Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 24. JULI 1997
Fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, ræöast viö í Hvíta húsinu í gær.
Fundur forsetanna í Hvíta húsinu:
Hugmyndin kom upp
áður en við fórum
- sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands
„Það hafði komið upp hugmynd
um það daginn áður en við hjónin
héldum vestur að af fundi minum
með Bill Clinton, forseta Bandarikj-
anna, gæti orðið. Ég ræddi þann
möguleika við bæði forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra þann
dag. Það lá hins vegar ekki skýrt fyr-
ir fyrr en í gær að af fundinum gæti
oröið vegna þess að þetta er ekki op-
inber heimsókn forseta íslands. Það
skýrðist svo eftir að ég kom vestur
að ég myndi bæði heimsækja A1
Gore á heimili hans og síðan eiga
fund með Clinton," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands, í
samtali við DV í gær.
Hann vildi ekki fara nánar út í
það hvernig þessum mjög svo
óvænta og óvenjulega fundi var kom-
ið á. Hvort A1 Gore hefði átt ein-
hvern þátt í fundi þeirra Clintons
sagði Ólafur Ragnar ekkert ætla að
segja um en þegar hann hitti Gore
heföi það verið orðið nokkuð mótaö
að hann myndi eiga þennan fund
með Bill Clinton.
Ánægjulegur fundur
„Þetta var mjög ánægjulegur fund-
ur með Clinton forseta í dag og
margt sem bar á góma. Við ræddum
ítarlega um landafundina og hann
lýsti yfir ríkum vilja til þess að efna
til samvinnu með okkur um hátíða-
höld árið 2000. Ekki aðeins til að
minnast þessa merka atburðar held-
ur líka til að minnast landafunda
víkinganna, til að efla skilning
manna á landkönnunar- og frum-
kvæðishugarfari á nýrri öld. Einnig
mikilvægi þess að leita að hinu
óþekkta og halda inn á ótroðnar slóð-
ir. Líka til þess að skoða samhengi
víkingaferðanna við hafið. Það væri
eitt af því sem mannkynið þyrfti sér-
staklega að átta sig á; hvaða hlut-
verki haflð gegndi í heildarloftslag-
skerfi jarðarinnar. Þar væri fsland
sérstaklega vel í sveit sett því að
hreyfiafl þessara miklu hafstrauma
myndaðist í kringum ísland. Þannig
væri hægt að nota þúsund ára af-
mæli landafundanna til þess að lyfta
huganum til framtíðarinnar," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson.
Hann sagði að auk þessa hefðu
þeir Clinton meðal annars rætt um
íslendingasögumar. Ákveðið var að
Ólafur myndi senda honum þær ís-
lendingasögiu- sem eru að koma út í
enskri útgáfu.
Hugmyndinni um Snorra vel
tekið
„Ég nefndi líka við hann hugmynd
mína um kvikmynd um strákinn
Snorra og það þótti honum skemmti-
leg hugmynd. Ég er sannfærður um
að það verður skoðað mjög rækilega
á næstunni hvernig íslendingar,
Bandaríkjamenn og aðrir geti tekið
höndum saman til að minnast landa-
fundanna," sagði Ólafur Ragnar.
-S.dór
DV
Forseti íslands í Bandaríkjunum:
Heldur sig við
stefnu íslenskra
stjórnvalda
- samráö um fund með Clinton, segir Davíð
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir Ólaf Ragnar Grímsson, for-
seta íslands, ekki hafa gengið of
langt í yfirlýsingum í heimsókn
sinni tO Bandaríkjanna. Það hefur
vakið nokkur
viðbrögð hversu
opinskár forset-
inn hefur verið í
málum á borð
við samskiptin
við ESB og sjáv-
arútvegsstefnu
sambandsins.
„Forsetinn sit-
ur blaðamanna-
fund þarna fyrir
vestan og ef
hann væri mjög
strangur hvað
þetta varðar þá
gæti hann neit-
að að svara flest-
um spurningun-
um þar sem um
væri að ræða
stjómmálalegar
spurningar. Þá
yrði lítið úr
blaðamanna-
fundinum. Hann
fer því hina leið-
ina og gerir
grein fyrir því
hver sé stefna ís-
lenskra stjórnvalda. Ég sé ekki
annað en að hann haldi sig alveg
við þá stefnu. Orðalagið ákveður
hann alveg sjálfur en ég sé hvergi
að hann tali um eitthvað sem ekki
er skoðun meirihluta Alþingis og
ríkisstjómarinnar. I Evrópumál-
um lýsir hann nákvæmlega þeirri
stefnu sem er við lýði,“ segir Dav-
ið.
Titringur
Það hefur valdið nokknun titr-
ingi meðal embættismanna að for-
setinn er sagður hitta Clinton
Bandaríkjaforseta sem og A1 Gore
varaforseta án þess að viðkomandi
ráðuneyti komi þar nærri. Emb-
ættismaður, sem DV ræddi við í
gær, sagði að „menn héldu bara
um höfuðið" vegna yfirlýsinga for-
setans sem væri kominn langt út
fyrir svið sitt. Davíð segist ósam-
mála því og
hann segir fullt
samráð vera
milli sín og for-
setans um það
sem snýr að
heimsókninni.
Samráð
„Við höfum
rætt saman ég
og forsetinn og
það lá ljóst fyr-
ir þegar hann
fór að hann
myndi hitta
Gore varafor-
seta á heimili
hans. Hann
hafði sagt mér
af því og fór
yfir það hver
væru líkleg-
ustu umræðu-
efnin. Síðan
sagði hann mér
að það væri í
athugun á veg-
um bandaríska
sendiráðsins
hér að Clinton myndi taka á móti
honum á stuttan fund en það var
þó ekki ákveðið. Þá varð sú niður-
staða að ef af þeim fundi yrði
myndum við tala saman,“ segir
Davið.
Hann segir að þegar fyrir lá að
af fundinum með Clinton yrði þá
hefðu hann og forsetinn talað sam-
an í síma.
„Við áttum langt símtal um
væntanlegan fund þar sem við fór-
um yfir málin. Það var enginn
ágreiningur milli okkar hvemig
ætti að leggja fundinn upp og hver
umræðuefnin yrðu. Það er hins
vegar ekki víst að öll þau mál hafi
komist að,“ segir Davíð. -rt
Davíö Oddsson forsætisráöherra
segir fullt samráö vera milli sín og
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
íslands, um fundina meö forseta og
varaforseta Bandaríkjanna.
DV-mynd Hilmar Þór
Dagfari
Fleiri þurfa áfallahjálp
Dagfari komst að þeirri niður-
stöðu um daginn að knattspyrnu-
þjálfarar, sem nú em reknir um-
búðalaust, ef þeir sigra ekki í
hverjum leik, þyrftu á áfallahjálp
að halda. Það fer hins vegar ekki á
milli mála að blessaðir þjálfararnir
em ekki þeir einu sem þurfa slíka
hjálp. Verklalýðsforingjar þurfa
líka áfallahjálp. Þeir eru alveg mið-
ur sín, flestir hverjir, eftir úrskurð
Kjaradóms um launahækkanir til
nokkurra embættismanna. Þá sér í
lagi vegna launaumbunar dómara.
Hún fer alveg rosalega fyrir brjóst-
ið á verkalýðsforingjum. Ögmund-
ur Jónasson segir nú síðast að
ákvörðun Kjaradóms „sé svívirða"
og má vart mæla fyrir geðshrær-
ingu.
Fulltrúi Prestafélagsins segir að
prestar „séu æfir“ og svo mætti
áfram telja. Forseti ASÍ, formaður
Verkamannasambandsins og fleiri
og fleiri eru nánast lamaðir af von-
brigðum, hryggð og hneykslan.
Allt út af Kjaradómi.
Dagfari hefur verulegar áhyggj-
ur af heilsu og sálarheill þessara
manna. Einkum er vert að taka
það alvarlega þegar prestar segjast
vera æfir, bókstaflega æfir af bræði
og reiði vegna þessarar hækkunar
á launum embættismanna og þá
einkum dómara.
Eftir því sem best verður skilið
hafa aðrir fengið meira heldur en
prestar og dómarar fengu mikið
meira en aðrir. Prestar fengu að
vísu einnig hækkun, en ekki eins
mikið og hinir og þess vegna eru
þeir æfir. Þeir geta ekki þolað að
aðrir fái meira en þeir og þegar
prestarnir eru orðnir argir og æfir
má búast við að þeir geðsmunir fái
útrás í stólræðum prestanna og
það er líka hætta á aö prestar nái
ekki tökum á geðshræringu sinni
þegar þeir veita öörum sáluhjálp
og áfallahjálp og þess vegna þurfa
þeir sjálfir áfallahjálp til að komast
yfir áfallið.
Enginn getur neitað því að það
er áfall fyrir hinn almenna laun-
þega þegar kauphækkanir eru
samþykktar. Það er verulegt
bakslag fyrir verkalýðsforystuna
þegar Kjaradómur úrskurðar að
einhverjar stéttir í þjóðfélaginu
eigi skilið að fá hækkuð laun. Laun
mega að vísu hækka stundum en
það verður að gerast með sam-
ræmdum hætti og enginn hefur
leyfi til að fá meiri hækkun en þá
hækkun sem verkalýðsforingjamir
hafa skrifað undir. Annars er hún
ómark og svívirða.
Prestar eru stéttvísir menn og
þeir eru sér betur meðvitandi um
þetta jafnrétti heldur en aðrir. All-
ir eiga að vera jafnir fyrir guði. Og
þegar svo kemur í ljós að Kjara-
dómur vogar sér að láta suma hafa
meira en aðra og dómara meira en
presta þá misbýður það réttlætis-
kennd prestanna sem geta auðvitað
alls ekki skilið né fyrirgefið að
einn skuli bera meira úr býtum en
annar.
Það hefði að sjálfsögðu verið í
lagi ef prestarnir eða einhverjir
aðrir með þeim hefðu fengið aðeins
meira en aðrir, enda er Prestafélag-
ið myndað utan um hagsmuni og
kjaramál presta, en sú hagsmuna-
barátta gengur ekki eingöngu út á
að bæta hag presta heldur líka að
koma í veg fyrir og mótmæla því
að aðrar stéttir fái meira heldur en
prestamir.
Þetta er í samræmi við grátkór
verkalýðsforingjanna sem eru allir
af vUja gerðir tU að bæta hag lág-
launaðra, svo framarlega sem upp
á það er passað að aðrir fái ekki
það sama. Þegar það bregst þurfa
menn á áfaUahjálp að halda.
Dagfari