Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 24. JULÍ 1997
5
DV
Fréttir
Nýjasta afsprengi kvótakerfisins:
stétt soðkarla
- fullt starf aö vakta þorskstofninn fyrir almenningi
Geysilegt magn er nú af þorski
inni á vestfirskum fjöröum. Eins
og DV skýrði frá hefur verið met-
veiði hjá smábátum. Þá mokveið-
ist nú þorskur á sjóstöng frá
bryggjum og brúm í fjórðungnum.
Þeir sem róið hafa á aflamarki eru
flestir búnir með kvóta sína.
Þannig eru það aðeins krókabátar
á sóknardögum og ný stétt
soðkarla sem enn geta veitt þorsk.
Soðkarlar eru þeir sem ekki
hafa veiðileyfi með formlegum
hætti en veiða í skjóli laga um
stjórn flskveiða þar sem segir að
hver íslendingur megi veiða sér og
fjölskyldu sinni til matar. Sam-
kvæmt lögunum mega þeir aðeins
vera með einn krók og færi sem er
án allrar sjálfvirkni. Þannig er nú
sprottin upp lágstétt þeirra sem
flskveiðar stunda. Nokkuð margir
slíkir eru nú I vestfirskum sjávar-
plássum og þeir hafa veitt margir
hverjir mjög vel vegna mikillar
fiskgengdar. Þannig eru dæmi um
að einstaklingar hafl Fiskað nokk-
ur tonn af þorski yfir sumarið og
þannig náð að metta heilu stórfjöl-
skyldurnar.
Veiðieftirlit Fiskistofu hefur
óskað eftir því að fá til eftirlits
hraðflskibáta sem Þróunarsjóður
sjávarútvegsins hefur keypt og úr-
elt.
Pétur Sigurðsson, forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða, segist
hafa orðið hinnar miklu fisk-
gengdar var eins og aðrir Vest-
flrðingar. Hann segir það væntan-
lega verða fullt starf fyrir Fiski-
stofu að passa upp á að almenn-
ingur gangi ekki harkalega á
þorskstofninn.
„Það er að verða fullt starf fyrir
veiðieftirlitið að passa upp á fólkið
sem er að veiða þorsk af brúm í
Gilsflrði, Dýraflrði og Skutulsfirði,"
segir Pétur.
-rt
Utanríkisráöuneytið:
Samið viö
Rússa um
sjávarút-
vegsmál
í næsta mánuði er gert ráð
fyrir að ljúki gerð samnings
milli íslendinga og Rússa um
sjávarútvegsmál. Hvenær undir-
ritun fer fram liggur ekki fyrir.
Jóhann Sigurjónsson sendi-
herra sagði að hér væri um að
ræða tvíhliða samning milli
þjóðanna um samskipti á sjávar-
útvegssviðinu. í honum verður
Qallað um öll viðskipti og sam-
skipti þjóðanna á því sviði.
Jóhann sagði að til væri tak-
markaður samningur milli þjóð-
anna sem sneri að rannsóknum
og vísindum. í nýja samningnum
væri verið að ræða um alla hluti
er snúa að samskiptum þjóðanna
á sviði sjávarútvegsmála.
„Við vonumst til þess að
styrkja með þessu jákvæð sam-
skipti þjóðanna," sagði Jóhann
Sigurjónsson.
Hann sagði ekki tímabært að
fara út í nánari efnisatriði enda
samningurinn ekki frá genginn.
Þess má geta að samningurinn
hefur enn ekki verið tekinn fyr-
ir í utanríkismálanefnd og ekki
heldur sjávarútvegsmálanefnd
Alþingis. -S.dór
Bragi Þorsteinsson, eigandi Aðalbjargar, fékk einn 2,5 tonn á 16 tímum.
Hann er hér með tvo væna. DV-myndir Kristjana
Tálknafjöröur:
Fiskur alls staðar
DVTálknafirði
Mikill afli berst nú á land hér á
Tálknafirði af smábátunum. Gæftir
hafa verið góðar undanfarið og mik-
ið veiðst af stórum og góðum þorski.
Mestur afli er 3,7 tonn yfir daginn
hjá einum manni. Hann var á skaki
í níu tíma.
Júníaflinn hjá smábátunum, sem
hér lönduðu, var 687 tonn í 354
veiðiferðum á 38 bátum. Að sögn
Ársæls Egilssonar hafnarvarðar var
aflinn í síðustu viku, 13.-19. júlí, 136
tonn í 62 veiðiferðum á 29 bátum.
Allt er þetta stór og áberandi góð-
ur fiskur. Dæmi eru um að bátar
hafl farið hér út á fjörð og fengið 700
kíló á nokkrum tímum. Það er
greinilega fiskur um allan sjó og
nánast sama hvar dýft er færi. Alls
staðar flskur. Aflinn, sem berst að
landi, er að mestu unninn hjá Þórs-
bergi, Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar
og Útnausti. -KA
Ársæll hafnarvörður við vigtina.
HAFNARFJÖRÐUR • LAUGALÆKUR • SELFOSS • VESTURLANDSVEGUR