Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1997, Qupperneq 18
26
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
íþróttir
i>v
Landsmótið
Staða efstu manna á
landsmótinu í golfi:
Meistaraflokkur karla (1. dagur);
Kristinn G. Bjamason, GR........74
Helgi Birkir Þórisson, GS .......75
Björgvin Þorsteinsson, GA .......76
Björgvin Sigurbergsson, GK .... 76
ívar Hauksson, GKG...............77
Örn Ævar Hjartarson, GS.........77
Þorsteinn Hallgrimsson, GR .... 77
Sveinn Sigurbergsson, GK........77
Tryggvi Traustason, GK ..........77
Ragnar Ólafsson, GR..............77
Tryggvi Pétursson, GR ...........78
Birgir Haraldsson, GA............78
Friöbjöm Oddsson, GK ............78
Þórður E. Ólafsson, GL...........80
Sæmundur Pálsson, GR.............80
Þorkell S. Sigurðarson, GR ......80
Viggó H. Viggósson, GR...........80
Sigurpáll Sveinsson, GA .........80
Keppni í meistaraflokki
karla hefst klukkan 13.30 í
dag.
Meistarflokkur kvenna (1. dagur):
ÓlöfM. Jónsdóttir, GK ............72
Herborg Amarsdóttir, GR..........76
Þordís Geirsdóttir, GK............76
Ragnhildur Sigurðard, GR.........78
Konumar hefja leik í dag
klukkan 15.40.
1. flokkur karla, fyrsti dagur:
Auðunn Einarsson, GÍ.............75
Pétur Ó. Sigurðsson, GR..........75
Guðjón K. Þórisson, GB...........75
Ólafur H. Jóhannesson, GSE .... 75
Hörður Sigurðsson, GR............76
Guömundur Vigfússon, GR.........76
Ólafur A. Gylfason, GR...........76
Ólafur Þ. Ágústsson, GK..........76
2. flokkur, annar dagur:
Stefán B. Gunnarsson, GR.......156
Ámundi Sigmundsson.GR ..........163
Stefán S. Guðjónsson, GV .......164
Garðar Vilhjálmsson, GS........164
Kjartan Kristjánsson, GKG .... 165
Ivar Harðarson, GR..............165
Ragnar K. Gunnarsson, GR .... 165
2. flokkur kvenna:
Stefanía M. Jónsdóttir, GR ......88
Margrét Þ. Jónsdóttir, GK........89
Aðaheiður Jörgensen, GR .........91
Arna K. Hilmarsdóttir, GKJ .... 95
3. flokkur, annar dagur:
Ingibergur Jóhannsson, GR .... 181
Adolf H. Berndsen, GSK..........183
Guðmundur R. Bragason, GR ... 184
Elliði Norðdahl, GR.............184
Bjami Magnússon, GL.............184
Pétur L. Sigurösson, GR.........186
Láras Gunnarsson, GK ...........186
Steinar Ágústsson, GR...........186
Stig til landsliös
Karlar:
Björgvin Sigurbergsson, GK .... 203
Þorsteinn HaUgrímsson, GR .... 196
örn Æ. Hjartarson, GS ..........194
Björgvin Þorsteinsson, GA......161
Sigurður Hafsteinsson, GR......160
Konur:
Ólöf M. Jónsdóttir, GK..........188
Ragnhildur Siguröard, GR.......161
Þórdís Geirsdóttir, GK..........127
Herborg Amardóttir, GR...........92
Landsmótið í golfi:
Kristinn og Olöf leiða
eftir fyrsta hringinn
- hörð keppni hjá körlunum en Ólöf með góða forystu hjá konunum
Eftir fyrsta keppnisdaginn í
meistaraflokkum karla-
og kvenna á landsmót-
inu í golfi á Grafar-
holtsvelli hefur Kristinn
Gústaf Bjarnason, GR, foryst-
una hjá körlunum en Ólöf Mar-
ía Jónsdóttir, GK, hjá konun-
um.
Kristinn hefur leikið á 74 högg-
um eða þremur höggum yfir pari
vallarins. Hann lék fyrstu níu hol-
urnar á 39
ijjSS' höggum og síð-
ari níu holurn
Björgvin Sigur-
bergsson, GK, lék
á 76 höggum og
er á meðal efstu
manna.
ar á 35 höggum. Helgi Birkir Þóris-
son, GS, kemur fast á hæla Kristins
en hann lauk keppni í gær á 75
höggum. Aðstæður voru ekki sem
bestar i gær, hvasst var í veðri og
rigningasuddi. Skorið hjá keppend-
um eftir þennan fyrsta dag var því
ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Viggó H. Viggósson, GR, var með
forystuna eftir fyrstu 9 holumar.
Hann lék þær á 35 höggum en á síð-
ari níu gekk allt á afturfórunum hjá
honum og hann kom inn á 46 högg-
um.
Hjá kvenfólkinu lék Ólöf Maria
Jónsdóttir, GK, mjög vel og gott for-
skot eftir fyrsta hringinn. Ólöf hef-
ur leikið á 76 höggum og hefur
fimm högga forskot á Herborgu
Arnarsdóttur, GR, og Þórdísi Geirs-
dóttur, GK.
„Þetta er búið að ganga vel svona
í byrjun. Það er mikil keyrsla á
tveimur völlum og í morgun þegar
okkur bestu kylfingar mættu til
leiks þá fengum við eins og vana-
lega íslensku rokröðina en nú er
farið að lægja enda meistara-
flokkurinn kominn í hús í dag.
Það virðist vera einhver
\ stefna hérna að þegar þeir
bestu eru að spila þá
, • þurfi að blása hressilega
0 til þess að kæla þá nið-
w ur,“ sagði Sigurjón Am-
arson, Landsmótsstjóri,
eftir fyrsta keppnisdag
meistaraflokkanna í golfi á
Landsmótinu í Grafarholti.
„Fer vel af stað“
„Mér líst bara vel á byrjun. Korp-
úlfsstaðir fóru vel af stað á þriðju-
daginn og menn eru svona smátt og
smátt að átta sig á vellinum þar. í
Grafarholti hefur gengið ágætlega
og skorið á fyrsta degi bara svona
eftir aðstæðum. Það er í sjálfu sér
ekkert auðvelt að spila í svona
sterkum vindi. Úrslitin í dag koma
mér í sjálfu sér ekkert á óvart. Mér
finnst þetta skor, 74-75, bara gott í
dag (í gær).
Hjá meistaraflokki karla er þetta
búið að vera voðalega jafnt en með-
alskorið, 81, ekkert sérstaklega gott.
Mér sýnist það á öllu að þetta verði
nokkuð jafnt og skemmtilegt hjá
strákunum en á þó von á því að
landsliðsmennirnir verði framar-
lega. Hjá stelpunum hefur Ólöf Mar-
ía Jónsdóttir nokkuð góða forystu, 5
högg, og spilaði mjög vel en þetta er
aðeins fyrsti dagur af fjórum.“
Korpúlfsstaðir erfiðir
„Mér skilst á keppendum í 2. og 3.
flokki karla á Korpúlfsstöðum að
þeim líki almennt vel við völlinn en
hann er þeim erfiður og fljótur að
refsa ef mistök eru gerð. Menn eiga
bara eftir að öðlast meiri reynslu á
þessum nýja velli og þurfa að vera
tilbúnir til að hugsa hann rétt og
ætla sér ekki of mikið. Þetta er allt
óráðið í hærri forgjafarflokkunum
og 2-3 högg fljót að fara út í veður
og vind og úrslitin ráðast örugglega
ekki þar fyrr en i blá lokin.,“ sagði
Sigurjón við DV þegar farið var að
líða á seinni hluta annars keppnis-
dags á Landsmótinu í golfi.
í 1. flokki karla er keppni geysi-
hörð og eftir fyrsta hringinn eru
fjórir kylfingar jafnir í efsta sæti
með 75 högg. Í2. flokki karla er
gamla handboltastjarnan úr Val og
landsliðinu, Stefán Gunnarsson,
kominn með gott forskot en hann
hefur leikið á sjö höggum færra en
Ámundi Sigmundsson, fyrrum
knattspyrnukappi.
-ÖB/GH
Ólöf María Jónsdóttir, GK, er með fimm högga forskot eftir fyrsta
keppnisdaginn í kvennaflokki á landsmótinu í golfi. Keppni heldur áfram í
dag á Grafarholtsvelli. DV-myndir Pjetur
Erfitt hjá Skagamönnum
- töpuðu fyrir Kosice í Slóvakíu, 3-0, og róðurinn verður þungur í seinni leiknum
íslands- og bikarmeistarar
Skagamanna töpuðu fyrir FC Kos-
ice, 3-0, í fyrri leik liðanna í und-
ankeppni meistaraliða Evrópu í
Slóvakíu i gær.
Tíu þúsund áhorfendur sáu Ro-
bert Smenik skora fyrsta markið á
30. mínútu, Dusan Toth það annað
á 48. mínútu og Miroslav Sovic það
þriðja á 64. mínútu.
Fljótir og léttleikandi
„Þetta var mjög erfitt enda mætt-
um við sterku, fljótu og léttleikandi
liði. Við lögðum upp í leikinn meö
það í huga að spila stífan varnar-
leik. Það gekk ágætlega framan af.
Við spiluðum flata vörn til að fiska
þá í rangstöðuna en þeir náðu að
sleppa í gegn á 30. mínútu og skor-
uðu fyrsta markið. Kjafshöggið
kom svo í upphafi síðari hálfleiks
þegar þeir skoruðu annaö markið
og eftir það var þetta erfítt. Tveggja
marka tap hefði verið ásættanlegt
og þá hefðum við átt meiri
möguleika á að komast áfram,“
sagði Gunnlaugur Jónsson, leik-
maður ÍA, viö DV í gærkvöldi en
Skagamenn voru þá nýkomnir til
Búdapest í Ungverjalandi þar sem
gistu í nótt.
Gunnlaugur sagði að Skaga-
menn hefðu ekki skapað sér nein
dauðafæri heldur nokkur hálffæri
en með smá heppni hefðu þeir get-
að skoraö.
Hann sagði að aðalstyrkur Kos-
ice fælist í sterkri liðsheild. Liðið
væri vel spilandi og mikið með
skiptingar á milli kantana.
Þar með er ljóst að róður meist-
aranna verður mjög þungur en síð-
ari leikur liðanna fer fram upp á
Skipaskaga í næstu viku. Það var
skarð fyrir skildi að í lið ÍA vant-
aði nokkra leikmenn. Ólafur Ad-
olfsson tók út leikbann, Alexander
Linta gat ekki tekið þátt í leiknum
þar sem vegabréf hans týndist á
leiðinni til Slóvakíu og þeir
Haraldur Ingólfsson og Sigur-
steinn Gíslason voru báðir meidd-
ir. Sigursteinn er meiddur í nára
en stefnir að því að vera með í
síðari leiknum á miðvikudaginn.
Logi Ólafsson stýrði Skagalið-
inu í fyrsta sinn á þessu tímabili
og hann tefldi fram sama liðinu all-
an leikinn sem var þannig skipað:
Þórður Þórðarson - Sturlaugur
Haraldsson, Gunnlaugur Jóns-
son, Steinar Adolfsson, Pálmi
Haraldsson - Unnar Valgeirs-
son, Alexander Högnason, Ólaf-
ur Þórðarson, Jóhannes Harðar-
sonj - Haraldur Hinriksson.
Tæplega 30 stiga hiti var í Kosice
á meðan leiknum stóð og var mikil
molla á vellinum enda alveg
verður stillt.
-GH
Jackson áfram
með Chicago
Phil Jackson verður áfram við
stjórnvölinn hjá NBA meistur-
unum í Chicago BuOs. Samning-
ur hans við félagið rann út eftir
tímabilið í júní og loks í gær tók-
ust samningar á milli hans og
forráðamanna Chicago um að
hann þjálfi liðið í að minnsta
kosti eitt ár til viðbótar.
Jackson verður hæst launað-
asti þjálfarinn i deildinni en fær
6 milíjónir dollara. Jackson hef-
ur náð frábærum árangri með
liöið og hefur gert það að meist-
urum fimm sinnum á síðustu sjö
árum.
Þungu fargi er því létt af for-
ráðamönnum Chiacgo en snill-
ingurinn Michael Jordan sagðist
ætla að hætta ef Jackson yrði
ekki áffam með liðið. -GH