna i ólympíuleikana árið 2002. Beita þrýstingi Bandaríkjamenn hyggjast beita Kambódíumanninn Hun Sen þrýstingi svo hann standi við loforð um að leitaö verði sátta í deilunni heima fyrir og samsteypustjórn landsins verði endurreist. Röð tilskipana Boris Jeltsín Rússlandsforseti gaf út röð tilskipana fyi’ir fund með ráðherrum sín- um og endur- skoðar þar með tilraunir þeirra til efnahags- og félagslegra umbóta. Flóð ógna Fjöldi fólks var fluttur frá heimilum sínum á flóðasvæðunum í Þýskalandi eftir að sandpokavirki gáfu sig meðfram ánni Oder, nærri landamærum Póllands. Minni skemmdir Skemmdirnar af völdum eldsvoðans í Palais de Chaillot í París eru ekki eins alvarlegar og haldið var í fyrstu. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.