Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
7
Fréttir
Fjárlagagerð í fuUum gangi:
Áfram aðhald í
velferðarmálunum
- segir Jón Kristjánsson, formaður Qárlaganefndar
„í sambandi við yfirstandandi
fjárlagagerð ætla menn að skila rík-
issjóði á árinu 1998 með hagnaði.
Þar er verið að tala um 1,5 milljarða
króna sem er svo sem ekki stór upp-
hæð en afgangur samt. Ég tel að það
eigi að vera hægt að skila ríkissjóði
meö hagnaði á næsta ári eins og
virðist ætla að verða í ár,“ sagði Jón
Kristjánsson, formaður fjárlaga-
nefndar, en um þessar mundir er
unnið af fullum krafti við gerð fjár-
laga næsta árs.
Hann var inntur eftir því hvort
áfrarn yrði skorið niður i heilbrigð-
ismálum og skólamálum eins og
gert hefur verið undanfarin ár?
„Ég samþykki ekki þá kenningu
að það hafi verið skorið niður í til
að mynda heilbrigðismálunum. Það
hafa verið settir
meiri peningar
bæði í heilbrigð-
is- og trygginga-
málin. Hins veg-
ar hafa þarfimar
í þessum mála-
flokkum vaxið
gífurlega síðustu
árin. Því hefur ef
til vill ekki verið
mætt eins og
menn vilja. Ég
hef þá trú að það
sé nauðsynlegt
að hafa áfram að-
hald í þessum
málaflokkum.
Útgjöld til þeirra
munu þó vaxa
vegna þess að
öldruðum fjölgar
og þeim fjölgar
sem eru á örorku-
bótum. Þá hefur
lyfjakostnaður
farið mjög mikið
upp hjá ríkinu á
undanförnum
árum. Nú virðist
aftur á móti sem
þau markmið
sem sett voru fyr-
ir árið 1997 séu
að nást. Lyfja-
kostnaður hefur
ekki vaxið í sama
mæli og árin á
Jón Kristjánsson: 1.5 milljarðar (af- undan,'1 sagði Jón
gang næsta ár. Kristjánsson.
Hann segir að vissulega auðveldi
uppgangurinn í atvinnulífinu og
þær auknu tekjur, sem ríkissjóður
hefur vegna þess, allan þennan slag.
Hann var spurður hvort hann ætti
von á miklum átökum við af-
greiðslu fjárlaga í haust eða hvort
betri afkoma ríkissjóðs og þjóðar-
búsins róaði alþingismenn i þeim
efnum.
„Ríkisfjármálin koma alltaf inn á
mjög viðkvæma þætti í þjóðfélaginu
eins og tryggingakerfið, heilbrigðis-
kerfið og menntamálin. Allt eru
þetta þættir sem eru mjög nálægt
fólki og eru viðkvæmir. Það verða
alltaf hörð skoðanaskipti um þau
málefni sem næst almenningi
standa,“ sagði Jón Kristjánsson.
-S.dór
Netto
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Danskar baðinnréttingar í
miklu úrvali. Falleg og
vönduð vara á vægu verði.
iFonix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
5606000
Rottueitur á víö og dreif í Qörunni við Ægisíöu:
Héldum aö þetta væru nammipokar
- segir Erna Kristín Sigurðardóttir
„Eg var á gangi
þarna í fjörunni með
litlum frænda mínum
þegar við sáum marga
poka liggja þarna á víð
og dreif. Við héldum
fyrst að þetta væru
nammipokar en þegar
nær var komið sá ég að
þetta var rottueitur,"
segir Erna Kristin Sig-
urðardóttir sem rakst
á rottueitrið í fjörunni
nálægt hreinsistöðinni
við Ægisíðu um helg-
ina.
„Þetta er auðvitað
mjög hættulegt. Það er
töluvert af börnum
þama á ferðinni og þau
gætu hæglega ruglast á
þessu og sælgæti. Litli
frændi minn vildi t.d.
ekki samþykkja annað en þetta
væri nammi þótt ég reyndi að út-
„Það er eitrað
þama í grjótin fyrir
rottunum og sér-
staklega í kringum
þessar stöðvar. Við
reynum að ganga
sem best frá eitrinu
þannig að það sjáist
ekki. Hvað þarna
hefúr gerst veit ég
ekki en ég mun
kanna málið. Það er
möguleiki að ein-
hver dýr, t.d. kettir,
hafi bitið í pokana
og dregið þá til. Ég
mun fara á staðinn
og kanna þetta því
þetta á ekki að vera
þama á víð og dreif,“
segir Guðmundur
Bjömsson, mein-
dýraeyðir hjá
Reykj avíkurborg.
-RR
Pokar með rottueitri. Krakkarnir sem fundu þá í fjörunni við Æg-
isíðuna í Reykjavík héldu fyrst að þetta væru „nammipokar".
DV mynd JAK
skýra fyrir honum að þetta væri
hættulegt," segir Ema Kristín.
Frosinn kjúklingur
Karat kaffi
400 gr
kr. 195
Tiiboðsverð
kr. 488 kg.
Hafnarfiröi s. 555 0292 ísafiröi s. 456 5460 Njarðvík s. 421 5404
Sérpantanir'
Aukahlutir
Varahlutir
Jeppabreytingar
Cherokee Grand LTD ‘94,
græns., ekinn 40 þús. km, leður,
ssk., rafm. í öllu, álf.
Verð 3.350.000.
Tilboð 2.950.000.
Daihatsu Rocky ES dísil tur-
bo ‘95, grás., 2,81,31“, álf.,
brettak., ekinn 36 þús.
Verð 2.310.000.
Tilboö 1.980.000.
Subaru Outback 2,5 1,4x4 ‘97,
rauð/grár, ek 2 þús. km, „Nýr“,
ABS, 15“ álf., airbag, aircond.
Verð 2.630.000.
Tiiboð 2.390.000.
Nissan Primera 2,0 SLX ‘95,
blásans, ssk.,
ekinn 89 þús. km.
Verð 1.510.000.
Tilboð 1.290.000.
Volvo 850 GLE ‘94, gulls., ek.
aðeins 29 þús. km, leður, ABS,
ssk., toppl., álf., spoiler, cruise,
Verð 2.310.000.
Tilboð 2.090.000.
BILALAN-
MMC Space Wagon 4x4 ‘91,
græns., 7 manna, ekinn 109
þús. km, 5g., álf.
Verð 930.000.
Tiiboö 795.000.
Ford Mondeo Chia ‘93, vínr.,
ekinn 54 þús. km, rafdr. í öllu,
toppl., álf., 5 g.
Verð 1.510.000.
Tilboð 1.290.000.
Citroen BX19 Trans 4x4 ‘91,
grás., ekinn 92 þús. km, rafdr. í
rúðum, centr.
Verð 770.000.
Tilboð 590.000.
MMC Lancer GLX ‘89,
laxableikur, 5 g., rafm. í rúðum,
centr., ekinn 129 þús. km. V
erð 570.000.
Tilboð 450.000.
Opel Corsa GLS ‘94,
5 d., vínr., 5 g., centr.,
vél 1400i.
Verð 850.000.
Tilboö 720.000.
Vagnhöföa 23
Sími 587-0-587